Tíminn - 29.06.1991, Blaðsíða 1
i
Hefur boðað frjálslyndi og framfarir í sjö tugi ár
GARDAGUR 29. JUNÍ
Steingrímur Hermannsson á hádegisverðarfundi um horfurn-
ar í atvinnumálum undir ríkisstjórn Davíðs Oddssonar, sem
virðist ætla að láta íslenska atvinnuvegi sigla sinn sjó:
Afskiptaleysið er
jafngilt dauðadómi
„Núverandi ríkisstjóm hefur tekið upp þá
stefnu að hafa sem minnst afskipti af ís-
lensku atvinnulífi. Sú stefna jafngildir
dauðadómi,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son, formaður Framsóknarflokksins, á há-
degisverðarfundi í gær. Steingrímur Ijallaði
um stjómmálaástandið almennt og sagði
Ijóst að stjómarstefnan hefði þegar haft
þau áhríf að verðbólguhjólið værí á ný tek-
ið að snúast. Við því yrði að bregðast þeg-
ar í stað. Framsóknarmenn hygöust leggja
sitt af mörkum í samráði við verkalýðs-
hreyfinguna til að það mætti takast.
• Blaðsíða 22
Hvar er regnið? Þessir eriendu ferðamenn voru viðbúnir rigningu í
Reykjavík í gœr. Þótt þungskýjað væri lét regnið þó á sér standa og aldrei varð meiri
úrkoma en smá súldarvottur.
Tímamynd: Pjetur
radarnemar og þjófavarnarkerfi
SKIPHOLT119
SÍMI29800