Tíminn - 29.06.1991, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Laugardagur 29. júní 1991
Willy Brandt, fyrrum kanslari Vestur-Þýskalands, hélt fyrirlestur og blaðamannafund í gær:
EB aö vera
aðgengilegra
Willy Brandt, fyrrum kanslari Vestur-Þýskalands, kom til lands-
ins á fímmtudag. í gær heimsótti Brandt Háskóla lslands, snæddi
miðdegisverö í boði forseta íslands að Bessastöðum, fór í skoð-
unarferð um Reykjavík og snæddi kvöldverð í Höfða í boði forseta
borgarstjórnar, Magnúsar L. Sveinssonar, og konu hans.
Mesta eftirvæntingu vakti þó fyr-
irlestur Brandts í Háskólabíói í
gær. Þar lagði Brandt raunsætt
mat sitt á þróun mála í Evrópu, og
þá sérstaklega út frá reynslu sinnar
eigin þjóðar. Að mati Brandts eru
sameining Þýskalands og Evrópu-
bandalagið náskyldir hlutir. Einnig
talaði hinn aldni stjómmálamaður
um nauðsyn þess að efla Samein-
uðu þjóðirnar og alþjóðleg lög.
Táldi hann það vera mikið og að-
kallandi verkefni, sem Evrópuþjóð-
irnar myndu taka þátt í af fullum
þunga.
Á fundi með blaðamönnum, sem
Willy Brandt boðaði til á Hótel
Sögu í gær, talaði hann m.a. um
Evrópubandalagið. Kvaðst hann
þeirrar skoðunar að EB ætti að vera
eins opið og mögulegt væri fyrir
þau EFTA-ríki, sem sækja vildu um
inngöngu. „Ég er ekki sammála því
sjónarmiði að ríki, sem sækja um
inngöngu, eigi að bíða fram í næsta
áratug eftir því að fá aðild,“ segir
Brandt. Hann telur einnig að EB
eigi að vera aðgengilegra fyrir ríki
Austur-Evrópu og telur að Pólland,
Ungverjaland og Tékkóslóvakía
gætu og ættu að sækja um inn-
göngu í bandalagið.
í huga Brandts snýst innganga í
bandalagið ekki einungis um hag-
stæð viðskipti, heldur einnig um
það hvort viðkomandi ríki vilji hafa
áhrif og taka þátt í mikilvægum
ákvörðunum er varða Evrópu.
Hann telur að litlar þjóðir líkt og
ísland geti bæði haft áhrif og hald-
ið sjálfstæði sínu. Brandt kvaðst þó
hafa skilning á sérstöðu íslendinga
hvað varðar fiskveiðimál.
Willy Brandt talaði einnig um
Þýskaland og kvaðst hafa orðið var
við góðan skilning íslendinga á
þýskum málefnum. Hann benti á
að sameining Austur- og Vestur-
Þýskalands opnaði leiðina til Aust-
ur-Evrópu. Hann impraði á þeirri
skoðun margra að sameinað Þýska-
Willy Brandt á blaöamannafundi í gær. Á bak við hann getur að líta
þýska sendiherrann hér á landi, dr. Gottfríed Pagemstert
Ttmamynd: Pjetur
land muni raska valdajafnvægi í
Evrópu og kvaðst ekki vera sam-
mála því. Hann kvaðst vongóður
um að þrátt fyrir ýmis vandamál,
sem sameiningunni hafa fylgt,
muni hún leiða af sér nýtt og betra
Þýskaland.
í dag mun Willy Brandt halda til
Þingvalla og snæða þar hádegis-
verð í boði Jóns Baldvins Hanni-
balssonar. Þá mun hann virða fyrir
sér náttúruperlur, s.s. Gullfoss og
Geysi. Germanía býður síðan
Brandt í kvöldverð í Viðey. Á
sunnudag heldur Willy Brandt af
landi brott. GS.
Grandi átti 610 milljóna skattalegt tap í lok síðasta árs:
Grandi græddi fyrst 5 ára
Grandi skilaói árið 1990 hagn- síðasta árs, og væntanlega einnig
aði í fyrsta sinn síðan félagiö var af áætluöum 220 m.kr. hagnaði
stofnaö árið 1985, meö samruna þessa árs, því í árslok átti það
BÚR og ísbjamarins. Hagnaður- ójafnað skattalegt tap fyrrl ára
inn í fyrra nam um 190 m.kr., eða upp á um 610 mifíjénir króna.
um 6,7% af rekstrartekjum, sam- Heildarafli Grandatogara var um
kvæmt fréttabréfl VÍB. Arösemi 28 þás. tonn á sfðasta árf og um
eigin fjár var 19% Og cigintjár- 18 þús. tonn á fyrstu átta rnánuð-
hlutfall 40%. Féfagið mun þé um þessa árs.
sleppa viö tekjuskaft af hagnaði
Nokkrír gesta við vígslu stjómsýsluhúss á Sauðárkróki.
Tímamynd: G.Ó.
Fógeti, sýslumaður og lögregla Skagafjarðar undir eitt þak:
Stjór nsýsl uhús á Sauðárkróki
Frá fréttaritara Tímans á Sauöárkrólri, Guttormi Óskarssyni.
Sýslumannsembættið í Skagafírði og bæjarfógetaembættið á
Sauðárkróki hafa nú flutt í nýtt húsnæði að Suðurgötu 1, en
húsið var formlega tekið í notkun þriðjudaginn 25. júní.
Það er skemmtileg tilviljun að um
þessar mundir eru liðin 100 ár síð-
an sýslumannsembættið var flutt
til Sauðárkróks, en áður bjuggu
sýslumennirnir á sveitabæjum
víðsvegar um héraðið.
Dómsmálaráðherra, Þorsteinn
Pálsson, og bæjarfógeti, Halldór Þ.
Jónsson, höfðu af þessu tilefni boð
inni þennan dag og gafst gestum
kostur á að ganga um þessa glæsi-
legu byggingu og skoða hana.
Þorsteinn Pálsson bauð gesti vel-
komna með stuttu ávarpi, en Hall-
dór Þ. Jónsson skýrði þá miklu
þörf, sem verið hefði á því að koma
embættinu í rýmra húsnæði en
það hafði, og lýsti hann bygging-
unni ítarlega.
Bæjarfógeti taldi þetta stóran dag
og mikil tímamót fyrir starfsfólk
embættisins og fyrir bæ, hérað og
alla þá sem reka þyrftu erindi við
embættið, sem nú flytti úr lélegri
og erfiðri aðstöðu í frábærlega
góða.
Sýsluskrifstofan er 476 fermetrar,
en lögreglustöðin á neðri hæð er
335 fermetrar, þar af er 60 ferm.
bílageymsla. Framreiknaður
kostnaður við bygginguna er ná-
lægt 70 milljónum kr.
Arkitektar hússins eru Árni Ragn-
arsson arkitekt á Sauðárkróki og
Páll Zóphaníasson byggingatækni-
fræðingur í Vestmannaeyjum.
Aðalverktaki við byggingu húss
og smíði innréttinga var Hlynur
hf. Yfirsmiður var Bragi Haralds-
son byggingameistari.
Frá Tryggingastofnun ríkisins:
Nýjar upphæðir bóta
Tryggingastofnun ríkisins hefur ákveðið nýjar upphæðir helstu
bótaflokka almannatrygginga. Þær taka gildi frá og með næstu mán-
aðamótum.
Frá og með 1. júlí eru mánaðar-
greiðslur þessar: Grunnupphæð elli-
og örorkulífeyris er 12.123 kr„ hálf-
ur hjónalífeyrir er 10.911 kr., full
tekjutrygging 26.320 kr., heimilis-
uppbót 8.947 kr. og sérstök heimilis-
uppbót er 6.154 kr. Barnalífeyrir og
meðlag með hverju barni 7.425 kr.,
foreldralaun með einu barni er
4.653 kr„ með tveimur 12.191 kr. og
með þremur bömum eða fleirum
21.623 kr. 6 mánaða ekkju- og ekk-
ilsbætur eru 15.190 kr. og 12 mán-
aða 11.389 kr. Fullur ekkjulífeyrir er
12.123 kr„ dánarbætur vegna slysa í
8 ár eru 15.190 kr. og fæðingastyrk-
ur 24.671 kr. Loks skal nefna vasa-
peninga vistmanna og vasapeninga
vegna sjúkratrygginga, þeir eru
10.000 þúsund kr. á mánuði.
Hvað varðar daggreiðslur eru fullir
fæðisdagpeningar 1.034 kr„ sjúkra-
dagpeningar einstaklings 571 kr„
sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á
framfæri 140 kr„ slysadagpeningar
einstaklings 654 kr. og slysapening-
ar fyrir hvert barn á framfæri 140 kr.
18% tekjutryggingaauki, sem
greiðist í júlí, er inni í upphæðum
tekjutryggingar, heimilisuppbótar
og sérstakrar heimilisuppbótar.
-sbs.
Fræðimannsíbúð Húss Jóns Sigurðssonar úthlutað:
41 SÓTTU UM -
5 FENGU VIST
Fræðimannsíbúð samkvæmt regl-
um um Hús Jóns Sigurðssonar i
Kaupmannahöfn hefur veriö úthlut-
að fyrir tímabilið 1. sept 1991 til
31. ágúst 1992. Úthlutun fengu
þessir fræðimenn:
Dr. Hjalti Hugason, 1. sept. 1991 til
Skatta-
aðgerðir
Aðgerðir á vegum fjármála-
aráðuneytis í innheimtu útí-
standandi skattskulda lögaðila
og einstaklinga við ríldssjóð
munu heflast þann 1. júlí.
Stefnt er að því að þessar að-
gerðlr verði framkvæmdar
samtímis á öllu landinu og að
þeim verði lokið á sem
skemmstum tíma.
Útístandandi skuldir á virðis-
aukaskatti nema nú um 1.600
mllljénum kr., eða 4% af áætl-
uðum tekjum rikistjéðs af
virðisaukaskatti í ár. utístand-
andl staðgreiðsluskuldir nema
um 1.700 mifijónum kr. GS
31. október, til að afla gagna fyrir rit
um sögu kristni á íslandi í 1000 ár.
Dr. Hrafnhildur Ragnarsdóttir, 1.
nóv. til 31. des. til að vinna að sam-
anburðarrannsóknum á skilningi ís-
lenskra og danskra barna á hugtök-
um og orðaforða yfir fjölskylduvensl.
Dr. Unnsteinn Stefánsson, 1. jan. til
31. mars, til að vinna að riti um haf-
fræði og afla heimilda í sambandi við
rannsóknir á íslenskum vötnum sem
sjór gengur inn í. Dr. Sigfús A.
Schopka, 1. apr. til 31. maí, til að
tjúka ritgerð um þorskstofninn við
lsland á tímabilinu 1930 til 1990 og
athuga í samvinnu við Grænlensku
fiskirannsóknastofnunina í Kaup-
mannahöfn samspil íslenska þorsk-
stofnsins við grænlensku þorsk-
stofnana. Grétar Unnsteinsson, 1.
júní til 31. ágúst, til að afla heimilda
í Danmörku um upphaf íslenskrar
garðyrkju og kynna sér fræðslu og
menntun í umhverfismálum. Alls
barst 41 umsókn um fræðimanns-
íbúðina.
í úthlutunarnefndinni eiga sæti
Guðrún Helgadóttir alþingismaður,
Ingvi S. Ingvason, sendiherra í
Kaupmannahöfn og formaður
stjórnar Húss Jóns Sigurðssonar, og
dr. Þórir Kr. Þórðarson prófessor.
—Fréttatílkynning