Tíminn - 17.07.1991, Page 3

Tíminn - 17.07.1991, Page 3
Miðvikudágur 17. júlí 1991 „ , 4- i Tírriinn 3 Atríöi úr myndinni Böm náttúrunnar, sem fhimsýnd verður í lok mánað- aríns. Þorsteinn Pálsson um fréttir þess efnis að hann einn standi í vegi ríkisstjórnarinnar fyrir kvótaleigu: Forsætisráðherra gefur upplýsingar um hulduráðherra Börn náttúrunnar: Frumsýnd um mánaðamótin Eftirvinnsla á kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Böm náttúr- unnar, er nú á lokastigi og er áætl- að að frumsýna hana í Stjömubíói þann 31. júlí nk. Myndin segir frá gömlum bónda norður í Skagafirði, sem bregður búi og leitar á náðir ættingja sinna í höfuðborginni. En þar eru ýmsir þröskuldar í veginum; langvarandi sambandsleysi og óbrúanlegt kyn- slóðabil veldur því að honum er komið fyrir á elliheimili. Þar hittir hann æskuást sína, sveitunga sinn frá Homströndum, en þaðan höfðu þau bæði flosnað upp fyrr á öldinni og misst sjónar hvort af öðm. Takast með þeim kynni á nýjan leik og ákveða þau að vitja æskustöðvanna og strjúka af elliheimilinu. Ævintýri hefjast á vegum úti, á jeppa teknum ófrjálsri hendi. Umfangsmikil lög- reglurannsókn er hrundið af stað, en dularfullir atburðir taka að ger- ast. Aðalhlutverk eru í höndum Gísla Halldórssonar og Sigríðar Hagalín. Með önnur hlutverk fara m.a. Egill Ólafsson, Baldvin Halldórsson, Rú- rik Haraldsson, Margrét Ólafsdóttir, Hallmar Sigurðsson, Tinna Gunn- laugsdóttir, Valgerður Dan, Magnús Ólafsson, Þórarinn Óskar Þórarins- son, Bryndís Petra Bragadóttir og þýski stórleikarinn Bmno Ganz fer einnig með lítið hlutverk í mynd- inni. Kvikmyndatöku annaðist Ari Kristinsson, hljóð gerði Kjartan Kjartansson, handritið er eftir Einar Má Guðmundsson og Friðrik Þór Friðriksson, klippari var Skule Erik- sen, tónlist samdi Hilmar Örn Hilm- arsson, leikmynd er eftir Geir Óttar Dýrbíts er enn leitað Þriðja hundsins, sem beit lömbin í Hmnamannahreppi á dögunum, er enn leitað. Farið hefur verið um sveit- ina, en leit hefur enn ekki borið árang- ur. Eins og Tíminn skýrði frá í síðustu viku, íyrstur íjölmiðla, vom það þrír hundar sem dauðbitu 35 lömb frá Skip- holti og Kotlaugum. Tveir hundanna þekktust og náðust strax og var þeim þegar lógað. Þess þriðja er ennþá leitað. Eitt lamb frá Kotlaugum hefúr drepist til viðbótar og því er heildarfjöldi lamb- anna, sem hafa drepist í þessum ófögn- uði, orðinn 36. Loftur Þorsteinsson oddviti sagði að það kynni að reynast erfitt að finna þriðja hundinn, því lýs- ing á honum hefði verið ónákvæm. Æg held að allt þetta íjaðrafok, sem varð í kringum þetta, hafi orðið til þess að menn gæta hunda sinna betur en eila,“ sagði Loftur. Sh/Selfossi Geirsson, framkvæmdastjóm var í höndum Vilhjálms Ragnarssonar, leikstjóri og framleiðandi Friðrik Þór Friðriksson. Meðframleiðendur vom Max fílm Berlin og Metro film Oslo. Böm náttúmnnar var fyrsta íslenska kvik- myndin til að fá styrk úr kvikmynda- sjóði Evrópu. Upptökur fóm fram víða um land síðasta sumar. Eftirvinnsla var í Noregi og Þýskalandi. Fjármálaráðherra hættir blaða- kaupum, sem skipta minni blöðin verulegu máli. Hann segir í frétta- tilkynningu að þetta hafí ekkert með 66 milljón króna styrkveitingu til dagblaðanna að gera. Fram- kvæmdastjórar dagblaðanna segja að þetta fé sé ætlað flokkunum til útgáfustarfsemi og Sjálfstæðis- flokkurinn fái bróðurpartinn. Fjármálaráðherra hefur ákveðið að segja upp, frá 1. ágúst, áskrift að 500 eintökum af öllum dagblöðunum sex, en kaupa sem fyrr 250 eintök sem að vísu em Iögbundin. Hann sendi fjölmiðlum fréttatilkynningu þess efnis í gær. Ráðherrann hyggst með þessu spara um 40 milljónir króna á ári. Það hefur farið talsvert fýrir brjóstið á fjölmiðlamönnum að í tilkynningu ráðuneytisins er látið að því liggja að dagblöðin hafi notið opinberra styrkja. Efnislega hljóðar greinin þannig: „Framangreind dag- blaðakaup hafa ekkert með beinar styrkveitingar til blaðanna að gera, en fjárlög yfirstandandi árs gera ráð fyrir að styrkur til blaðaútgáfu sam- kvæmt tillögum stjórnskipaðrar nefndar nemi rúmlega 66 milljón- um króna.“ Þess má geta að sam- kvæmt heimildum Tímans má gera ráð fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn fái í sinn hlut milli 25 og 30 milljónir af styrknum. Hann er veittur í þeim tilgangi að styðja flokkana vegna út- gáfustarfsemi á þeirra vegum og er þeim frjáls til ráðstöfunar. Fram- kvæmdastjórar nokkurra dagblað- anna voru inntir álits á þessum yfir- vofandi þrengingum blaða sinna. Högg en ekki banabiti „Ég veit ekki hvað fjármálaráð- „Ég hef nú ekki mikið meira um þetta að segja en að síðasta ríkis- stjórn lifði á einhverjum huidu- mönnum. Nú sýnist mér að DV hafí fundið einhvem huiduráð- herra í þessarí ríkisstjóra. Ég kann engin skil á honum né skoðunum hans, en verð að vísa þér einfaldlega á forsætisráð- herra til að fá nánari upplýsingar um hulduráðherra í þessari ríkis- stjóra og skoðanir hans. Þær eru mér með öllu ókunnar og ég kann engin skil á honum,“ sagði Þor- steinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra, þegar Tíminn bar undir hann frétt DV um að hann einn ráðherra væri andvígur því að rík- ið tæki upp kvótaleigu. í frétt DV í gær hefur Haukur Helgason að- stoðarrítstjórí orðrétt eftir ónafngreindum ráðherra að Þor- steinn sé sá eini í ríkisstjórninni sem „dragi lappiraar í sambandi herra er að hugsa með þessu. Ég hef frétt að þetta hafi verið ákveðið á flokksstjórnarfundi hjá Sjálfstæð- isflokknum í gær. Styrki, sem þing- flokkarnir fá til útgáfustarfsemi, nota þeir alfarið sjálfir," segir Krist- inn Finnbogason, framkvæmda- stjóri Tímans. Helgi Guðmundsson, einn af rit- stjórum Þjóðviljans, segir að ákvörðun ríkisins um að hætta blaðakaupum muni ekki ríða Þjóð- viljanum að fullu og sé ekki afger- andi fyrir útgáfu hans. Helgi segist ekki kannast við að heildarupphæð blaðastyrks til dagblaðanna nemi 66 milljónum króna. Hins vegar segir hann að hver flokkur fái ár hvert ákveðna upphæð greidda vegna útgáfumála þeirra. Þar á meðal segir hann að sé fé sem dag- blöðin fá. „Við bættum við áskrif- endum í vor sem leið og hefjum áskriftarátak í haust og verðum að standa okkur enn betur en áður,“ sagði Helgi að lokum. „Fjármálaráðherra veit að Valhöll og Sjálfstæðisflokkurinn eru rekin fýrir þessar 27 milljónir sem þeir fá í útgáfustyrk í ár. Þess vegna er bréf hans sent gegn betri vitund. Ef þetta verður til þess að útgáfa blað- anna stöðvast mun það skerða lýð- ræðið í landinu. Það er verið að ýja að því að það fé, sem rennur til flokkanna vegna útgáfumála og starfsemi á þeirra vegum, sé fé sem blöðin fái,“ segir Hákon Hákonar- son, framkvæmdastjóri Alþýðu- blaðsins. Hann segir að þessar sparnaðarað- gerðir ríkisstjórnarinnar geri þeim Alþýðuflokksmönnum erfitt fyrir, því hér sé um að ræða verulega stóran hluta áskrifenda blaðsins. Þorsteinn Pálsson við stefnu meirihluta ríkisstjórn- arinnar um að taka upp veiði- gjald.“ Hákon bætir við að það verði að koma fram að beinir styrkir til dag- blaðanna séu ekki fyrir hendi. Hann segir hluta af styrk þeim, sem Al- þýðuflokkurinn hafi fengið til út- gáfumála, hafa farið í að greiða upp gamlar skuldir blaðsins. Hugsun- ina á bak við útgáfustyrk til flokk- anna sagði Hákon þá að styrkja lýð- ræðið. -HÞ BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNIb ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar Þrengt að dagblöðunum: Ríkið hættir að kaupa 500 eintök Rök þess ráðherra, sem DV talar við og Þorsteinn kallar „hulduráð- herra", fyrir því að taka upp kvóta- Ieigu byggja á sömu forsendu og rök Þorsteins fyrir því að taka ekki upp kvótaleigu og því virðist um grundvallarágreining að ræða. Þorsteinn hefur gefið út opinbera yfirlýsingu um að sá óumflýjan- legi samdráttur í þorskveiðum, sem fýrirsjáanlegur er í kjölfar svartrar skýrslu Hafrannsóknar- stofnunar, ætti endanlega að sannfæra kvótaleigusinna um að útgerð á íslandi hafi ekki efni á nýjum útgjöldum. Hulduráðherr- ann segir hins vegar að verði heildaraflakvóti minni nú en áður aukist verðmæti og mikilvægi þess kvóta, sem eftir er, og því beri útgerðinni að greiða fýrir hann til ríkisins. Alþingismönnum, sem Tfminn ræddi við í gær um þetta mál, ber saman um að hér sé á ferðinni tímasprengja í ríkis- stjórninni, þó skoðanir séu nokk- uð skiptar um hversu langur kveikiþráðurinn í þeirri sprengju er, enda önnur ágreiningsefni á hverju strái sem mörg hver gætu reynst stjórninni skeinuhætt. Hitt sé Ijóst að stjórnarflokkarnir hafi gengið til samstarfs án þess að koma sér niður á stefnu í stjórnun fiskveiða, og því sé það mál allt galopið og flokkarnir ekki skuld- bundnir af neinum samþykktum eða „heiðursmannasamkomulög- um“, eins og einn stjórnarand- stöðuþingmaðurinn orðaði það. -aá/BG ---------\ JEPPA HJÓLBARÐ- ARNIR VINSÆLU Jeppahjólbarðar frá Suður-Kóreu: 215/75 R15, kr. 6.320. 235/75 R15, kr. 6.950. 30- 9,5 R15, kr. 6.950. 31- 10,5 R15, kr. 7.950. 31-11,5 R15, kr. 9.470. 33-12,5 R15, kr. 9.950. Hröð og örugg þjónusta. BARÐINN hf. Skútuvogi 2, Reykjavík Sfmar: 91-30501 og 91-84844 J

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.