Tíminn - 17.07.1991, Side 8

Tíminn - 17.07.1991, Side 8
8 Tíminn Miðvikudagur 17. júlí 1991 Matvælasýning í New York: íslenskt bergvatn meðfyrstu verðlaun íslenskt bergvatn hf. hlaut fyrstu verðlaun fyrir frábæra hönnun um- búða á sýnlngunni „Fancy Food Show“ í New York. Þessi sýning var haldin dagana 7. til 10 júlí. Eigend- ur sýningarinnar eru samtök þeirra sem versla með sérstök matvæli eða NASFT. í tengslum við sýninguna halda þessi samtök árlega sam- keppni í nokkrum flokkum og eru úrslitin síðan tilkynnt á sýning- unni. Yfir þúsund fýrirtæki tóku að þessu sinni þátt í sýningunni og nokkrir tugir þúsunda sýningar- gesta komu á sýninguna. Vilhjálmur Guðmundsson hjá Út- flutningsráði sagði að það hefði ver- ið ljóst í upphafi sýningarinnar að íslenskt bergvatn hf. hefði komist í úrslit. Þar af leiðandi fékk vatnið mjög mikla athygli sýningargesta. Það var sýnt á sérstökum heiðursbás ásamt öðrum vörum er komust í úr- slit. Á öðrum degi voru svo úrslitin tilkynnt og þá kom í ljós að íslenskt bergvatn hf. hafði unnið sinn flokk. Vilhjálmur sagði að á hverju ári væru þúsundir vörutegunda kynntar á sýningum í Bandaríkjunum og einungis brot af þessum vörum kæmist inn á markaðinn. Mun meiri líkur væru á því að vörur, sem feng- ið hafa verðlaun samtakanna, næðu umtalsverðum árangri í markaðs- setningu sinna afurða. Þess vegna væri hér um að ræða frábæran ár- angur, sem myndi nýtast íslensku bergvatni hf. til frekari markaðs- setningar á íslensku vatni. Einnig sagði hann að þetta væri í fyrsta sinn sem íslensk fyrirtæki tækju þátt í þessari sýningu. Auk ís- lensk bergvatns hf. tók íslenskt- ffanskt eldhús þátt í sýningunni, svo og Sláturfélag Suðurlands sem var með hangikjöt, Nói og Síríus með sælgæti, Sölusamtök lagmetis kynntu niðurlagðar sjávarafurðir og Eðalfiskur kynnti reyktan lax. Vil- hjálmur sagði að í heildina hafi við- tökumar verið góðar. Vatnið og reykti laxinn hefðu þó fengið sér- staklega góðar viðtökur. Auk þess hefði hangikjötið og sjávarréttar- patéið vakið verðskuldaða athygli. Uruguay: Nýr sendiherra Þann 5. júlí s.l. afhenti Tómas Á. Tómasson forseta Uruguay, dr. Louis Alberto Lacalle Herrera, trúnaöar- bréf sitt sem sendiherra íslands í Uruguay með aðsetur í Washington D.C. Norska húsið opnað Norska húsiö í Stykkishólmi verður opnað sem byggðasafn í dag. Allir Hólmarar hafa fengið boðskort og fer formleg opnun fram klukkan þijú. Vel má til sanns vegar færa að Norska húsið verði opnað með viðhafnarsýningu, því þar hefur verið komið fyrir myndum úr Stykkishóími eftir Steinþór Sigurðsson listmálara. Eru þar bæði olíumálverk, stór og smá, og teikningar. Myndimar eiga það allar sam- merkt að verða gerðar um miðbik aldarinnar, eða í kringum 1950, og em af Stykkishólmi eins og hann leit út þá. Em myndirnar í senn sannferð- ug lýsing á Hólminum og sýna vel hvað í hinum unga listamanni bjó, en flestar em þær gerðar á fyrstu námsámm hans. Steinþór Sigurðsson er fæddur í Norska húsinu og lifði þar sín bernskuár og má nærri geta að það merka hús á sinn áberandi sess í Stykkishólmsmyndum Steinþórs. Safnvörður í Norska húsinu er Þóra Magnúsdóttir. Hólmurinn kringum 1950 Um tilurð myndanna segir lista- maðurinn m.a. í sýningarskrá: „Elsta olíumyndin á sýningunni er frá 1948. Hún sýnir kaþólska prest- inn á leið til messu hjá St. Franc- iscussystmm. Þetta er með fyrstu tilraunum mínum til að mála með olíulitum og ber myndin það með sér. Ég man aðeins eftir einni eldri, sem átti að sýna landslagið og stemmninguna við Baulárvalla- vatn. Sú „ómynd“ var mikið hnoð og er týnd. Meðal málara, sem komu vestur í Hólm að mála, var Gunnlaugur Scheving. Uppi á Þinghúshöfða fékk ég að kíkja yfir öxlina á hon- um, fullur lotningar. Greinileg áhrif em frá Scheving í að minnsta kosti einni mynda minna, sem er útsýn niður Skólastíg." Steinþór Sigurðsson fæddist í Stykkishólmi 1933. Eftir miðskóla- próf þar settist hann í Kennara- skólann og nam þar einn vetur, og hóf síðan nám við Handíða- og myndlistaskóla íslands. Að loknu námi þar settist hann í Konstfack- skolan í Stokkhólmi og var þar í fimm ár. Þá tók við eitt námsár í Escuela de Belles Artes í Barcelona. Til íslands kom hann aftur 1957 og hóf að kenna við Handíðaskól- ann fram til 1960. Frá þeim tíma hefúr hann verið leikmyndateikn- ari hjá Leikfélagi Reykjavíkur og fleiri leikhúsum. Steinþór Sigurðsson á sæti í stjórn og leikhúsráði LR. Hann er í sýningarnefnd Félags ísl. myndlist- armanna og er fulltrúi listamanna í Safnráði Listasafns íslands. Þá hef- ur hann setið í bygginganefndum Listasafns íslands og Borgarleik- hússins. Fyrstu sýningar, sem Steinþór hélt, voru í Galerie St. Nikolaus í Stokkhólmi 1956, og 1958 sýndi hann í Sala del Munsterio í Ma- laga. 1960 hélt hann sýningu í Lista- mannaskálanum í Reykjavík. Síðan hefur hann tekið þátt í fjölda sýn- inga heima og erlendis. Hann hef- ur Ld. sýnt reglulega með F.Í.M., Listmálarafélaginu og Septem-sýn- ingarhópnum. Þótt Steinþór hafi verið í forystu- sveit íslenskra myndlistarmanna um langa hríð, hefúr hann ekki haldið einkasýningu síðan í Lista- mannaskálanum gamla, þar til nú að hann sýnir í Norska húsinu, og þar eingöngu gamlar myndir. Tímabundnar lokanir á Strákagöngum: Strákagöngin lagfærð Viðgerðir og endurbætur á Strákagöngum á Siglufjaröarvegi við Siglufjörð hófust í gær, mánudaginn 15. júlí. Viðgerðimar eru fólgnar í því að gangahvelfingin verður klædd með plasteinangrun, þannig að vatn renni ekki inn á akbrautina. Þar sem hrunhætta er verður steypt með sprautusteypu. Lögð verður ný frá- rennslislögn og lagt verður malbik á akbrautina. Nauðsynlegt er að loka göngun- um tímabundið með?.n unnið er í þeim. Til að byrja með verður lokað sem hér segir: Kl. 8:00 til 12:00, kl. 13:00 til 19:00 og kl. 20:00 til 22.00. Þó verður umferð hleypt í gegn á heilum tímum. Göngin verða opin á nóttunni, nema annað verði sérstak- lega auglýst. Áætlað er að þessi lokunartími gildi til og með 1. ágúst og aftur dagana 7. ágúst til og með 12. ágúst. Dagana 2. ágúst og 6. ágúst verða göngin opin. Hvernig lokað verður eftir 12. ág- úst verður tilkynnt síðar, en þá er gert ráð fyrir lágmarksopnun kvölds og morgna. Áætlað er að fram- kvæmdum verði lokið 18. október. Vegurinn um Siglufjarðarskarð, þ.e. gamli þjóðvegurinn til Siglu- fjarðar, hefur verið lagfærður þann- ig að hann er vel jeppafær og hægt er að fara hann á vel búnum fólksbfl- um. Vegurinn er 12 km langur af Siglufjarðarvegi norðan við Hraun um Siglufjarðarskarð í 630 m hæð yfir sjó á Flugvallarveginum í Siglu- firði. Vegurinn er mjór og yfirborð hans er gróft. Vegurinn gæti spillst í rigningu. -sis Framtíö Ausíurstrætis óljós: cirvoie-r í UAIICT wliT lilw I I ilAUv I Á borgarráðsfundi í gær var ákveðið aö fresta atkvæðagreiðslu um opn- un Austurstrætis fyrir bflaumferð þangað til 19. september, en þá verð- ur fyrstl fundur borgarstjómar á ný eftir sumarleyfi. Skipulagsnefnd Reykjavíkur hefur Iagt fyrir borgarráð að Austur- stnetí verði opnað fyrir bflaumferð í 6 mánuði til reynslu. Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, lagði fram bókun í borgarráðl sem lýsir afstöðu hennar til málshu: „Austur- strætí í núverandi mynd er ekki yndislegur staður. Aögerðir undangeng- inna ára tíl að reyna að ltfga upp á götuna hafa ekki reynst árangursrík- ar. Þá setja þau félagasamtök, sem stofnuð hafa verið til að efia miðbæ- inn, á oddinn að Austurstræti verði opnað fyrir bflaumferð. Ég er því fylgjandi því að í Austurstræti verði opnuð akrein tíl reynslu. Jafnframt vil ég aö Vallarstræti verði lokað fyrir bflaumferð, þannig að þar skapist aðstaða tfl útivistar á sólríkarí og skjólsælli stað en Austurstneti er.“ Elfn Ólafsdóttir, fulltrúi Kvennalistans (borgarstjóm, lagði til að efnt verði tíl aimennrar skoðunarkönnunar meðal Reykvfldnga um framtíð Austurstrætis. -SIS

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.