Tíminn - 18.09.1991, Blaðsíða 16

Tíminn - 18.09.1991, Blaðsíða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 RÍKISSK IP NUTIMA FLUTNINGAR Holnarhusinu v Tryggvogolu S 28822 . ■ i M aE ■ Q* -E ■ ' BE EUQO-HAIR á Islandi mmimmw Lausnin er: Enzymol .Nýtt í Evrópu ■ Engin hárígræösla ■ Engin gerfihár ■ Engin lyfjameðferö ■ Einungis tímabundin notkun Eigid hár með hjálp lífefna-orku pXfS",*! Rvík ® 91 ■ 675331 e.ku 6.oo Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga SIMI 91-676-444 TVÖFALDUR1. vinningur +- Páll Magnússon, sjónvarpsstjóri Stöðvar tvö, segir að tekin hafi verið ákvörðun um að Sýn hefji sjónvarpsútsendingar fyrir áramót: Ný sjónvarpsstöð í loftið fyrir jól? Horfur eru á aft ný sjónvarpsstöð hefji útsendingar á næstu mánuft- um. Páll Magnússon, sjónvarpsstjóri á Stöð tvö, sagfti í samtali við Tún- ann að stefnt væri aft því að hefja út- sendingar fyrir áramóL Á næstu dög- um verftur haflst handa við að setja uyp sjónvarpssenda og annan þann búnað sem þarf til að senda út sjón- varpsefni. Nokkuð er síðan Sýn hóf undirbún- ing að sjónvarpsrekstri. Um tíma leit út fyrir að Sýn færi í samkeppni við Stöð tvö. Til þess kom ekki eftir að Stöð tvö keypti meirihluta hlutafjár í Sýn. Sýn fékk leyfi til að heíja sjónvarps- sendingar með því skilyrði að ís- lenska útvarpsfélagið seldi meirihluta sinn í Sýn. íslenska útvarpsfélagið á nú 70% hlutaíjár í Sýn, en verður að minnka hlut sinn í félaginu niður í 20% innan tveggja ára. Páll sagði að menn væru ekki famir að leita fyrir sér með sölu hlutafjár. Menn ein- beittu sér að því þessa stundina að koma nýju stöðinni í loftið. Páll sagðist ekki geta svarað spum- ingum um hvemig dagskrá nýju sjónvarpsstöðvarinnar yrði í einstök- um atriðum og ekki heldur um út- sendingartímann. Eftir væri að vinna þá vinnu. Eins ætti eftir að taka ákvörðun um hvemig nýju stöðinni yrði stjómað. Óvíst væri hvort eða hvers konar samstarf yrði milli Sýnar og Stöðvar tvö. Þetta myndi skýrast mjög fljótlega. Páll sagði að á allra næstu dögum yrði byrjað á að setja upp sjónvarpssenda og loftnet. Sjón- varpssendamir eru komnir til lands- ins. Sjónvarpssendingamar verða í læstri dagskrá með sama sniði og út- sendingar Stöðvar tvö. Hægt verður að nota sömu myndlykla og nú eru í notkun til að opna dagskrá Stöðvar tvö. Páll sagðist ekki geta fullyrt hvaða dag útsendingar myndu hefjast. Þessa dagana væri verið að skipuleggja þá vinnu sem eftir er, og því mætti gera ráð fyrir að dagsetningin lægi íyrir fljótlega eftir helgi. „Ef engin tækni- leg vandamál koma upp á, er stefnt að því að hefja útsendingar fyrir ára- mót,“ sagði Páll. -EÓ Hátúnshesthúsin eru heldur hrörleg á aö líta. Tímamynd: Áml Bjama Jórunn Sörensen, formaður Sambands dýraverndunarfélaga íslands, segir um Hátúnshúsin við Rauðavatn: Hesthúsin ekki dýrum bjóðandi Jórunn Sörensen, formaður Sam- bands íslenskra dýravemdunarfé- laga, segir í samtali vift Tfmann að stjóm félagsins hafl miklar áhyggj- ur af svoköllum Hátúnshesthúsum vift Norölingabraut. Maftur að nafni Ólafur Jónasson á hesthúsin, en hann hefur leigt húsin út undanfar- 3n ár. „Stjómin er búin að vera í ár- vissu stríði út af þessum hesthús- um,“ segir Jómnn. Hún kveftur hesthúsin vera það léleg að þau séu ekki skepnum bjóftandi. í skýrslu frá Eldvamaeftirlitinu í janúar á þessu ári, kemur fram að húsin em algjörlega talin óhæf sem gripahús. „Húsin em fyrst og fremst hriplek og gegnsósa af skít og drasli og ekki hæf skepnum. Þrátt fyrir það hafa alltaf verið þarna skepnur. Og mað- ur spyr sjálfan sig að því, hvaða hestaeigendur það séu sem taka slík gripahús á leigu. í fyrra þurftum við hjá Dýravernd að hafa samband við lögregluna, því það hafði fennt fyrir dyr eins kof- ans,“ segir Jómnn. „Hestarnir kom- ust ekki út, þeir vom lokaðir þarna inni. Við í stjórninni emm alltaf að fá ábendingar um þessi hús og vomm einnig að frétta það að nú væri verið að flytja hey þarna upp eftir. Það á greinilega að halda áfram að nota hesthúsin," segir Jómnn. „Þá ákváð- um við hjá Sambandi dýraverndun- arfélaga íslands að skrifa lögreglu- stjóra og fara fram á lokun hesthús- anna og að þeir aðilar verði kærðir, sem bera ábyrgðina." —js Öllum tilboðum í Elínu hafnað: Heimild til að segja upp starfsfólki Stjóm Freyjunnar hf. á Suftur- eyri vift Súgandafjörð hafnafti öflum sjö kauptilboðum, sem gerft voru í togara fyrirtækisins, Elínu Þorbjamardóttur. Freyjan á í viðræðum vift tvo aðila: Norft- urtangann á ísafiröi og Frosta á Súöavík annars vegar og Fáfni á Þingeyri hln* vegar. Ef þær skila engum árangri, er enn inni í myndinni að ræfta við Hrönn hf. á Isafirfti. Meftan þessu fer fram liggur Elín innsigiuft vift bryggju, vegna vangoldins virft- isaukaskatts. Kauptryggingu starfsfólks físk- iftjunnar Freyju hf., sem á El- ínu, um 100 manns, hefur verift sagt upp. Aft sögn Helga G. Þórftarsonar, stjómarformanns Freyjunnar, hefur og verift sam- þykkt heimild tfl aft segja upp starfsfófld. Þaft yrfti um næstu mánaftamót Freyjan skuldar um 500 milljónir, en eignir hennar eru taldar um 600 mifljóna virfti. -aá. Islendingar öllum öðrum bjartsýnni. Við hestaheilsu og hafa sérstæða trú á lífið, sem lýsir sér í orðunum: AUÐVITAÐ REDDAST ÞETTA Lífsgildakönnunin leiftir m.a. í jjós al- gera sérstöðu íslendinga varöandi mikla og sterka trú á aö leggi þeir út í eitthvað, þá muni „þaö reddast ein- hvem veginn“. Einn liftur könnunar- innar fólst í því að nokkmm fuflyrft- ingum var varpað fram og þátttakend- ur beftnir að segja til um hverjar þeirra þeir teldu eiga vift sig. Ein þeirra van „Ég reikna yfirieitt meft aft mér lánist það sem ég tekst á hend- uT“. Undir þessa fullyrðingu tóku 9 af hverjum 10 íslendingum. Það gerðu aftur á móti aðeins um eða undir helmingur af Suður- og Vestur- Evr- ópubúum, Svíum og Finnum, aðeins um fimmti hver Norðmaöur og ein- ungis um tíundi hver Dani er svo bjartsýnn. íslendingar skáru sig ekkert sérstak- lega úr öðrum þjóðum í svömm við öðmm fullyrðingum, sem leitað var viðbragða við í könnuninni. Um 70% kváðust kunna því vel að bera ábyrgð, helmingurinn gefur öðmm oft góð ráð og um 40% sögðust sjaldan óör- uggir(ar) um eigin hegðun og vera góðir(ar) að fá sitt fram. Aftur á móti sagðist aðeins fimmt- ungur landsmanna hafa yndi af að sannfæra aðra um eigin skoðanir. Bara 7. hver verður var við að aðrir taki þá sér til fyrirmyndar. Og einungis tíundi hver íslendingur telur sig eiga marga hluti sem aðrir öfúnda hann af. „Þetta reddast“-fullyrðingin er sem sagt sú eina þar sem svör íslendinga skera sig algerlega úr í svömm. Kannski að meira sé því til en margan gmnar í þeirri gamalþekktu fúllyrð- ingu að óbilandi trú landsmanna á að „þetta reddist einhvem veginn" hafi átt hvað stærstan þátt í því að yfir 90% þeirra eignuðust og hafa búið í eigin íbúðarhúsnæði síðustu áratugina? Og aftur á hinn bóginn, að „þetta redd- ast“-trúin hafi kannski yfirgnæft raun- sætt mat á áhrifúm verðtiyggingar og hávaxta síðustu ára? Og kannski m.a.s. einnig yfirgnæft þýðingu og áhrif af allt að 25% afföllum húsbréfa, sem haft er eftir fasteignasölum að lítil ef nokkur áhrif hafi á fasteignamarkað- inn — sem einnig má telja til eins- dæma meðal vestrænna þjóða. Óhamingjusamir hvergi færri íslendingar sitja enn á þeim hátindi hamingjunnar sem samsvarandi könnun 1984 leiddi í ljós, raunar nán- ast samhliða frændþjóðunum á Norð- urlöndunum. Rúmlega 40% íslend- inga, Dana og Svía segjast mjög ham- ingjusamir og flestir hinna nokkuð svo. Óhamingjusamir fundust hvergi færri en hér. Enginn íslendingur fór alveg á mis við hamingjuna og aðeins 2% merktu við: „Ekki mjög hamingju- samur". Hamingjusnauðir voru tvöfalt fleiri í Svíþjóð (4%), þrefalt fleiri í Dan- mörku og Noregi (6%) og sexfalt fleiri (12%) að meðaltali í öðrum Evrópu- löndum. Þessi niðurstaða endurspeglaðist í fleiri svörum. Til að kanna líðan fólks var m.a. spurt hvort það hafi fundið til þunglyndis síðustu vikumar. Því ját- uðu aðeins 7% íslendinga, en í kring- um 20% fólks í flestum hinna land- anna. Mjög einmana og einangraðir frá öðru fólki kváðust 11% Islendinga vera, en mun fleiri meðal annarra þjóða, að Svíum undanskildum. Leiðindí tvöfaldast? Það vekur hins vegar nokkra athygli, að nærri tvöfalt fleiri játa nú að hafa á undanfömum vikum „látið sér leið- ast“. Yfir fimmtungur (22%) lands- manna játaði þessari spumingu sum- arið 1990. En slíkt gerðu aðeins 13% sex árum áður. Aðeins Dönum leiddist þó miklu minna (14%) en okkur, en ýmsum þjóðum leiddist enn meira en okkur. ,AlsæI(I), fúndist lífið dásamlegt" Undir þetta tóku um 2/3 íslendinga, álíka hlutfall Dana og Norðmanna og enn fleiri Svíar (77%). Aðeins þriðj- ungi annarra Evrópubúa fannst lífið dásamlegt. Gn þó allt auðvitað á réttri leið Hvað varðar heilsufarið á heildina lit- ið, sögðu nú enn fleiri íslendingar það mjög gott (43%) eða a.m.k. gott (31%) heldur en fyrir sex ámm. Svona eld- hressir vom jafnvel ívið fleiri á hinum Norðurlöndunum. Af öðmm Evrópu- búum sögðust aftur á móti helmingi færri búa við mjög gott heilsufor. Um slæma, eða jafnvel mjög slæma heilsu kvörtuðu aðeins 4% íslendinga og Svía, en um tvöfalt fleiri annarra Evr- ópubúa. ,Á síðustu vikum hefúr mér fundist ég vera á réttri leið og allt ganga mér í haginn." Þessari fullyrðingu var hvergi játað af fleirum heldur en hér á landi, enda í fullu samræmi við „þetta reddast"- trúna. í ljós kom að 84% íslendinga töldu allt á réttri leið. Svo gott var út- litið að vísu hjá 70% Norðmanna og Svía. En hins vegar aðeins hjá minna en helmingi Dana (38%) og annarra Evrópubúa. -HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.