Tíminn - 31.10.1991, Blaðsíða 1
sgf
irisjotugi
Eldhúsgræjur í Perlunni fyrir um 100 milljónir og óvíst
um hvað Hitaveitan á og hvað er eign veitingamannsins:
60 milljónir á sundi í
rándýrum eldhústækjum
Hvaða tæki og tól eru það, sem Hita-
veita Reykjavíkur á af rekstrartækj-
um og búnaði vegna veitingarekstr-
arins í Perlunni og er gert að greiða
tæpar 60 milljónir fyrir? Sigrún
Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, krafðist þess í sér-
stakri bókun á fundi borgarráðs sl.
þriðjudag að gert yrði út um þetta
mál hið bráðasta. Samkvæmt samn-
ingi Hitaveitunnar og veitinga-
mannsins í Perlunni er kveðið á um
að sá síðarnefndi leggi fram véiar og
búnað til rekstrarins fyrir allt að 40
milljónir kr. Hann keypti hins vegar
tæki og tól fyrir um 100 milljónir og
nú veit enginn hvor á hvað: „Það
verður ekki lengur við það unað að
nú, næstum hálfu ári eftir að veit-
ingastaðurðnn var opnaður, sé ekki
enn vitað hvaða búnað veitingamað-
urinn lagði fram og hvaða búnað
Hitaveitan á og er gert að greiða 60
milljónir kr. fyrir,CÍ segir m.a. í bókun
Sigrúnar Magnúsdóttur.
O BlaÓSÍÖa 2 Voitingahúsiö á Öskjuhlíð er búið góðum tækjum og tólum, en hvað er hvers?
Timamynd: Pjetur
Landinn minnst sykur
sjúkur norrænna manna