Tíminn - 31.10.1991, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 31. október 1991
Tíminn 5
Ný samnorræn rannsókn leiðir í Ijós:
Sykursýki margfalt algengari
á hinum Nordurlöndunum en hér
Hvemig getur staðið á því að sala syk-
ursýkilyfja er hlutfallslega um 5 sinn-
um meiri í Svíþjóð og Finnlandi held-
ur en á íslandi, og um 2-3 sinnum
meiri í Danmörku og Noregi en hér?
Fyrst og fremst af því að sykursýki er
miklu sjaldgæfari á íslandi heldur en
á hinum Norðuriöndunum.
Ástæða þess er aftur á móti að mestu
óþekkt, en að hluta til sú að aldraðir
eru hlutíallslega fæstir hér á landi.
Þessar athyglisverðu niðurstöður
koma fram í nýrri skýrslu um sam-
norrænar rannsóknir, sem gerðar
voru í þeim tilgangi að finna ástæður
fyrir þessum mikla en óútskýrða mis-
mun í notkun sykursýkilyfja, sem
læknar í þessum löndum hafa lengi
undrast yfir.
Það þykir ekki síst athyglisvert að
hinn mikli munur á algengi sykur-
sýki á ekki bara við um hina insúl-
ínháðu sykursýki (sykursýki 1)
heldur líka hina sem meðhöndluð
er með töflum (sykursýki 2). Þetta
eru af mörgum taldir tveir sjúk-
dómar, sem stafa af mismunandi
orsökum. En báðir reynast þeir
mun sjaldgæfari hér heldur en á
nokkru hinna Norðurlandanna, en
aftur á móti langsamlega algeng-
astir í Svíþjóð og Finnlandi.
Niðurstöður rannsóknanna sýndu
álíka stóran mun á hlutfallslegum
fjölda sykursjúkra milli landa, eins
og ráða mátti af sölu sykursýki-
lyfja. Að stórum hluta eru orsakir
þessa enn óþekktar. En að hluta til
skýrist munurinn af þekktum
áhættuþáttum: háum aldri og of-
fitu, sem hvor um sig hefur veruleg
áhrif á tíðni sykursýki 2.
Þegar tekið hefur verið með í
reikninginn að aldraðir eru hlut-
fallslega fæstir á íslandi en flestir í
Svíþjóð, virðist sykursýki 2 í kring-
um tvöfalt algengari hlutfallslega í
Svíþjóð en hér á landi. Að teknu
þessu tilliti til aldurs, virðist þessi
tegund sykursýki langsamlega al-
gengust í Finnlandi. Það er að
hluta til talið stafa af því hvað offita
er miklu algengari þar í landi held-
ur en í nokkru hinna landanna.
Læknavfsindin vita ennþá fremur
lítið um orsakir sykursýki. Insúlín-
háða sykursýki er algengast að fólk
fái á ungum aldri (tíðast 10-14
Sveinn Bjömsson forstjóri SVR, Hörður Gíslason skrifstofu-
stjóri SVR, og Sveinn Andri Sveinsson stjórnarformaður SVR.
Tfmamynd: Ámi Bjama
Strætisvagnar Reykjavíkur sextíu ára:
SVR með opið hús
og frítt í strætó
í dag eru 60 ár síðan fyrsti stræt-
isvagninn í eigu SVR hóf akstur,
en það var 31. október 1931.
Fyrsti strætisvagn SVR rúmaði
14 farþega og þótti mikið farar-
tæki. I blaðafrétt um fyrstu ferð-
ina segir meðal annars: „Þess
skal getið að gengið er inn í al-
menningsbílinn að framan
vinstra megin og farið út úr hon-
um að aftan sömu megin. Hurðin
að aftan er skellihurð, sem bíl-
stjórinn lokar með sérstökum út-
búnaði frá sæti sínu.“
í tilefni afmælisins verður opið
hús hjá Strætisvögnum Reykja-
víkur sunnudaginn 3. nóvember
nk., klukkan 10-15, í Borgartúni
35. Allir, sem hafa áhuga á að
kynna sér þjónustudeildir SVR á
Kirkjusandi, eru velkomnir. Auk
þess verður ókeypis í strætisvagn-
ana á sunnudaginn.
Á morgun, föstudaginn 1. nóv-
ember hefst akstur á nýrri leið,
sem ætlað er að þjóna starfsfólki
fyrirtækja í Borgarmýri og við
Stórhöfða. Þetta er tilraun, sem
verður þannig að ekið verður ár-
degis kl. 7.30 og 8.30 frá Hlemmi
og um Grensás kl. 7.37 og 8.37.
Síðdegis hefst ferð vagnsins kl.
16.00 og 17.00 frá viðkomustað
við Bæjarháls.
Sveinn Björnsson, forstjóri SVR,
benti á að bflagleði íslendinga
væri mikil. Um leið eru íslending-
ar að velja dýrasta ferðamátann,
þar sem bflstjórinn er gjarnan
einn í bflnum. Þótt tilgangur SVR
sé sá sami nú og í upphafi, þ.e. að
flytja fólk eins fljótt, þægilega og
örugglega og aðstæður leyfa milli
staða gegn hóflegu gjaldi, er því
ekki að neita, að einkabfllinn hef-
ur fest í sessi sem aðalfarkostur
borgarbúa og reyndar landsmanna
allra. Meðal annars af þessum sök-
um hefur farþegum SVR farið
jafnt og bétt fækkandi síðustu ára-
tugina. Ar 1962 voru farþegar SVR
18,2 milljónir, en árið 1990 voru
farþegar aðeins 7,3 milljónir. Það
er þó Ijóst að án almenningssam-
gangna getur þéttbýli eins og höf-
uðborgarsvæðið ekki þrifist. -js
Línuritið sýnir þann mikla mun sem er á sölu sykursýkilyfja til inn-
töku milli Norðuriandanna, mælt i fjölda dagskammta á hveija
1.000 íbúa, þar sem Finnland trónir á toppnum. Sala á ínsúlíni er á
hinn bóginn langhæst í Svíþjóð, en ísland er enn neðar á þeim
lista.
ára), þótt tilfellum taki að fjölga á
ný upp úr fimmtugu. Þessi gerð
einkennist af insúlínskorti sem
veldur því að fólk þarf að fá 1-4 in-
súlínsprautur dag hvern. Vitað er
að insúlínháð sykursýki er arf-
bundin að einhverju, en þó ekki
öllu, leyti. Sykursýki 2 fær fólk
sjaldnast íyrr en eftir 30-40 ára ald-
ur. Hún virðist mun meira bundin
erfðum og jafnframt offitu. Sum-
um nægir m.a.s. megrun og lík-
amsrækt til að losna við einkennin.
Sykursjúkir eru í fremur dapur-
Iegu heilsufarsástandi á Norður-
löndunum öllum, að mati skýrslu-
höfunda. Almennt allt of feitir og
með ójafnvægi í blóðsykri. Ástæð-
an verði tæpast rakin til lélegrar
virkni sykursýkilyfja, heldur miklu
fremur til kæruleysis fólks um
önnur mikilvæg atriði, svo sem
mataræði og að halda þyngdinni í
skefjum. Sykursýki er mjög al-
gengur sjúkdómur á Norðurlönd-
unum. Áætlaður fjöldi sykursjúkra
þar er samtals um 580.000 manns,
eða í kringum 2,5% heildar íbúa-
fjöldans. - HEI
Framsóknarfélag Mývatnssveitar vill að Kísiliðjan verði rekin
áfram með eðlilegum hætti:
Sérkennileg aðför
að þjóðþrifastarfi
Aðalfundur Framsóknarfélags Mý-
vatnssveitar, haldinn í Skjólbrekku í
fyrradag, lýsir furðu á þeirri aðför að
Kísiliðjunni sem gerð hefur verið af
hálfu Náttúruvemdarráðs og fleiri
aðila.
Fundurinn telur að nefndarálit sér-
fræðinganefndar um Mývatnsrann-
sóknir gefi ekki tilefni til annars en
að Kísiliðjunni verði tryggt eðlilegt
framhald námaleyfis, enda verði farið
með gát við dælinguna, lögð áhersla
á frekari rannsóknir og leitast við að
þróa vinnslu í námunni á þann veg
að vatnsbotninn nái sem fyrst stöð-
ugleika aftur. Þá er bent á að kísil-
Rjúpnaveiði hefur gengið illa það
sem af er veiðitímabilinu. Haldi
fram sem horfir, fá færri ijúpu í
jólamatinn en vilja. Allt útlit er fyr-
ir að rjúpnaverð verði hærra en í
fyrra og það stefnir í að fjögurra
manna fjölskylda þurfi að borga átta
þúsund krónur í ár fyrir jólaijúp-
una.
„Menn voru að selja rjúpur á 600 til
800 krónur stykkið fyrir jólin í fyrra,
en þau verð, sem við höfum heyrt
núna, eru á bilinu 800 til 1.000
krónur fyrir hvert stykki," sagði
Gunnar Bjarnason hjá Veiðihúsinu í
samtali við Tímann í gær.
Framboð á rjúpu í fyrra var mun
minna en eftirspum, og allt bendir
til þess að ástandið verði enn verra í
ár. Þegar lítið er af fugli er markaðs-
námusvæðið á Ytriflóa var fyrir daga
Kísiliðjunnar orðið lélegasta veiði-
svæði Mývatns. Þar er nú besta veiði-
svæðið.
Vakin er á því athygli að lífríki vatns-
ins hefúr verið í uppsveiflu. Rykmý
hafi verið með mesta móti um ára-
tugaskeið sl. sumar, mergð andar-
unga komst á legg og talið er að
sterkur árgangur ungbleikju sé að
vaxa upp og komi væntanlega inn í
veiðina á næsta ári. Flest bendi til að
skynsamleg nýting Kísiliðjunnar og
hefðbundnar nytjar hlunninda ættu
að geta farið ágætlega saman.
Þá sé með kísilnáminu verið að
verðið venjulega að hækka fram
undir jól, og blaðinu er kunnugt um
að seinustu dagana fyrir jólin í fyrra
seldust rjúpur á allt að 1.500 krónur
stykkið.
„Þær fréttir, sem við höfúm haft af
veiði, em mjög daprar: lítil veiði og
menn em yfirleitt að hafa mikið fyr-
ir fáum fuglum," sagði Gunnar.
„Þetta er eins og fuglafræðingar em
búnir að spá, rjúpan er í algerri lægð
núna og minna af henni heldur en
hefur verið lengi.“
Veiðimenn, sem haft hefur verið
samband við, hafa sömu sögu að
segja. Nær undantekningarlaust sjá
þeir lítið af rjúpu. Menn em þó ekki
vonlausir um að þetta kunni að
breytast til hins betra þegar kólnar í
veðri og fuglinn kemur meira niður.
dýpka vatnið og þar með að lengja líf-
tíma þess. Að öðmm kosti verði stór-
ir hlutar vatnsins orðnir að mýrlendi
innan fárra alda. Fýrirhugað dæling-
arsvæði í Strandarbolum sé meðal
grynnri svæða vatnsins og ástandið
þar, hvað varðar dýpt og þróun sil-
ungsveiði, með svipuðum hætti og
var í Ytriflóa áður en dæling hófst
þar.
Framsóknarfélag Mývatnssveitar
hvetur til, í ljósi þessara þátta, sem
og efnahagslegs og félagslegs mikil-
vægis Kísiliðjunnar, að starfsgmnd-
völlur hennar verði tryggður með
eðlilegum hætti. —sá
Ferðamálakönnun:
Ferö til ís<
lands vand-
■ ^ 4NK il IH II l> IK ÆL
lega inugiio
í nýlegri ferðamálakönnun Fé-
lagsvísindastofnunar Háskóia fs-
lands kcmur fram að ferðamenn,
sem koma til íslands, hafa að
meðaltali veit þvi fyrir sér í tæp-
lega þijú ár að ferðast til íslands
áður en látið var verða af því.
Að meðaltali höfðu liðið 34,8
mánuðir frá því ferðarhugmyndin
kom upp þar til íslandsferð varð
að veruieika. Ellilffeyrisþegar
höfðu velt málinu fyrir sér í rúm-
iega 5 ár, en unga fólldð í 20 mán-
uði. Nemar hugsuöu sig einna
minnst um áður en þeir létu verða
av' því að koma til Islands, eða í
eitt og báift ár.
Sé hins vegar skoðað með hvað
löngum fyrirvara ferðin var keypt,
Verð á rjúpu hátt vegna lítillar veiði:
ÞÚSUND KRÓNUR
FYRIR STYKKIÐ