Tíminn - 28.11.1991, Síða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 28. nóvember 1991
Mikligarður hefur hafið nýja sókn í smásöluverslun á höfuðborgarsvæðinu. Fyrirtækið hefur tekið leiðandi
hlutverk á markaðnum með margvíslegum nýjungum. Björn Ingimarsson framkvæmdarstjóri:
Ætlun Miklagarðs að vera
leiðandi en ekki fylgandi
Björa Ingimarsson framkvæmdarstjóri Miklagarðs, segir að opnun
Lágmarks í Miklagarði og tveggja 11-11 verslana, hafí tvímælalaust
fært Miklagarð inn á kortið á ný í verslun. Viðbrögð viðskiptavina
við nýjungunum séu góð og nú sé íyrirtækið í sókn.
Bjöm Ingimarsson segir að viðskipta-
vinir Miklagarðs hafi tekið mjög vel í
þá nýju þjónustu sem fyrirtækið hóf að
veita með því að bjóða upp á svokallað
„Lágmark". „Viðbrögðin hafa verið
mjög jákvæð og það sem þau hafa sagt
okkur er að Lágmarkið á fullan rétt á
sér. Það hefur verið mikil verslun og ös
þann tíma sem Lágmarkið hefur verið
opið. Við höfum verið að fikra okkur
áfram með pakkningar og vörur í Lág-
markinu, því við renndum dálítið blint
í sjóinn, með hvað það hentaði. Við
höfum séð að fólk er að sameinast f
innkaupum því margar af þeim vörum
sem við bjóðum upp á eru í stórum
pakkningum, en það sem við höfðum í
huga, var að höfða til hópa sem væru
tilbúnir að versla f sameiningu." sagði
Bjöm Ingimarsson framkvæmdar-
stjóri í samtali við Tímann.
Hann sagði ennfremur að enn væri
verið að skoða hvaða hlutir gætu hent-
að í Lágmarkinu. Þar væru þó ekki
bara vörur í stórum pakkningum, því
sumar af þeim vörum sem fólki stæði
til boða, væru seldar í einingum, ýmist
merkjavörur eða þær vörur sem fyrir-
tækið næði á góðum verðum með eig-
in innflutningi. Einnig er boðið upp á
svokallaða sérvöru, fatnað, raftæki,
gjafavöru og leikföng. Sem dæmi um
þetta þá hefur í Lágmarki verið að
finna ýmis raftæki, s.s. örbylgjuofna á
innan við 13.000 krónur og útvörp á
góðu verði, en þar væru á ferðinni
mjög góð merki. Hann sagði ennfrem-
ur, aö pappírsvaran seldist mikið þessa
dagana, þ.e.a.s. salemispappír og eld-
húsrúllur og bökunarvara, enda byði
fyrirtækið upp á mjög góð verð í þess-
um vöruflokkum.
Bjöm Ingimarsson sagði að vöruval
Lágmarks yrði lagað að árstíðum,
þannig að nú væru ráðandi vörur
vegna baksturs og matargerðar og leik-
föng og gjafavörur væm áberandi í sér-
vöruhlutanum.
Að sögn Bjöms hefur innkaupafólki
fyrirtækisins verið gert að hafa augun
opin fyrir innkaupum á vömm, sem
væm á því verði, að hægt yrði að bjóða
upp á f Lágmarki. Hann sagði enn-
fremur að fyrirtækið myndi ekki binda
sig við neina ákveðna línu í Lágmarki
og að fólk sem kæmi í dag gæti ekki
treyst því að sama vara væri þar nokkr-
um dögum síðar.
„Viðskiptavinir geta hins vegar alveg
treyst því að við emm ekki að selja í
Lágmarki neina mslvöm, tjónavöm
eða losa okkur við einhver vandamál
úr versluninni. Við komum til með að
bjóða upp á hágæðavömr og emm að
bjóða því fólki sem vill versla í magni,
upp á hágæðavömr á besta fáanlegu
verði, þegar varan er sett í rekkann. Við
höfum orðið var við það, að á þessum
fyrstu dögum Lágmarks, höfum við
lækkað vemlega vömverð hjá ákveðn-
um kaupmönnum í bænum og því hef-
ur Lágmark strax haft jákvæð áhrif fyr-
ir neytendur. Sumir kaupmenn hafa
gefið út þá yfirlýsingu að þeir ætli allt-
af að vera með lægstu verðin og ég geri
ráð fyrir að þeir fylgist sérstaklega með
því sem við emm að gera.“ sagði Bjöm
Ingimarsson
Mikligarður hf. hefur nýlega hafið
rekstur verslunarkeðjunnar 11-11 og
hefur nú þegar opnað tvær verslanir
undir því nafni, á Grensásvegi og í
Forsvarsmaður Laugavegssamtakanna telur:
Innkaupaferðir erlendis
hafa áhrif á jólasölu
Jón Asbergsson, forstjóri Hagkaupa,
segir í samtali við Túnann að hann
geti ímyndað sér, án vísindalegrar
könnunar, að salan í nóvember í fatn-
aði og í gjafavöru, sé allt að 20%
minni heldur en hún var í fyrra.
„Hins vegar tel ég að það verði jól á
íslandi eins og áður“, segir Jón.
„Þetta em áhrif þessara miklu utan-
landsferða á smásölu á íslandi og smá-
salan nú í nóvember hefur liðið fyrir
þessi miklu innkaup erlendis. Sömu
krónunni er ekki eytt tvisvar. Þetta er
einkum og sér í fötum og í gjafavöru.
Þetta hefúr engin áhrif sölu á mat-
vöm, búsáhöldum eða húsgögnum",
erálitJóns.
Aðspurður segir Jón að hér áður fyrr
hafi verið takmarkanir á opnunartíma
verslana, af hálfú borgaryfirvalda og
vegna kjarasamninga. Tákmarkanim-
ar hafa verið teknar út úr borgarsam-
þykktum, en í kjarasamningum er
gert ráð fyrir því að verslanir séu lok-
aðar á sunnudögum. ,Ateð því að hafa
opið á sunnudögum emm við raun-
vemlega að fylgja í fótspor annarra.
Það hafa verið opnar búðir vestur í
bæ, í Garðabæ og Hafnarfirði og nú
síðast þessar klukkubúðir svokölluðu.
^ Við fylgjum bara í þeirra fótspor. Ef
fólk vill vinna þá vinnur það. En ef fólk
vill túlka kjarasamningana stranglega
þá er þetta ekki heimilt Við höfum
haft opið í tvígang á sunnudegi, en
það á eftir að formast betur hvemig
þessari vinnu verður dreift, en ætlun-
in er að hafa opið á sunnudögum í
framtíöinni", segir Jón.
Jón Sigurbjömsson, forsvarsmaður
Laugavegssamtakanna, segir í samtali
við Tímanna að búðir á Laugavegin-
um verði opnar tvo sunnudaga í des-
ember, þann 15. og 22.
Jón segir aðspurður að það sé greini-
legt að sala hafi að undanfömu dregist
saman vegna innkaupaferða erlendis.
„Það gefúr auga leið og við þurfum
ekkert að neita því. Innkaupaferðimar
munu alveg ömgglega hafa áhrif á
jólasöluna, en þó misjafnlega eftir teg-
undum verslana. Þetta á við ódýrari
fatnað, bamafatnað og mögulega leik-
föng, en það er td. engin virðisauka-
skattur á bamafatnaði í Engalndi. Ég
er mjög svartsýnn yfir þessu öllu sam-
an. En málið snýst um meira en þetta.
Ef Qölskyldur eyða 100 til 200 þús-
undum erlendis, þá verður ráðstöfun-
arfé hér heima miklu minna og það
verður samdráttur í öllu. Það em fleiri
hundmð milljónir sem fólk er að eyða
í útlöndum", segir Jón.
Jón segir að stjómmálamenn verði
að skoða þessi mál. Enn fremur þurfa
margir kaupmenn að taka sig á og
gerabetriinnkaup. js.
Bjöm Ingimarsson framkvæmdastjóri Miklagarös hér við hillurnar
í „Lágmarki" í Miklagarði við Sund.
Þverbrekku. Bjöm segir að gengi
þeirra verslana hafi farið fram úr björt-
ustu vonum sínum. Verslanimar væm
hverfaverslanir og væm og ættu að
vera með sama verð og í Miklagarði.
Bjöm sagðist finna það hjá viðskipta-
vininum, að fyrirtækið væri í sókn.
Fyrirtækið væri að selja meira en áður
og staða þess á smásölumarkaðnum
væri sterkari en fyrir nokkmm misser-
um síðan. Fyrirtækinu hefði reyndar
ekki tekist að hrista af sér þann há-
vöruverðsstimpil sem það hefði á sér,
en það væri vegna þess, hvemig verð-
kannanir séu unnar, en ekki vegna þess
að vömverð í verslununm Mikligarðs
væri almennt hærra en hjá samkeppn-
isaðilunum. Verðkannanir næðu ein-
ungis til svokailaðra merkjavara, en
Mikligarður leggur áherslu á að bjóða
fram eigin vömr á samkeppnisfæru
verði f trausti þess að viðskiptavinur-
inn sé fúllfær um að meta gæði vör-
unnar.
„Það er ekki spuming að Lámark og
11-11 hefur fært Miklagarð aftur inn á
verslunarkortið á ný. Ég sagði í sumar
að það væri komið að Miklagarði að
stíga næsta skref í verslunarmálum og
það tel ég okkur hafa gert, með þessum
tveimur nýjungum. Þannig tel ég, að
við höfum tekið leiðandi hlutverk f
þróun verslunarmála á ný, enda er það
frekar ætlun okkar að vera leiðandi
frekar en fylgjandi í framtíðinni." sagði
Bjöm Ingimarsson ffamkvæmdarstjóri
Miklagarðs að lokum.
PS
Landlæknisembættið:
Fræösla um alnæmi í
langflestum skólum
Einhvem fræðsla um alnæmi og ekkL Afþeim sem veittu önnur svðr lægst á Norðurlandi eystra 54.5%.
vamir við því er veitt í að minnsta gáfu langflestir þá skýringu að kyn- Allt þetta endurspeglast svo í því að
kosti 55.5% grunnskóla £ landinu. fræðsla og þar með fræðsla um ai- 90.5% skólasijóra tejja að fraeða
Ef aðeins eru teknir inn í myndina næmi væri veitt annað hvert ár. eigi grunnskólabörn um alnæmi.
þeir grunnskólar sem innihaida Tö að auka hhit þeirra skóla er Aðeins 5% telja að eUd eigi að gera
efstu bekki er hhitfallið enn hærra greint £ milli þeirra sem geyma það.
83%. nemendur allt upp í 10. bekk og Landlæknir og hans fólk segir að
Þetta kemur fram í könnun um hina sem aðeins geyma nemendur fræðsla og aukin fræðsla sé besta
kynfraeðsiu og fræðshi um ainæmi upp í 8. bekk. í fyrmcfnda hópnum vörnin við alnæmi sem öðrum kyn-
sem Sigríður Jakobínudóttir hefur veita 83% ffæðslu, en 9% ekkL í sjúkdómum. Þar sem alnæmi er
gert fyrir landlæknisembættið. Hún hinum hópnum, þeim yngri, veita lengi að vinna á fómariömbum sín-
hannaði spumingallsta og sendi tii aðeins 20.5% fræðsluna, 51.50% um, um 50% smitaðra fá ainæmi á
aOra skólastjóra í grunnskólum ekki. Ef við greinum þetta niður á fyrstu tíu ámnum, má benda á tölur
landsins, liðlega 200. Svör fengust fraeðsiuumdæml er hlutfaD þeirra um tíðni þriggja annarra kynsjúk-
fri 75% þeirra. Verið er að vinna úr sem veita ffæðslu 97% í Reykjavík- dóma þessu tU staðfestíngar. Árið
niðurstöðu og þær fyrstu Iiggja fyr- ur og ReykjanessumdæmL 82% í 1980 voru lekandatilfeQi 272 á
ir. Ekki var farið ofan í inntak sjálff- Vesturlands- , 83.5% í Vestfjarða-, hveija 100.000 fbúa, 155 árið 1985
ar kennslunnar aðeins hvort ein- 85.5% á Norðurlandi vestra, 82% á og 92 árið 1989. SífilistflfeDi eru
hver kennsia væri í þessum efhum. Norðurlandi eystra, 64% á Austur- 3.6 £ hveija 100.000 árið 1980,2.2
Ef við snúum okkur fyrst að spum- landi og 71.5% £ Suðuriandi. árið 1985 og 1.6 árið 1989. Kia-
ingunni var alnæmisffæðsla veitt í Skólasfjórar eru nokkuð sammála mediutflfeili eru 26% árið 1980,
skólanum sL skólaár svöruðu um að skólana vanti stuðning í 10% árið 1990. Hversu tðfelium
55.5% játandl. 27.5% neitandi, 6% fræðslustarfinu. Þannig svara hefur fækkað þakka landlæknir og
var ókunnugt um það, 6„5% gáfú 84.5% þeirra í Reykjavík þess hátt- hans fóik einmitt aukinni fræðslu.
upp önnur svör og 4.5% svöruðu ar spurningu játandL Hiutfallið er -aá.
Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um LÍN:
Námsmenn reiðir ráðherra
í gær fóru þingflokkar stjómar-
flokkanna yflr drög að frum-
varpi menntamálaráðherra til
breytinga á lögum um Lánasjóð
íslenskra námsmanna. Þau eru
afrakstur nefndar sem ráðherra
skipaði fyrir um tveimur vikum
síðan. Fulltrúi Samstarfs-
nefndar námsmannahreyfing-
anna, Pétur Þ. Óskarsson, skil-
aði séráliti.
í drögunum er gert ráð fyrir að
námslán beri eftirleiðis 3%
vexti. Þau greiðist upp á fjór-
földum námstíma og greiðslur
hefjist ári eftir að námi lýkur.
Ekkert tillit var tekið til tillagna
námsmanna og óljóst hvaða
hlutverki ráðherra hefur ætlað
fulltrúa þeirra að gegna í nefnd-
inni. Hún er að stofninum til sú
sama nefnd og ráðherra skipaði í
sumar. Við bættist áðurnefndur
fulltrúi Samstarfsnefndar náms-
mannahreyfinganna og fulltrúi
Vöku, félags lýðræðissinnaðra
stúdenta.
Starfið nú stóð í rúma viku.
Námsmönnum þykir sem ráð-
herra hafi farið að þessu öllu
með fullmiklu flýti og flaustri.
Málið sé alltof stórt til að af-
greiða það á einni viku. -aá.
Varnarliðið segir
upp þrettán
manns
Vamarliðið hefur sagt upp 13
starfsmönnum vegna endurskipu-
lagningar. Um er að ræða fram-
reiðslumenn og matreiðslumenn í
veitingahúsum sem rekin eru fyrir
sjálfsaflafé.
Ný lög um rekstur slíkrar starfsemi
á vegum Bandaríkjahers bannar
greiðslur úr opinberum sjóðum til
að mæta rekstrartapi og eru um-
ræddar uppsagnir liður í endur-
skipulagningu þessarar þjónustu
svo að hún megi standa undir sér.
Þrír umræddra starfsmanna verða
endurráðnir í önnur störf.
-Fréttatílk.