Tíminn - 28.11.1991, Side 15
Fimmtudagur 28. nóvember 1991
Tíminn 15
BQ WBfa
úHíst . KUR
1 1
Helgi Bjamason.
Bændur á
hvunndagsfötum
3. bindi
Viðtalsbók Helga Bjamasonar
Bókin Bændur á hvunndagsfötum,
þriðja og síðasta bindi samnefndra
viðtalsbóka Helga Bjamasonar blaða-
manns, er komin út. í bókinni eru
viðtöl við fjóra bændur sem allir hafa
frá viðburðaríku lífi að segja.
Bændumir em Egill Ólafsson á
Hnjóti, Eiríkur Sigfússon á Sílastöð-
um, Bjöm Sigurðsson í Úthlíð og
Egili Jónsson á Seljavöllum. Hörpu-
útgáfan á Akranesi gefur bókina út.
„Er rekinn áfram af fróðleiksfýsn", er
heiti viðtals við Egil Ólafsson, bónda
og fræðaþul á Hnjóti í Örlygshöfn.
Egill hefur helgað líf sitt varðveislu
menningarverðmæta. Hann kom upp
byggðasafni og gaf Vestur-Barða-
strandarsýslu. Safnið er eitt merkasta
héraðsminjasafn landsins. Síðustu ár-
in hefur hann verið að safna efni í
flugminjasafn, sem hann hefur nú
gefið Flugmálastjóm.
Eiríkur Sigfússon, stórbóndi á Síla-
stöðum í Kræklingahlíð í Eyjafirði,
segir meðal annars frá deilum við yf-
irvöld og kerfið í frásögn sem hefiúr
yfirskriftína „Kaupi mér aldrei frið".
Baráttusaga Eiríks hófst þegar hann
komungur neitaði að láta kaupfé-
lagsstjóra KEA kúga sig í kartöfluvið-
skiptum.
„Ýmislegt á sig leggjandi til að sjá
drauminn rætast", er yfirskrift viðtals
við Bjöm Sigurðsson, bónda f Úthllð í
Biskupstungum. Bjöm er einn af
brautryðjendum í ferðaþjónustu
bænda sem sannað hefur gildi sitt á
undanfömum árum. Á jörð hans hef-
ur byggst upp stórt sumarbústaða-
hverfi og hann stendur nú í stórhuga
uppbyggingu á þjónustu við sumar-
bústaðafólk og aðra ferðamenn.
Egill Jónsson, bóndi og alþingismað-
ur á Seljavöllum í Nesjasveit í Homa-
firði, segir frá störfum sínum í land-
búnaði f Austur- Skaftafellssýslu. Eitt
mikilvægasta verkið við að koma þar
á búskap með nútímasniði og jafn-
framt það þekktasta er félagsræktun-
in á söndunum. Heiti frásagnarinnar,
„Pú sérð ekkert þessu líkt fyrr en í
himnaríki", er tekið upp úr lýsingu
hans á uppgræðslunni í Skógey í
Homafirði.
Bændur á hvunndagsfötum, þriðja
bindi, er 172 blaðsíður að stærð,
prýdd um 100 ljósmyndum auk yfir-
litskorta af heimabyggð viðmælenda.
í bókinni er nafnaskrá fyrir öll þrjú
bindin. Bókin er unnin að öllu leytí í
prentsmiðjunni Odda hf.
Ógnin rauða
eftir Alistair MacLean og Alastair
MacNeill
Iðunn hefur gefið út nýja bók, Ógnin
rauða, úr smiðju hins gamalkunna
spennusagnahöfundar Alistairs
MacLean. Það er ungur höfundur,
Alastair MacNeill, sem skrifar sög-
una eftir óunnu handrití MacLeans,
sem nú er látínn.
Sagan segir frá kaldrifjuðum hryðju-
verkamönnum Rauðu herdeildanna
sem gera árás á rannsóknarstofur
efnaverksmiðju nálægt Róm. Kunnur
vísindamaður er drepinn og lítið
glerhylki hverfur. Hylkið inniheldur
stórhættulega veiru sem banað gætí
milljónum manna. Það kemur í hlut
UNACO, alþjóðlegrar athafnasveitar
sem berst gegn glæpastarfsemi og
hryðjuverkum um heim allan, að
hjálpa ítölsku stjóminni að takast á
við ógnina rauðu.
Þetta er æsileg, hröð og viðburðarik
spennusaga þar sem enginn veit
hverjum er að treysta.
Sverrir Hólmarsson þýddi bókina.
Undirstöðuatriði
reiðmennsku
í máli og myndum
Ný litmyndasaga fyrir böm og ung-
linga eftir Hauk Halldórsson
Bókaútgáfan FORLAGIÐ hefur sent
frá sér bókina Reiðskólinn þinn -
Undirstöðuatriði reiðmennsku í máli og
myndum. Haukur Halldórsson hefur
samið bókina og myndskreytt.
í kynningu FORLAGSINS segir:
„Þessi glæsilega myndasaga er ætluð
bömum og unglingum sem feta
fyrstu sporin á hestbaki í reiðskólum
Iandsins á hverju sumri. Þeir sem
lengra em komnir geta lfka sótt í
hana nytsaman fróðleik. Allir geta
lært að sitja hest, en góð reiðmennska
byggist á tilfinningu, þekkingu og
reynslu, og því er þessi bók kjörin til
að leiða unga knapa á rétta braut.
Hér em undirstöðuatriðin útskýrð:
Bömunum er kennt að handleika
hnakk og beisli, sitja hestinn og öðl-
ast tilfinningu fyrir gangtegundum
hans. Hver gangtegund er útskýrð á
einfaldan og auðskilinn hátt og síðan
em unga knapanum lagðar lífsregl-
umar áður en haldið er í fyrsta út-
reiðartúrinn. Loks er í bókinni stuttur
kafli um hindrunarstökk og tamn-
ingu hesta.
Bókin er samin og myndskreytt af
miklu listfengi og skilningi á þörf
bama og unglinga fyrir nákvæma
leiðsögn. Anægjan, sem fylgir reið-
mennsku, er ólík þvl sem við þekkj-
um í öðrum fþróttum, þvf að hún
byggist á nánum tengslum manns og
hests. Þegar þessi tengsl verða til
þess að skilningur kviknar milli
knapa og hests — þá verður íþróttin
að töfrandi ævintýri."
Reiðskólinn þinn er 60 bls. í stóm
brotí og í fullum litum. Es-
semm/Tómas Hjálmarsson hannaði
kápu. Prentsmiðjan Oddi hf. prent-
aði.
Kynnisf erðir Trölla
Bókautgáfan Selfjall hefur gefið út
bókina Tröllið hans Jóa eftir Margrétí
E. Jónsdóttur, fréttamann á Ríkisút-
varpinu. Tröllið hans Jóa er norskur
dofri sem heitir Skröggur. Sjálfur er
Jói átta ára drengur úr íslensku
sjávarplássi. Hann fer f sumarleyfi tíl
Noregs með foreldrum sínum og
systkinum og rekst þar á dofrann. Sá
vill ólmur fara með fjölskyldunni til
íslands tíl þess að kynnast tröllum og
öðrum kynjaverum þar en foreldrar
Jóa em tregir til að hjálpa Skröggi.
Hvemig á a koma dofra inn f bflferju
og sfðan í gegnum tollgæsluna á
Seyðisfirði án þess að allt fari á annan
endann? Jóa tekst þó með hjálp systk-
ina sinna að ráða fram úr ótrúlegsutu
vandamálum á leiðinni en það er
bara upphafið að ævintýmm þeirra
og dofrans.
Bókin er prýdd yfir þrjátíu myndum
eftir Önnu V. Gunnarsdóttur. Þetta er
fjórða bamabók Margrétar E. Jóns-
dóttur. Hún hefur áður sent frá sér
tvær bækur um húsamúsina Skottu,
Skotta og vinir hennar og Skotta
eignast nýja vini og ennfremur Dýrin
í garðinum.
Tröllið hans Jóa er 149 blaðsfður, bók-
in er prentuð og bundin í prentsmiðj-
unni Odda hf. Islensk bókadreifing
dreifir bókinni.
Grútur og Gribba, teikning eftir
Quentin Blake.
Nýjar bækur
frá Bamabóka-
ótgáfunni
Bamabókaútgáfan hefur gefið út
bækumar Refurinn frábæri og Grútur
og Gribba eftír Roald Dahl í þýðingu
Ama Ámasonar.
Refurinn frábæri er ein frægasta
bamabók Roalds Dahl. Hún fjallar
um Ref og fjölskyldu hans, sem eiga í
vök að verjast vegna bændanna ill-
gjömu, Vamba, Vembils og Vinguls.
Þeir bændur hata Ref og em stað-
ráðnir í að ná honum ásamt fjöl-
skyldu hans, tilbúnir að skjóta, svelta
eða grafa refina út. En sá snjalli og
glæsilegi Refur tekur til sinna ráða.
Fjöldi nýrra mynda eftir Tony Ross
prýðir bókina.
Grútur og Gribba em makalaust ill-
gjöm hjón. Þau aðhafast frekar illt en
ekkert og eiga apar og fugfar harma
að hefna vegna illvirkja þeirra hjóna.
Apinn Muggur mumpa og fuglinn
Teikning eftir Tony Ross úr bðkinni
Refurinn frábæri.
Rólí-pólí hafa forystu um að apamir
og fuglamir gera áætlun um að koma
þeim hjónum á óvart með þeim hætti
sem þau eiga skilið. Bráðskemmtileg-
ar teikningar eftír Quentín Blake
prýða bókina.
ég man ekki
eitthvað
um skýin
Sjón og Keli kaldi 1
samvinnu
Út er komin hjá Máli og menningu
ljóðabókin ég man ekki eitthvað um
skýin eftir Sjón.
Bókin er 43 blaðsíður að stærð og
geymir 27 ljóð, sum örstutt, önnur
lengri, og mynda þau samfelldan
Ijóðabálk þegar að er gáð. Hér er vís-
að jöfnum höndum í Jónas Hall-
grímsson og súrrealismann, og leikur
að hinu óvænta er sem fyrr aðals-
merki höfundar. Sjón hefur að imd-
anfömu fengist bæði við leikritun og
sagnagerð; sfðasta bók frá hans hendi
var skáldsagan Engill, pípuhattur og
jarðarber (1989). ég man ekki eitthvað
um skýin er hins vegar fyrsta Ijóðabók
hans frá því safnið „Drengurinn með
röntgenaugun" kom út árið 1986.
Kápu gerði höfundur í samvinnu við
Kela kalda. Bókin er unnin í prent-
smiðjunni Odda hf.
BLÁSKJÁR
AViKTfRl f.TTI*
FRANZ HOFFMANN
Fræg barnasaga
í nýrri útgáfu
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá
sér bókina Bláskjár eftir þýska skáldið
Franz Hoffmann í þýðingu Hólmfríð-
ar Knudsen. Þetta er fimmta útgáfa
sögunnar, en hún kom fyrst út á ís-
lensku árið 1915.
í kynningu Forlagsins segir: „Fáar
sögur hafa notið jafn mikillar hylli
meðal íslenskra bama og ævintýrið
um Bláskjá, drenginn með bláu aug-
un sem flökkufólkið rændi og vistaði
hjá sér f dimmum helli. Ekkert þráði
híinn heitar en að sleppa út til að sjá
sólina — þó ekki væri nema einu
sinni. Loksins rættíst sá draumur og
Bláskjá tókst að flýja frá Svarta- Eiríki
og hyski hans. En flótti drengsins
hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir
hann.
Vilborg Dagbjartsdóttir, skáld og
kennari, ritar eftirmála þessarar nýju
útgáfu þar sem hún fjallar um sög-
una, segir frá höfundi hennar og
hugleiðir þá þýðingu sem gamlar
sögur geta haft fyrir nútímaböm. Hér
fá eldri kynslóðir tækifæri tíl að rifja
upp söguna um Bláskjá og kynna
hana fyrir nýrri kynslóð bama."
Bláskjár er 60 bls. í stóm brotí, prýdd
myndum frumútgáfunnar. Ragnheið-
ur Kristjánsdóttír gerði kápu. Prent-
smiðjan Oddi hf. prentaði.
Böövar Kvaran.
Einar Sigurðsson.
Islensk tímarit í 200 ár
Nýtt hefti Breiðfirðings komið út
Skrá um íslensk blöð og tímarti frá upphafi til
1973 er komin út
Breiðfirðingur, tímarit Breiðfirð-
ingafélagsins 49. árg. er nýlega
kominn út. Af efni má nefna ýtar-
lega grein eftir Jón Samsonarson
um Snóksdal. Aftan við hana er
prentuð nákvæm vísitasía Brynjólfs
biskups Sveinssonar frá 1639.
Þetta er 3. kirkjustaðurinn í Dala-
sýslu, sem fengið hefur nákvæma
umfjöllun í Breiðfiðingi.
Ásgeir Bjarnason fyrrum alþingis-
maður í Ásgarði skrifar um heimili
foreldra sinna, Salbjargar Jóneu Ás-
geirsdóttur og Bjama Jenssonar í
Ásgarði. Ásgarður var lengi héraðs-
miðstöð og er ekki ofmælt að heim-
ilið hafi lengi verið víðfrægt. Krist-
ján Benediktsson segir frá komu
sinni sem unglingur að Ásgarði.
Tveir menn segja frá dulrænni
reynslu og sá annar þeirra sjó-
skrímsli ásamt heimilsfólki sínu.
Greinar eru um friðun æðarfugls
1849 og hina miklu biblíusöfnun
Ragnars Þorsteinssonar. Einar
Kristjánsson á grein um mjólkur-
vinnslu í Dölum frá upphafi og einn-
ig skrifar hann um skjalasöfnuna í
héraðinu. Birt eru sýnishorn úr
óprentuðum handritasyrpum séra
Friðriks Eggerz ásamt korti hans af
Skarðsströnd. Margt fleira er í heft-
inu, svo sem kveðskapur m.a. eftir
Einar á Hróðnýjarstöðum og fleiri.
Margar myndir prýða heftið.
Breiðfirðingur er elsta hérðasrit
sem kemur út hér á landi og verður
hálfrar aldar á næsta ári.
Út er komið ritið „íslensk tímarit í
200 ár. Skrá um íslensk blöð og
tímarit frá upphafi til 1973.“ Höf-
undar eru Böðvar Kvaran, sem um
áratugaskeið lagði stund á söfnun
blaða og tímarita, og Einar Sigurðs-
son háskólabókavörður.
Skráin tekur til allra íslenskra
blaða og tímarita, prentaðra og fjöl-
ritaðara, sem til hefur náðst, allt frá
því er fyrsta tímaritið, „Islandske
Maaneds-Tidender" hóf göngu sína í
Hrappsey 1773 og til ársins 1973, en
það ár komu út 400 blöð og tímarit
hérlendis.
Heildarfjöldi rita í skránni er 3187,
þar af eru rúmlega 700 fjölrituð. Er
þetta í fyrsta sinni sem heildarskrá
um íslenska tímaritaútgáfu birtist á
prenti.
Bókin skiptist í tvo hluta: 1. Aðal-
skrá, þar sem ritin eru öll talin í
einni stafrófsröð; 2. Skrá eftir út-
gáfustöðum, þar sem færslur eru
styttri og þær flokkaðar eftir heim-
kynnum ritanna hverju sinni. Auk
þess er inngangur, þar sem m.a. er
tölulegt yfirlit yfir blaða- og tíma-
ritaútgáfuna á umræddu tímabili.
Þá fylgir innganginum einnig út-
dráttur á ensku.
Bókin er 225 blaðsíður. Reikni-
stofnun Háskólans veitti aðstoð við
tölvuvinnslu, Steinholt hf. prentaði
og bókbandsstofan Flatey sá um
bókband.
Aðaldreifingaraðili er Þjónustu-
miðstöð bókasafna, Austurströnd
12, Seltjamarnesi.