Tíminn - 07.12.1991, Blaðsíða 4
HELGIN
Laugardagur 7. desember 1991
12
Póli-
tískur
jóla-
matur?
Pólitíkin er list þess mögulega. í tilefni þess aö
jólin nálgast fengum við fjögur pólitísk pör, sem
öll eru í annari sambúð, til þess að gefa okkur
uppskrift af jólamatnum sínum. Það sem er
kannski forvitnilegast, fyrir utan uppskriftirnar
sjálfar, er að vita hvernig hefðir í matargerð á
jólunum féllu saman hjá fólki. Og það kom í Ijós
að mismunandi smekkur er engin fyrirstaða. Pör-
in sem við töluðum við eru Páll Pétursson, al-
þingismaður og bóndi á Höllustöðum og kona
hans Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi. Friðrik
Shopusson, fjármálaráðherra og Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir, kvennalistakona og mann-
fræðingur. Margrét Frímannsdóttir, alþingismað-
ur og Jón Gunnar Ottósson, líffræðingur. Og
Svavar Gestsson, alþingismaður og Guðrún
Ágústsdóttir, varaborgarfulltrúi.
Aðstæður hjónanna Páls Péturssonar og Sigrúnar Magnúsdóttur er fremur óvenjulegar, þar sem
þau búa í tveimur landshlutum. Tfmamynd/Ámi Bjama.
PÁLL PÉTURSSON OG SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR:
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi þrátt fyrir að komandi jól séu þeirra fyrir tveimur árum voru þannig, að
og verslunarmaður, og Páll Péturs- þriðju sameiginlegu jól. Sigrún var hjá sínum börnum í
son, alþingismaður og bóndi, eyða Sigrún segir að þau hafi aðeins eytt Reykjavík, en Páll hjá sínum börn-
nú sínum öðrum jólum saman, einum jólum saman. Jóladagarnir um og bamabömum á Höllustöð-
MARGRÉT FRÍMANNSDÓTTIR OG
JÓN GUNNAR OTTÓSSON:
„Leggjum
mikið upp
úr jóla-
haldinu“
Hugmynd Margrétar
og Jóns Gunnars
að jólamat
Margrét Frímannsdóttir, þingmaður
Alþýðubandalagsins á Suðurlandi og
Jón Gunnar Ottósson, líffræðingur
og deildarstjóri í umhverfisráðu-
neytinu hafa eytt þremur jólum
saman.
Þau eru samflokksmenn og kynnt-
ust í gegnum pólitískt starf í Al-
þýðubandalaginu. „Við emm bæði
vön frekar heföbundunu jólahaldi
og þar af leiðandi féll jólahaldið hjá
okkur nokkuð vel saman,“ segir Jón
Gunnar. Hann segir að þau hafi
bæði verið vön því að borða reykt
svínakjöt á aðfangadag, en áður en
hann kynntist Margréti hafi hann
verið vanur að borða rjúpur líka.
.Auðvita saknar maður þess og
kannski þá aðallega að skjóta þær
ekki lengur," segir hann. „Við erum
yfirleitt með reykt svínakjöt í rauð-
vínssósu á aðfangadagskvöld og
frómas með ananas og sítrónum í
eftirrétt. Á jóladaginn sjálfan er síð-
an nokkuð hefðbundinn jólamatur á
borðum; nýtt svínakjöt, hangikjöt
og svið,“ segir Margrét.
Bæði leggja þau mikið upp úr jóla-
haldinu og hafa gaman af því að
undirbúa komu jólanna með skreyt-
ingum og matseld. „Það er kannski
vegna þess að við emm bæði önnum
kafin dags daglega og viljum njóta
tilbreytingarinnar þegar við eigum
frí," segir Margrét. Þau hjónin hafa
verið að fikra sig áfram með nýja
rétti yfir jól og hátíðir, eins og til
dæmis steikta önd með tilhreyandi
meðlæti. Jólaborðið er fjölbreytt á
heimili þeirra á Stokkseyri, þrí- og
jafnvel fjórréttað, því þegar börn
beggja og aðstandendur em saman
komin er hópurinn kominn á annan
tug manna.
Forréttur:
Þunntskorið hrátt hangikjöt.
Melóna.
Hangikjötið skorið í örþunnar
sneiðar og lagt ofan á melónubit-
ana.
Aðalréttur:
Svínasteik - svínaloeri eða svína-
bógur.
Skorið í pömna og steikin krydduð
með salti og piparkornum,
má bæta við negulnöglum og lár-
viðarlaufi.
Þau hjónin hafa farið út í
ýmis konar nýbreytni í
matargerð á jólunum,
en Jón Gunnar verður að vera
án rjúpnanna.
Fyrsta hálftímann er steikt við 210
gráðu hita, en þá lækkað í 10
gráður. Vatn sett í skúffuna og
steikt þann tíma sem til þarf.
Ausið yfir steikina öðm hvoru með-
an á steikingu stendur.
Paran verður sérlega góð.
Eftirréttur:
Súkkulaðimyntufrauð.
2 dl. rjómi.
1-2 egg.
35 gr. flórsykur.
100 gr. súkkulaði eða spænir.
1-2 matarlímsblöð.
4 cl. myntlíkjör (má vera minna).
Þeytið rjómann. Eggin og flórsyk-
urinn þeytt saman og síðan blandað
saman við rjómann (best með
handþeytara).
Súkkulaðið er brætt í vatnsbaði og
bætt útí.
Matarlímið leyst upp í tsk. af vatni
og hrært útí. Þá er líkjörnum
bætt í.
Hellið í skálar og látið stífna í kæli
og síðan skreytt.