Tíminn - 07.12.1991, Blaðsíða 5
Laugardagur 7. desember 1991
13
helgin -*■
um, þar sem hann á lögheimili og
rekur félagsbú með dóttur sinni og
tengdasyni. í fyrra var Páll hjá Sig-
rúnu og daetrum hennar í Reykjavík
yfir jólin, en Sigrún og Páll eyddu
síðan áramótunum fyrir norðan. Nú
hafa þau ákveðið að dvelja saman á
Höllustöðum yfir jóladagana, en um
áramótin í Reykjavík.
Sigrún tekur fram að aðstæður
þeirra Páls séu fremur óvenjulegar,
þar sem þau búi í tveimur lands-
hlutum. Böm þeirra eru samtals
fimm og búa víðs vegar um landið
og einnig erlendis.
Sigrún tekur undir þá skoðun að
íslendingar séu bundnir siðum og
venjum sem þeir hafa alist upp við
og tengjast jólunum, t.d. hefðum í
mat og ýmsu öðru. Páll segir að
þrátt fyrir þessar óvenjulegu að-
stæður þeirra hjóna, þá hafi þeirra
jól ávallt gengið árekstralaust fyrir
sig.
Svo skemmtilega vill til að á Höllu-
stöðum er venjulega borðað hangi-
kjöt á aðfangadagskvöld og svína-
hamborgari eða rjúpur á jóladag.
Venjan hjá Sigrúnu er hins vegar að
borða rjúpur eða svínahamborgara á
aðfangadagskvöld, en hangikjötið
aftur á móti á jóladag. Á komandi
jólum er það því Sigrúnar að ganga
inn í Höllustaðahefðina og borða
hangikjötið á aðfangadagskvöld.
Þau munu síðan eyða áramótunum í
Reykjavík. Sigrún bætir við að í
rauninni séu mjög góðar hefðir að
skapast hjá þeim Páli, þrátt fyrir að
þau hafi ekki gert sér grein fyrir því
fyrr en núna, þ.e. að skipta jólunum
svona á milli heimilanna. Aðspurð
segjast þau bæði vera fyllilega sátt
við þetta fyrirkomulag, enda hafi
það ekki þurft mikillar skipulagn-
ingar við, í rauninni kom skipulagið
af sjálfu sér.
Sigrún segir að sú hefð hafi skapast
þegar dætumar voru litlar að hafa
möndlugjöf á aðfangadagskvöldið.
„Dætrum mínum þótti grjónagraut-
urinn hins vegar ekkert sérstaklega
spennandi, þannig að við svindluð-
um svolítið og breyttum jólagrautn-
um í búðing sem mandlan var sett í.
Dætumar tóku alltaf þátt í að útbúa
búðinginn og skreyta hann, þannig
að þetta var alveg fastur liður á jól-
unum hjá okkur. Einnig er það hefð
á mínu heimili að halda Þorláks-
messu hátíðlega og borða skötu. Það
má segja að dætrum mínum þyki
skata með mörfloti og rúgbrauði
besti jólamaturinn. Ég get ekki
hugsað mér annað en að borða
skötu á Þorláksmessu, hins vegar
hefur Páll ekki vanist skötunni og
borðar hana ekki“, segir Sigrún.
Sigrún tekur fram að hún sé í
rauninni ekki með neinar sérstakar
jólamatamppskriftir. „Þess ber að
gæta að ég hef verið kaupmaður
undanfarin 20 ár og af þeim sökum
hefur minna farið fyrir jólaundir-
búningi á mínu heimili. Það hefur
verið aðalvandamálið í gegnum tíð-
ina að ná því að taka á móti jólunum
klukkan sex“, segir Sigrún.
Páll segir að jólahaldið í sveitinni
sé með nokkru öðru sniði, þar sem
ekki er hægt að líta á jólin sem frí.
Það verður að hugsa um skepnumar
þrátt fyrir að það séu jól, það verður
að fara í fjós á aðfangadag jafnt sem
aðra daga. Páll segir að venjulega sé
reynt að hraða þeim störfum, þann-
ig að þeim sé lokið fyrir hálfsex á að-
fangadag. Á hinn bóginn er ekki
hægt að sofa út á jóladagsmorgun.
Páll tekur fram að á Höllustöðum sé
það fastur liður að setja upp hangi-
kjötið fyrir klukkan sex á aðfanga-
dag og síðan er hlustað á messu í út-
varpinu. Að messu lokinni er lagt á
borð og kvöldmaturinn borðaður.
Aðspurður segir Páll að venjulega
hafi Höllustaðir verið samastaður
stórfiölskyldunnar yfir jólahátíðina,
m.a. hafi tengdaforeldrar hans ávallt
dvalist á Höllustöðum yfir jólin.
Dóttir Páls sem býr á Höllustöðum
hefur síðan haldið þessum Höllu-
staðahefðum, ef svo má segja.
Að lokum er verslunarmaðurinn
Sigrún og alþingismaðurinn Páll
spurð hvenær þau leggi af stað
norður til Höllustaða að halda upp á
jólin? Þau eru sammála um að tíma-
setningin sé dálítið viðkvæmt mál.
Sigrún segist ekki vera búin að leysa
sín mál ennþá og Páll segir að oft sé
annasamur tími fyrir jólin hjá al-
þingismönnum.
Þrátt fyrir annir stefna þau að því
að komast norður ekki seinna en á
Þorláksmessu.
Rjúpur matreiddar
að hœtti Sigrúnar
Rjúpumar eru steiktar í heilu
lagi á hefðbundinn máta.
Bringurnarsíðan skomar frá.
Beinin og það sem eftir er á
beinunum síðan soðið
í vatni.
Búin til sósa úr soðinu og bætt f
vel af rjóma og rifsberjahlaupi.
Þá eru bringurnar settar í ofti-
fast mót og rjómasósunni hellt
yfir. Bakað í ofni f um það bil
klukkustund.
ScHlie mi>eH
hamingiuríkt
SUNAAR
í BiskU
Seljavöllum t Nesjasveit. Allir þessir
bændur eiga það sameiginlegt að vera
opinskáir og ómyrkir í máli.
Verð: 2.980,- krónur
Borgfirðingaljóð
Ljóð eftir 120 núlifandi höfunda úr Mýra- og
Borgarfjarðarsýslum, Akranesi og Borgamesi.
Efni ljóðanna er afar fjölbreytt, mörg þeirra
á léttum og gamansömum nótum, tækifæris-
kveðskapur og vísur. Bók fyrir alla sem hafa
gaman af skemmtilegum kveðskap.
Verð: 4.550,- krónur
Og þá rigndi blómum
Smásögur, ljóð og leikrit eftir 142 borgfiskar
konur. Einstök bók, sú fyrsta sinnar tegundar.
Elsti höfundurinn í bókinni er Steinunn Finnsdóttir,
amma séra Snorra á Húsafelli. Yngsti höfundurinn
er Jenna Huld Eysteinsdóttir, aðeins 14 ára gömul.
Fjölbreytt og skemmtilegt efni, sem allar konur
munu hafa gaman af að lesa og eiga.
Verð: 4.550,- krónur
Kór stundaglasanna
Hér er á ferðinni fimmta ljóðabók
Friðriks Guðna Þórleifssonar.
í þessari bók slær Friðrik Guðni
strenginn með öðmm hætti en fyrr,
leikur nánast á tungumálið eins
og hljómborð. Efniviðurinn er
tunga vor fom og samt ætíð ný.
Verð: 1.780.-krónur
Draumar. Fortíð þín, nútíð og framtíð
Höfundurinn Kristján Frímann, hefur í mörg ár
kannað drauma og boðskap þeirra. Þessi
nýstárlega og forvitnilega bók hjálpar þér að
ráða gátur draumanna, finna réttu svörin og
lykla að völundarhúsi draumalífsins.
Bókin er prýdd fjölda myndai
Verð: 2.480.- krónur
Þér veitist innsýn
Lífsspekibók, sannkölluð leiðsögn
á lífsbrautinni. Bók sem hefur fært
birtu inn í líf margra og verið nefnd
"Náttborðsbókin - lykill að lausn
vandamálanna". Hér er að ftnna speki
sem allir ættu að geta fært sér í nyt.
Verð: 1.980,-krónur
Vatnrmelónusykur
Skáldsaga eftir bandanska rithöfundinn
Richard Brautigan. Þessi sérstæða saga
hefur borið nafn hans víða.
Vatnsmelónusykur er saga um ástir og
svik í undarlegum heimi.
Bókmenntaverk í ístenskri þýðingu
Gyrðis Elíassonar.
Verð: 1.480,- krónur
Spakmæli
Yftr 4000 spakmæli og málshættir frá
öllum heimshlutum. I bókinni em
fjölmargar skopmyndir tengdar efninu.
Skemmtileg og fræðandi bók, sem á
erindi inn á hvert heimili.
Verð: 1.980.-krónur
Hamingjuríkt
sumar
Dularfullir atburðir úr
fortíðinni koma í dags-
ljósið. Ást og heiðar-
leiki eiga í höggi við
svik og undirferli. Ný
bók eftir Bodil Forsberg.
Verð: 1.780.-krónur
Tvíburasysturnar
Spennandi dulúð, ljúf
rómantík og ást eru
aðalsmerki þessarar nýju
bókar eftir Erling Poulsen.
Verð: 1.780,- krónur
Banaráð
Óþekktir aðilar sem tengjast
verslun með demanta virðast
hafa mikla agimd á eyðibýli
í auðnum Ástralíu. Æsileg
atburðarás. Spennusaga í
hæsta gæðaflokki eftir
Duncan Kyle.
Verð: 1.880,- krónur.
Svik og njósnir
Þessi nýja spennubók eftir
Jack Higgins hefur verið í
efstu sætum metsölulistans í
Bretlandi og víðar, eins og
fyrri bækur hans.
Æsispennandi og mögnuð
bók eftir meistara
spennusagnanna.
Verð: 1.880,- krónur.
Oðurinn til lífsins
Spakmæli og þankabrot.
Höfundurinn Gunnþór
Guðmundsson hefur á lífsferli
sínum gert sér fágætt safn
orðskviða. Lífsspeki hans er
byggð á innsæi og eftirtekt. Bók
sem læra má af og er til þess
fallin að betra og bæta.
Verð: 980,-
HORPUÚTGÁFAN
Stekkjarholt 8 -10, 300 Akranesi / Síðumúli 29,108 Reykjavík