Tíminn - 07.12.1991, Qupperneq 8
HELGIN
Laugardagur 7. desember 1991
16
Gaman
aö gera
jola-
góðgætið
saman
Að athuguðu máli er lítill vandi
að búa jólasælgætið til heima.
Sælgætisgerð er líka upplagt
samstarfsverkefni fyrir alla fjöl-
skylduna og að fá yngstu fjöl-
skyldumeðlimina til að vera með
er örugglega auðsótt mál. Gott
heimatilbúið og fallega skreytt
konfekt er auk þess upplagt til
jólagjafa, sem pakka má inn á
frumlegan hátt.
Eftirfarandi er gott að hafa við
hendina við jólasælgætisgerðina:
Massipan
Mjúkt núggat
Flórsykur
Möndlur
Saxaðar hnetur
Kókosmjöl
Döðlur
Sveskjur
Puntusykur
Suðusúkkulaði eða hjúp-
súkkulaði, dökkt eða ljóst eftir
smekk
Litlar konfektöskjur
Massipan má drýgja með 1-2
eggjahvítum og hæfilega mikll
flórsykur er hrærður út í. Blönd-
una má síðan bragðbæta t.d.
með möndludropum, sítrónu-
dropum, hnetum, rúsínum, serrí
eða rommi, allt eftir því sem við
á. Þá eru mótaðir hæfilega stórir
bitar úr massipaninu og hvert
bragð látið hafa sína sérstöku
lögun. Því næst eru molarnir
hjúpaðir með súkkulaði.
Þegar hjúpað er með súkkulaði
skiptir mestu máli hvernig
súkkulaðið er brætt. Súkkulaðið
gránar við of háan hita, en
kúnstin er að halda góðum gljáa.
Best er að nota pott með litlu
vatni, en skálin sem sett er ofan
á pottinn má ekki ná ofan í vatn-
ið í pottinum. Hitinn á vatninu
má helst ekki fara yfir 35 gráður.
Það er auðveldara að hjúpa með
suðusúkkulaði ef örlítið af olíu
er sett út í. Molunum er síðan
dýft ofan í, súkkulaðið látið síga
vel af og þeir lagðir á smjörpapp-
ír. Ef skreyta á molana er best að
gera það á meðan súkkulaðið er
heitt. Einnig má t.d. sprauta
dökka konfektmola með ljósu
súkkulaði, en það er þá gert eftir
að hjúpurinn hefur þornað.
Mikilvægast er að fjölskyldan
gefi hugmyndafluginu lausan
tauminn við sælgætisgerðina, en
hér koma nokkrar hugmyndir að
jólasælgæti.
Litlar kúlur gerðar úr massipani,
blönduðu eða óblönduðu eftir
vild. Einni möndlu stungið í
miðjuna og síðan hjúpað með
súkkulaði.
Súkkulaðihjúpur bragðbættur
eftir smekk. Hjúpnum síðan
hellt í litlar konfektöskjur og
skreytt.
Þá má hjúpa með súkkulaði t.d.
mandarínurif og epli svo eitt-
hvað sé nefnt. Gott er að taka
Yngsti meðlimurinn tekurtil hendi í jólasælgætis-
gerð fjölskyldunnar. Vissara er að fylgjast með
framleiðslunni og stinga nokkrum molum í munn-
Ínn. Timamynd/Áml Bjama.
steinana úr döðlum eða sveskj-
um og nota massipan eða mjúkt
núggat sem fýllingu. Þetta er
síðan hjúpað með súkkulaði og
skreytt t.d. með möndlu.
Biti af massipani er flattur út. Til
að forðast að massipanið festist
við kökukeflið er plastfilma lög
undir og yfír massipanið. Útflatt
massipanið er síðan smurt með
núggati og þessu rúllað upp og
hjúpað með súkkulaði. Massi-
panbrauðið má t.d. skreyta með
söxuðum hnetum.
Gott „gott“ (ca. 1/2 kg)
2 dl sykur
2 dl síróp
Vh - 2'h msk. smjör (45-75 g)
2 dl rjómi
1 dl möndlur
Litlar öskjur fyrir konfekt
Möndlurnar eru saxaðar. Öllu
nema möndlunum blandað sam-
an í pott með þykkum botni.
Hitað upp að suðu á jöfnum hita.
Nokkrum dropum af blöndunni
er hellt í kalt vatn. Ef þá er hægt
að móta kúlur með fingrunum
úr blöndunni er hún tilbúin.
Möndlunum er blandað saman
við. Konfektöskjurnar eru pensl-
aðar með olíu og blandan sett í
öskjurnar t.d. með teskeið.
Skreitt eftir vild.
Laugardagur 7. desember 1991
HELGIN
17
NÝ PRJ ÓN AUPPSKRIFT
Islenskt handprjónaband
Fjölbreytt litaval
Plötulopi Hosuband Flos
Hespulopi Loðband Flóra
Sölustaðir um
allt land
• Pósthólf 140 • 270 Mosfellsbæ • Sími 91-6663 00
m ÍSTEX®
ÍSLENSKUR TEXTÍLIÐNAÐUR H.F.
Nýtt fyrirtæki í ullariðnaði
Græn börn
Út er komin hjá Skjaldborg hf. bókin
„Græn böm", eftir dr. Penny Stan-
way.
Bókin fjallar um böm frá sjónarmiði
náttúrulegrar bameignaáætlunar og í
henni eru tekin fyrir atriði eins og
umönnun á getnaðartíma, meðganga,
joðsótt og fæðing, brjóstagjöf, um-
önnun bama frá fæðingu og frameftir
aldri, sambúð, þarfir foreldra, mata-
ræði, heilsa og menntun.
Guðmimdur Þengilsson læknir ritar
formála að bókinni og segir hann þar
m.a.:
„Eins og titillinn gefur til kynna er
fyrst og fremst fjallað um barnið í
„grænni" veröld. Fyrst er rætt um
bamið ófætt, hvemig best verði búið í
haginn fyrir það, baeði fyrir getnað og
síðan meðan á meðgöngu stendur. Þá
er fjallað um bamið í fæðingu, nýfætt
og allt fram á eins árs aldur. Einnig
um umhverfið sem barnið lifir og
hrærist í. Meginuppistaðan er „græn-
ir" lifnaðarhættir, „grænt" umhverfi.
Sólskinsbam
Komin er út hjá Máli og menningu
bamabókin „Sossa sólskinsbam" eftir
Magneu frá Kleifum.
Bókin er um litla, duglega og fram-
kvæmdasama stúlku sem elst upp í
stórum, systkinahópi í sveit. Sossa
kemur öllum í gott skap í kringum
sig, enda er hún hugmyndarík og
ófeimin. Sagan er fjörlega skrifuð og
gefur lifandi mynd af lífi bama fyrr á
þessari öld.
Þóra Sigurðardóttir myndskreytti
bókina sem er unnin í Odda.
iamkvæmt tóbaksvarnalögum er óheimilt
,að reykja í myndbandaleigum
og leiktækjasölum!
TÓBAKSVARNANEFND
á ótrúlega
hagstæðu verði
4X4
Búnaöur
Vél 2600CC. 115HO bensín.
ÍSamlæsing á hurðum.
/Útvarpm/segulbandi.Tregðulæsing
Rafstýrðar rúðuvindur.
Háþrýstiþvottur á aðalljósum.
Hæðarstilling og i
upphitað bílstjórasæti. /
Frá 2.289.000 stgr.
á götuna
TROOPER
I
CREW CAB
Bunaður
Vél 2300CC. 110HÖ. 5 gíra.
Aflstýri. Tregðulæsing.
(Vönduð innrétting, 5" upphækkun.
Gúmmíbrettakantar.
Gangbretti úr áli.
B.F. Goodrich 32“ dekk. Álfelgur.
Svört grind á framstuðara og
Ijóskastarar, Warn M6000 spil.
Frá 1.782.000 stgr.
á götuna
Hús ekki innifaliö í veröi.
ISUZU bílarnirerumjög þægilegir íakstri.mjúkir og rúmgóðir.j
Láttu ekki vetrarfærðina hafa áhrif á ferðaáætlanir þínar.
/Tryggðu þér og fjölskyldunni traustan ISUZU bíl.
Takmarkað magn bíia
Ókeypis skoðun árlega
JXsJiMiíORD