Tíminn - 07.12.1991, Page 13
Laugardagur 7. desember 1991
21
HELGIN T
Þorsteinn Antonsson.
Geirfinnsmál enn
Út er komin hjá Skjaldborg hf. bókin
Áminntur um sannsögli, skráð af Þor-
steini Antonssyni.
í bókinni er rakin allítarlega at-
burðarás svokallaðra Guðmundar-
og Geirfinnsmála er skóku íslenskt
þjóðlíf fyrir rétt rúmlega hálfum öðr-
um áratug.
Sagt er frá þessum málum frá fleiru
en einu sjónarhomi og allir þættir
þessara mála tíundaðir, allt frá fyrsta
aðdraganda til þess að nokkur ung-
menni eru dæmd fyrir Hæstarétti ár-
ið 1980, sökuð um tvö manndráp.
Miklar kviksögur urðu til í kringum
þessi mál á síntun tíma sem, eins og
segir á bókarkápu, „teygðu þráðinn
inn í hvem krók og hvem kima þjóð-
félagsins."
Elías Snæland Jónsson.
Harður heimur
Komin er út hjá Máli og menningu
unglingabókin Davið og krókódtlamir
eftir Elías Snæland Jónsson.
Sagan segir frá Davíð, 14 ára, sem
leiðist heima hjá sér og £ skólanum.
Hann sækist eftir félagsskap Krókó-
dílaklíkunnar sem fæst við ýmislegt
sem Davfð hefur ekki kynnst áður.
Hann tekur sér ýmislegt fyrir hendur
sem hann veit að er ekki rétt en sér
fram úr erfiðleikunum í lokirt
í þessari fyrstu unglingabók sinni
lýsir Ellas Snæland Jónsson reykvísk-
um imglingaheimi sem er harðari en
margan gmnar. Sagan einkennist af
spennandi söguþræði og hlýju í garð
unglinga. Bókin, sem er 107 bls., var
unnin i Prentsmiðjunni Odda.
Dýrðin
Út er komin hjá Máli og menningu
bókin Dýrðin á ásýnd hlutanna eftir
Pétur Gunnarsson. Bókin er með
svipuðu móti og Vasabók sama höf-
undar sem út kom árið 1989. Hér eru
brot úr vasabókum áranna 1972-
1983, margvíslegar stuttar hugleið-
ingar um mannlíf, náttúru, drauma
og andíutakið sem er að líða og er
efninu skipt í nokkra hluta. Allt ber
þetta vitni þeirri viðleitni að „krota
og pára — svo lífið hverfi ekki spor-
laust".
Bókin er 69 bls. £ vasabókarbroti.
Kápu gerði Guðrún Kristjánsdóttir,
en Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði.
I
FUKDINN
LYKIIX
Fundinn lykill
Þetta er sjötta bókin sem kemur út
eftir Normu E. Samúelsdóttur og
þriðja skáldsaga hennar. Aðalpersón-
an, Beta, lýsir í bókinni umhverfi
sínu og Ufi og reynir að brjóta til
mergjar hvers vegna lifið hefur orðið
henni svo sem raun ber vitni. í bók-
inni er engum stórum spumingum
svarað, en spumingin £ Iokin er samt
sem áður sú hvort Betu tekst að opna
dyr.
Hildur gefur út.
Slakiðá
Út er komin hjá Skjaldborg hf. ný
bók í bókaflokknum Lykill að llfs-
hamingju og nefnist hún Allt um
streitu.
Eins og nafnið gefur til kynna fjallar
bókin um streitu frá ýmsum hliðum
og má segja að efni hennar taki fyrir
flest það sem snertir daglegt Uf okkar.
Bókin skiptist £ eftirfarandi fjóra
höfuðflokka: Hversu spenntur ertu?
— Kyrrðu llfshætti þína — Slökun —
Hástreita.
Góðar skýringarmyndir fylgja öllum
undirköflum ásamt nokkrum Ijós-
myndum sem gefa til kynna stemmn-
ingu og fegurð.
Flugsaga íslands
Út er komið hjá Emi og Örlygi fyrsta
bindið £ þriggja bóka flokki sem ber
heitið Flugsaga íslands i stríði ogjriði í
samantekt Eggerts Norðdahl.
I bókinni eru um 200 Ijósmyndir af
flugvélum, mönnum og mannvirkj-
um sem tengjast fluginu, þar af íjöld-
inn allur úr síðustu heimsstyrjöld og
teknar voru hér á landi. Fæstar þeirra
hafa áður birst á prenti.
Verkið hefst með komu fýrstu flug-
vélarinnar árið 1919. Rakin er saga
flugfélaganna og sagt frá stofmrn
fyrstu félaga flugáhugamanna en
sum þeirra eru starfandi enn £ dag.
Sagt er frá upphafi millilandaflugs og
uppbyggingu flugvalla og flugmann-
virkja. Þá er £ ritinu að finna sögu
fyrstu sviffluganna hér á landi auk
einka- og atvinnuflugvéla. Einnig er £
verkinu að finna frásagnir af frum-
herjum sem flugu yfir Atlantshafið.
Tréð hans
Barbapapa
Iðunn hefur gefið út nýja myndabók
sem heitir Tréð hans Barbapapa og er
eftir Annette Hson og Talus Taylor.
Allir kannast við Barbapapa og fjöl-
skyldu hans, enda hafa þau notið
mikilla vinsælda meðal fslenskra
bama.
Ný bók um gamla
hætti
Öm og Örlygur hafa gefið út ritverk-
ið Þjóðlífog þjóðhættir eftir Guðmund
L. Friðfinnsson á Egilsá. I verkinu,
sem er £ fagurlega skreyttri öslqu,
kemur vel til skila glöggskyggni
Guðmundar á fólki og starfsháttum
fýrri tíðar. Einnig áhugi hans á að
halda til haga þekkingu á þjóðlffi
sem heita má horfið. Um 300 ljós-
myndir, sem leitaðar hafa verið uppi
um land allt, varpa skýru ljósi á efnið
og prýða verkið. Flestar myndanna
eru áratuga gamlar og hafa ekki birst
áður á prenti. Myndaritstjóri er fvar
Gissurarson. Hjalti Pálsson, héraðs-
skjalavörður á Sauðárkróki, las yfir
handritið og veitti ráðgjöf.
í formála Þórs Magnússonar þjóð-
minjavarðar segir m.a.: „Sum þjóð-
háttarit hafa fýrir löngu unnið sér
fastan sess sem mikilsverð heimildar-
rit, sem stöðugt er sfðan vitnað til og
mega kallast sfgild. Þau þurfa um-
fram allt að vera svo aðgengileg að
hver geti notað þau að eigin smekk,
sem fróðleiksrit, heimildarit og af-
þreyingarrit. Þá er fyrir mestu að þau
séu svo úr garði gerð að laði að sér
lesandann og að lesandanum finnist
höfundur tala til sín. Þannig verður
þvi, sem mest er um vert, best komið
á framfæri við lesendur, veitt það lif
sem gerir ritið eign margra kynslóða
en ekld aðeins dægurlestur. Er það
von min að þessi endurminningaskrif
Guðmundar L. Friðfinnssonar megi
fylla þann flokk er stundir renna.
Óhamdar þrár
Iðunn hefur gefið út skáldsöguna
Skaði eftir breska rithöfundinn Josep-
hine Hart f þýðingu Sverris Hólmars-
sonar.
Skaði er áhrifarík og mögnuð saga
sem lýsir þvf hvemig sterkar ástríður
og óhcundar þrár taka völdin og leiða
persónumar á vit glötunar og tortím-
ingar. Hann er virtur borgari og fjöl-
slyldufaðir. Hún er ung, dularfull,
tælandi, ögrandi, sködduð af fortíð
sinni, banvæn gjöf.
eftir Jóhönnu Á. Steingrímsdóttur - myndskreytt af Hólmfríði
Bjartmarsdóttur - er hugljúf og spennandi barnasaga.
Þytur er jólabók barnanna í ár. Rammísjénsk úrvalsbók.
Bókaútgáfan Björk.
NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ
Barbara
Cartland
ÁSTAÐ LÁNI
Gilda neyöist til að leika
hlutverk hinnar vinsœlu
systur sinnar, Heloise, í
samkvœmislífi Lundúna.
En fljótlega dregst hún
inn í njósnamál og fleiri
atburöir gerast, sem hún
hafði ekki fyrirséð.
Eva Steen
ÍLEITAÐ ÖRYGGI
Flestar ungar stúlkur lita
björtum augum fram á
veginn, en það gerir
húnekki. Húnhorfirtil
baka — til hinnar glötuðu
bernsku sinnar, þegar
hún átti félaga, sem hún
hafði samskipti við, og
þegar foreldrar hennar
höfðu tíma fyrir hana.
Erik Nerlöe
SIRKUSBLÓÐ
Hún elskaði líf sitt sem
listamaður og var dáð
sem sirkusprinsessa. En
dag einn dróst hún inn í
annars konar heim og
varð að velja á milli
þess að vera sirkus-
stjarna áfram eða
gerast barónessa á
stóru herrasetri.
Theresa Charles
ÖNNUR
BRÚÐKA UPSFERÐ
Maura hafði þráð þennan
dag, þegar ungi maður-
inn, sem hún hafði gifst með
svo litlum fyrirvara, kœmi
heim eftir sex ára fangavíst í
erlendu fangelsi. En sá
Aubrey, sem nú vildi endi-
lega fara með hana í „aðra
brúðkaupsferð" til fiskiþorps,
þar sem þau höfðu fyrst
hitst, vírtist gersamlega
breyttur maður.
Else-Marie Nohr
AÐEINS SÁ SEM
ELSKAR ER RÍKUR
Þegar Anita var fimmtán
ára gömul samdi Lennart
Ijóð handa henni, sem
hann nefndi „Aðeins sá
semelskar erríkur".
Mörgum árum seinna
fékk Lennart tœkifœri
til að minna Anitu á
þessi orð.
SKUGGSJÁ
Bókabúð Olivers Steins sf
NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ