Tíminn - 17.12.1991, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 17. desember 1991
Guttormur Þorsteinsson
Löndum, Stöðvarfirði
Fæddur 3. apríl 1906
Dáinn 3. október 1991
Þann 3. okt. síðastliðinn lést góðvin-
ur okkar hjónanna, hann Guttormur
frá Löndum. Guttormur var fæddur í
Löndum þann 3. apríl 1906. Foreldr-
ar hans voru þau hjónin Þorsteinn
Kristjánsson frá Löndum og Guð-
laug Guttormsdóttir frá Stöð. Gutt-
ormur var úr hópi sex systkina og
eru tvö þeirra á lífi. Framan af dvald-
ist hann mikið inni í Stöð hjá afa sín-
uin og ömmu og einnig hjá móður-
bróður sínum Benedikt, en þeir voru
miklir mátar. í Löndum var bæði
stundaður búskapur og sjósókn. Var
trilluútgerð veigamikill þáttur í bú-
skapnum og voru þeir saman í út-
gerð Guttomur og Kristján bróðir
hans.
Hinn 4. nóvember árið 1934 var
happadagur í lífi Guttorms, en þá
gekk hann að eiga eftirlifandi eigin-
konu sína Fanneyju Sigríði Ólafs-
dóttur frá Skála, Beruneshreppi.
Fanney er dóttir hjónanna Ólafs
Bjömssonar frá Hálsi, Búlands-
hreppi, og Stefaníu Antoníusardótt-
ur frá Berunesi. Reyndist Fanney
manni sínum alla tíð traustur og
umhyggjusamur lífsförunautur.
Fanney og Guttormur eignuðust
tvo syni, þá Benedikt kvæntan Olgu
Jónsdóttur, búsett á Norðfirði, og 01-
af, kvæntan Kristrúnu Guðnadóttur,
búsett á Stöðvarfirði. Fjölskyldan var
samhent og voru barnabörnin auga-
steinar afa og ömmu.
Snemma kviknaði áhugi Guttorms
á tónlist og hljóðfæraleik. Hefur
dvölin í Stöð ef til vill ýtt undir þá
hæfileika sem með honum bjuggu.
Fékk hann um tíma tilsögn í orgel-
leik hjá séra Vigfúsi Þórðarsyni presti
í Heydölum. Þá hleypti hann heim-
draganum og fór suður til Reykjavík-
ur og var einn vetur við orgelnám hjá
Páli ísólfssyni. Snéri Guttormur aft-
ur í heimasveit sína og gerðist organ-
isti og kórstjóri við Stöðvarkirkju.
Var hann þar samfleytt frá árinu 1928
og vel yfir hálfa öld. Þessi þjónusta
Guttorms var hans hjartans mál, líf
og yndi, sem hann stundaði af kost-
gæfni og næmri tilfinningu. Þá
stofnaði Guttormur einnig fyrsta
karlakórinn á Stöðvarfirði og stjóm-
aði honum um alllangt skeið. Á sam-
félagið hinum látna mikið að þakka
fyrir þetta mikla og fórnfúsa starf,
sem unnið var af brennandi áhuga.
Allir, sem kynntust Guttormi,
fundu og mátu það góða hugarþel og
þá umhyggju sem hann bar til þessa
fallega staðar Stöðvarfjarðar og
fólksins sem þar bjó. Fylgst var náið
með afla og útgerð og þeim skipum
sem fóru inn eða út fjörðinn, fram
hjá Löndum.
Guttormur var gefinn fyrir að til-
einka sér nýjungar og þekkingu á
þeim. Hann eignaðist eina fyrstu
dráttarvélina sem kom í sveitina.
Hann var einnig með þeim fyrstu til
að koma sér upp vindrafstöð og súg-
þurrkun. Hann var laghentur maður
og smíðaði m.a. bæði hús og báta.
Guttormur var mikill náttúruunn-
andi og fór reglulega í gönguferðir
sér til ánægju og heilsubótar. Þá var
hann einnig veðurglöggur mjög og
fylgdist grannt með veðri.
Eftir áramótin síðustu fluttust þau
hjónin á Dvalarheimili aldraðra í
Neskaupstað. Var það sökum veik-
inda Guttorms, en hann naut góðrar
aðhlynningar hjúkrunarfólksins þar.
Núna þegar Guttormur hefur kvatt
þetta líf, kemur upp í huga okkar
hvað það var yndislegt að fá að kynn-
ast honum. Það var alltaf jafn mikil
tilhlökkun sem kviknaði í brjóstum
okkar, þegar við lögðum af stað aust-
ur til að heimsækja þau hjónin. Það
var eins og að koma heim eftir langa
fjarveru. Þá áttum við saman stundir
sem aldrei gleymast. Settist Gutt-
ormur gjaman við orgelið og við
rauluðum saman; það var hreint
ótrúlegt hvað þessi aldni maður var
fimur í fingrunum.
Elsku Fanney og fjölskylda, innileg-
ar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Guttorms Þor-
steinssonar.
Silla og Hlynur
Þéttbýlismyndun á bökkum Ölfusár:
SAGA SELFOSS
W
KOMIN A ÞRYKK
í þessari viku er að koma út fyrsta
bindið af Sögu Selfoss, sem Guð-
mundur Kristinsson, bankagjald-
keri og fræðimaður, hefur skráð.
Bókin kemur meðal annars út í til-
efni af 100 ára afmæli brúar yfir
Ölfusá. Selfossbær gefur bókina
út.
í þessu bindi er sögð saga Selfoss
alla tíð frá því að höfuðskepnurnar
tóku að mynda landið og fram til
1930, þegar þéttbýli á Selfossi tók að
myndast. Bókin skiptist í 27 megin-
kafla, er 320 blaðsíður að stærð og
prýdd 184 ljósmyndum, sem margar
hverjar hafa ekki birst áður.
Bókin er til sölu á bæjarskrifstofum
Selfoss þessa viku og fram til 13.
desember á sérstöku kynningar-
verði, en eftir það fæst hún í al-
mennum bókabúðum.
SBS-Selfossi
Fulltrúar gefenda, læknar, starfsfólk og stjórnarmenn Borgarspít-
alanans við Cusa-tækið.
Borgarspítalinn:
Nýtt skurð-
lækningatæki
í síðasta mánuði var Borgarspítal-
anum formlega afhent nýtt skurð-
lækningatæki, Cusa-tæki svokallað,
sem einkum er notað við höfuð- og
lifraraðgerðir. Það leysir af hólmi
eldra tæki, sem Kvennadeild
Reykjavikurdeildar Rauða krossins
gaf fyrir nokkrum árum.
Það var Kvennadeildin í félagi við
Velunnara Borgarspítalans, sem
stóð að kaupunum og nutu fullting-
is nokkurra fyrirtækja. Nýja tækið
brennir fyrir æðar um leið og það
sker og þannig missir sjúklingurinn
minna blóð en áður við uppskurð.
Árni Sigfússon, stjórnarformaður
Borgarspítalans, veitti tækinu við-
töku.
Timamynd: Ámi Bjama
Ný verslun við Óðinstorg:
Parket og hurðir s.f.
Opnuð hefur verið ný verslun fyrir parket, hurðir og stiga við Óðinstorg.
Áhersla verður lögð á að selja gegnheilt parket, m.a. úr viðartegundum frá
Afríku, S-Ameríku og Ástralíu, sem sumar hverjar hafa ekki sést áður hér-
lendis.
Eigendur verslunarinnar eru ívar Atlason og Orri Vilbergsson.
Tímamynd: Ámi Bjama
Veitingasalurinn Skrúður, Hótel Sögu:
Búið að leggja á
jólahlaðborðið
Hótel Saga býður upp á jólahlað-
borð í veitingasalnum Skrúði nú í
desembermánuði.
Á hlaðborðinu verður úrval al-
þjóðlegra og þjóðlegra rétta, svo
sem sfidar-, svínakjöts- og hangi-
kjötsrétta.
Með réttunum af jólahlaðborði
Hótel Sögu verður boðið upp á nýja
Beaujolais-vínið, framleitt úr berja-
uppskeru síðasta sumars.
Feðgarnir Jónas Þórir og Jónas
Dagbjartsson leika ljúfa tónlist í
Skrúði á kvöldin frá 6. desember.
Jólahlaðborð Skrúðs á Hótel Sögu.
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka I
Reykjavík 13. tll 19. desember or I
Lyfjabergi og Ingólfsapóteki. Þaö apótek
sem fyrr er nefnt annast eltt vörsluna frá kl.
22.00 aö kvöldi til kl. 9.00 aö morgni virka
daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýs-
ingar um læknis- og iyfjaþjónustu eru gefn-
arf síma 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags fslands
er starfrækt um helgar og á stórhátíðum. Sím-
svari 681041.
Hafnarfjörður: Hafnarfjarðar apótek og Norð-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar I símsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartíma búða. Apó-
tekin skiptast á slna vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opið I þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tlmum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I
sima 22445.
Apótek Keflavikur: Opið virka daga frá k.
9.00-19.00. Laugardaga, helgidaga og al-
mennafridaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá
kl. 8.00-18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30.
Opið er á laugardögum og sunnudögum Id.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga
til kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garöabær: Apótekið er opið rúmhelga daga
kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Alnæmlsvandinn. Samtök áhugafólks um
alnæmisvandann vilja styðja smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. simi 28586.
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjamames og
Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavikur
alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugar-
dögum og heigidögum allan sólarhringinn.
Á Seltjamamesi er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00 oglaugard. kl. 10.00-11.00. Lokaðá
sunnudögum. Vi^anabeiðnir, símaráðleggingar
og tímapantanir I sima 21230. Borgarspítalinn
vakt frá Id. 08-17 alla virka daga fyrir fölk sem
ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans
(simi 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysa-
deild) sinnir slösuöum og skyndiveikum allan sól-
arhringinn (simi 81200). Nánari upplýsingar um
lytjabúðir og læknaþjónustu emgefnar i slm-
svara 18888.
Ónæmisaögeröirfyrirfullorðna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvemdarstöö Reykjavikur á
þriðjudögum Id. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmisskirteini.
Garöabær: Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, sími 656066. Læknavakt er i
síma 51100.
Hafnarfjöröur Heilsugæsla Hafnarijarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, sími 53722. Læknavakt sími 51100.
Kópavogur Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Simi 40400.
Keflavík: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn'
á Heilsugæslustöð Suðumesja. Simi: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistööin: Ráðgjöf I
sálfræðilegum efnum. Sími 687075.
Landspítalinn: Aila daga kl. 15 til 16 og kl. 19
til kl. 20.00. Kvennadelldin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl.
15-16. Heimsóknartimi fyrir feður kl. 19.30-
20.30. Barnaspítall Hringsins: Kl. 13-19 alla
daga. Öldrunartækningadeild Landspltal-
ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomu-
lagi. - Landakotsspitali: Alla virka kl. 15 til kl.
16 og kl. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17.
Heimsóknartimi annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. - Borgarspitalinn I Fossvogi: Mánu-
daga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir
samkomulagi. Á laugardögum og sunnudögum
kl. 15-18.
Hafnarbúðir Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvita-
bandiö, hjúkrunardeild: Heimsóknartlmi frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnudaga
kl. 14-19.30. - Heilsuverndarstööin: Kl. 14 til
kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavikur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspítali:
Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl.
19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl.
17. Kópavogshæliö: Eftir umtali og kl. 15 til kl.
17 á helgidögum. - Vifllsstaðaspítali: Heim-
sóknartimi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. -
SL Jósepsspítali Hafnarflröl: Alla daga kl.
15-16 00 19-19.30.
Sunnuhlíö hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim-
sóknartlmi kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavíkuriæknishéraös og
heilsugæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólar-
hringinn. Simi 14000. Kefiavik-sjúkrahúsið:
Heimsóknartími virka daga kl. 18.30-19.30.
Um helgar og á hátiöum: Kl. 15.00-16.00 og
19.00-19.30. Akureyri - sjúkrahúsið: Heim-
sóknartimi alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-
20.00. A barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra
Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofusimi frá
kl. 22.00- 8.00, sími 22209. Sjúkrahús Akra-
ness: Heimsóknartími Sjúkrahúss Akraness er
alla daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavik: Neyðarsími lögreglunnar er 11166
og 000.
Seltjamames: Lögreglan sími 611166,
slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100.
Kópavogur: Lögreglan sími 41200, slökkvilið
og sjúkrabifreið sími 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan simi 51166, slökkvi-
lið og sjúkrabifreið simi 51100.
Keflavík: Lögreglan slml 15500, slökkvilið og
sjúkrabill simi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjar Lögreglan, simi 11666,
slökkvilið slmi 12222 og sjúkrahúsið simi
11955.
Akureyri: Lögreglan simar 23222, 23223 og
23224, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 22222.
isafjörður: Lögreglan simi 4222, slökkvilið simi
3300, brunaslmi og sjúkrabifreið sími 3333.