Tíminn - 28.12.1991, Blaðsíða 12
12
Laugardagur 28. desember 1991
■í TÍMANS RÁS
ATLI MAGNÚSSON:
Fílar og síldarfriðun
Það þótti fyndin frétt þegar þrjú
Afríkuríki báru fyrir nokkru fram
tillögu eða áskorun þess efnis að
bann yrði lagt við sfldveiðum í
norðurhöfum þar sem stofamir
væru í hættu. Því fyndnari var
fréttin þar sem þessi ríki áttu ekki
land að sjó og stunduðu því ekki
fiskveiðar — og þótt þau hefðu
stundað fiskveiðar þá hefði sá
veiðiskapur farið fram á allt öðrum
og óviðkomandi slóðum. Náttúru-
lega var tillaga þeirra þarna niður
frá líka borin fram hálfvegis í
gamni. En öllu gamni fylgir alvara
nokkur. Svo stendur nefnilega á að
til þess er ætlast af umræddum
rfkjum að þau passi upp á ýmis
misjafnlega merkileg dýr sem búa
inni á gresjum og í skógum þeirra.
Þarf varla að taka fram að hér er
um skepnur að ræða sem þessi Afr-
íkuríki gætu sem best verið án, því
oft hafa þau ekki af þeim nema
leiðindi, svo sem plágu er friðaðir
fflar valda, en fflarnir hafa fjölgað
sér til vandræða. Þá er ótalinn
kostnaður af veiðivörslu vegna vita
gagnslausra kvikinda annarra, sem
þó mætti gera sér gagn af með því
að drepa þau eða selja á fæti til
safnara.
Það er satt að segja ekki minnst
fyrir grátbænir og áeggjan nátt-
úruverndarsamtaka í London, New
York og víðar um heiminn, sem
stjórnendur þessara ríkja gera þó
hvað í þeirra valdi stendur til þess
að halda hundruðum fágætra
fugla, rándýra og skriðkvikinda við
lýði og forða þeim frá útslokknun.
Verður samt ekki séð að þessum
Bretum og Ameríkönum komi
neitt við hvað þessar fjarlægu
þjóðir gera við lögmæta eign sína.
En þessi fátæku ríki vilja sýna í
verki að þau séu ábyrgir borgarar
jarðarinnar og sér meðvitandi um
viðkvæmt umhverfi. Þetta er rifjað
upp hér vegna fréttar um að það
standi rétt einu sinni til að íslend-
ingar segi sig úr hvalveiðiráðinu.
Þeir kveðast vita (sem eflaust er)
að það sé alveg nóg til af hvölum
og heimta að mega drepa þá og
hagnýta. í Afríku segja þeir raunar
líka að nóg sé til af fflum — en þeir
friða þá bara eigi að síður. Það
virðist ekki breyta ásetningi þeirra
í því efni þótt fflahjarðir troði nið-
ur negrakofa í skógarþorpum og
valdi ýmsum slysum. Hætt er við
að íslendingar væru búnir að gera
þær ráðstafanir sem dugað hefðu
við sömu kringumstæður og slátra
slatta af slíkum vargi.
En það sem gerir gæfumuninn er
að „villiþjóðirnar" í Afríku meta
það meira að afla landi sínu álits
og samúðar úti um heiminn, en að
það fréttist að þeir geri náttúrunni
grand á þessum síðustu og verstu
tímum þegar umhverfið á í vök að
verjast. Þeir eru meira að segja til-
búnir að leggja á þó nokkuð efna-
hagslegt tjón í þessu skyni. Þó hafa
þeir áreiðanlega ekki síður áreið-
anleg gögn um fjölda sinna ffla en
íslendingar og Norður-Norðmenn
um hvali og það mun gilda um
fleiri tegundir.
Seint ætlar okkur íslendingum
að skiljast að kjarni málsins er
ekki sá hvort nóg er af hvalnum
eða ekki. Það álit og sú afstaða
hefur skapast í heiminum að þessi
kvikindi skuli látin í friði — rétt
eins og Afríkuffllinn! Og við því
fáum við ekkert gert hvernig sem
látið er. Ekki er undirritaður þó
svo bláeygður að hann ætli að
þessar línur hafi minnstu áhrif.
Við munum áreiðanlega segja
okkur úr hvalveiðiráðinu, íslend-
ingar, og fá að launum þann
óskunda sem hver manneskja
hlýtur að vita að slíkt býður heim.
Og það er víst það sem útflutn-
ingsgreinarnar hér þurfa helst á
að halda — eða hvað? En sá sem
ætlar sér í ráðleysuna hvað sem
það kostar verður auðvitað ekki
stöðvaður.
Mikla skömm gera Afríkuríkin
oss hér norður frá. Betur að við
hefðum skilið það verðuga háð
sem í tillögunni um friðun sfldar-
stofnanna var fólgið.
Gettu nú
Það var Tjarnarkirkja á
Vatnsnesi, sem hér var
spurt um seinast.
Og aftur er spurt um hún-
vetnska kirkju. Þessi er
nýrri af nálinni, eins og
hún raunar ber með sér,
og var vígð á sl. hausti.
Hvar er kirkjan?
r n <1 *- ffs IL
jc ST n < 2l 3
n O' e_i
2> F 3>'
TZ —’: F
2 þ. LO 3
I — tP OJ □ r
O ■ C/> □ ST áÉT 3> hr »rh F
2 <T> 2=> □ F c. S Fit T -
c T in E 25 C3 þd 33
F 3 B 3 =i- < □ —T tS cn i» i F i joIS? "tí" £ -
F Ö 3T E a F -3 r> c. o ■ Ð B B B □ F c a B a B B o r* F C
2 F Q a cf
33. Fj co — [öc — rT E a S >3 £
jcTj tT T 2 F a 71 5»
* F 2 □ B 70 ■Wt m 2 5 ! 1 B r * X a s B a B B B B B á F F z. F x» rr
KROSSGÁTA
VtíN' xveir- iu cr- Fy/?5r HfiR- K Víuft 5c . -T— ’TÍtírí 65C tíR Á j’WH TÍMfi- ZrfiS BILS Þ ll STxte - - /ww —^ I {
KlYtííJ KKiKA • n
YA\ ■ h JtT
y kv/ I>í\ > rt* ► ?ÍLfi i
1í 1 ‘ ■t '/'I ..f/ Y j >
VW/) X L 3 f
?iTT ném SftMHLl
/^Píiij < tííRsm — y J 3 EJN/V H
1
| 5o CB/Sti'ö- i iv/?r/v S/lP- KOR/V H HRrtP- GUÐ fisk 5
I/V , /l'/ Hvonr SJÓN- f/£RÍ HflSAK BCSI yf/r- sýRÍ) 6 - t,ein/öW . (o
)Vv VIHIÐUR JW^FA
MNflR H£s- t/m/i S'Æt.D- WflFW MApUR t £)BLÍu- lÍRKKl V
TtiMf TÆKi
jnWi E//VS' PÝRfí ÐSLáÐl Tty/K. SiGlÓ . 1
rm m/iuj- l/M SVHTI /JTPM cæIHJI
fi/IMflN 5 KE/KUR tss roR s
MÍW? 30R AKG/ÍR
nki /ö B37-Í/J? mtí- ltí&U fiRÉKl H
SKKflLL T/ND-1 A-R
i 5F iPT HR(& R.VÍK. 1 BIBLÍU ~ HAÐUR 12> o~ R£l$(\ I /0
STMJR 5I6LU
MÁLM
Ro J) STNFIJ?
SÁl blett" HAT nnf->F- isr
£5 SMSJÐ mvF- JHG StR- //í-J. a
MYfAT SJo tónn FU6LA £FN/
il *—^ » H a
SP/ÍA/V 'firrl
mi HR YSS- utí/i ft mm u