Tíminn - 28.12.1991, Blaðsíða 5

Tíminn - 28.12.1991, Blaðsíða 5
laugardagur 28. desember 1991 Tíminn 5 íslendingar hafa sagt sig úr Hvalveiðiráðinu Ríldsstjórn íslands tók í gær þá ákvöróun aö segja sig úr Alþjóðahvalveiði- ráðinu. Úrsögnin tekur gildi 30. júní á næsta ári, á miðjum ársfundi ráðs- ins. Ekkert liggur fyrir um stofnun nýrra samtaka hvalveiðiþjóða á Norður- Atlantshafi og því er óvíst hvort eða hvenær íslendingar hefja hvalveiðar að nýju. Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, sagði ljóst að hvalveiðar myndu ekki hefjast næsta sumar. Þorsteinn sagðist jafnframt ekki sjá að þessi ákvörðun kallaði á neinar aðgerðir af hálfu hvalfriðunarsinna þar sem ekki væri verið að taka ákvörðun um að hefja hvalveiðar. „Meginástæðan fyrir því að þetta skref er tekið er sú að ráðið hefur að okkar mati ekki sinnt þeim skyldum sem á því hvíla samkvæmt stofh- samningnum. Þar er með skýrum hætti kveðið á um að ráðið eigi að vinna að vemdun og nýtingu hvala- stofnanna. Á undanfömum árum hef- ur ráðið smám saman verið að breyt- ast í hreinræktuð vemdunarsamtök og við lítum svo á að það stríði gegn megintilgangi alþjóðahvalveiðisátt- málans og sé þar af leiðandi ekki í samræmi við stefnu íslands og ís- lenska hagsmuni. Við teljum fullreynt að breyta starfs- háttum ráðsins. Við höfum hvað eftir annað á undanfömum árum lagt tíl- lögur fyrir vísindanefndina og hval- veiðiráðið. Síðast á þessu ári voru lagðar fyrir vísindanefndina tillögur um veiðar sem voru viðurkenndar í nefndinni en fengust ekki ræddar í hvalveiðiráðinu. Við höfum á undan- fömum árum varað ráðið við því að ef ekki yrðu breytingar á starfsháttum þess þá kynni að koma að því að ís- land sæi sér ekki fært að sitja lengur innan ráðsins. Slík viðvörun var gefin fyrir síðasta ársfund," sagði Þor- steinn. Ákvörðun íslendinga um að segja sig úr hvalveiðiráðinu hefur legið í loft- inu um nokkurt skeið. Á undanföm- um árum hafa íslensk stjómvöld margoft gefíð í skyn að svo kynni að fara að ísland tæki þessa ákvörðun ef ekki yrði breytíng á starfsháttum hvalveiðiráðsins. Eftir ársfund ráðs- ins í sumar Iagði íslenska sendinefnd- in til að við segðum okkur úr ráðinu. Sjávarútvegsráðherra skipaði síðan nefnd til að kanna úrsögn og lagði hún eindregið til að við segðum okk- ur úr því. Eftir að þetta nefndarálit lá fyrir lagði sjávarútvegsráðherra tíl við ríkisstjómina að við segðum okkur úr hvalveiðiráðinu og nú hefur ríkis- stjómin samþykkt þessa tillögu. Þorsteinn sagði að samstaða hefði verið í ríkisstjóminni um þessa ákvörðun en viðurkenndi jafnframt að uppi hafi verið ýmis sjónarmið í henni. Hann sagði að stjómin hefði farið ítarlega yfir allar hliðar málsins áður en ákvörðun var tekinn. Þess má Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra. geta að blaðamannafundur þar sem kynna átti niðurstöðu ríkisstjómar- innar tafðist um einn og hálfan klukkutíma vegna þessa að lengri tíma tók fyrir ríkisstjómina að kom- ast að endanlegri niðurstöðu en búist var við. Þorsteinn Pálsson tók skýrt fram að ekkert lægi fyrir um stofnun nýrra samtaka hvalveiðiþjóða, en sam- kvæmt hafréttarsáttmálanum mega aðildarþjóðir hans ekki veiða hvali nema að vera í samtökum um nýtingu hvala. Þorsteinn sagði ljóst að langan tíma tæki að stofna slík samtök, en það væri vilji íslenskra stjómvalda að hafa samstarf við ríki á Norður-Atl- antshafi um vemd og nýtingu hvala. Tfmamynd: Aml Bjama. Þorsteinn sagði að umræður um slíkt samstarf hefðu farið ffam en ekkert lægi fyrir um stofnun samtaka. Hann sagði hugsanlegt að íslendingar myndu í samvinnu við Norðmenn eða aðrar þjóðir hefja nýtingu smáhvala sem ekki heyra undir hvalveiðiráðið. Þorsteinn sagði að ísland hefði sem aðili að hvalveiðiráðinu verið að ein- angrast í þessu máli. Hann sagði að með úrsögn fengi ísland meira lými. Staðan yrði hins vegar áffam þröng og óvíst væri hvort eða hvenær við hæf- um hvalveiðar að nýju. Þorsteinn sagði vel koma tíl greina að íslending- ar endurskoðuðu ákvörðun sína ef hvalveiðiráðið breyttí starfsháttum sínum. Hann sagðist ekki telja að með þessari ákvörðun værum íslendingar að kalla yfir sig aðgerðir af hálfu hval- friðunarsinna þar sem með henni væri ekki verið að taka ákvörðun um hvalveiðar. - EÓ Ríkisstjórn íslands: Sendir Gorbatsjov kveðjur í tílefni þess að Mikhail S. Gorbatsjov hefúr sagt af sér embættí forseta Sovét- ríkjanna, hefur forsætísráðherra, Dav- íð Oddsson, ritað honum bréf fyrir hönd íslensku ríkisstjómarinnar og þakkað honum hans þátt í þeim miklu og jákvæðu umskiptum sem átt hafa sér stað í A- Evrópu og í samskiptum Austurs og Vesturs á undanfömum ár- um. Sendiherra íslands í Moskvu, Ólaf- ur Egilsson, afhentí Gorbatsjov bréfið í gærmorgun og hljóðar það svo orðrétt: „Fyrir hönd ríkisstjómar íslands vil ég nota tækifærið og senda yður bestu kveðjur jafnframt því sem ég vil votta yður virðingu fyrir það hugrekki og þolgæði, sem þér hafið sýnt í embætt- istíð yðar sem forseti Sovétríkjanna. ís- lenska þjóðin minnist með hlýjum huga heimsóknar yðar tíl íslands í tíl- efni hins sögulega fúndar yðar með Ronald Reagan Bandaríkjaforseta fyrir fimm árum. Þáttar yðar tíl að tryggja ffiðsamleg umskiptí í löndum Austur- Evrópu, sem og þýðingarmikils hlut- verks við að koma á fækkun bæði kjamavopna og hefðbundinna vopna, mun lengi verða minnst sem mikils- verðs ffamlags til heimsffiðarins. í tíl- efni af því, að þér látíð nú af embætti, óskar íslenska þjóðin yður og fjöl- skyldu yðar heilla og alls velfamaðar um ókomna tíð.“ íþróttamaður ársins: Fimmtudaginn 2.janúar verður lýst kjöri íþróttamanns ársins, sem kjörinn er af Samtökum fþrótta- fréttamanna. Það verður gert í hófí sem haldið verður að Hótel Loft- leiðum og hefst það klukkan 20.30. íþróttamaður ársins á síðasta ári var kjörinn Bjami Friðriksson. Til- kynnt hafa verið nöfn þeirra tíu sem til greina koma sem íþrótta- menn ársins í ár og eru þau hér að neðan í stafrófsröð: Alfreð Gíslason handknattleikur, Bjami Friðriksson júdó, Einar Vil- hjálmsson spjótkast, Eyjólfur Sverr- isson knattspyrna, Ragnheiður Run- ólfsdóttir sund, Sigurbjörn Bárðar- son hestaíþróttir, Sigurður Einars- son spjótkast, Sigurður Grétarsson knattspyrna, Teitur Örlygsson körfuknattleikur, Valdimar Gríms- son handknattleikur. Alls fengu 38 íþróttamenn atkvæði. —PS Vísindaverðlaun úr sjóði Asu Guðmundsdóttur - Wright: Háskólarektor verðlaunahafi Sveinbjörn Björnsson jarðeðlis- fræðingur og núverandi rektor Há- skóla íslands hlaut í gær viðurkenn- ingu úr sjóði Ásu Guðmundsdóttur - Wright fyrir vísindastörf sín og rannsóknir í jarðeðlisfræði íslands. Formaður sjóðsins, dr. Sturla Frið- riksson afhendir hér Sveinbirni við- urkenninguna. Tlmamynd: Ámi Bjama. Jólahappdrætti Sjálfsbjargar 1991 Dregið hefurverið í Jólahappdrætti Sjálfsbjargar 1991. Vinningar og útdregin númer eru sem hér segir. 1. vinningur. Bifreið: Audi 100 eða Mitsubishi Pajero að verðmæti kr. 3.000.000,00 Vinningsnúmer: 150232 2. -108. Vinningur. Heimilistæki frá Siemens eða tækjabúnaður frá Japis hver að verðmæti kr. 250.000,00 Vinningsnúmer: 506 85534 167278 227321 3249 86397 169511 229172 3955 88403 172102 229592 9875 92761 173126 229987 10732 95828 175708 233990 13859 101674 176084 234217 14375 104420 177236 235966 15417 105129 177421 237528 16805 107281 178597 239424 18886 113864 183620 20356 116304 183969 26402 119794 185844 30488 120482 186035 31429 124348 187289 32973 124581 187523 33207 126357 191803 35571 127006 193984 37106 128368 194884 38281 128739 1?5304 51053 139601 195908 53087 140123 198847 55045 141643 203749 56422 141736 204236 59077 146234 205100 62772 148655 206238 64033 148860 209508 66327 150942 211924 72826 153880 212175 78816 153954 216541 79947 154453 220653 81395 155115 225187 84341 158345 225C69 85444 167151 227268 Vinningsnúmer birt án ábyrgðar. Vinningar eru skattfrjálsir. Vinninga ber að vitja á skrif- stofu Sjálfsbjargar að Hátúni 12, 105 Reykjavík, sími 29133. Sjálfsbjörg þakkar landsmönnum stuðning nú sem fýrr.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.