Tíminn - 28.12.1991, Blaðsíða 13
Laugardagur 28. desember 1991
Tíminn 13
Einfaldasti hnúturinn
1.
Takið A, sem á að vera lengri og breið-
ari en B og leggið í kross yfir B.
Sveipið A í kring um og
undir B.
Færið nú A á ný
yfir B.
4.
Dragið A upp og i gegn um
„gjörðina“ sem hefur myndast
um hálsinn.
5.
Dragið nú A niður (
gegn um sveiginn
sem rétt í þessu var
myndaður með A.
Þéttu hnútinn og not-
aðu til þess báðar
hendur, uns hnýtuinn
tekur á sig V-laga
6.;
Dragið hnútinn upp að’'
hálsinum og herðið
hann og gangið úr
skugga um að B sé
styttri en A. Endinn á A
skal nema við spenn-
una á buxnabeltinu.
V
Nýi hnúturinn eða
„Shelby“- hnúturinn
1. Látiö bakhliöina á bindinu snúa út
og leggið A undir B.
2. Flytjið A yfir og síð-
an undir B.
3. Þéttið nú nokkuð hnútinn
4. Fytjið A yfir til vinstri.
5. Dragið A upp í gegn um „gjörðina"
er myndast hefur um hálsinn.
6. Dragið A niður í gegn
um hnútinn og herðið að.
Kanntu
að hnýta
áþig
bindi -
eða
slaufu?
Nokkrar hagnýtar leið-
beiningar handa „séntil-
mönnum" af yngri kyn-
slóðinni
Hversu margir ætli þeir séu ungu
mennirnir, sem ekki kunna að hnýta
á sig bindi — hvað þá slaufii. Það er
að vísu í tísku í stórum hópum að
nota hvorugt og vera með allt opið í
hálsinn. En fyrr eða síðar koma þau
tilefni að menn verða að „búa sig
uppá“, og ekki endilega vegna af-
mæla eða jarðarfara. Það færist
nefnilega í vöxt að einmitt ungir
menn vilja vera „flott í tauinu" upp á
gamla móðinn. Þá er hálf vandræða-
legt að þurfa að leita til pabba eða afa
gamla, sem kannske eru ekkert of
sleipir í listinni heldur. Hér eru því
sýndar aðferðir við bindishnýtingar
handa ungum mönnum, sem vilja
geta klætt sig með virkilegum „stæl“
þegar svo ber undir, og kennt hvem-
ig hnýta skal þrjár tegundir af bind-
ishnútum og slaufu — ef þér verður
boðin innganga í Oddfellow eða Frí-
múrararegluna. Góða skemmtun!
Umhirða
hálsbinda
Þegar þú færð þér nýtt bindi er það
undir þér sjálfum komið hvað það
endist, og það er talsvert atriði, því
sum bindi eru orðin skolli dýr, svo
sem silkibindi.
Ef þú vilt ekki að bindið krumpist:
1. Láttu tvo eða þrjá daga líða í milli
þess er þú notar hvert bindi.
2. Dragðu bindi aldrei af þér þannig
að þú hafir það hnýtt uns þú notar
það næst.
3. Hengið bindið upp og flest brot
munu hverfa úr því.
Ath.! Komi blettur í bindi, skal
reyna að hreinsa það strax með rök-
um klút og láta þorna. Þetta er þó
aðeins hægt ef bindið má þvo, eins
og Wemblon-bindi. Annars verður
að láta það í þurrhreinsun.
Bindi í
ferðalagið
Til em sérstakar töskur ætlaðar fyr-
ir hálsbindi, en séu menn ekki svo
fínir á því, ætti að brjóta bindin f
femt og leggja svo sem tvö á milli
skyrtna eða buxna í töskunni. Látið
bindin aldrei Iiggja neðst í töskunni.
í klæðaskáp skal hengja þau yfir slá
og það á við um bindi eins og allan
annan klæðnað að vilji menn að þau
kmmpist sem allra minnst, ætti að
hafa þau í plastpoka.
Windsor- hnúturinn
Leggið A yfir B.
Flytjið A I kring um og
bak við B.
Lyftið A upp eins og á
myndinni.
Stingið A niður I
gegn um „gjörð-
ina“ um hálsinn.
Leggið nú A yfir B.
Enn einu sinni flyst A
upp I gegn um „gjörð-
ina .
7.
Stingið nú A niður I
gegn um fremsta
vafninginn á hnútn-
um.
Þéttið hnútinn og notið til þess báöar
hendur.
Slaufa heldrimannsins
Þá er komið að því að finýta slaufu- - þ.e. al-
vöru slaufu en ekki slaufu með jámkrókum og
teygjum, sem alvöm „séntelmenn“ nota auðvit-
að aldrei!
Fyrsta skrefið er einfalt.
Smeygið slaufunni undir
kragann og takið eftir að
A skal vera síöari en B.
Leggið A yfir B.
(Með tlmanum læra menn
að taka tillit til þess við hnýt-
inguna að menn hafa mis-
jafnlega gildan háls.)
3.
Smeygið nú A upp og
undir „gjörðina", sem
þegar hefur myndast um
hálsinn.
Þéttið hnútinn ögn og brjótið sam-
an neðri endann.
5.
Leggið A yfir samanbrotna end-
ann, þ.e. B- endann.
6.
Nú hefst galdurinn! Skoðið mynd-
ina vel. Brjótið A saman svo brotið
vísi að miðju bijóstinu og þröngvið
A I gegn um sveiginn þar sem
punktalínan og örin sýna.
7.
Lagið nú slaufuna til með þvi aö
kippa I brúnirnar á henni.
77/ hamingu! Þér tókst það.