Tíminn - 28.12.1991, Blaðsíða 1
Hefur boðað frjálslyndi og framfarir í sjö tucji ára
lAGUR 28. DE!
Ríkisstjórnin ákveður að íslendingar skuli ekki lengur eiga samleið með unnendum sjávarspendýra:
Blásiö til brottfarar
úr Hvalveiðiráðinu
Á fundi í ríkisstjórninni í gær var
samþykkt samhljóða að íslending-
ar segðu sig úr Alþjóða hvalveiði-
ráðinu. Uppsögnin mun taka gildi
30. júní 1992. Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra segir að úr-
sögnin þýði þó ekki að hvalveiðar
hefjist á næstunni. Meginástæða
fyrir því að þetta skref er nú stigið
sé að Hvalveiðiráðið hafi ekki sinnt
þeim skyldum sem því ber sam-
kvæmt stofnsamningi þess en í
honum er með skýrum hætti kveðið
á um að ráðið eigi að vinna að
verndun og nýtingu hvalastofn-
anna. Ráðið hafi hins vegar verið
að breytast í hreinræktuð verndun-
arsamtök og í samræmi við það
neitað ítrekað að fjalla um eða taka
tillit til vísindalegra rannsóknanið-
urstaðna á viðkomu og veiðihæfni
hvalastofna. Ekkert liggur enn fyrir
um stofnun nýrra samtaka hval-
veiðiþjóða við N-Atlantshaf en
samkvæmt hafréttarsáttmála SÞ er
aðild að samtökum um nýtingu
hvala skilyrði þess að þær þjóðir
sem eru aðilar að hafréttarsáttmál-
anum veiði yfirliöfuð þá hvali sem
undir Alþjóða hvalveiðiráðið heyra.
• Blaösíða 5
Stórbruni varö á Þorláksmessu er Harrastaðir við Fáfnisnes í Skerjafirði brann.
Húsið sjálft, sem er timburhús, stórskemmdist og innbú allt eyðilagðist, þar á meðal verð-
mætt bókasafn. • Blaðsíða 2
Rætt við elsta starfsmanns blaðsins:
Tíminn hélt bara
áfram að koma út
Helgarviðtalið blaðsíðu 8-9 (v/hliðina á mynd)
Aramótaflugeldasalan er hafin. Jafnvlrði stórverðmæta
SJO EINBYLISHUSUM
SKOTIÐ UPP í LOFT?
• Blaðsíða 4