Tíminn - 24.01.1992, Blaðsíða 3
Föstudagur 24. janúar
Tíminn 3
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB:
VeKerðarkeriið er
ekki samningsatriði
Engin breyting hefur orðið í samningamálum aðildarfélaga BSRB
síðustu vikur, að sögn Ögmundar Jónassonar, formanns BSRB. Á
almennum baráttufundi opinberra starfsmanna á Akureyri í fyrra-
dag vísaði Ögmundur til nýlegra orða Ágústar Einarssonar, for-
manns samninganefndar ríkisins, þess efnis að nú væru flestir farn-
ir að skilja að engar kauphækkanir yrðu í ár. í ræðunni lýsti Ög-
mundur því yfír að þetta væri rangt hjá Ágústi, BSRB væri ekki bú-
ið að skilja þetta og ætlaði sér ekki að skilja þetta.
Ögmundur sagði í samtali við Tím-
ann í gær að það væri enn krafan að
auka kaupmátt taxtakaupsins og ná
fram réttlátari tekjuskiptingu. Um
þetta vilja aðildarfélögin viðræður
segir Ögmundur og aðspurður um.
hvort þær viðræður væru ekki
strand og skiluðu engum árangri,
sagði hann að það sem væri fast
væri hægt að losa.
Ögmundur sagði hins vegar með
öllu óaðgengilegt fyrir BSRB að
ganga til viðræðna á þeim forsend-
um sem ríkisvaldið virtist nú ætla
að bjóða upp á. Aðför að réttindum
og kjörum almenns launafólks með
skerðingu á því velferðarkerfí sem
hér hefur verið byggt upp getur, að
sögn Ögmundar, aldrei verið grund-
völlur samningaviðræðna. Velferð-
arkerfið væri ekki samningsatriði og
því ekki hægt að gera það að skipti-
mynt sem boðin væri í kjarasamn-
ingum gegn því að kauptaxtar
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB.
hækkuðu ekki. „Það væri siðleysi ef
svo færi að okkar viðsemjandi, ríkið,
yki álögur á launafólk og færi svo að
semja við okkur um að draga ögn úr
þessum álögum gegn því að fólk
sem þegar er á lúsarlaunum félli frá
öllum kröfum um launabætur,"
sagði Ögmundur. Því segir hann
brýnt að öll samtök launafólks sam-
einist í skilyrðislausri andstöðu við
þessar árásir á velferðarkerfið og
sagðist aðspurður ekki fráhverfur
þeirri hugmynd að efna til einhvers
konar samræmdra aðgerða allra
launþegasamtakanna til að fá þess-
um stjórnvaldsaðgerðum hnekkt.
En hann undirstrikar að fyrir það að
bægja þessu frá sé aldrei hægt að
borga með því að slá af sjálfsögðum
launakröfum fólks sem ekki getur
látið enda ná saman.
- BG
Alþýðusambandsmenn hittast á mánudag til að ákveða hvort tímabært sé að fara í samflots-
viðræður. Eftir samþykkt bandorms hljóta þetta að verða:
ÞríhUða viðræður ASÍ,
VSI og ríkisstjórnar
Boðað hefur veríð til sérstaks miðstjórnarfundar ASÍ með for-
mönnum sérsambandanna á mánudag þar sem rætt verður um
næstu skref í samningamálum. Sú spurning, sem menn munu
einkum leitast við að svara, er hvort tímabært sé að fara út í stærri
samflotsviðræður við atvinnurekendur á vegum heildarsamtakanna
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ,
sagði í samtali við Tímann í gær að
ljóst væri að þegar farið væri út í al-
mennari kjaraviðræður, hlytu slíkar
viðræður að verða þríhliða viðræður
launþega atvinnurekenda og ríkis-
valds, enda hafi sú afstaða ASÍ ekkert
breytst að ekki kæmi til greina að gera
kjarasamninga nema ýmsum ákvæð-
um sem fram koma í bandorminum
svokallaða yrðri breytt.
Að sögn Ásmundar eru einstök aðild-
arfélög og sérsambönd ASÍ nokkuð
misjafnlega á vegi stödd í sínum sér-
kjaraviðræðum og eins og fram hafi
komið hafi t.d. Verkamannasamband-
ið náð ákveðnu stigi í sínum sérkjara-
viðræðum á meðan aðrir hópar, s.s.
verslunarmenn, séu ekki komnir eins
langt. Ásmundur vildi ekki tímasetja
það nánar hvenær mætti búast við að
gengið yrði að sameiginlegu samn-
ingaborði. „Út af fyrir sig gætu ein-
hverjar viðræður farið strax af stað, ef
ákvörðun verður tekin um það að
ganga til sameiginlegra viðræðna. Það
verður hins vegar að meta það í ljósi
þess hvemig sérkjaraviðræðumar
standa, hversu hratt menn vilja fara af
stað með slíkt, jafnvel þó menn reyn
ist sammála um að tímabært sé að fara
af stað með slíkar viðræður," sagði Ás-
mundur og bætti því við að hugsan-
legt væri að menn reyndu að gera
hvort tveggja, að fara af stað með
ákveðna þætti í sameiginlegum við-
ræðum en halda iafnframt áfram sér-
kjaraviðræðum. Ásmundur benti á að
í slíkum viðræðum gæti Vinnuveit-
endasambandið ekki verið þeirra eini
viðmælandi heldur hlyti ríkisvaldið að
koma þar inn líka og slíkar viðræður
yrðu að fara fram nokkuð samhliða.
Hann sagði að afstaða ASÍ til band-
ormsins hafi ekki breyst frá því að
hann fór á fund forsætisráðherra í síð-
ustu viku og að Ijóst væri að engir
kjarasamningar yrðu gerðir nema
Sameinaðirverktakar hf:
Sameinaðir verktakar hf. hafa
sent frá sér fréttatilkynningn þar
sem segir að stefnt hafi verið að
þvf í langan tíma að gera félagið
að almenningshlutafélagi og ekki
seinna en á þessu ári.
Hafl forráðamönnum fyrirtæk-
Ísins veriö ijóst að það þyrfti að
minnka eigið fé félagsins, es fé-
lagið hafl ekki gefið út jöfnunar-
hiutabréf til jafns við verðbólgu í
mörg ár. Því hafl hrein eign
myndast af völdum rekstrarhagn-
aðar, sem félagið hafi greitt öll
gjöld af. Eigið fi féiagsins sé
fyrst og fremst bundið f eignar-
hluta í íslenskum aðalverittökum
sf., f fasteigninni Höfðabakka 9
og í afntkstri af annarri starfsemi
féiagsins.
í tUkynningnnni segir ennfrem-
ur að eftir úrskurði hafi verið
óskað hjá yfirvöldura um hver
mætti vera lækkun hlutafiár með
útgreiðslu til eigenda þess, án
þess að sá hluti eiginfjárins, sem
tfl greiðshi kæmi, skattíegðist
aftur hjá hluthöfum. Samkvæmt
úrskurði yflrvalda nam sú upp-
hæð um 900 millj, króna. -PS
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASl.
þeim ákvörunum yrði breytt.
,Jríér sýnist augljóst og ég marka það
af meðferð mála að undanfömu, að al-
mennar yfirlýsingar um málin hafa
ekki hreyft við stjómarmeirihlutan-
um. Þannig að ég met það svo að það
muni ekki gerast neitt í þeim efnum
nema í tengslum við einhverja samn-
ingavinnu og því séu þetta mál sem
verði að ganga samhliða," sagði Ás-
mundur.
- BG
Fríða Á. Sigurðardóttir hlaut í gær bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir skáldsöguna „Meðan nóttin líð-
Ég gleðst fyrir hönd
íslenskra bókmennta
„Vissulega átti ég ekki von á þessu og er enn ringluð eftir að hafa
fengið tíðindin,“ sagði Fríða A Sigurðardóttir rithöfundur, í viðtali
við Tímann skömmu eftir hádegi í gær, en klukkustundu áður hafði
dómnefndin, er úthlutar bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs,
tilkynnt að verðlaun ársins 1992 kæmu í hlut Fríðu fyrir skáldsögu
hennar „Meðan nóttin líður".
Iðnþróunarsjóður:
Svipuð eftirspum
eftir lánum
Helldareftirspum eftír lánum hjá
Iðnþróunarsjððl á síðasta ári nam
um 2400 milljónum króna, en
sjóðurinn veittí hins vegar 1300
milljónura í ián, sem er um 500
mifijónum króna meira en árið
1990. Athygli vekur að eftírspum-
in eftír lánum helst svipuð og árið
1990, þrátt fyrir kegð í fjárfesting-
um í atvinnulíflnu á árinu. Ástæð-
tma má ven að flnna í því að fyrir-
tækin í landinu eru enn að endur-
skipuleggja og treysta fjárhag sinn
með því að skuldbreyta skamm-
tímalánum í langtfmalán. Reyndar
fóru ekld nema 10% veittra lána tíl
að skuldbreyta eldri lánum hjá Iðn-
þróunarsjóði, en voru hlns vegar
40% árið 1990. Vegna hárra vaxta
á verðtiyggðum lánum i íslenskum
krónum meirihluta ársins 1991,
fór stærsti hlutí íánveitinga fram í
eriendum gjaldmiðli, einkum doll-
urum og gjaldmiðlum sem tengdar
eru evrópumynteiningunni ECU,
en þar hefur þýska maridð mest
vægi. -PS
,Mér finnst vitanlega afar vænt um
þetta sem einstaklingur," sagði Fríða
enn fremur, „en þó gleður þetta mig
fyrst og fremst vegna íslenskra bók-
mennta. Ég lít svo á að ég sé ekki ann-
að en dropi í þeim straumi sem bók-
menntir landsins eru og að verðlaun-
in hafi fallið þeim í skaut ekki síður.
Jú, þetta er mikil hvatning og verð-
launin auðvelda mér lífið. Ekkert
verður til af engu og mér ætti nú að
veitast aukið tóm til þess að sinna
verki sem ég hef unnið að frá því í
haust. Það er skáldsaga, en ekki er von
á að hún komi út í bráð, þar sem ég er
fremur seinvirk. En ég er mjög þakk-
lát og snortin vegna þessara óvæntu
frétta, þótt ég vissi að möguleikinn
væri fyrir hendi, þar sem bókin hafði
verið tilnefnd."
„Horfíð aftur til fortíðar-
innar í leit að lífsgildum“
Það var klukkan hálfeitt í gærdag að
dómnefndin kom út úr fundarher-
bergi sínu í Norræna húsinu og for-
maður hennar, Heidi von Bom, til-
kynnti niðurstöðuna. Verðlaunin
hlýtur Fríða fyrir skáldsöguna „Með-
an nóttin líður", sem áður segir, og
greinargerð nefndarinnar fyrir valinu
er á þessa leið:
„Bókin er ögrandi, nýskapandi og býr
um leið yfir ljóðrænni fegurð. í verk-
inu er horfið aftur til fortíðarinnar í
leit að lífsgildum sem eiga erindi við
samtíma okkar. Bókin gerist að hluta
til í stórbrotinni náttúru Homstranda
og náttúmlýsingar em hluti af töfmm
textans. f verkinu er ekki reynt að
skapa þá blekkingu að við getum skil-
ið til fullnustu veruleika forfeðra okk-
ar og formæðra, textinn setur spum-
ingamerki við hefðbundna söguskoð-
un og venjubundna málnotkun. Fríða
Sigurðardóttir lýsir í ljóðrænum texta
þessarar bókar þörf okkar fyrir sögu
og frásögn um leið og bókin lýsir hve
erfitt það er að komast að eingildum
sannleika um líf og list.“
Fjórði íslenski
verðlaunaþeginn
Verðlaunin eru að upphæð 150 þús-
und danskar krónur og verða þau af-
hent í Helsingfors þann 3. mars nk. á
40 þingi Norðurlandaráðs. Fulltrúar
íslands í dómnefndinni vom þau Dag-
ný Kristjánsdóttir lektor og Sigurður
A. Magnússon rithöfundur. Fríða Á
Sigurðardóttir er fjórði íslendingur-
inn sem verðlaunin hlýtur en aðrir
em Ólafur Jóhann Sigurðsson, Snorri
Hjartarson og Thor Vilhjálmsson.
I gærkvöldi var flutt dagskrá í Nor-
ræna húsinu þar sem fulltrúar í dóm-
nefndinni kynntu verk höfunda frá
heimalandi sínu og norska vísnasöng-
konan Hanne Kjersti Yndestad söng.