Tíminn - 18.02.1992, Side 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 18. febrúar 1992
Tugþúsundir Shíta-múslíma biðja Israel og stuðningsmönnum þess bölbæna:
Mjög eldfimt ástand í
ísrael við komu Davíðs
Moröiö á Hizbollah-leiötoganum Abbas Musawi hefur vakiö mikla reiöi meöal margra Araba.
Opinber heimsókn Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra til ísrael
hefst formlega í dag, en Davíð fór til
ísrael í gær. Óhætt er að segja að
heimsókn hans ber upp á viðsjár-
verða tíma, en þúsundir heittrúaðra
Shíta-múslíma, sem hliðhollir eru
Hizbollah-hreyfingunni, hétu því í
gær að tortíma ísrael, ráðamönnum
þar og vestrænum stuðningsmönn-
um þeirra, einkum Bandaríkja-
mönnum.
Tugþúsundir líbanskra Shíta-
múslíma hópuðust út á götur Beir-
út í gær í reiði og sorg vegna morðs
ísraela á leiðtoga þeirra á sunnu-
dag. Það voru um 50.000 Hiz-
bollah-skæruliðar og stuðnings-
menn þeirra, sem fylktu liði á göt-
um í suðurhluta Beirút í gær og
sungu: ,,Góði guð, máðu út af jörð-
inni Israelsríki og Ameríku".
Ástæðan er morðið á Abbas Musa-
wi, aðalritara Hizbollah-hreyfingar-
innar, á sunnudag þegar ísraelskar
herþyrlur skutu eldflaugum á bfla-
lest hans, með þeim afleiðingum að
Musawi, Shiam kona hans og Huss-
ein sex ára gamall sonur þeirra lét-
ust ásamt fimm lífvörðum, auk þess
sem 13 manns særðust illa.
Naeem Qassem, aðstoðarmaður
Musawis, ávarpaði mannfjöldann
og sagði: „ísrael, óvinur Guðs, held-
ur þú virkilega að þú hafir unnið?
Nei, við bíðum færis... Jörðin mun
skjálfa undir fótum þér. Hafi ísrael
og Ameríka haldið að það að drepa
Musawi myndi stöðva heilaga
göngu íslamskrar andspymu okkar,
þá skjátlaðist þeim,“ sagði hann.
Moshe Arens, utanríkisráðherra
ísraels, sagði í gær að árásin á
Musawi hafi verið meðvituð tilraun
til að koma höggi á hreyfingu, sem
hliðholl væri írönum og væri virk-
ustu skæruliðasamtökin sem berð-
ust gegn ísrael.
í gærmorgun hófu skæruliðar í
Suður-Líbanon flugskeytaárás á
ísraelskar hersveitir og líbanska
herflokka, sem em bandamenn
þeirra, sem staddir voru ísraels-
megin inni á öryggissvæðinu með-
fram landamærum ísraels og Líb-
anons. Að sögn sjónarvotta svöruðu
ísraelar þessari árás, en ekkert
hafði í gær fengist staðfest um
mannfall. Líbanski herinn hins veg-
ar blandaði sér í þessar skærur með
því að skjóta á ísraelskar orrustu-
flugvélar þar sem þær flugu yfir
suðurhluta Líbanons. Á þeim
fjöldafundum, sem Shíta-múslímar
efndu til í gær í Beirút, voru kenni-
menn Shíta nokkuð áberandi í hvít-
um kuflum sínum.
Nokkrir ræðumanna gerðu að um-
talsefni frelsun vestrænna gísla á
undanförnum vikum og mánuðum,
og töluðu um mistök. Enginn
myndi hafa þorað að ráðast að Hiz-
bollah-samtökunum, ef þau hefðu
enn haft í haldi vestræna gísla.
Vegna þessa og ógnar vegna ýmiss
konar hryðjuverka voru sendiráð í
Beirút í viðbragðsstöðu og einnig
hefur öryggisgæsla í ísrael verið
aukin til mikilla muna vegna þess
eldfima ástands sem skapast hefúr.
Moskva
— Utanríkisráðherra Bandarikj-
anna, James Baker, hitti Boris
Jeltsín í gær i Moskvu. Áttu þeir
með sér viðræður um fækkun
kjamavopna og þróun breytinga
þeirra sem nú standa yfir á efna-
hagskerfi Samveldisríkjanna.
Kishinyov, Moldavfu —
Moldavíski stjómarandstöðuflokk-
urinn, Alþýðufylkingin, hefur nú
kjörið Mircea Druc fyrrum forsæt-
isráðherra nýjan leiðtoga sinn.
Jafnframt hefur flokkurinn sam-
þykkt nýja stefnuskrá þar sem
gert er ráð fyrir sameiningu við
grannríkið Rúmeníu.
Lissabon
— Utanríkisráðherrar Evrópu-
bandalagsins hittust f gær til þess
að ræða tillögur að langtíma
hjálparaðgerðum við Samveldis-
ríkin. Þá hugðust þeir ræða ráð-
stafanir til þess að hindra að
kjarnorkusérfræðingar flyttust frá
Samveldisríkjunum til ýmissa
þriðja heims landa.
Teheran
— (ranir hafa tilkynnt að þeir hafi
ákveðið að taka þátt í samvinnu-
verkefni um verndun Kaspíahafs-
ins ásamt Samveldisríkjunum
Rússlandi, Azerbadjan, Kaz-
hakstan og Túrkmeníu.
Goffstown, New Hampshire
— Fyrrum íþróttastjaman Paul
Tsongas, sem barist hefur árang-
urslítilli baráttu fyrir að verða út-
nefndur forsetaefni demókrata,
virðist nú hafa tekið forskot í
skoðanankönnunum í New
Hampshire vegna forkosninganna
á fimmtudag.
Nairobi
— Götubardagar og skothrið þar
sem beitt var sprengjuvörpum
geisuðu í gærdag í Mogadishu,
höfuðborg Somalílands. Þó höfðu
herforingjar hinna fjandsamlegu
fylkinga í landinu heitið aö halda
vopnhlé það sem SÞ hafði fengið
komið á.
Tókýó
— Helsti stjórnarflokkurinn f Jap-
an hefur látið undan kröfum
stjómarandstöðunnar og sam-
þykkt að forsætisráðherra lands-
ins komi fyrir rétt sem vitni I
hneykslismáli vegna mútuþægni
er nú veldur stjórninni vandræð-
um.
Tókýó
— Bresku rokkstjörnunni Mick
Jagger var heimiluð landvist I
Japan í gær, eftir að hann hafði
dvalið sólarhring á hóteli á flug-
vellinum. Ástæða kyrrsetningar
hans þar var 25 ára gamalt mál
vegna eiturlyfjaneyslu stjömunn-
ar, sem skipað hafði honum á
svartan lista japanskra yfirvalda.
Marihatas, Filippseyjum —
Herinn á Filippseyjum segir að
menn sem grunaðir eru um að
vera kommúniskir hryðjuverka-
menn, hafi drepið 38 hermenn,
sem þeir yfirbuguðu eftir árás úr
launsátri. Áður en þeir drápu
mennina kræktu þeir augun úr
nokkrum þeirra.
Beigrad
— Forseti yfirráðasvæðis Serba í
Króatíu hefur svarið þess eið að
buga þá þingmenn sem vilja
ganga að friðaráætlun SÞ og
samþykkja komu friðargæsluliðs
til Króatiu.
Varsjá
— Fjármálaráðherra Póllands,
Karol Lutkowski, sagði af sér I
gær. Ástæðuna kvað hann
ágreining við aðra stjómarmeö-
limi um efnahagsstefnuna.
Nýr íslandsmeistari í atskák varð
til á sunnudagskvöld í beinni út-
sendingu í sjónvarp). Þeir Helgi
Ólafsson og Kari Þorstcins tefldu
úrslitaskákir sínar þá utn kvöldiö
með tilþrifum og hafði Kari á end-
anum betur, þó taflið hafl verið
tvísýnt alveg fram til loka.
Það verður að segjast eins og er
að sú nýbreytni að sýna beint frá
úrslitum í atskák er alveg sérstak-
lega snjöll hugmynd, enda þarf
talsvert að koma tíl svo Garrt
hangi yfir sjónvarpinu fram yfir
miðnætti. Skákáhuginn hér á
landi er það útbreiddur að það er
fullkomlega réttlætanlegt að gera
skákáhugamönnum eitthvað til
hæfis. Garri sér ekkert því til fyr-
irstöðu að Sjónvarpið fylgi þessu
eitír og hafi svona eins og eina
sjónvarpsatskák f viku þar sem
einhverjir af þeim tugum skák-
manna, sem íslendingar eiga, getí
spreytt sig í keppni. Ekki ættu
menn að þurfa að vera í vandræð-
um heldur með skákskýringar, þar
sem mjög frambærilegir skáksér-
fræðingar eru hér á hverju strái.
Skemmtiþáttur og
blikkandi skákborö
En slfk sjónvarpsskák getur eitt
og annað lært af þessari útsend-
ingu á sunnudagskvöldið. Fyrsta
og mikilvægasta lexían hlýtur að
vera sú, að menn geri það upp við
slg fyrirfram hvort um skákþátt
verði að neða, eða hvort hug-
myndin er að búa til einhvem
skemmti- eða viðtalsþátt þar sem
blikkandi skákborð eru notuð sem
hluti af sviðsmyndinni. Þetta
höfðu sjónvarpsmenn ekid gert á
sunnudagskvöldlð, og þess vegna
hefði allt eins mátt kalla dagskrár-
liðinn ,Að tafli hjá Hemma
Gunn“, tíl samræmis við aðra
þáttagerð stjómandans f Sjón-
varpinu. Sjálf úrslitaskákin hvarf í
skuggann og varð iangtímum
saman gjörsamlega útundan
vegna endalausra raða „góðra
gesta“, sem f þáttinn komu, og
vegna þess að stjórnandinn virtíst
sannfærður um að enginn hefði
áhuga á að fylgjast með sjálfri
taflmennskunni. Hermann Cunn-
arsson var því æ og sí að grípa inn
í og passa upp á að mönnum
leiddist eklri fyrir framan skjáinn.
Hann fékk til sín á annan tug
gagnmerkra manna, sem hann
spjallaði við milli þess að hann
leyfðl skákskýrandanum að segja
örfá orð um hvað var að gerast eða
bað stjórnanda útsendingar um að
fá klukkuna upp á skjáinn. Niður-
staðan úr öUu þessu varð sú að
þrátt fyrir allan gestaganginn varð
ekki um að neða neitt spjaU, sem
heitið gætí, við neinn gestanna.
Áhorfendur áttu fullt í fangi með
að íylgjast með hvað var að gerast
á skákborðinu og í þau fáu skiptí,
sem skákskýrandinn fékk orðið og
sýndi möguleikana í stöðunnl
með miklum tilfæringum, sáu
áhorfendur ekki skákborð skák-
skýrandans heldur skákborð kepp-
enda þar sem engar tíifæringar
voru að gerast þá stundina.
Skákin fer fram á
skákborðinu
GalUnn við þessa útsendingu frá
úrslitaeinvíginu f atskák var í að-
alaatriðum sá að þeir, sem að
henni stóðu, virtust ekki trúa því
að þetta væri atburður sem vert
væri að senda út í sjónvarpi. Þess
vegna var hlaðið inn alls kyns efni
öðru, sem í sjálfu sér var ágætt,
en komst einfaldlega ekki fyrir f
þeim ramma sem fyrir hendi var.
Skákin er ekki þess eðlis að hún
þurfi elnhverja glansumgjörð og
að sífelit þurfi eitthvað að vera að
gerast á sviðinu f kríng til að
menn nenni að horfa á hana. Þeg-
ar menn fylgjast með skák vilja
menn fyrst og fremst fylgjast með
stöðunni á skákborðinu og skák-
skýringum góðra skákskýrenda á
skákborði, alveg eins og þegar
menn horfa á knattspymu vilja
menn horfa á leikmennina á
knattspymuvellinum.
Þiátt fyrir allt má þó segja að
þessi dagskráriiður hafi verið f
skárri kantinum, miðað við það
sem gerist í sjónvarpi þessa dag-
ana. Þvf er ástæða til að ætla að
auðvelt vær) fyrir Sjónvarpið að
iæra af þessum þætti og koma á
einhvers konar taflmóti f sjón-
varpi, þanníg aö sýnt væri viku-
lega með skákskýringum.
Garri