Tíminn - 22.02.1992, Side 1
Laugardagur
22. febrúar 1992
38. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Steingrímur Hermannsson vísar á bug ummælum Þrastar Ólafssonar, aðstoðarmanns utanríkisráðherra,
að aðgerðir fyrri ríkisstjórnar til bjargar sjávarútveginum hafi aukið á vandann:
Fáránlegt að fara
gjaldþrotaleiðina
Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, vísar því
alfarið á bug að aðgerðir síðustu ríkisstjómar til bjargar sjávarút-
vegsfyrírtækjum hafi aukið á vandann þegar til lengrí tíma er litið.
Þröstur Ólafsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra og annar
tveggja formanna nefndar sem vinnur að því að endurskoða sjávar-
útvegsstefnuna, fullyrti þetta í samtali við Ríkisútvarpið. Þröstur
sagði að mun betra værí að iáta fyrirtæki sem ekki bera sig fara á
hausinn.
Steingrímur sagði sérkennilegt að
Þröstur Ólafsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Kron, skuli telja það
æskilegt að sjávarútvegsfyrirtæki
hringinn í kringum landið verði gerð
gjaldþrota í stórum stíl og mæti þann-
ig sömu örlögum og það fyrirtæki
sem hann sjálfur stýrði og setti á
hausinn.
„í október 1989 var haldinn mikill
fundur hjá samtökum fiskvinnslu-
stöðva. Þá var því lýst yfir að fá eða
engin fyrirtæki myndu hefja rekstur
eftir áramótin nema til kæmu opin-
berar aðgerðir. Ég er sannfærður um
að ef þá hefði ekkert verið gert hefðu
meira en 30% fiskvinnslustöðva farið
á hausinn. Það er ómælanlegt hvað
áhrif það hefði haft á þjóðarbúið,
bankana, ríkissjóð, byggðarlögin og
einstaklinga,“ sagði Steingrímur.
„Menn verða að gæta að því að
rekstrarstaða sjávarútvegsins ákvarð-
ast ekki síst af aðgerðum ríkisvaldsins.
Steingrímur Hermannsson
alþingismaöur.
Árið 1987 var genginu haldið föstu í
20% verðbólgu sem kippti öllum
starfsgrundvelli undan rekstri út-
flutningsfyrirtækja. Það er sannfær-
ing mín, og ég vísa þar m.a. í skýrslu
Ríkisendurskoðunar, að aðgerðimar
sem gripið var til árið 1989 hafi borið
mjög góðan árangur. Það er enginn
vafi á því að árið 1990 voru þessi fyrir-
tæki mörg hver að rétta úr kútnum.
Fyrirtækin hefðu hins vegar þurft að
hafa svona starfsgrundvöil lengur.
Vextir hefðu áfram þurft að vera lágir
og afli sömuleiðis meiri.
Ég trú því ekki að menn ætli að fara
þessa últra hægrileið að grisja í at-
vinnulífinu með gjaldþrotum. Áhrif
slíkrar leiðar á bankakerfið yrðu
skelfileg. Fiskeldið fór á hausinn í
Noregi sem leiddi til þess að norska
ríkið varð að veita milljörðum til
Þjóðarsáttarforsendur bresta sé það látið viðgangast að sveitarfélög geti hækkað gjöld sín:
Ábyrcjð getur snúist
upp í ábyrgðarleysi
bankakerfisins. Ég óttast að svipað
yrði uppi á teningnum hér ef menn
ætla að láta tugi eða hundruð sjávar-
útvegsfyrirtækja hér á landi fara á
hausinn.
Ég tel að það hafi verið gerð mistök í
hagstjórninni í vor þegar núverandi
ríkisstjórn tók við völdum. Þá versn-
aði rekstrargrundvöllur fyrirtækjanna
mikið. Ég kenni ríkisstjóminni að
sjálfsögðu ekki um minni afla, þó deila
megi um hvort það hafi verið rétt að
draga svo mjög úr afla eins og gert var.
Hækkun vaxta var forkastanleg að-
gerð við þessar aðstæður og sömu-
leiðis þær álögur sem lagðar vom á
sjávarútveginn, en þær em ríflega 600
milljónir.
Afar lítið hefúr orðið úr þeim aðgerð-
um sem sjávarútvegsráðherra boðaði.
Þær hafa ekki átt upp á pallborðið hjá
forsætisráðherra. Við þessar aðstæður
hefði þurít að draga úr siglingum með
ferskan fisk og fá meira unnið hér
heima. Ég minni á tillögur verkalýðs-
hreyfingarinnar í því sambandi.
Vitanlega fara ýmis fyrirtæki á haus-
inn. Stjórnvöld em hins vegar ábyrg
fyrir því að skapa eðlilegan rekstrar-
gmndvöll. Ef hann er til staðar þá er
lítið hægt að gera við því þó einstök
fyrirtæki verði gjaldþrota," sagði
Steingrímur. -EÓ
Sjá einnig viðtöl við Halldór Ásgríms-
son alþingismann og Sverri Her-
mannsson, bankastjóra Landsbank-
ans, á blaðsíðu 2.
„Ef ganga á frá kjarasamningum
með svipuðum hætti og gert var í
febrúar 1990 verður ekki hjá því
komist að sveitarfélögin eigi aðild að
þeim með skuldbindandi yfirlýsingu
um hófsemi í gjaldtöku eða þá, ef
ekki vill betur til, að sett verði lög
sem takmarka möguleika sveitarfé-
laganna til gjaldtöku," segir Guð-
mundur Gylfi Guðmundsson, hag-
„Júróvisjónlag“ íslands valið í
dag. Skiptar skoðanir á úr-
slitalögunum níu:
Bráðskemmti-
leg eða bara
hund-
leiðinleg
Tíminn bað nokkra valinkunna ís-
lendinga að spá í hvaða iag yrði val-
ið til keppni um lag ársins í söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva.
Skoðanir eru mjög skiptar eins og
sjá má á blaðsíðum 8 og 9.
fræðingur ASÍ, í grein í Vinnunni.
Þar rekur hann hvernig sveitarfélög-
in hafi nú enn aukið skattheimtu
sína að raunvirði. „Ef það er látið
viðgangast að aðilar eins og sveitar-
félögin geti hækkað gjöld sín í skjóli
lágrar verðbólgu, bresta forsendur
samninga ASÍ og atvinnurekenda á
þeim nótum sem febrúarsamning-
arnir 1990 voru. Við slíkar aðstæður
snýst ábyrgð launþegasamtakanna í
andhverfu sína og verður ábyrgðar-
leysi." Guðmundur Gylfi segir að
sveitarfélögin séu í raun einu stóru
aðilarnir í þjóðfélaginu sem sköruðu
fremur eld að sinni köku heldur en
að þau legöu fram sinn skerf til þess
sáttmála sem gerður var með kjara-
samningunum í ársbyrjun 1990.
Guðmundur Gylfi bendir m.a. á að
lækkandi verðbólga hafi komið
sveitarfélögunum sérstaklega til
góða vegna þess hve stór hluti skatt-
tekna þeirra sé greiddur eftir á. Þeir
rýrni því minna en áður. Vegna þess
væri eðlilegt að þau minnkuðu
skattlagningu sína og létu skatt-
greiðendur njóta arðs af verðhjöðn-
un. Því miður sé sú ekki raunin,
þvert á móti. Frá því kjarasamning-
arnir voru gerðir 1990 hafi sveitarfé-
lögin haldið uppteknum hætti og
aukið skattbyrðina.
Þeim tilmælum hefur verið beint
til verkalýðsfélaga, sem ná yfir sveit-
arfélög þar sem hækkun gjalda hef-
ur átt sér stað, að þau mótmæli
þeim og noti áhrif sín til að hnekkja
hækkununum.
Guðmundur Gylfi birtir saman-
burð á hækkun útsvars og fast-
eignagjalda meðalfjölskyldu í
kaupstöðum landsins 1992. Og
einnig hve miklu meira meðalfjöl-
skyldan þarf að greiða í þessi gjöld.
á hverjum stað umfram meðalfjöl-
skyldu í Reykjavík.
í íjós kemur að Vestmannaeyingar
hafa hækkað þessa skatta mest
milli ára, um 13,7%, en þeir eru þó
„aðeins“ komnir tæplega 4%
(6.770 kr.) fram úr Reykjavík í
gjaldtöku. Það er hins vegar Eski-
fjörður sem lengst gengur í álagn-
ingunni, 18,2% fram úr Reykjavík.
Fjölskylda með meðaltekjur og
íbúð þarf að borga 32.150 kr. meira
á Eskifirði en í Reykjavík. Mosfells-
bær er næstur á eftir, þá Neskaup-
staður, Hveragerði og Stykkis-
hólmur. En í ölum þessum bæjum
er skattbyrði fjölskyldunnar meira
en 30.000 kr. umfram fjölskyldu í
Reykjavík. - HEI
Varðskipið Ægir í slipp
Varðskipið Ægi tók eins og kunnugt er niðri í Hestfirði í fyrra-
dag, þegar skipið var að aðstoða rækjuveiðiskip þar. Rifa
kom á botn skipsins og komst sjór í olíugeyma þess. Ægir
kom til hafnar í Reykjavík í fyrrakvöld og var sett í slipp í gær
þar sem Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelgisgæsl-
unnar, skoðaði skemmdir skipsins í gærmorgun. Hann sagði
í samtali við Tímann að skemmdirnar hefðu verið minni en
hann ætlaði. Þetta hefði ekki mikil áhrif á starfsemi gæslunn-
ar því skipið hefði hvort sem er átt að vera í höfn alla næstu
viku. Skipið er ekki tryggt og mun því tjónið lenda á gæsl-
unni eða ríkissjóði. Sjópróf fara fram eftir helgina. Á mynd-
inni má sjá Birgi Valsson, háseta á Ægi, skoða skemmdir á
Skipinu. -PS/Tímamynd Ámi Bjama