Tíminn - 22.02.1992, Side 2

Tíminn - 22.02.1992, Side 2
2 Tíminn Laugardagur 22. febrúar 1992 Aðgerðir síðustu ríkisstjórnar til bjargar sjávarútveginum urðu að veruleika vegna samstöðu Alþýðufiokks og Framsóknarflokks um þær, segir Halldór Ásgrímsson: Aðgerðirnar forðuðu þjóð- félaginu frá enn meira tjóni Halldór Asgrímsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, segir að ef síðasta ríkisstjóm hefði ekki grípið til þeirra aðgerða í sjávarútvegsmálum sem hún greip til haustið 1988 hefði ríkissjóður og þjóðfélagið allt orðið fyrir mun meira tjóni en ef ekkert hefði veríð gert og fyrirtækin hefðu verið látin fara á hausinn. Hann bendir á að Alþýðuflokkurinn hafi þá gengið úr ríkisstjóra einmitt til þess að koma þessum aðgerðum í framkvæmd. Þröstur Ólafsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, sagði í fyrradag að aðgerðir síðustu ríkisstjórnar hefðu aðeins aukið á vanda sjávarút- vegsins en ekki leyst hann. „Ummæli Þrastar eru afar undar- leg. Þröstur er aðstoðarmaður Jóns Baldvins Hannibalssonar. Alþýðu- flokkurinn stóð að þessum aðgerð- um sem farið var út í árið 1988 sem gerðist með samstöðu Framsóknar- flokks og Alþýðuflokks. Sjálfstæðis- flokkurinn fór þá út úr ríkisstjórn og Alþýðubandalagið kom inn,“ sagði Halldór. „Þeir sem gagnrýna þessar aðgerð- ir tala oft eins og ekkert hefði tapast ef Atvinnutryggingarsjóður hefði ekki verið stofnaður. Það er Ijóst að margir sjóðir sem ríkið á hefðu tap- að miklu fé, eins og Fiskveiðasjóður og Landsbanki íslands. Ég fullyrði að ríkið hefði farið ennþá verr út úr málinu ef ekki hefði veriö gripið til þessara aðgerða. Þar að auki hefðu mörg byggðarlög nánast farið í rúst sem hefði skapað mjög mikil félags- leg vandamál. Það má vel vera að einhverjir séu þeirrar skoðunar að það beri ekki að gera neitt til að koma í veg fyrir að slík félagsleg vandamál komi upp. Ég er mjög ósammála því.“ Hvað á ríkisstjórnin að gera? „Hún á í fyrsta lagi að skapa meiri vissu um stjórnun fiskveiðanna. Þar hafa skapast miklir möguleikar að lagfæra rekstrargrundvöllinn með hagræðingu og sparnaði. Það eru margir sem hika við að eyða óviss- unni sem nú ríkir um sjávarútvegs- stefnuna vegna endalausrar um- ræðu um auðlindaskatt. Ríkisstjórn- in þarf að falla frá allri skattlagningu sem lögð hefur verið á sjávarútveg- inn. Það þarf að vinda sér í það að fella niður aðstöðugjaldið á atvinnu- vegina. Það þarf að lækka vexti. Nauðsynlegt er að endurskoða stefn- una í sambandi við útflutning á ferskum fiski og sömuleiðis þarf að endurskoða starfsemi Verðjöfnunar- sjóðs sjávarútvegsins, en í honum eru nú um 3 milljarðar. Auk þess þarf að leita Ieiða til að dreifa skuldabyrðinni á hæfilegan tíma. Aðalatriðið er að sjávarútvegurinn geti staðið undir sínum miklu skuldbindingum. Ég efast ekki um að hann geti gert það ef hann fær Halldór Ásgrímsson alþingis- maður. eðlileg rekstrarskilyrði. Þessi ríkis- stjórn hefur ekkert lagt sig fram í því og hugsar með þeim hætti um atvinnulífið sem m.a. kom fram í viðtali við Þröst Ólafsson, að það sé öllum fyrir bestu að fyrirtækin verði gjaldþrota. Það er sú stefna sem for- sætisráðherra landsins hefur verið dyggur talsmaður fyrir. Það er merkilegt að Alþýðuflokkurinn skuli taka svona sterklega undir þetta. Ég sá að fulltrúar sveitarstjórnar á Suðurnesjum voru að ræða við al- þingismenn um alvarlegt ástand þar um slóðir. Mér þætti það merkileg tíðindi ef þessir fulltrúar hafa fengið þau svör frá sínum alþingismönnum að ríkisvaldinu bæri ekki að standa við bakið á atvinnulífinu." Telur þú að ríkisvaldið eigi að hlaupa undir bagga með öllum fyrir- tækjum sem standa höllum fæti? .Auðvitað verða fyrirtæki sem ekki er rekstrargrundvöllur fyrir að taka afleiðingum þess. En þegar svona gífurlegur vandi blasir við, eins og blasti við 1988 og virðist gera núna, þá er það ekki lengur vandamál ein- stakra fyrirtækja heldur þjóðfélags- legt vandamál í atvinnuvegi sem færir okkur 80% af útflutningstekj- unum. Menn geta einfaldlega ekki sagt: Ja, við skulum bara sjá til hvað gerist og byggja upp eftir gjaldþrot- in. Slík stefna gengur ekki upp. Hún mun verða þjóðinni dýr.“ Sjávarútvegsráðherra sagði á þingi í vikunni að ríkisstjómin hefði falið nefnd, sem vinnur að endurskoðun sjávarútvegsstefnunnar, að fjalla um rekstrarerfiðleika sjávarútvegsfyrir- tækja og koma með tillögur um leiðir út úr vandanum. Halldór sagðist telja fráleitt að láta þessa nefnd fjalla um þetta mál. „Nú hefur annar af formönnum nefndarinnar komið fram með sín sjónarmið. Ég held að sé eðlilegt að hinn formað- urinn segi sína skoðun á leiðum út úr vandanum," sagði Halldór. Hinn formaðurinn er Magnús Gunnars- son, formaður nefndar atvinnurek- enda í sjávarútvegi. Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, segir tölur um slæma stöðu sjávarútvegsfyrirtækja ekki vera neinar ýkjur: Eg bíð eftir aðgerð- um stjórnvalda“ Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, segir að vanskil við- skiptamanna bankans í sjávarútvegi fari vaxandi. Staðan sé afar slæm. Sverrir vildi ekki svara því hvaða áhrif það hefði á stöðu bankans ef sú stefna sem Þröstur Ólafsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, hefur talað fyrir, að láta skuldug sjávarútvegsfyrirtæki fara á hausinn, yrði framkvæmd. Sverrir sagðist álíta að upplýsingar sjávarútvegsráðherra um slæma stöðu sjávarútvegsfyrirtækja væru réttar. Kannanir sem Landsbankinn hefði gert á skuldastöðu sjávarútvegsfyrir- tækja sem eru í viðskiptum við bank- ann sýndu að staðan væri slæm og versnaði stöðugt. Síðan sjávarútvegsráðherra lagði sín- ar upplýsingar fram hafa Þröstur Ólafs- son og fleiri bent á að best sé að láta fyrirtækin einfaldlega verða gjaldþrota, ríkisvaldið eigi ekki að koma til hjálpar. Landsbankinn er með um 70% sjávar- útvegsfyrirtækja á íslandi í viðskiptum. Tíminn spurði Sverri hvemig honum litist á afleiðingamar ef gjaldþrotaleið- in yrði farin. Sverrir sagðist ekki vilja tjá sig um þetta að sinni. Honum hefði verið bent á það í haust, þegar hann gagnrýndi ákvarðanir stjómvalda í sjávarútvegsmálum, að hann væri bankastjóri en ekki sjávarútvegsráð- herra. Sverrir sagðist bíða eftir ákvörð- unum stjórnvalda. Sverrir sagði að staðan nú væri ekki ólík því sem hún var haustið 1988, en þá náðist ekki samkomulag um að- gerðir milli stjómarflokkanna og þá- verandi ríkisstjórn fór frá völdum. Sverrir sagði að aðgerðir fyrri ríkis- stjómar hefðu einungis lengt í heng- ingarólinni. Engin endurskipulagning eða hagræðing hefði farið fram sam- hliða skuldbreytingunni. Sverrir sagð- ist hins vegar vera ósammála fullyrð- ingu Þrastar að skuldbreytingin hefði aukið á vandann. -EÓ Sverrir Hermannsson, banka- stjóri Landsbankans: Staðfestir að staða sjávarútvegsfyrirtækja sé slæm, en vill ekki segja neitt um gjaldþrotaleið Þrastar Ólafs- sonar. BÓKAMARKAÐUR Félags islenska bókaútgefenda er nú byrjaður en markaöurínn er á 3. hæó Kringlunnar i Reykjavík. Þessi markaður var í fysta sinn haldinn árið 1961 í Listamannaskálanum. Að sögn forráöamanna bókamarkaðarins má búast viö talsverörí sölu að þessu sinni þrátt fyrir að bókaforlögin hafi sjálf veríö meö stóra bókamarkaði á undanförnum vikum. f fyrra voru t.d. 100.000 bindi seld á markaöinum þrátt fyrir að foríögin hafi sjálf verið með markaði með svipuöum hætti og nú. Sterkara að vera móðurbróðir Davíðs Samþykkt var í borgarstjórn í fyrradag með 10 atkv. gegn fimm að ráða Þorvald Lúðvðcs- son gjaldheimtustjóra í stað Guðmundar Vignis Jósefsson- ar sem lætur af störfum fyrtr aldurs saldr. Fulltrúar minni- hlutaflokkanna í borgarstjóm lögðu fram tillögu um að ráða Sólveigu Guðmundsdóttur, lögfræðing hjá Gjaldheimt- unni. Þar sem valið stæði milli tveggja jafnhæfra unisækj- enda af hvoru kyni væri það í samræmi við ákvæði jafnrétt- Isiaganna að ráða konuna. Spurning er hins vegar hvort minnihiutinn hefur áttað sig á því að Þorvaldur hefur einn eiginleika sem vegur þyngra en ákvæði jafnrcttislaga; Hann er móðurbróðir Davíðs Odds- sonar. Ekkert slegið af Þegar ríkisstjómin fékk fram- an í sig síðustu skoðanakönn- un, þar sem vinsældir hcnnar voru komnar niður fyrir frost- mark þjá þjóðinni, sá Davíð forsætisráðherra að við svo búið mátti ekki standa og tók því Sighvat heilbrigðisrað- herra afsíðis og bað hann að fara aðeins hægar og dipióma- tískar í sakirnar í niðurskurð- inum. Sighvatur brást hirm versti við og harðneitaði, sagðist hafa tekið að sér að spara minnst milljarð og það ætiaði hann barasta að gera með iliu eða góðu, og ekkert rövi. -Og svo fór Davíð til ísraels ... Skítamál Maður nokkur norðanlands fékk einhverja sýkingu á dög- unum og var gert að senda saursýni einnar viku til rann- sóknar suður. Þegar vikan var liðin barst rannsóknastofunni skókassi og þegar meinatæknarnir iyftu lokinu af, komu I ljós sjö iort- ar sem var snyrtilega raðað hlið við hlið þversum í skó- kassanum og kyrfilega merktir hver sínum vikudegi. Vilja ekki kannast við eigið afkvæmi Sfjóraendur Landakotsspítaia keppast nú við að þræta fyrir það við samstarfsfólk sitt og skt. Jósefssystur að þeir sjálf- ir hafi átt hugmyndina að því að breyta Landakoti í öldrun- arspítala sem sameinaður yrði Borgarspítalanum og segja að það hafi veríð hugmynd Finns Ingóifssonar, aðstoðarmanns fyrrv. heilbrígðisráðherra, Guðmundar Bjarnasonar. Stjóraendurair, þeir Óiafur öra Amarson, yfiriæknir og formaður heiibrigðisráðs Sjálfstæðisflokksins, og Logi Gnðbrandsson, framkvæmda- stjóri spítalans, kynntu þessa hugmynd sína á fundi sem þeir höfðu sjálfir óskað eftir með Guðmundi Bjaraasyni þáv. heilbrigðisráðherra og að- stoðarmanni hans. Ráðherra hafnaði hugmyndinni á þeirri forsendu að hún myndi leiða til aukins kostnaðar. Undir það álit tók síðar hollenska ráðgjafafyrirtækið sem Ríkis- spítalar fengu tii að gera út- tekt á sjúkrahúsakerfinu í Reykjavík.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.