Tíminn - 29.02.1992, Side 4
4 Tíminn
Laugardagur 29. febrúar 1992
Munurinn á austur- og vestur-evrópskum
dráttarvélum minnkar sífellt:
Nýr og ger-
breyttur Zetor
frá Istékk hf.
Nú eftir mánaöamót er væntan-
legur frá ístékk hf. ný 92 hest-
afla Zetor- dráttarvél. Þetta er
vél sem er hönnuð algerlega ný
frá grunni, og viðtökur bænda í
Evrópu eru það góðar að fram-
leiðendur hennar í Tékkóslóv-
akíu hafa ekki undan við að
anna eftirspum.
Undanfama áratugi hafa Zetor-
dráttarvélamar verið í hópi þeirra
söluhæstu hér á landi, enda boðnar
á góðu verði og umboðið hefur
byggt upp öflugt þjónustunet
hringinn í kringum landið. Nýja
vélin er sú fyrsta, sem kynnt er af al-
gerlega nýrri línu frá verksmiðjun-
um. Hún ber seríunúmerið 9520,
eða 9540, eftir því hvort hún er með
fjórhjóladrifi eða ekki. Þessar vélar
eru framleiddar eins og þær gömlu í
verksmiðjunum í Brno í Tékkóslóv-
akíu, en sú borg er ekki síður þekkt
fyrir samnefndar byssur, sem marg-
ar hverjar þykja listasmíði. Hin
nýja 95-sería minnir í útliti um
margt á Case, og ef til vill sér í lagi
lúxusvélina Case Maxxum. Sem
dæmi má nefna að hönnun á vinnu-
aðstöðu ökumanns er mjög svipuð:
gírstangir, aflúttak og stýrisstangir
fyrir vökvakerfið hafa verið færðar
hægra megin við ökumannssætið,
en handbremsan er skilin eftir
vinstra megin. Sömuleiðis er hægt
að stjóma lyftunni á dráttarbeislinu
með tökkum sitt hvoru megin á aft-
urbrettunum, eins og á Maxxum.
Þetta er þarfur útbúnaður.
Nýi Zetorinn er óneitanlega glæsi-
leg vél, enda hannaður frá grunni
með þarfir kröfuharðra bænda í
huga. Níutíu og tveggja hestafla
(67,5 kW) vélin er fjögurra strokka
og hönnuð ný frá grunni. Nýting
vélarorkunnar aftur úr aflúttaki er
mjög góð, en hún er gefin upp 87
hestöfl (tæplega 64 kW) og það er
yfrið nóg, jafnvel fyrir stærstu og
aflfrekustu tæki sem notuð eru í
landbúnaði hérlendis. Þá er hægt að
velja um tvo hraða á aflúttakinu,
Hægt er að stjórna beislislyftunni meö tökkum á brettunum, svipaö og á
Case Maxxum og Massey Ferguson.
Úr ekilshúsinu. Ekki veröur annaö séö en aö öllu sé haganlega fyrir
komiö; t.d. er búiö aö færa alla gíra hægra megin viö ekilssætið.
gíratalan er margfölduð með tveim-
ur og hraðastigin verða sextán
áfram og fjögur afturábak. Og
ánægjulegar fréttir fyrir Zetoraðdá-
endur, sem vilja komast áfram á
vegum úti: Nýja vélin er gerð fyrir
allt að 40 km ökuhraða.
Að sjálfsögðu er svo þessi nýja vél
búin vökvastýri, en að auki er hægt
að stilla hæð á sjálfu stýrishjólinu.
Það er 9540-fjórhjóladrifsvélin,
sem verður til sölu hér fyrst um
sinn, en reyndar í takmörkuðu
magni, vegna mikillar eftirspurnar
eftir henni í Bretlandi og á hinum
Norðurlöndunum. Með henni, sem
staðalbúnaður, eru bremsur á öllum
hjólum og að aftan eru diskabrems-
urnar í olíubaði. Sú nýja ætti að
geta tekið vel á, ef þess þarf, því
hægt er að læsa framdrifinu 100%.
Þar sem nýi Zetorinn er ekki kom-
inn til landsins, hefur ekki gefist
kostur á að reynsluaka vélinni, en
samkvæmt upplýsingum frá um-
boðinu hefur hún reynst vel þann
stutta tíma, sem hún hefur verið á
markaðinum. Nýja línan var kynnt
fyrst í Bretlandi í haust og í vetur
komu þær á markað í Noregi og Sví-
þjóð. Það eru einungis tuttugu vél-
ar sem koma hingað í fyrstu send-
ingunni. Þær eru nú þegar flestar
uppseldar, enda verðið hagstætt, en
það er áætlað um 1.460 þúsund. Það
er um það bil einni milljón ódýrara
en vestur-evrópskar dráttarvélar í
svipuðum stærðar- og gæðaflokki.
Að sögn sölumanna hjá ístékk hf.,
er ekki ennþá Ijóst hversu margar
vélar verður hægt að fá hingað fyrst
um sinn, en miðað við þau við-
brögð, sem bændur hafa sýnt nú
þegar, er Iíklegt að færri fái en vilja.
540 eða 1000 snúninga á mínútu.
Kúpling og gírkassi eru ný og
sömuleiðis stýri, vökvakerfi og
fleira. Gírkassinn er alsamhæfður
og þá á að vera hægt að hræra í hon-
um fram og til baka á milli hraða-
stiga, rétt eins og í fólksbíl. Þá er
hann búinn sérstökum vökvamilli-
gír, sem þýðir í raun og veru að
Zetor 9540. Tuttugu af þessum
vélum koma hingaö í fyrstu send-
ingunni nú í mars.
Magnús Ingþórsson, sölustjóri hjá búvéladeild Globus hf.
Globus hf. er í sókn á búvélamarkaðinum:
50% aukning á
markaðshlutdeild
Globus hf. hefur átt vaxandi viðskipti við bændur undanfarin ár, en fyrirtækið
flytur inn Zetor- (ásamt dótturfyrirtæki sínu ístékk), og Fiatagri-dráttarvélar,
breiða línu af heyvinnuvélum, dreifara fyrir tilbúinn áburð og húsdýraáburð,
rafmagnsgirðingar, rúllubaggaplast og svo mætti áfram telja. Að sögn Magnús-
ar Ingþórssonar sölustjóra hefur markaðshlutdeild fyrirtækisins á sviði búvéla
og þjónustu við bændur vaxið yfír 50% á síðustu tveimur árum.
„Okkar hlutdeild hefur vaxið mjög
á undanförnum árum," segir Magn-
ús. „Við höfum til dæmis verið að
selja um það bil helminginn af öllum
nýjum dráttarvélum, sem fluttar eru
til landsins. Fyrirtækið hefur upp á
mjög mikla breidd að bjóða á því
sviði, bæði hvað snertir verð og út-
búnað, en það vegur ekki síður
þungt að við höfum lagt ríka áherslu
á góða viðgerðarþjónustu. Þannig
erum við með þjálfaðan mannskap
til þess að gera við vélar og tæki frá
okkur hringinn í kringum landið.
Globus hf. hefur einnig haft afger-
andi forystu í sölu á rúllubindivél-
um, en Welger, sem við höfum um-
boð fyrir, hefur undanfarin ár verið
stærsti framleiðandi rúllubindivéla í
heiminum. Hér á landi eru þetta
einnig mest seldu vélarnar. Af öðr-
um þáttum má nefna moksturstæki
fyrir dráttarvélar, en við erum líklega
með helmings markaðshlutdeild þar.
Við höfum einnig selt mikið af rúllu-
baggagreipum og amerísku bagga-
plasti, en af því seldum við á þriðja
hundrað tonn á síðasta ári. Jafn-
framt þessu höfum við boðið upp á
ýmsa smávöru, s.s. rafgirðingar og
fleira."
Magnús segir að fyrirtækið hafi haft
verulegan meðbyr undanfarið, en á
hverju byggist hann?
„Það er að sjálfsögðu grundvallarat-
riði að geta boðið upp á góða vöru,“
segir Magnús. „Við höfum einnig
mjög trausta og góða umboðs- og
þjónustuaðila um allt land og það er
undirstaðan undir okkar velgengni."