Tíminn - 29.02.1992, Blaðsíða 10
lOTÍminn
Laugardagur 29. febrúar 1992
Ein af pökkunarvélunum frá Kverneland.
Nýja MF-rúllubindivélin.
Þetta er hin sérstæöa Orkel- rúlluvél, en hún kemur frá Noregi.
Það er mikilvægt
að rúlluverk-
unin takist
Fyrirferðarmestu breytingar í hey-
verkun á seinni árum eru án efa
stigvaxandi notkun rúllubindivéla
og pökkunarvéla til að pakka fersk-
um rúlluböggum inn í plast. Frá
1985 hefur notkun á rúllubindivél-
um og tækjum í kringum þessa
tækni um það bil tvöfaldast á hverju
ári.
Þessi nýja heyverkunaraðferð er dýr
og henni fylgir mikil fjárfesting ívél-
um, tækjum og aðföngum. Sem
dæmi má nefna að gera má ráð fyrir
að í fyrra hafi íslenskir bændur eytt á
annað hundrað milljónum króna í
plastfilmur utan um rúllubagga.
Þetta jafngildir verði rúmlega 100
nýrra fjölskyldubfla í millistærð.
Miðað við þann kostnað er mikils-
vert að vel takist til við heyverkun-
ina og að bændur velji tæki og bún-
að sem skilar þeim bestum árangri.
Rúllubindivélar og tæki til hirðingar
og pökkunar geta verið mjög mis-
jöfn að gæðum og við val á þessum
tækjum verða menn að taka tillit til
þess að góð fóðuröflun er undirstað-
an undir hagkvæmum búrekstri.
Að sögn Þorgeirs Arnar Elíassonar
hjá Jötni, hafa Kverneland-Under-
haug-verksmiðjurnar norsku verið
leiðandi í framleiðslu pökkunarvéla
undanfarin ár. Jötunn hf. selur fram-
leiðslu Kvemeland-Underhaug hér-
lendis, en fyrirtækið sérhæfði sig áð-
ur mestmegnis í framleiðslu á herf-
um, plógum og öðrum jarðvinnslu-
tækjum.
Þrjár tegundir af
pökkunarvélum frá
Kverneland
Þegar rúllubaggavæðingin hófst,
tóku Kvemeland-verksmiðjurnar
Þorgeir örn Ellasson, deildarstjóri véladeildar Jötuns hf.
Þorgeir Örn Elíasson hjá véladeild Jötuns hf.:
„Jötunn hf. er
í sókn á búvéla-
markaðinum"
Jötunn hf., Höfðabakka 9, er fyrirtæki sem var stofnað upp úr þrem-
ur dótturfyrirtækjum Sambands íslenskra samvinnufélaga fyrir
tveimur árum. Þessi fyrirtæki voru: Búnaöardeild Sambandsins,
Bflvangur sf. og hið upprunalega fyrirtæki Jötunn hf., sem fram-
leiddi rafmótora.
Gamli Jötunn var reyndar um
margt athyglisvert fyrirtæki. Raf-
kerfið úti á landi er byggt upp á ein-
fasa rafmagni, en Jötunn hefur í ára-
tugi sérhæft sig í framleiðslu einfasa
rafmótora, er henta því kerfi. Að
auki var fýrirtækið umsvifamikill
rafverktaki og flutti inn alls kyns
sérhæfðan raflagnabúnað.
Búnaðardeild Sambandsins var til
húsa í Ármúlanum og flutti inn ýms-
ar landbúnaðarvélar og tæki fyrir
bændur. Saga deildarinnar er orðin
bæði löng og umsvifamikil, en trú-
lega setja flestir hana í samband við
Massey Ferguson dráttarvélarnar,
sem hafa notið mikilla vinsælda
meðal bænda í áratugi. Af öðrum
tækjum, sem Búnaðardeildin flutti
inn, má nefna Scout-jeppana, Yama-
ha-vélsleða og fleira. Auk þessa var
Búnaðardeild Sambandsins mjög
stór aðili á sviði innflutnings á
kjarnfóðri, þar sem Sambandið
byggði upp sitt eigið innflutnings-
og dreifikerfi. í dag rekur Jötunn hf.
fóðurblöndunarstöð við Sundahöfn,
er selur og dreifir fóðri um allt land.
Þriðja fyrirtækið, Bílvangur sf., sá
um innflutning og sölu bfia frá Gen-
eral Motors í Bandaríkjunum og
dótturfyrirtækjunum Opel í Þýska-
landi og Isuzu í Japan.
Jötni hf. er skipt í fimm deildir:
bfiadeild, fóðurdeild, rafvörudeild,
véladeild og sjálfstæða varahluta- og
þjónustudeild, er sér um sölu á vara-
hlutum og þjónustu við þau tæki
sem Jötunn hf. flytur inn.
Véladeildin er með umboð fyrir
mörg þekktustu vörumerki á sviði
búvéla í heiminum í dag. Þar má
nefna Massey Ferguson, Trima-
moksturstæki, Claas, PZ, Kuhn,
Kverneland, Yamaha, Linde, Fur-
ukawa og fleira.
Að sögn Þorgeirs Arnar Elíassonar,
yfirmanns véladeildar Jötuns hf.,
hefur fyrirtækið verið í sókn á bú-
vélamarkaðinum og á síðasta ári jók
fýrirtækið markaðshlutdeild sína
verulega. Þá voru seldar á annað
hundrað Massey Ferguson-dráttar-
vélar, sem er einhver mesta mark-
aðshlutdeild sem M.F. náði í heimin-
um á þeim tíma.
„Fyrirtækið nýtur þess að vera um-
bjóðandi fyrir framleiðendur sem
skara framúr hver á sínu sviði, jafn-
framt því að búa yfir framúrskarandi
starfskröftum með langa og farsæla
reynslu af viðskiptum við bændur,"
segir Þorgeir.