Tíminn - 29.02.1992, Page 18
18Tíminn
Laugardagur 29. febrúar 1992
Tíminn heim-
sækir Vélar og
þjónustu, en fyr-
irtækið flytur inn
fjölbreytt úrval
bú- og vinnu-
véla, auk ann-
arra hluta sem
notaðir eru í
landbúnaðinum:
Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Véla og þjónustu.
Björgvin Pálsson sölustjóri meö
plastfilmuna. Hún er sterk þessil!
að vélagarðurinn er svo fjölskrúðug-
ur, að við getum ekki reiknað með að
afgreiða alla hluti beint af lager, en
erum þá fljótir að ná þessu frá stærri
lagerum erlendis. Við störfum sex í
varahlutadeild, auk þess sem við höf-
um sendil. Pað gengur oft mikið á,
enda þarf að hafa hraðar hendur, og
vil mælast til þess við viðskiptavini
að þeir komi hingað í heimsókn og
sjái aðstöðu okkar og læri betur á
samskipti við fyrirtækið og hvernig
best sé að haga viðskiptum við okk-
ur, sérstaklega yfir háannatíma á
sumrin.
Næst hittum við Karl Sighvatsson
og Berg Ketilsson þjónustustjóra, en
þeir stýra verkstæðinu og þar mátti
sjá fjölbreytta þjónustu í viðgerð á
smærri og ekki síður stærri tækjum,
vökvalyfturum, vökvaskiptingum og
tjökkum ásamt nýsmíði og breyting-
um.
Hver er stefna ykkar á verkstæð-
inu?
Við reynum að vera sem mest sjálf-
bjarga, og tökum því þátt í nám-
skeiðum og höldum námskeið til að
viðhalda og efla þekkingu á viðhaldi
og viðgerðarþjónustu. Við erum því
Vélar og þjónusta hafa skapað sér gott orð við sölu og þjónustu
við íslenskan landbúnað í 17 ár.
Blaðamaður Tímans hitti Gunnar Gunnarsson, framkvæmdar-
stjóra fyrirtækisins, að máli.
Hvað er helst umleikis hjá ykkur?
Okkar athafnir snúast um sölu og þjónustu við fjölbreytt úrval af
bú- og vinnuvélum. Helstu umboð eru Case IH og svo allt í rúllu-
tækni, Krone, Carraro, rúllubaggatækin og filman, auk hefðbund-
ins framboðs af heyvinnuvélum, diska- og sláttuþyrlum — vagnar
og snjóruðningstæki.
Vöruvelta okkar var rúmlega 500
milljónir á síðastliðnu ári og starfs-
menn eru rétt um 30 hér, auk um-
boðsmanna sem vinna með okkur
víðsvegar um landið.
Hvað er fyrirtækið þekktast fyrir?
Það hefur nú starfað á 17. ár, hefur
þróast hratt og er með um fjórðung
vinnuvélaviðskipta og ríflega það í
bútækni hér á landi og ég mundi
telja það „þekktast fyrir þjónustuna".
Þú ættir að líta hér yfir verkstæðið
og sérhæfingu þess, auk varahluta-
deildarinnar sem veitir einnig víð-
tæka þjónustu. Auk þess erum við
með verkstæðisbíl, sem fer um land-
ið, vélaflutningabíl með sérbúnum
palli, og sendibíla, auk stórs athafna-
svæðis hér að Járnhálsi og húsnæðis
undir véla- og rekstrarvörulager.
Vélar og þjónusta eru þar með eina
af sérhæfðustu og bestu aðstöðu,
sem fyrirtæki í þessari viðskipta-
grein hefúr hérlendis og þó víðar
væri leitað. Svarið er því: Við erum
„þekkt fyrir þjónustu", og hún er
mjög mikilvæg í ljósi þeirrar þróun-
ar til tæknitaka í verklegum fram-
kvæmdum og þá ekki síst í landbún-
aðinum. Það hefur orðið ör þróun til
hagkvæmni í búvöruframleiðslunni
og vegur þar einna mest á síðustu ár-
um stóraukið öryggi í kjölfar rúllu-
baggatækni. Hún skapar öryggi og
gæði, sem bændur tileinka sér og ná
sífellt betri tökum á, til framleiðni-
auka í landbúnaði. Auk þess eru rúll-
umar vistvænar, því það er ekki bara
að menn og skepnur losni við ryk og
óþverra, heldur ætti nú að hverfa sú
sýn að illa hirt og hrakin hey liggi úti
um allar jarðir, auk þess sem vot-
heyssafi gæti mengað jarðvatn, ár og
læki. Það má því leggja áherslu á
hagkvæmni aðferðarinnar, sem er
stór liður í átt til hagkvæms búskap-
ar hér á landi.
Vegna stærðar fyrirtækisins og um-
svifa náum við oft á tíðum mjög hag-
kvæmum samningum, sem við-
skiptavinir sjá í verðþróun hjá fyrir-
tækinu og kemur til með að vega
þungt í vaxandi samkeppni, sem
bændur, verktakar og vinnuvélaeig-
endur verða að mæta.
Næstan hittum við að máli Guðjón
Ágústsson, verslunarstjóra í vara-
hlutadeild.
Guðjón, það er mikiö í hillunum.
Já, við seljum hér fyrir rétt um 100
milljónir og má segja að margt smátt
geri eitt stórt, en auðvitað er það svo
Bergur Ketilsson viö þjónustubllinn.