Tíminn - 29.02.1992, Qupperneq 19
Laugardagur 29. febrúar 1992
Tíminn 19
Starfsmenn varahlutadeildar: Einar, Kristján, Guöjón, Bjarni og Kjartan.
allvel útbúnir til þess að glíma við
þetta verkefni. Við veitum mjög al-
hliða þjónustu á sviði vélaviðgerða.
Næstan hittum við að máli Matthí-
as Sturluson sölustjóra.
Hvaða áherslur eruð þið með í ykk-
ar viðskiptum við bændur núna?
Áhersluatriði, sem ég vil nefna, er
að vekja athygli bænda á mjög hag-
stæðu verði á Case IH- dráttarvélum.
Við kappkostum að tryggja fjölbreytt
úrval og eigum ennþá til vélar á
verði, sem var samið um snemma á
síðastliðnu ári og verður að teljast
mjög hagkvæmt. Einnig höfúm við
verið að kynna nýjungar í Krone-
rúllubindivélum, nýja gerð af sóp-
og mötunarbúnaði, sem er sérhann-
aður fyrir erfiðar aðstæður hér á
landi. Það fyrsta, sem bændur munu
sjá, er nýr litur og hann hefur gildi í
sjálfú sér, en er aðeins til að undir-
strika þær endurbætur sem gerðar
hafa verið á Krone-rúllubindivélun-
um, sem þó hafa ætíð verið í farar-
broddi: verið auðveldar í notkun, bú-
ið til góða bagga og þótt öruggar og
léttar í vinnu. Bændur ættu að skoða
þessar vélar alveg sérstaklega.
í moksturstækjum erum við með
mjög öflug, en léttbyggð og
skemmtileg tæki, sem margir hafa
ekki veitt verðskuldaða athygli. Hér
fá menn bestu tækin á besta verðinu,
eins og þetta lítur út ef gerður er
samanburður.
Stoll-heyvinnuvélar frá Þýskalandi
eru þekktar sem ódýr og örugg tæki,
og loks mætti nefna Kaweco-haug-
sugur og -dælur, en góð tækni í hús-
dýraáburðinn er lykill að hagkvæmri
nýtingu hans. Við erum nú að skoða
nýjustu dráttarvélarnar frá Ursus og
reiknum með að kynna þær síðar á
árinu. Þar sameinast hagkvæmt verð
og ágæt útkoma.
Loks hittum við Björgvin Pálsson
sölustjóra, en við heyrðum að hann
var að tala við bændur um rúllu-
filmu.
Hvemig gengur salan á rúllufilm-
unni?
Þetta gengur sinn vanagang. Það er
nauðsynlegt að hvetja menn til að
tryggja sér eitthvað lágmarksmagn
af filmu tímanlega. Við erum með
mjög gott framboð. Við flytjum inn
frá Ástralíu svokallaða Silawrap-
filmu, sem byggir á mikilli reynslu
og er sú filma sem mest hefur verið
notuð hérlendis, hvít og grænleit.
Einnig höfum við tryggt okkur við-
skiptasamband við stærsta filmu-
framleiðenda í heiminum, sem
framleiðir um helming allrar filmu
sem seld er, en stærstu markaðirnir
eru Bretland, Japan og meginland
Evrópu, þótt hlutfallslega séu mestu
filmuviðskiptin hér á landi. Sam-
keppnisaðilar okkar hérlendis ráku
mikinn áróður fyrir því um þetta
leyti í fyrra, að allt væri að fara til
fjandans með filmuverðið; við tók-
um ekki þátt í þessari vitleysu, sáum
að þróunin gat ekki verið nema á
hinn veginn, því framboðið á olíu-
vörum er óhóflegt alls staðar, þrátt
fyrir öll Persaflóastríð, og því tel ég,
að filmumálin séu, þvert á flestar
spár, í mjög góðri þróun. Þetta hefúr
líka sýnt sig og nú erum við með í
senn lægsta verðið og mesta vöruval;
eins og ég segi grænleita, hvíta og
svarta filmu eftir tveimur algeng-
ustu framleiðsluformúlum, sem í
þessu gilda, og venjulega sem breið-
filmu. Ennfremur erum við búnir að
undirbúa gott framboð á rúlluneti,
sem margir bændur sækja í með
rúllurnar, svo og svokallaðar rúllu-
bætur sem bændur þurfa að kunna á
og hagnýta sér.
Er þá ekki eitthvað fleira nýtt?
Við erum komnir með fjölbreytt úr-
val af rafgirðingum og rafgirðingar-
efni, harðviðarstaura og vír, og er
þetta bara einn liður í þróun við-
skipta hjá fyrirtækinu.
DRYKKJARKER
íyrir kýr, hesta og sauðfé
Flotholtsventlar fyrir vatnsker og tanka
^©íKyjíKiOvO
TíZUðsorffý
HÖFÐABAKKA 9-112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000
Bárulaga ál
utan og innan
á fjósið
MEGA bárulaga álið ryðgar ekki né tærist
Auðvelt að þrffa. Langtímalausnin sem þú leitaðir að.
Fæst baeði litað og ólitað. Mjög gott verð.
A
' Al r' a
ALCAN
Mega h/f, Engjateigi 5, 105 Reykjavík
Pósthólf 1026, 121 Reykjavfk.
Sfmi 91-680606. Fax 91-680208.
SPARAÐU VIÐHALD NOTAÐU ÁL
Innifalið: Allt stál í bygginguna, grind, klæön-
ing, festingar og ítarlegar leióbeiningar um
uppsetningu.
Verð mjög hagstætt.
Hafið samband strax í síma 91-26984.
um tilboð og upplýsingar.
MARKAÐSÞJÓNUSTAN
SKIPHOLTI 19 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 91-26984