Tíminn - 18.03.1992, Síða 12

Tíminn - 18.03.1992, Síða 12
AUGLVSINGASÍMAR: 680001 & 686300 HEIÐI BILAPARTASALA Varahlutir í árgerðir '74-'87 Ýmsar smáviðgerðir Kaupi bíla til niðurrifs HEIÐI ■ BÍLAPARTASALA Fluyumýri 18D • Mosfellsbœ Sfmar 668138 8 667387 '7iJ HOGG- .> DEYFAR Verslið hjá fagmönnum varahluti Hamarshöfða 1 - s. 67-67-44. i ÞJONUSTA MÁLARAR geta bætt við sig málningarvinnu úti sem inni Vönduð og góð vinnubrögð Sími 670269 ÞÉTTING OG KUEÐNING MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992 Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa staðið fyrir setningu reglna um umferð vinnu- og dráttarvéla á höfuðborgarsvæðinu: U mferð vinnuvél lal bönnuð með öllu í Artúnsbrekku Að frumkvæði Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, hafa verið settar reglur um takmörkun umferðar vinnu- og dráttarvéla á höfuðborgarsvæðinu og virðist fátt geta komið í veg fyrir að þær taki gildi 1. maí næstkomandi. Þegar reglurn- ar hafa tekið gildi verður umferð vinnuvéla bönnuð á vissum tíma og á vissum götum og sem dæmi má nefna að öll umferð slíkra véla verður bönnuð í Ártúnsbrekku, á hvaða tíma sólar- hrings sem er. Markmiðið með og minnka slysahættu. Tiliögumar sem hafa verið mótað- ar um takmörkun umferðar vinnu- og dráttarvéla af Samtökum sveitar- félaga á höfúðborgarsvæðinu, hafa verið teknar til umfjöllunar af sveit- arfélögunum og bæjar- og borgar- verkfræðingum og álit sent til sam- takanna og hafa þau lýst sig sam- þykk reglunum, en þó gerðu þau einstaka breytingar. Að sögn Jónas- ar Egilssonar, framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á höfuðborg- arsvæðinu, hafa tillögumar verið sendar til þeirra þriggja lögreglu- stjóra sem málið varðar. Það séu ákveðin vandamál varðandi fram- kvæmdina, sem sé verið að vinna að úrlausn á, en hann sjái ekki betur en að reglumar taki gildi 1. maí. Þegar reglumar hafa tekið gildi verður umferð vinnu- og dráttar- véla í Ártúnsbrekku á milli Reykja- nesbrautar og Höfðabakka og á Kringlumýrarbraut frá Listabraut og allt suður að Vífilsstaðavegi í reglunum er að draga úr töfum Garðabæ, bönnuð með öllu allan sólarhringinn. Þá verður umferð vélanna bönnuð frá 7.30 til 9.00 og frá 16.30 til 18.30 alla virka daga á ýmsum stöðum víða um höfuð- borgarsvæðið og má nefna að um- ferð á þessum tíma verður bönnuð um Bústaðaveg, Reykjanesbraut, Breiðholtsbraut, Bæjarháls, yfir Höfðabakkabrú, Sæbraut, auk fleiri vegakafla. Omar Smári Ármannsson hjá lög- reglunni í Reykjavík segir vandamál vegna aksturs vinnu- og dráttarvéla koma inn á borð hjá þeim af og til. „Okkur berast kvartanir á álagstím- um, þ.e.a.s. síðari part dags og á morgnana, um að verið sé að aka um á fjölfömum götum á hægfara vinnuvélum. Þá kemur upp sú staða að umferðartafir verða og slysa- hætta myndast. Það er alltaf kvartað af og til vegna þessa og þá sérstak- lega á stærri götum, svo sem Kringlumýrar- og Miklubraut, Vest- Þetta verður óheimilt eftir 1. maí næstkomandi, eftir að reglurnar um umferð vinnu- og dráttarvéla á höfuðborgarsvæðinu taka gildi. Myndin er tekin í Ártúnsbrekku um klukkan 17, á háannatíma, en á þessum stað verður óheimilt með öllu að aka um á hægfara vinnu- og dráttarvélum alla daga vikunn- urlandsvegi og Reykjanesbraut Það kemur hins vegar til að fólk hefúr sýnt þessu ákveðna þolinmæði, en þetta er vandamál sem þarf aö leysa, enda held ég að tillögumar frá SSH feli það í sér og það lýsi vilja þeirra aðila sem þama eiga hlut að máli til að leysa það. Það þurfti ákveðnar reglur og drög að þeim eru komin á blað. Mér sýnist sem það eina sem eftir sé, sé að hrinda þessu í fram- kvæmd," sagði Ómar Smári Ár- mannsson hjá lögreglunni í Reykja- vík. í greinargerð með tillögunum seg- ir: „Markmið ofangreindrar tillögu er að auka umferðaröryggi og minnka umferðartafir á helstu þjóðvegum í þéttbýli á höfuðborg- arsvæðinu. Ljóst er að akstur vinnu- og dráttarvéla á annatíma tefur íyrir annarri umferð og eykur slysahættu." -PS Skólanefnd Mýrarhúsaskóla hefur í samvinhu við bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi ákveðið breytingar á skólatíma: SAMFELLDUR SKÓLADAGUR Skólanefnd Mýrarhúsaskóla hef- ur ákveðið í samráði við bæjaryfir- völd á Seltjamamesi að öll böm í skólanum, þ.e.a.s á aldrinum 6-12 ára, stundi á næsta skólaári sam- felldan skóladag og verði skólinn einsetinn. Þessi möguleiki hefur opnast með byggingu nýrrar skólaálmu við Mýrarhúsaskóla sem verður tekin í notkun fyrir næsta skólaár. Mun bæjarfélgið bera þann kostnað sem til fellur vegna breytinganna, en á móti sparast fé þar sem skóladagheim- ili, sem starfrækt hefur verið, verður lagt niður. „Það verður hér einsetinn sam- felldur skóli næsta ár, það er alveg ljóst, en undirbúningurinn er al- veg á frumstigi og á eftir að útfæra þetta nánar. Þetta er nú ekki alveg einsdæmi, því það hefur verið í gangi tilraun í Fossvogsskóla síð- ustu þrjú árin, en ég veit ekki hvað verður með það núna. Það sem gerir það að verkum að við getum gert þetta er að bæjarfélagið greið- ir kostnað þann sem er umfram Mýrarhúsaskóli. það sem við fáum úthlutað frá rík- inu og þeir peningar sem bærinn leggur í þetta eru þeir sömu og bærinn hefur sett í rekstur skóla- dagheimilis og það fellur þá niður með þessu,“ sagði Páll Guðmunds- son, skólastjóri í Mýrarhúsaskóla. Munu starfsmenn skólans taka að sér gæslu barnanna eftir skólatíma og klukkustund fyrir. Eins og áður sagði verður tekin í notkun ný álma við Mýrarhúsaskóla og hefur hún verið í byggingu síðustu tvö árin, en verður lokið fyrir næsta skólaár. Það er því nægilegt hús- rými fyrir hendi til að hægt sé að bjóða upp á einsetinn skóla. Reiknað er með að eldri krakkarn- ir, frá fjórða og upp í sjöunda bekk, verði í skólanum frá 8.15 til 14.00 og yngri börnin munu koma klukkutíma síðar. Þýðir það að yngri börnin, frá 6-9 ára, verða í skólanum í þrjátíu stundir á viku í stað 24 og enn meiru munar í eldri árgöngunum, en þeir verða 35 stundir á viku og er það, t.d. fyrir fjórðu bekkinga, tíu stunda aukn- ing frá því sem áður var. Þá er hug- myndin sú að krakkarnir hafi með sér máltíð í skólann, en þar verða seldar mjólkurvörur og ávaxta- drykkir. Þeir peningar sem færast yfir á Mýrarhúsaskóla frá Seltjarnarnes- bæ eru á bilinu 5-6 milljónir, en það ætti að sparast þar á móti ámóta upphæð þegar skóladag- heimili verður lagt niður. „Þetta ætti að vera algjör bylting fyrir for- eldra á Seltjarnarnesi og þetta er náttúrlega sá skóli sem stefnt hef- ur verið að og hlýtur að komast á einhvern daginn um allt land," sagði Páll Guðmundsson skóla- stjóri. -PS Ríkissáttasemjari: Samkomulag um vinnu- brögöin Aðilar vinnumarkaðarins sem nú vinna að gerð nýrra kjara- samninga hafa samþykkt tiflögu rfldssáttasemjara um vinnutfl- högun við gerð samninganna. Tfllagan gerir ráð fyrir að samn- ingum verði lokið fyrir eða um aðra helgL Gert er ráð fyrir að þegar í stað verði farið að ræða samningstúna og launalið, þar á meðal bætur á lág laun. Settir verða upp vinnuhópar til að neða sérkröfur, atvinnumál, vaxtamál og fleira sem snýr að stjómvöldum. Samningamenn ASÍ, VSÍ og VMS ræða saman í húsakynnum sáttasemjara við Borgartún, Karphúsinu. Samninganefndir rfldsins, sveitarfélaganna, BSRB og KÍ ræða saman í ráðstefnusöi- um rfldsins í Borgartúni 6. Þessi niðurstaða varð eftir sam- eiginlegan samningafund sanm- ingsaðila í gær. í dag og næstu daga verða stíf fundarhöld. -EÓ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.