Tíminn - 18.03.1992, Blaðsíða 12
AUGLVSINGASÍMAR: 680001 & 686300
HEIÐI
BILAPARTASALA
Varahlutir í árgerðir '74-'87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrifs
HEIÐI ■ BÍLAPARTASALA
Fluyumýri 18D • Mosfellsbœ
Sfmar 668138 8 667387
'7iJ HOGG-
.> DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
varahluti
Hamarshöfða 1 - s. 67-67-44.
i
ÞJONUSTA
MÁLARAR
geta bætt við sig
málningarvinnu úti sem inni
Vönduð og góð vinnubrögð
Sími 670269
ÞÉTTING OG KUEÐNING
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa staðið fyrir setningu reglna um umferð vinnu- og dráttarvéla á höfuðborgarsvæðinu:
U mferð vinnuvél lal bönnuð
með öllu í Artúnsbrekku
Að frumkvæði Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu,
hafa verið settar reglur um takmörkun umferðar vinnu- og
dráttarvéla á höfuðborgarsvæðinu og virðist fátt geta komið í
veg fyrir að þær taki gildi 1. maí næstkomandi. Þegar reglurn-
ar hafa tekið gildi verður umferð vinnuvéla bönnuð á vissum
tíma og á vissum götum og sem dæmi má nefna að öll umferð
slíkra véla verður bönnuð í Ártúnsbrekku, á hvaða tíma sólar-
hrings sem er. Markmiðið með
og minnka slysahættu.
Tiliögumar sem hafa verið mótað-
ar um takmörkun umferðar vinnu-
og dráttarvéla af Samtökum sveitar-
félaga á höfúðborgarsvæðinu, hafa
verið teknar til umfjöllunar af sveit-
arfélögunum og bæjar- og borgar-
verkfræðingum og álit sent til sam-
takanna og hafa þau lýst sig sam-
þykk reglunum, en þó gerðu þau
einstaka breytingar. Að sögn Jónas-
ar Egilssonar, framkvæmdastjóra
Samtaka sveitarfélaga á höfuðborg-
arsvæðinu, hafa tillögumar verið
sendar til þeirra þriggja lögreglu-
stjóra sem málið varðar. Það séu
ákveðin vandamál varðandi fram-
kvæmdina, sem sé verið að vinna að
úrlausn á, en hann sjái ekki betur
en að reglumar taki gildi 1. maí.
Þegar reglumar hafa tekið gildi
verður umferð vinnu- og dráttar-
véla í Ártúnsbrekku á milli Reykja-
nesbrautar og Höfðabakka og á
Kringlumýrarbraut frá Listabraut
og allt suður að Vífilsstaðavegi í
reglunum er að draga úr töfum
Garðabæ, bönnuð með öllu allan
sólarhringinn. Þá verður umferð
vélanna bönnuð frá 7.30 til 9.00 og
frá 16.30 til 18.30 alla virka daga á
ýmsum stöðum víða um höfuð-
borgarsvæðið og má nefna að um-
ferð á þessum tíma verður bönnuð
um Bústaðaveg, Reykjanesbraut,
Breiðholtsbraut, Bæjarháls, yfir
Höfðabakkabrú, Sæbraut, auk fleiri
vegakafla.
Omar Smári Ármannsson hjá lög-
reglunni í Reykjavík segir vandamál
vegna aksturs vinnu- og dráttarvéla
koma inn á borð hjá þeim af og til.
„Okkur berast kvartanir á álagstím-
um, þ.e.a.s. síðari part dags og á
morgnana, um að verið sé að aka
um á fjölfömum götum á hægfara
vinnuvélum. Þá kemur upp sú staða
að umferðartafir verða og slysa-
hætta myndast. Það er alltaf kvartað
af og til vegna þessa og þá sérstak-
lega á stærri götum, svo sem
Kringlumýrar- og Miklubraut, Vest-
Þetta verður óheimilt eftir 1. maí næstkomandi, eftir að reglurnar um umferð vinnu- og dráttarvéla á
höfuðborgarsvæðinu taka gildi. Myndin er tekin í Ártúnsbrekku um klukkan 17, á háannatíma, en á
þessum stað verður óheimilt með öllu að aka um á hægfara vinnu- og dráttarvélum alla daga vikunn-
urlandsvegi og Reykjanesbraut Það
kemur hins vegar til að fólk hefúr
sýnt þessu ákveðna þolinmæði, en
þetta er vandamál sem þarf aö leysa,
enda held ég að tillögumar frá SSH
feli það í sér og það lýsi vilja þeirra
aðila sem þama eiga hlut að máli til
að leysa það. Það þurfti ákveðnar
reglur og drög að þeim eru komin á
blað. Mér sýnist sem það eina sem
eftir sé, sé að hrinda þessu í fram-
kvæmd," sagði Ómar Smári Ár-
mannsson hjá lögreglunni í Reykja-
vík.
í greinargerð með tillögunum seg-
ir: „Markmið ofangreindrar tillögu
er að auka umferðaröryggi og
minnka umferðartafir á helstu
þjóðvegum í þéttbýli á höfuðborg-
arsvæðinu. Ljóst er að akstur
vinnu- og dráttarvéla á annatíma
tefur íyrir annarri umferð og eykur
slysahættu."
-PS
Skólanefnd Mýrarhúsaskóla hefur í samvinhu við bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi ákveðið breytingar á skólatíma:
SAMFELLDUR SKÓLADAGUR
Skólanefnd Mýrarhúsaskóla hef-
ur ákveðið í samráði við bæjaryfir-
völd á Seltjamamesi að öll böm í
skólanum, þ.e.a.s á aldrinum 6-12
ára, stundi á næsta skólaári sam-
felldan skóladag og verði skólinn
einsetinn. Þessi möguleiki hefur
opnast með byggingu nýrrar
skólaálmu við Mýrarhúsaskóla
sem verður tekin í notkun fyrir
næsta skólaár. Mun bæjarfélgið
bera þann kostnað sem til fellur
vegna breytinganna, en á móti
sparast fé þar sem skóladagheim-
ili, sem starfrækt hefur verið,
verður lagt niður.
„Það verður hér einsetinn sam-
felldur skóli næsta ár, það er alveg
ljóst, en undirbúningurinn er al-
veg á frumstigi og á eftir að útfæra
þetta nánar. Þetta er nú ekki alveg
einsdæmi, því það hefur verið í
gangi tilraun í Fossvogsskóla síð-
ustu þrjú árin, en ég veit ekki hvað
verður með það núna. Það sem
gerir það að verkum að við getum
gert þetta er að bæjarfélagið greið-
ir kostnað þann sem er umfram
Mýrarhúsaskóli.
það sem við fáum úthlutað frá rík-
inu og þeir peningar sem bærinn
leggur í þetta eru þeir sömu og
bærinn hefur sett í rekstur skóla-
dagheimilis og það fellur þá niður
með þessu,“ sagði Páll Guðmunds-
son, skólastjóri í Mýrarhúsaskóla.
Munu starfsmenn skólans taka að
sér gæslu barnanna eftir skólatíma
og klukkustund fyrir. Eins og áður
sagði verður tekin í notkun ný
álma við Mýrarhúsaskóla og hefur
hún verið í byggingu síðustu tvö
árin, en verður lokið fyrir næsta
skólaár. Það er því nægilegt hús-
rými fyrir hendi til að hægt sé að
bjóða upp á einsetinn skóla.
Reiknað er með að eldri krakkarn-
ir, frá fjórða og upp í sjöunda bekk,
verði í skólanum frá 8.15 til 14.00
og yngri börnin munu koma
klukkutíma síðar. Þýðir það að
yngri börnin, frá 6-9 ára, verða í
skólanum í þrjátíu stundir á viku í
stað 24 og enn meiru munar í eldri
árgöngunum, en þeir verða 35
stundir á viku og er það, t.d. fyrir
fjórðu bekkinga, tíu stunda aukn-
ing frá því sem áður var. Þá er hug-
myndin sú að krakkarnir hafi með
sér máltíð í skólann, en þar verða
seldar mjólkurvörur og ávaxta-
drykkir.
Þeir peningar sem færast yfir á
Mýrarhúsaskóla frá Seltjarnarnes-
bæ eru á bilinu 5-6 milljónir, en
það ætti að sparast þar á móti
ámóta upphæð þegar skóladag-
heimili verður lagt niður. „Þetta
ætti að vera algjör bylting fyrir for-
eldra á Seltjarnarnesi og þetta er
náttúrlega sá skóli sem stefnt hef-
ur verið að og hlýtur að komast á
einhvern daginn um allt land,"
sagði Páll Guðmundsson skóla-
stjóri. -PS
Ríkissáttasemjari:
Samkomulag
um vinnu-
brögöin
Aðilar vinnumarkaðarins sem
nú vinna að gerð nýrra kjara-
samninga hafa samþykkt tiflögu
rfldssáttasemjara um vinnutfl-
högun við gerð samninganna.
Tfllagan gerir ráð fyrir að samn-
ingum verði lokið fyrir eða um
aðra helgL Gert er ráð fyrir að
þegar í stað verði farið að ræða
samningstúna og launalið, þar á
meðal bætur á lág laun.
Settir verða upp vinnuhópar til
að neða sérkröfur, atvinnumál,
vaxtamál og fleira sem snýr að
stjómvöldum.
Samningamenn ASÍ, VSÍ og
VMS ræða saman í húsakynnum
sáttasemjara við Borgartún,
Karphúsinu. Samninganefndir
rfldsins, sveitarfélaganna, BSRB
og KÍ ræða saman í ráðstefnusöi-
um rfldsins í Borgartúni 6.
Þessi niðurstaða varð eftir sam-
eiginlegan samningafund sanm-
ingsaðila í gær. í dag og næstu
daga verða stíf fundarhöld. -EÓ