Tíminn - 08.08.1992, Qupperneq 5

Tíminn - 08.08.1992, Qupperneq 5
Laugardagur 8. ágúst 1992 Tíminn 5 Sölumál land- búnaö ar afur ð a Jón Kristjánsson skrifar Málefni sjávarútvegsins hafa að vonum verið efst á baugi síðustu vikur vegna ákvörðunar um heildarafla. Annar undir- stöðuatvinnuvegur, landbúnaðurinn, hef- ur blandast inn í þessa umræðu vegna umræðu um að láta nú til skarar skríða og skera niður opinber framlög til hans í miklu meiri mæli heldur en til þessa. TVeysta verður á innanlandsmarkaöinn Landbúnaðurinn stendur nú frammi fyr- ir afdrifaríkum breytingum. Útflutnings- uppbætur verða felldar niður í haust, og því verður að nýta innanlandsmarkaðinn eingöngu fyrir landbúnaðarframleiðsl- una. Hinn mikli vandi sem við er að glíma í landbúnaðinum er sá að sala dilkakjöts hefur farið minnkandi á síðasta áratug. Á árunum frá 1980 til 1990 dróst heildar- neysla í kjöti saman um 7%, eða 5 kg á íbúa. Á þessu sama tímabili varð ennþá meiri samdráttur í neyslu kindakjöts, um 11 kg á íbúa, eða um 16%. Hins vegar jókst sala svínakjöts um 6.1 kg á íbúa á sama tímabili sem er tvöföldun neyslunn- ar og sala nautakjöts hefur einnig aukist. Þessi þróun heldur áfram árið 1991 og það sem af er ári 1992. Önnur mynd í mjóUdnni í mjólkurvörum lítur dæmið þannig út að á árunum frá 1980 til 1991 hefur sala nýmjólkur farið minnkandi, án þess að um hrun hafi verið að ræða. Hins vegar hefur söluaukning í unnum vörum, eink- um stóraukin sala í osti um 87% á þessu árabili, unnið þetta upp þannig að heildar- magnið er líkt og í upphafi tímabilsins. Athyglisverður samanburður Þessar tölur eru einkar athyglisverðar og það er vert að velta því fyrir sér hvað veld- ur þeirri þróun sem þær sýna. Meginlín- umar eru stórminnkandi neysla á kinda- kjöti og stóraukin sala á ostum og svína- kjöti. Þess má þó geta í sambandi við svínakjötið að neyslan var ekki mikil fyrir og stórum minni en í nágrannalöndunum þar sem svínakjöt er uppistaðan í kjöt- neyslunni, en neysla kindakjöts óveruleg. Munurinn á kjötneyslu á íslandi og í 10 EB löndum sem tekin hafa verið til sam- anburðar er að hér er neytt miklu minna af svína- og fuglakjöti en þar, en stómm meira af lamba- kjöti. Hluti af skýr- ingunni er sá að neysluvenjur hafa breyst í átt við það sem ger- ist í nágranna- löndunum, en þrátt fyrir það er neysla kinda- kjöts hér enn mjög hátt hlutfall á íbúa miðað við aðrar kjöttegundir. Osturinn blívur Söluaukninguna í ostinum má einnig að hluta rekja til breyttra neysluvenja, og er- lendra áhrifa. Ostaneysla í nágrannalönd- unum á sér ríka hefð og úrval af þessari vöm er mjög mikið. Hins vegar er mjög fróðlegt að athuga hvemig staðið er að sölu á þeim vömteg- undum sem hafa staðið sig best í sölu á osti hefur hitinn og þunginn hvílt á Osta og smjörsölunni sem er fyrirtæki afurða- stöðvanna og bænda. Fyrirtækið hefur rekið mjög öfluga auglýsingastarfsemi. Miklu fé er varið í vörukynningar, auglýs- ingar og alls konar markaðssetningu, út- gáfu mataruppskrifta þar sem ostur hefur skipað veglegan sess og einnig em reknar hér í höfuðstaðnum sérstakar ostabúðir þar sem úrval er mikið. Þetta virðist ein- faldlega skila sér í aukinni sölu. Markaðsmál kindakjöts Sé litið á kindakjötið blasir allt önnur mynd við. Það em vissulega stór afurða- sölufyrirtæki sem vinna á stærsta mark- aðnum á höfuðborgarsvæðinu. Hins veg- ar virðist sú auglýsinga- og sölustarfsemi alls ekki vera eins markviss og í ostunum, og reyndar einnig í mjólkurvörunum, því staðreyndin er sú að mjólkin er í grimmi- legri sam- keppni við alls konar drykkjar- vömr eins og gos og ávaxta- safa, þar sem er rekin ein mesta verðsamkeppni sem fyrirfinnst hérlendis. Sú auglýsingastarfsemi sem rekin er í kjötsölunni er að stómm hluta skipulögð af svokallaðri markaðsnefhd landbúnað- arins, sem er hálfopinber nefrid, skipuð hinum mætustu mönnum, en þeir standa vissulega ekki á gólfinu í sölunni. Mottóið í þeim auglýsingum hefur verið tvenns konar, að kjötið sé náttúruafurð, „náttúr- lega gott“, og kaupin séu góð. „Lambakjöt á lágmarksverði“. Þetta hefur alls ekki nægt til þess að halda sölunni í horfinu. Almenningur hefur þá mynd af málinu að kjötið sé dýrt og feitt og ekki nægjanlega aðgengilegur matur. Þar að auki á sauð- fjárræktin undir högg að sækja í almenn- ingsálitinu vegna beitar sauðfjár á hálend- ið, sem er þó undirstaða þess að kjötið sé náttúmafurð. Tími stóru plastpokanna er liðinn Þau afurðasölufyrirtæki sem sjá um dreif- ingu kindakjöts þurfa að huga að því hvemig á að mæta því að yngri kynslóðin kaupir ekki kindakjöt frosið í stórum plastpokum, jafnvel þótt þetta kjöt sé ódýrt Verð á kindakjöti í hugum þessa fólks er það verð sem er á ýmsum hlutum kjötsins í kæliborðum verslana á miklu hærra verði en því lágmarksverði sem ver- ið er að auglýsa. Tegundir án kvóta vinna á Samkvæmt upplýsingum frá Fram- leiðsluráði landbúnaðarins um fram- leiðslu og sölu búvara í maí á þessu ári heldur sala kindakjöts áfram að minnka, en aðrar kjöttegundir vinna á. í nauta- og svínakjöti er skipulagið þannig að bændur em frjálsir að framleiða, en verslanimar pína þá og sláturleyfishafana niður í verði. Með þessum aðferðum hefur salan verið aukin, þó offramleiðsla sé vemleg Ld. í nautakjöti. Hvemig er hægt að gera betur? Ég geri þessi sölumál að umtalsefhi hér vegna þess að þau em mikið áhyggjuefni í þeirri stöðu sem landbúnaðurinn er nú í. Staða sauðfjárbúskaparins er ofurvið- kvæm, og tengist mjög atvinnuástandinu í hinum dreiföu byggðum, bæði í sveitum og þéttbýli. Sölumálin em ein hliðin á teningnum og það er ástæða til þess að skoða vandlega það skipulag sem em að baki þeim og hvemig er hægt að gera bet- ur. Þar verða allir að leggjast á eitt, bænd- ur, sláturleyfishafar og afurðasölufyrir- tækin. M enn og mal- ^ ' #-m eini

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.