Tíminn - 08.08.1992, Síða 17

Tíminn - 08.08.1992, Síða 17
Laugardagur 8. ágúst 1992 Tíminn 17 Sumarferð Framsóknar- félaganna í Reykjavík laugardaginn 8. ágúst 1992 Farið veröur um: Gullfoss — Geysi — Hveravelli — Blönduvirkjun Kl. 08:00 Lagt af stað frá BSl og ekið að Geysi I Haukadal, þar sem fólki gefst kostur á að skreppa i sjoppu. Kl. 10:30 Lagt af stað frá Geysi. Ekið norður Kjöl að Hveravöllum. Þar munu ferðalangar borða nesti sitt. Kl. 15:00 Lagt af stað frá Hveravöllum og ekið norður að Blönduvirkjun, þar sem virkjunin verður skoðuð i fylgd leiðsögumanns. - Áður en komið er að Blönduvirkjun verður stansað og Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, flytur stutt ávarp. Kl. 18:00 Lagt af stað frá Blönduvirkjun og er ekið að Staðarskála. Kl. 21:00 Lagt af stað frá Staöarskála og ekið til Reykjavikur. Áætlað er að koma til Reykjavíkur kl. 23:45. Fargjald kr. 2.800,-. Tekið verður á móti sætapöntunum I síma 624480 eða á skrifstofu Framsóknar- flokksins, Hafnarstræti 20, 3. hæð, 4.-7. ágúst. Sumartími skrifstofu Framsóknarflokksins Frá 18. mal er skrifstofa okkar í Hafnarstræti 20, III. hæð, opin frá kl. 8.00 til 16.00 mánudaga-föstudaga. Verið velkomin. Framsóknarflokkurinn. Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 1992 Dregið var I Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 10. júli 1992. Vinningsnúmer eru sem hér segir: 1. vinningur nr. 29595 2. vinningur nr. 26487 3. vinningur nr. 1668 4. vinningur nr. 36086 5. vinningur nr. 9702 6. vinningur nr. 23897 7. vinningur nr. 24772 8. vinningur nr. 39900 9. vinningur nr. 715 10. vinningur nr. 17477 11. vinningur nr. 4527 12. vinningur nr. 36239 13. vinningur nr. 3146 14. vinningur nr. 30173 15. vinningur nr. 1992 Ógreiddir miðar eru ógildir. Vinnings skal vitja innan árs frá útdrætti. Frekari upplýs- ingar eru veittar i sima 91-624480. Með kveðju og þakklæti fyrir veittan stuöning. Framsóknarflokkurinn. Varanleg lausn á vatnsbrettum, sterk, rakaþétt og viðhaldsfri. Margir litir. Staðgreiðsluafsláttur. Einnig sólbekkir og borðplötur í mörgum litum. Ótrúlega lágt verð á legsteinum með rafbrenndum álplötum. Sterkt og fallegt. Marmaraiðjan, Höfðatúni 12. Sími 629955. Fax 629956. Verktakastarf Ungmennafélag íslands óskar eftir að ráða verk- taka við ritstjórn að blaði samtakanna — SKIN- FAXA — sem gefið er út 4 sinnum á ári. Umsóknarfrestur er til 1. september 1992. Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri UMFÍ eftir 12. ágúst, að Öldugötu 14, Reykjavík, sími 91-12546. Stjórn UMFÍ íbúar St. Tropez kippa sér ekki lengur upp viö þaö þegar Bardot fer á bæjarrölt. Brigitte Bardot er oröin 58 ára gömul en er enn glæsileg kona: Stjarna á stuttbuxum Brigitte Bardot hvarf af hvíta tjaldinu fyrir 20 árum, þá aðeins 39 ára gömul. Frakkar eru enn stoltir af þessari helstu kvikmyndastjömu sem þeir hafa átt og enn vekur Bardot athygli þar sem hún kemur. En í St. Tropez, þar sem hún hef- ur búið frá því hún dró sig í hlé, eru íbúarnir orðnir vanir að sjá Bardot á vappi í daglegum erind- um. Hún er ekki uppstríluð í þess- um ferðum, iðulega klædd snjáð- um gallastuttbuxum og sundboí. Eins og frægt er orðið fékk Bardot sig svo fullsadda af mannfólkinu að hún sneri sér alfarið að dýrum og vernd þeirra þegar hún hætti að leika. Hún hefur stofnað eigin dýra- vemdunarsjóð og er mjög ákveðin í baráttu sinni. Hún hefur m.a. ein- beitt sér mjög að selafriðun. Hún henti öllum gömlu pelsunum sín- um þegar hún tók sinnaskiptum og hefði eflaust mörg konan viljað komast í öskutunnuna hjá stjörn- unni þann daginn. Þó svo að stjaman fyrrverandi sé komin fast að sextugu má enn sjá merki þess glæsileika sem fékk karlmenn til að snúa sig nær úr hálsliðnum til að horfa á eftir henni á árum áður. Brigitte Bardot kaupir sér blóm á útimarkaöi. Linda Essex frá Indiana í BNA hefur veriö gift 21 sinni og nú er í fullum gangi: Leitin að eiginmanni „Ég hef verið gift 21 sinni og eytt ævinni í að leita að hinum full- komna eiginmanni og ég er enn að leita," segir Linda Essex, en hún er sú kona í heiminum sem á flest hjónaband að baki. Linda komst í Heimsmetabók Guinnes eftir að for- lagið sem gefur hana út hafði kynnt sér rækilega að hvergi væru svik í tafli. „Við höfum farið ítarlega í saum- ana á þessu máli og getum staðfest að Linda hefur í raun og veru geng- ið 21 sinni í hjónaband. Og á meðan aðrir slá henni ekki við á hún heimsmetið," sagði Nicholas Heath- Brown sem starfar við ritstjórn Heimsmetabókarinnar. Linda Essex var aðeins 16 ára göm- ul þegar hún gifti sig í íyrsta skipti. Það var árið 1958 og eiginmaðurinn var 31 árs gamall iðnverkamaður. „Ég giftist honum nú bara til þess að komast að heiman. Við höfðum einungis verið gift í nokkra mánuði þegar hann vildi endilega að við flyttum til Kaliforníu. Það vildi ég engan veginn og þar með lauk því hjónabandi," segir Linda. Linda Essex getur búiö til blæ- væng úr vígsluvottorðunum slnum. Þessi giftingarsjúka kona hefur gifst 15 mönnum, einum giftist hún jr I spegli Tímans númer 22 þrisvar og fjóra menn gekk hún að eiga tvisvar sinnum. Stysta hjóna- bandið entist aðeins í einn og hálfan sólarhring en persónulegt hjóna- bandsmet Lindu er sex ár. „Ég hef verið eiginkona tónlistar- manns, vélvirkja, trésmiðs, bar- þjóns, refsifanga, fátæklings og auð- manns og fleiri og fleiri...“ Stysta hjónaband hennar var með trésmiði sem hún giftist í örvænt- ingu sinni yfir því að hún gat ekki fengið manninn sem hún þráði helst í það skiptið. En daginn eftir brúðkaupið bað sá útvaldi hennar og hún var snögg að skilja við aum- ingja trésmiðinn sem ekki vissi hvaðan á hann stóð veðrið. Linda á sjö böm á aldrinum 15 ára til þrítugs og hún á 13 bamaböm. Og þó svo að Linda hafi reynt sitt af hverju í áranna rás er hún ekki búin að gefa hjónabandið (eða böndin) upp á bátinn. „Ég leita enn að hinum eina og sanna. Og ef ég skyldi nú finna hann mun ég krefjast þess að við giftum okkur í snarhasti," segir heimsmet- hafinn í giftingum og skilnuðum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.