Tíminn - 28.08.1992, Page 3
Föstudagur 28. ágúst 1992
Tíminn 3
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra segir Ijóst að innflutn-
ingur á áburði verði gefinn frjáls 1. janúar 1995:
EES heimilar útlend-
ingum að kaupa
íslenskar jarðir
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra lýsti því yfir á aðalfundi
Stéttarsambands bænda í gær að hann væri reiðubúinn til að
endurskoða búvörusamninginn frá grunni, en hann tekur
formlega gildi um næstu mánaðamót. Hann sagðist einnig hafa
ákveðið að beita sér fyrir endurskoðun á ábúðarlögum og jarða-
lögum.
Hann sagði að það væri alveg skýrt
að EES-samningurinn bannaði að
fólki sé mismunað eftir þjóðerni
hvað varðar kaup á landi og því sé
eðlilegt að sett verði ákvæði í lög
sem þrengi rétt til jarðakaupa.
Ljóst sé að sá hópur sem komi til
með að geta keypt jarðir hér á landi
stækki með samþykkt EES- samn-
ingsins.
Landbúnaðarráðherra hefur áður
lýst því yfir að hann sé reiðubúinn
til viðræðna um að endurskoða bú-
vörusamninginn. Hann sagði á
fundinum í gær að aðstæður land-
búnaðarins breyttust hratt. Nú sé
t.d. fyrirsjáanlegt að heimildir til
innflutnings á búvörum verði víkk-
aðar með nýju GATT-samkomulagi.
Slíkur innflutningur kalli á breytt-
ar áherslur í stuðningi við land-
búnaðinn. Halldór sagðist eiga von
á að viðræður um GATT hefjist að
nýju í byrjun næsta árs og hægt sé
að hugsa sér að nýtt GATT-sam-
komulag taki gildi 1. janúar 1994.
Halldór ræddi nokkuð um áhrif
EES- samningsins á möguleika út-
lendinga til að kaupa íslenskar
jarðir. Hann sagði ljóst að samn-
ingurinn leyfði ekki mismun eftir
þjóðerni. Útlendingar fengju sama
rétt til að kaupa hér land og íslend-
ingar. Hins vegar sé hægt að setja í
íslensk lög ákvæði sem þrengi
möguleika manna til að kaupa
jarðir. Til skoðunar sé í ráðuneyt-
inu að setja ákvæði um að viðkom-
andi jarðakaupandi verði að hafa
haft fasta búsetu hér á landi í fimm
ár. Ekki liggi hins vegar fyrir hvort
slíkt ákvæði brjóti í bága við EES-
samninginn. Þá komi til greina að
áskilja starfsreynslu kaupandans í
ákveðinn tíma við landbúnað eigi
að reka landbúnað á jörðinni. Hall-
dór sagði að frumvarp um breyt-
ingu á jarðalögum verði lagt fram á
Alþingi í október.
Landbúnaðarráðherra gerði að
umtalsefni hátt áburðarverð hér á
landi, en fram hafa komið upplýs-
ingar um að tonnið af áburði í
Skotlandi sé t.d. 10.000 kr. ódýrara
en á íslandi. Halldórs sagði að
margt bendi til að verðlagningin á
skoska áburðinum hafi verið
óvenjuleg á þeim tíma sem könn-
unin var gerð. Hins vegar megi
gera ráð fyrir að innfluttur áburð-
ur sé a.m.k. 10-15% ódýrari en sá
íslenski. Halldór sagði að í vetur
komi fram stjórnarfrumvarp um að
breyta Áburðarverksmiðju ríkisins
í hlutafélag. Jafnframt sé ljóst að
EES-samningurinn geri okkur
skylt að leyfa frjálsan innflutning á
áburði frá og með 1. janúar 1995.
í ræðu sinni áréttaði Halldór þá
skoðun sína að óraunhæft og skað-
legt sé af hálfu bænda að halda
dauðahaldi í lögskráð verð og stað-
greiðslu afurða. „Verndin, sem í því
átti að felast, hefur reynst fals-
vernd, jafnvel þó ríkið hafi hingað
til ábyrgst sölu afurðanna. Nú þeg-
ar þeirri ábyrgð sleppir, geta af-
urðastöðvarnar ekki undirgengist
slíka kvöð til lengdar, af því að hún
brýtur í bága við heilbrigða við-
skiptahætti," sagði Halldór.
54 tilboðum í ríkisbréf tekið að
upphæð 550 milljónir króna:
Mikill áhugi
Alls bárust 73 gild tilboð í rúds- á þessu ári. f fyrsta útboði var
bréf að fjárhæð 848 milljónir teldð tilboðum að upphæð 506
króna í fjórða útboði ríkisbréfa, milljónir, en í hin þijú skiptin
en tilboð í bréfln voru opnuð í hefur hcildarupphæð tekinna
vikunni. Ákveðið hefur verið að tilboða verið 550 milljónir. Með*
taka tilboðum frá 54 aöilum að alávöxtun hefur Iækkað um
upphæð 550 milljónir króna. 0,4% síðan fyrstu tilboðum var
Meðalávöxtun samþykktra til- tekið. Meðalávöxtun nú er sú
boða var 11,08% en lægsta sama og í síðasta tilboði.
ávöxtun var 10,94% og hæsta Næsta útboð ríkisbréfa fer
11,15%. fram 29. september næstkom-
Þetta er fjórða utboð ríkisbréfa andi. -EÓ
AUGLYSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1984- 2.fl. 1985- 2.ÍI.A 1985-2.fl.B 10.09.92-10.03.93 10.09.92-10.03.93 10.09.92-10.03.93 kr. 65.084,33 kr. 41.926,57 kr. 26.109,77**)
*)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
**)Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinisins.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, ágúst 1992.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
NÚ ER
TVÖFALDUR
1. VINNINGUR