Tíminn - 28.08.1992, Blaðsíða 12

Tíminn - 28.08.1992, Blaðsíða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 Askriftarsími Tímans er 686300 AUÐVITAÐ Suðurlandsbraut 12 Oöruvísi bílasala BlLAR • HJÓL • BÁTAR • VARA- HLUTIR. MYNO HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR SÍMI 679225 I ra J / ClBahriel HÖGG- DEYFAR Verslid hjá fagmönnum i varahlutir „ ' . Hamarshöföa 1 - s. 67-67-44 TVÖFALDUR1. vinningur Tímmn FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1992 Rætt um að reisa spilliefnaeyðingar- stöð hér á landi: Ný reglugerð um slátrun búfjár. Ekkert heimaslátrað kjöt má fara út fyrir lögbýli. Aðeins má selja sláturhússlátrað og stimplað kjöt: En orkan sem af hlýst vannýtist Kostnaður við að reisa spilliefria- eyðingarstöð hér á iandi eru 250- 300 milljónir króna og segir Ög- mundur Einarsson, framkvæmda- stjóri Sorpu, það ekki þurfa að vera ódýrari lausn en að flytja spilliefnin til eyðingar erlendis eins og nú er gerL Ein heista ástæða þess er að hér finnst enginn sem gæti nýtt sér þá orku sem myndast við eyðinguna, en erlendis er hún notuð til upphit- unar. Umræður eru þegar hafnar um að koma hér upp eyðingarstöð eins og fram kom í Tímanum iyrir skömmu. „Við erum alltaf að bíða eftir einkaffamtaki hér og um daginn var haldinn fundur með hópi þeirra aðila sem eru stærstu framleiðend- ur spiliiefna hér á iandi. Þeim var kynntur búnaður sem Hekla hefur í boði,“ segir Ögmundur. Hann segir jafnframt afkomu Sorpu var í jámum fyrstu sex mán- uðina og engin aukning sé nú merkjanleg í innstreymi af úrgangi. —GKG. Vöngum velt yfir skipsflökunum í Breiðafirði: Erlendur sérfræð- ingur kallaður til? Hugsanlega þarf að fá hollenskan sérfræðing í gömlum skip- um hingað til lands til að rannsaka skipsflakið sem fannst í Breiðafirði og talið er frá 17. öld. „Við eigum enga sérfræðinga hér heima í þessum gömlu hollensku skipum og því gæti vel verið að við leitum eftir ráðgjöf erlendis frá. En við þurfum að sjá áður hvað mikla peninga við eigum til slíks,“ segir Guðmundur Magnússon þjóð- minjavörður. Náðst hefur brot úr skipinu sjálfu með greinilegt far eftir trénagla en einnig brotinn diskur með munstri. Hann er mjög vel varðveittur og þykir víst að hann hafi verið framleiddur í Hol- landi á tímabilinu 1650-1700. „Þessir tveir munir gætu rennt stoðum undir þá tilgátu að þarna væru leyfar hollenska kaupfarsins sem brotnaði við Flatey árið 1659,“ segir Guðmundur. 10 hlutir hafa svo náðst úr yngra skipinu sem talið er vera fiskiskúta frá 19. öld. Hægt verður að skoða alla munina í forsal Þjóðminjasafnsins fram yfir helgi. —GKG. Lægra gengi á kjötstimpli á hreindýrum en rollum? að umdeildri kirkju Það hvesstí allhressilega & Víg- sem vilja eldd að kirkja verði rcist hóli í g»r þegar hr. ólafur Skúla- á þessum stað. Allt fór þó frið- son biskup tók fyrstu skóflu- samlega fram en sóknarmenn stunguna að nýrri kirkjubygg- segjast ætla „að fella sinn dóm“ á ingu Digranessóknar undir vök- aðalsafnaðarfundi sem haldinn ulurn augum sr. Þorbergs verður í september. Kristínssonar sóknarprests sem -GKG. og liðsnianna Víghólasamtakanna Timamynd Ámi Bjama „Viö gerum ekkí neinar sérstakar kröfur til aðstæðna við slátrun á lögbýlum og það er ekki fylgst sérstaklega með því, enda er kjöt af heimaslátruðu ekki ætlað til sölu. Þegar hins vegar er um að ræða vörur sem fara á á almennan markað, þá hlýtur það að vera eðlileg krafa neytenda að þeir hafí ein- hverja vissu fyrir því hvemig varan hefur verið meðhöndluð. Trygging neytandans er kjötstimpill dýralæknis,“ segir Ólaf- ur Valsson, dýralæknir í landbúnaðarráðuneytinu. Hreindýraskrokkar fluttir til byggða. Embætti yfirdýralæknis og Holl- ustuvernd hafa gefið út nýjar og skýrari reglur um slátrun búfjár. „Það hefur kannski þótt að reglur um þetta væru ekki nógu skýrar og því er verið að ítreka þær reglur sem um þessi mál gilda," segir Ól- afur. Að sögn hans er nú tekið skýrt fram hvar slátrun megi fara fram. Kjöt sem ætlað er til sölu á al- mennum markaði skal eingöngu vera af dýrum sem slátrað er í lög- giltu sláturhúsi og stimpill dýra- læknis á að vera trygging fyrir því að svo sé. Ábúendum á lögbýlum utan kaup- staða og kauptúna er hins vegar heimilt að slátra skepnum til eigin neyslu. Óheimilt er þeim að selja, gefa eða yfirhöfuð að flytja afurðir af heimaslátruðum gripum út frá lögbýlinu. Tekið er fram í reglun- um um að öllu óstimpluðu kjöti eigi að farga og leitað verða aðstoð- ar lögreglu gerist þess þörf. Hvað með hreindýra- kjötið? Fyrir nokkrum dögum var sýnd fréttamynd í sjónvarpi um hrein- dýraveiðar og þar í var alllangt myndskeið þar sem sýnt var er tveir menn gerðu að hreindýra- skrokkum. Skrokkarnir lágu í þvögu í flutningakerru og voru þaðan bornir inn í kofa nokkurn þar sem þeir voru hengdir upp og fláðir. Mennirnir tveir sem gerðu að hreindýrunum voru peysu- klæddir og ekki sérlega „sláturhús- legir“ á að líta og milli fóta þeirra og innan um hreindýraskrokkana og -kjötið rann rakki. Þulur greindi hins vegar frá því að von væri á dýralækni til þess að gefa kjötinu sjálft sakramentið — stimpilinn. Ólafur kvaðst ekki hafa séð um- rædda fréttamynd sem sýnd var al- þjóð. Hann kvaðst ekki kunnugur því hvernig farið væri með hrein- dýrakjötið né þeim reglum sem um það giltu. Nú er hreindýrakjöt á boðstólum í fáeinum verslunum og á veitinga- húsum og synd að segja að það sé ódýrt. Langar Ólaf sjálfan í kjöt sem gert hefur verið að á þann hátt Dilkakjöt í sláturhúsi. sem sást í ofannefndri fréttamynd í sjónvarpi? „Fólki finnst yfirleitt sjálfsagt að fái það óhrein hnífapör á veitinga- húsi, þá skili það þeim eða jafnvel standi upp og gangi yfir á næsta veitingahús. Eg held að það hljóti að vera alveg sama krafan hjá neyt- endum að kjötið sem það borðar sé hreint og ekki mengað af bakter- íum eða óhreinindum af einhverju tagi. Hafi meðferð kjötsins verið með þeim hætti og þú segir að sýnd hafi verið í sjónvarpi, þá get ég ekki ímyndað mér annað en litið verði á málið,“ sagði Ólafur Valsson dýralæknir í landbúnaðarráðuneyt-. inu. —sá

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.