Tíminn - 03.09.1992, Blaðsíða 1

Tíminn - 03.09.1992, Blaðsíða 1
Biskup Islands óskar eftirfundi í samstarfsnefnd kirkju og Alpingis um frumvarp ríkisstjórnarinnar um Kjaradóm og kjaranefnd: Herra Ólafur Skúlason biskup telur að frumvarp ríkisstjórnarinnar um Kjaradóm og kjaranefnd sé algjörlega óviðunandi fyrir presta- stéttina. Hann hefur óskað eftir fundi í samstarfsnefnd Alþingis og kirkjunnar, sem í eiga sæti biskup, forseti Alþingis og fulltrúar frá öllum stjómmálaflokkum, til að ræða þetta mál. Hann hefur enn- fremur boðað fund í Kirkjuráði til að ræða efni frumvarpsins. Fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi sínu um Kjaradóm og kjaranefnd í gær. Frumvarpið gerir ráð fyrir að Kjaradómur úrskurði einungis um launakjör forseta fs- lands, alþingismanna, ráðherra, hæstaréttardómara og héraðsdóm- ara. Kjaranefnd er hins vegar falið að úrskurða um launakjör annarra embættismanna og starfsstétta sem Kjaradómur hefur fram til þessa úr- skurðað um. Fjármálaráðherra skipar þrjá menn í kjaranefnd, þar af einn samkvæmt tilnefningu for- seta Alþingis. Geir Waage, formaður Prestafélags ísland, hefur harðlega gagnrýnt frumvarp ríkisstjórnarinnar og sagt að það sé algjörlega óviðunandi fyr- ir prestastéttina. Ólafur Skúlason sagðist taka undir gagnrýni Presta- félagsins. „Þetta hefur valdið okkur miklum vonbrigðum. Prestafélagið er ekki búið að vera nema eitt ár undir Kjaradómi. Nú er þessu bara svipt í burtu með ótrúlegum hætti. Það er algerlega óviðunandi að kjaramál presta skuli vera sett beint undir fjármálaráðherra. Með þessu er verið að stíga stórt skref aftur á bak,“ sagði biskup. í frumvarpinu segir að kjaranefnd skuli greina á milli fastra launa fyr- ir dagvinnu og launa fýrir annað sem starfmu fylgir. Hún skuli kveða á um hvernig greiða skuli fyrir sér- stök tilfallandi störf sem starfinu fylgja og kveða á um önnur starfs- kjör. Ólafur sagðist ekki vita fyrir víst hvað nákvæmlega felist í þessu ákvæði. Sú spurning vakni hvort við ákvörðun um launakjör presta eigi að taka tillit til hlunninda sem ein- stakir prestar á Iandsbyggðinni njóta og hvort eigi að endurskoða greiðslur fyrir öll aukaverk. Ólafúr sagðist hafa rætt við kirkjumálaráð- herra um málið, en hann hefði ekki haft nægar upplýsingar til að geta veitt svör um þetta atriði. Frumvarp ríkisstjómarinnar gerir ráð fyrir að kjaranefnd úrskurði um launakjör biskups íslands. Ólafur Skúlason sagðist hafa talið að þetta virðulega embætti, sem er eitt elsta embætti Iandsins, nyti þeirrar virð- ingar að um launakjör þess væri úr- skurðað af sama aðila og úrskurðar um launakjör æðstu embætta þjóð- arinnar. Formaður Prestafélagsins hefur látið hafa það eftir sér að ef þetta Fangi í fangageymslum lögreglunnar á Akureyri klippti sig út um vírnet á fangagarði aðfaranótt sunnudags: Samfangarnir upp- Aðfaranótt laugardags strauk fangi þess víridippur eða ámóta verkfæri. úr fangagcymslum Iögreglunnar á Ekki er nákvæmlega vitað hvernig Akureyri, en taliö er að hann hafi hann komst yfir slíkt verkfæri, en klippt sig út um vímet á fanga- lögreglan a Akureyri telur líklegt að geymslum. Ekki uppgötvaðist um hann hafi komist yfir það viö heim- flóttann fyrr en daginn eftir, er sam- sókn konu sinnar daglnn áður. Hún fangar hans fóru að spyrjast fyrir hafi hlaupið út í bíl tH að ná í peysu um manninn. Talið er flóttinn hafi handa manninum sínum og tnögu- átt sér stað um ld. 00.45 aðfaranótt legt að í henni hafl verið víridippur. sunnudags, en þá sáu lögreglumenn Ekki uppgötvaðist um flótta til manns á hlaupum frá lögreglu- mannsins fyrren einhvern tímann á stöðinni í átt að verksmiðjuhúsum sunnudag, þegar samfangar manns- þar skammt frá. Hann var með poka ins fðru að spyrjast fyrir um hvar og héldu lögregiumenn að hann hann væri. Voru þá fangamir taldir hefði verið að brjótast inn í bflLa. Var og kom i Ijós að einn vantaói. Tæp- hann eltur, en hann hvarf lögregi- um sólarhring eftir flóttann gaf unni sjónum skömmu síðar. fanginn sig fram hjá lögreglunni í Að sögn Erlings Pálmasonar, yfir- lieykjavík, en henni hafði þá ekki lögregluþjóns á Akureyri, er málið borist tilkynning um flóttann. Er ekki að fullu rannsakað, fór fanginn maðurinn nú vistaður í Utla út um vímet sem er yfir fangagarð- Hrauni, en fangavistin á Akureyri er inum, en þar hafði verið kDppt gat á eldd sú fyrsta hjá manninum því netið. Lfldegt er taliö að hann hafi hann hefúr áður setið í varðhaldL kiippt gat á netið og hafl notað ti! -PS frumvarp verði að lögum í núver- andi mynd neyðist kirkjan til að skoða hvort ekki fari best á því að lýsa kirkjuna eða einstakar sóknir fríkirkju og skilja þannig að ríki og kirkju. Ríkið eigi ekki kirkjuna heldur þjóðin. Ólafúr sagði að ef frumvarpið verði að lögum verði kirkjan að velta fyrir sér hvernig hún eigi að bregðast við. Hann sagðist hins vegar vera á móti því að skilja að ríki og kirkju. Hann sagði að núverandi samband ríkis og kirkju væri báðum aðilum til hags- bóta. -EÓ Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi fjármálaráðherra, á blaðamannafundi í gær. Tímamynd Ámi Bjama Ríkisendurskoðun gleymdi að leggja 2,6 milljarða við ríkissjóðshallann: 12 milljarða halli Sé beitt sömu aðferð við útreikn- inga á halla ríkissjóðs á þessu ári og Ríkisendurskoðun gerði í fyrra em horfur á að halli rflds- sjóðs verði um 12 miiljarðar, en ekki 9,5 milljarðar. Ólafur Ragn- ar Grímsson, fyrrverandi fjár- málaráðherra, hefur bent á þetta og að hans sögn hefur Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi staðfest að skilningur hans sé réttur. Undanfarin ár hafa endurskoð- endur deilt um það hvort færa eigi fjárskuldbindingar til gjalda á því ári sem þær falla til eða á þeim árum sem þær koma til greiðslu. Ríkisendurskoðun hef- ur viljað færa fjárskuldbindingar strax til gjalda, en í ráðuneytis- menn í fjármálaráðuneytinu hafa flestir viljað gera það síðar. í fyrra gaf Ríkisendurskoðun út tvær skýrslur um stöðu ríkisfjár- mála það ár. Sú fyrri kom út í janúar og var gerð að ósk nýrrar ríkisstjómar sem þá tók við völd- um. Þá taldi stofnunin að hallinn á ríkissjóði stefndi í að verða 12,2 milljarðar. Tekið var skýrt fram að fjárskuldbindingar vegna ný- gerðs búvörusamnings að fjár- hæð 2 milljarðar króna séu þar taldar með. í nóvember birti Rík- isendurskoðun aðra skýrslu um ríkisjóðshallann. Þar er spáð sama halla og jafnframt tekið fram að fjárskuldbindingar vegna búvörusamnings séu inni í upp- hæðinni. í skýrslu Ríkisendurskoðunar um afkomu ríkissjóðs fyrstu sex mánuði þessa árs, sem kom út í vikunni, segir að hallinn á ríkis- sjóði stefni í að verða 9-9,5 millj- arðar. Fyrir utan þá tölu er síðan getið um fjárskuldbindingar sem ríkissjóður hefur yfirtekið. Þar er um að ræða 1,7 milljarða lán Framkvæmdasjóðs íslands sem ríkissjóður hefur yfirtekið og lán- taka vegna uppkaupa á fullvirðis- rétti í sauðfjárrækt að fjárhæð 942 milljónir. Ólafur Ragnar seg- ir eðlilegt að telja þessar fjár- skuldbindingar með þegar hall- inn er reiknaður út, líkt og Rflcis- endurskoðun gerði í tveimur skýrslum í fyrra. Hann sagði að ríkisendurskoðandi hafi staðfest í samtali við sig að þessi skilningur sinn sé réttur. Því sé eðlilegt að bæta 2,6 milljörðum við töluna sem Ríkisendurskoðun setti fram í niðurstöðukafla sínum. Hallinn verður þá 11,64 milljarðar til 12,14 milljarðar. Að auki bendir Ríkisendurskoð- un á í skýrslu sinni að fjármála- ráðuneytið hafi lækkað vaxta- gjöld sín um 170 milljónir með þvf að breyta bókhaldsaðferðum. Stofnunin gagnrýnir þessa bók- haldsaðferð. Bæta má því 170 milljónum við áætlaðan halla rík- issjóðs. Heildarspá Ríkisendurskoðunar um hallann á ríkissjóð á þessu ári er því nánast sú sama og spáin á síðasta ári, eða að hallinn verði rúmir 12 milljarðar. -EÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.