Tíminn - 03.09.1992, Blaðsíða 9

Tíminn - 03.09.1992, Blaðsíða 9
Ffmmtudagur 3. september 1992 nDAGBÓK Br. frá gærdeginum Landsvísitala.................103,46 0 Sjávarútvegur .................89,59 0 Flutningaþjónusta 1............07,93 0 Olíudreifing .................110,42 0 Bankar........................106,89 0 Önnur fjármálaþjónusta.........100,00 0 Hlutaþréfasjóðir.................100,00 0 Iðnaður og verktakar..............94,35 0 Grunnvísitala er 100 m.v. 1. júlí 1992. Landsvísitalan er reiknuð út af Lands- bréfum hf. og birt á ábyrgð þeirra. Félag eldri borgara í Reykjavík Opið hús í Risinu milli kl. 13-17 í dag, fimmtudag. 60 ára afmæli Sextíu ára er í dag Gísli Einarsson, bóndi og oddviti Kjamholtum f Biskups- tungum. í tilefni af afmaeli Gísla og konu hans Ingibjargar Jónsdóttur, sem verður sex- tug 10. desember nk., taka þau hjónin á móti gestum í félagsheimilinu Aratungu föstudaginn 4. september kl. 20. Norræna húsið: Sýningu á japanskri leirkera- gerð að Ijúka Sunnudaginn 6. september lýkur sýn- ingu á hefðbundinni japanskri leirkera- gerð, sem staðið hefur yfir í sýningarsöl- um Norræna hússins frá 22. ágúst. Sýningin hefur vakið mikla athygli og hlotið góða aðsókn. Nú um helgina er síðasta taekifærið til að skoða þessa einstöku sýningu og kynnast því, hvemig Japanir styðja við gamlar hefðir á sjónrænum vettvangi. Sýningin verður opin kl. 14-19 og lýkur BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNlb ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar á sunnudagskvöld eins og fyrr segir. Aðgangur er ókeypis. Sýning á myndum Ludvigs Eikaas í anddyri Norræna hússins er sýning á grafíkmyndum eftir norska listamann- inn Ludvig Eikaas. Myndefnið er Henrik Ibsen og persónur hans. Ludvig Eikaas gerði þessar myndir að beiðni Den norske Bokklubben og prýða þær heildarútgáfu á verkum Henriks Ib- sen, sem kom út í fyrra hjá bókaklúbbn- um í tilefni af 30 ára starfsemi Den norske Bokklubben. Sýningin er opin daglega kl. 9-19, nema sunnudaga kl. 12-19. Rabbfundur NVSV: Myndun og dreifing fræja og aldina Á rabbfundi Náttúmvemdarfélags Suð- vesturlands í kvöld kl. 21 fjallar Eyþór Einarsson grasafræðingur um myndun og dreifingu fræja og aldina. Fundurinn verður í Hafnarhúsinu, fyrstu hæð, gengið inn að vestanverðu. Eyþór mun taka þátt í umræðum á eftir um þetta forvitnilega efni. Drengjakór Laugarneskirkju Drengjakór Laugameskirkju er að hefja sitt 3ja starfsár. Inntökupróf standa nú yfir. Drengjakórinn sjálfur samanstend- ur af 11-14 ára drengjum, en í undirbún- ingsdeild verða 8-10 ára drengir. Allir drengir í eldri hópnum verða í einka- kennslu í söng í vetur og er líka boðið upp á tónfræði og píanókennslu. Kórinn fór á Alþjóðlegt drengjakóramót í SL Petersburg, Florida, í mars síðastliðnum og fékk mjög jákvæða umfjöllun. Meðal verkefha komandi vetrar eru jóla- tónleikar 27. og 29. desember ásamt Sig- rúnu Hjálmtýsdóttur, flutningur á Messe basse eftir Gabriel Fauré, og Kant- ata nr. 78 eftir J.S. Bach. Kórinn tekur á móti tveimur drengjakórum á starfsár- inu: The Florida Boy choir í mars n.k. og Det Danske Drengekor í júní. Fyrirhugað er að taka upp geisladisk á næsta ári. Stjómandi kórsins er Ronald Vilhjálmur Tumer, organisti Laugames- kirkju. Foreldrafélag Drengjakórsins vill þakka fjölda einstaklinga og fyrirtækja, ásamt ríki og borg, fyrir þann stuðning, sem kórinn hefur fengið. TÍMANS 'N Móðir okkar Aðaibjörg Haraldsdóttir Laugarnesi, Laugarvatni verðurjarösungin laugardaginn 5. ágúst kl. 13.30 frá Selfosskirkju. Jarösett verður á Laugarvatni. ^ Ásrún Magnúsdóttir Böðvar Magnússon ___________________________________________________________J Timinn 9 Jakkamir I ár eru aðskornir og skarta gjarnan skrautlegum hnöppum. Þessi sýningarstúlka er í grænum kjól og gylltum jakka, hvoru tveggja úr satíni. Meistarinn sjálfur ásamt sýningarstúlkunni sem skartaði brúðarkjólnum blóðrauða. Yves Saint Laurent kynnir vetrartískuna: Hvítir brúðarkjólar komn- ir úr tísku Það vekur jafnan mikla athygli þegar Yves Saint Laurent tilkynnir fólki hvemig hann vilji hafa það til fara. Á síðustu sýningu hans, sem haldin var á Hótel Intercontinental í París, kenndi margra grasa. Rifflað flauel, jakkar með skrautlegum hnöppum, skærlitar satínblússur, slæður um hálsinn og stutt pils. Hann notaði skæra liti með svörtum og „smókingamir" sem löngum hafa verið vörumerki hans skörtuðu nú brjósthaldaratoppum ogg blússum með flegnu V-hálsmáli. Að áliti Laurents er nóg fyrir hverja konu að eiga eitt sítt pils og pilsin á sýningu hans voru flest rétt fyrir ofan hné. Gyllti liturinn var einnig áberandi á sýningunni. Hann var notaður á buxnadragtir, útsaumaðar skyrtur og fleira. Nú eru hvítir brúðarkjólar síðasta sort að mati þeirra sem vit þykjast hafa á, og í samræmi við það var brúð- arkjóllinn, sem Yves Saint Laurent sýndi að þessu sinni, alveg eldrauður. Og þá er bara að draga upp budduna og komast í takt við tímann

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.