Tíminn - 03.09.1992, Blaðsíða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Askriftarsími
Tímans er
686300
AUÐVITAÐ
Suðuriandsbraut 12
Oftruvisl bflasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
WND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 6T9225
Siguröur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Félagsíbúöa iönnema, i
einstaklingsherbergi í iðnnemasetrinu að Vesturgötu 17.
Félagsíbúðir iðnnema opna iðnnemasetur:
Iðnnemar eignast
„stúdentagaröa“
! dag verða fyrstu iðnnemasetrin
tekin í notkun, en iðnnemasetur
eru einskonar stúdentagarðar sem
sérstaklega eru ætlaðir iðnnemum
og reknir eru af sérstakri stofnun;
Félagsíbúðum iðnnema. þetta er í
fyrsta sinn sem öðrum námsmönn-
um en háskólastúdentum gefst
kostur á sérstöku íbúðarhúsnæði
fyrir námsfólk.
í þessum fyrstu iðnnemasetrum
eru fimm tveggja og þriggja her-
bergja íbúðir að Bergþórugötu 23,
sex einstaklingsherbergi og eitt par-
herbergi ásamt sameiginlegu eld-
húsi, setustofu, lesstofu og þvotta-
húsi að Vesturgötu 17 og tíu ein-
staklingsherbergi að Ránargötu 12
með sambærilegri sameiginlegri að-
stöðu.
37 manns munu flytja inn í hina
nýju íverustaði iðnnema í dag og
næstu daga. Leigugjald verður á bil-
inu 12-16 þúsund kr. fyrir herbergi
með húsgögnum og er rafmagn og
hiti innifalið. Leiga fyrir íbúðir verð-
ur á bilinu 22-29 þúsund.
Félagsíbúðir iðnnema er sjálfseign-
arstofnun í eigu Iðnnemasambands
íslands og skólafélags Iðnskólans í
Reykjavík. Stofnunin var sett á lagg-
irnar fyrir um ári. —sá
I
HÖGG-
DEYFAR
Versiið hjá fagmönmun
\
GSvarahlutir
H.
Hamarshöföa 1 - s. 67-6744
J
Tíminn
FIMMTUDAGUR 3. SEPT. 1992
Borgnesingar setja fram nýstárlega hugmynd sem hefur í för
með sér hagræðingu í mjólkuriðnaði og lausn á húsnæðis-
vanda Þjóðminjasafnsins:
Fer Þjóðminjasafnið í
Mjólkursamsöluna og
samsalan í Borgarnes?
Borgnesingar hafa sett fram þá
hugmynd að flytja megnið af
starfsemi Mjólkursamsölunnar
í Reykjavík til Borgamess og
Selfoss og að Þjóðminjasafn ís-
lands flytjist í húsnæði Mjólk-
ursamsölunnar á Bitruhálsi.
Enn sem komið er hér einungis
um hugmynd að ræða, en Borg-
nesingar telja eðlilegt að hún fái
efnislega umræðu líkt og sú
hugmynd að leggja niður Mjólk-
ursamlagið f Borgaraesi.
Margoft hefur verið bent á að
mjólkursamlögin á landinu séu
of mörg og of stór miðað við
framleiðsluheimildir í mjólk í
dag. Mjög skiptar skoðanir eru
um hvaða samlag sé réttast að
hætti starfsemi. Mjólkursamlag-
ið í Borgarnesi er eitt þeirra
samlaga sem nefnt hefur verið.
Margir telja þó að meinsemdin
sé hið stóra húsnæði Mjólkur-
samsölunnar í Reykjavík. Land-
búnaðarráðherra benti t.d. á
þetta á aðalfundi Stéttarsam-
bands bænda um síðustu helgi.
Hann gagnrýndi harðlega þá
sem tóku ákvörðun um að
byggja húsið.
Öll mjólk sem seld er á höfuð-
borgarsvæðinu er flutt frá Sel-
fossi og Borgarnesi í stórum
tankbílum og pakkað í Reykja-
vík. Bent hefur verið á að pökk-
unin geti vel farið fram á Selfossi
og í Borgarnesi. Nægilegt sé að
hafa birgða- og sölustöð í
Reykjavík. í þessu sambandi má
minna á flutning Sláturfélags
Suðurlands á kjötvinnslu sinni
til Hvolsvallar.
Óli Jón Gunnarsson, bæjar-
stjóri í Borgarnesi, sagði að
menn hefðu velt fyrir sér þessum
möguleika að pökkun mjólkur
flytjist í Borgarness og ríkið
kaupi húsnæði Mjólkursamsöl-
unnar undir Þjóðminjasafn eða
aðra starfsemi. Hann sagði að
það væri mikið áfall fyrir at-
vinnulíf í Borgarnesi ef Mjólkur-
samlagið hætti starfsemi því
velti menn fyrir sér öðrum leið-
um. ÓIi Jón benti t.d. á að auð-
veldara sé að selja stórt iðnaðar-
húsnæði í Reykjavík en í Borgar-
nesi. Hann sagði að ef ríkið sýnd
þessu máli áhuga og með aðstoð
frá hagræðingarsjóði mjólkur-
iðnaðarins mætti vel hugsa sér
að hugmynd Borgnesinga yrði
að veruleika.
Þess ber að geta að húsnæðis-
mál Þjóðminjasafnsins eru í
miklum ólestri. Búið er endan-
lega að hafna þeirri hugmynd að
safnið fari inn í SS-húsið.
Menntamálaráðherra hefur lýst
því yfir að hann sé að leita eftir
húsnæði undir safnið. -EÓ
wmmmmmmmammmammmmk
Heilbrigðisþjónusta
á hverfanda hveli
í ljósi þess að nú er rætt um enn frekari niðurskurð í heilbrigðismálum er
forvitnilegt að skoða hvað er í deiglunni um þessar mundir.Fæðingarheim-
ilið í Reykjavík mun líklega loka endanlega í byrjun október. Öldrunardeild-
in í Hafnarhúsi mun loka. Rætt er um að loka fleiri deildum á Landspítala.
Kópavogshælið á við rekstrarvanda Þetta er m.a. sú mynd sem við blasir í
heilbrigðisþjónustunni og kemur fram í viðtölum við nafngreinda og
ónafngreinda heimildarmenn.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum Tímans verður Fæðingar-
heimili Reykjavíkur að öllum lík-
indum lokað í byrjun október. Þar
þarf að ná jafnvægi í rekstri um ára-
mót en vantar nú fleiri milljónir
upp á að það takist. Þess má geta að
engar fæðingar fara lengur fram á
Ríkisskattstjóri hefur sent skatt-
stjórum erindi um að skattaleg
meðferð aflaheimilda skuli vera
óbreytt, en eins og kunnugt er
komst ríkisskattanefnd að þeirri
niðurstöðu fyrr á þessu ári að ekki
beri að eignfæra aflaheimildir með
þeim hætti sem ríkisskattstjóri
hafði ákveðið. Lögfræðingur LÍÚ
hefur mótmælt þessari afstöðu og
telur að niðurstaða rikisskatta-
nefndar eigi að gilda.
heimilinu sem er aðeins sængur-
legudeild rekin af fæðingardeild
Landspítalans.
Þá hefur heyrst að Öldrunardeild í
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu sé
að loka. Heimildir herma að vista
eigi sjúklingana á Landakotsspítala.
„Hugmyndir eru uppi um fram-
Ríkisskattstjóri segir að í svona
máli sé venjan að sömu skattalegu
aðferð sé beitt meðan málið sé til
umfjöllunar hjá dómstólum.
Landssamband fslenskra útvegs-
manna hefur mótmælt afstöðu
ríkisskattstjóra og krafist skýr-
inga á afstöðu hans.
Lögfræðingur LÍÚ segir að fáist
ekki skýringar muni LÍÚ hvetja
útvegsmenn til að gera skattskil í
samræmi við úrskurð ríkisskatta-
lengingu á lokunum deilda því það
er alveg ljóst að miðað við það sem
gert hefur verið í sumar þá næst
ekki sá árangur sem við ætluðum
okkur. Hvort fæðingarheimilið er
inni í því ætla ég ekki að fullyrða,"
segir Árni Gunnarsson, formaður
stjómar Ríkisspítala.
„Það er verið að skoða þetta mál í
heild sinni því það er alveg ljóst að
ef við eigum að ná flötum niður-
skurði þá er greinilega ekki nóg að
gert og við náum ekki þeim 320
milljónum sem okkur er uppálagt,"
segir Árni. Hann bætir við að það
vanti ekki mikið upp á en samt
nefndar. Garðar Halldórsson rík-
isskattstjóri segir venjuna í svona
ágreiningsmálum að sama skatta-
lega aðferð sé notuð þangað til úr-
skurður dómstóla sé fallinn. Ef
svo fari að ríkissjóður tapi málinu
verði þau mál sem hér um ræðir
Ieiðrétt.
Búið er að taka ákvörðun um að
vísa úrskurði ríkisskattanefndar
til dómstóla.
- EÓ
herslumuninn.
Árni vildi ekki gefa upp hvaða
deildum yrði hugsanlega lokað en
kvað það mál vera í höndum for-
stjóra Ríkisspítala. „Þetta er á um-
ræðustigi og ég hef ekki séð list-
ann,“ segir Árni.
Ámi segir að í deiglunni sé að
ræða við ljósmæður um að þær taki
að sér rekstur Fæðingarheimilisins.
Honum finnst þessi kostur vera
fysilegur og í framhaldi þessa yrði
gerður samningur um ákveðin dag-
gjöld sem dygðu fyrir rekstrinum.
Um rekstrarvanda Kópavogshælis
segir Árni að þar verði um enga
aukafjárveitingu að ræða og því sé
tilgangslaust að sækja um hana en
hælið er komið fram úr fjárveiting-
um um 6 milljónir króna. Hann
bendir á að inni á hælinu hafi verið
allt of mikil átök milli yfirmanna
sem verði að linna.
Um það hvort rétt væri að Kópa-
vogshæli ætti frekar heima undir
stjórn félagsmálaráðuneytisins en
heilbrigðismálaráðuneytisins segir
Árni: „Það leysir ekki fjárhagsvand-
ann og ég er viss um að hælið fengi
ekki krónu meira."
Árni hættir brátt sem formaður
stjórnar Ríkisspítala þar sem hann
mun taka við stöðu forstjóra Nátt-
úrulækningahælisins í Hveragerði.
-HÞ
Sunntenskir sorphaug-
ar. Karl Björnsson,
bæjarstjóri Seifossi:
Sorphauga-
mál senn
í höfn
„Þetta mál er í fullri vlnnslu,“
sagði Kari Björasson, bæjar-
stjóri á Selfossi, aðspurður
um þá undirbúningsvinnu
sem nú fer fram vegna nýrra
sorphauga lyrir Suðurland.
„Það er unnið að þessu máli
á mörgum vígstöðvum og við
höfum verið í samstarfi við
umhverflsráðuneytíð og Holl-
ustuvemd ríkisins vegna
þess. Það þarf líka leyfl frá
ótalmörgum aðilum vegna
urðunarstaðar, svo sem frá
Náttúruvemdarráði, sveitar-
stjóraum, landeigendum og
mörgum fleirL'1
Að sögn Karis hefur sá
möguleiki að allar byggðir á
Suðurlandi sameinist um
sorphauga verið uppi á borð-
inu, en einnig sá að færri
byggðariög stæðu að þeim.
Hann vildi ekki nefna þá staðí
þar sem til greina kemur að
sorphaugar yrðu staðsettir.
Hann sagði þó að nokkrir
staðir kæmu tíl greina og
væru tæknifræðingar og jarð-
fræðingar að athuga staðhættí
þar. „Eg fullyrði aðeins að það
fer mjög að styttast í að mál
þetta komist í höfn,“ sagði
Karl. —SBS Selfossi
Skattur á kvóta í dóm