Tíminn - 03.09.1992, Qupperneq 4

Tíminn - 03.09.1992, Qupperneq 4
4 Tímim Fimmtudagur 3. september 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tlminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aöstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guömundsson Stefán Ásgrímsson Augiýsingastjóri: Steingrlmur Gislason Skrifstofur: Lynghálsi 9,110 Reykjavlk Síml: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,-, verö I lausasölu kr. 110,- Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Fíkniefna- vandinn Afbrot, sem tengjast neyslu og sölu fíkniefna, verða sífellt alvarlegri. Að undanfömu hafa komið upp mál sem slegið hafa óhug á þjóðina. Átökin við handtökur verða harðari, og raunveruleikinn hér á íslandi líkist meir en áður framvindu mála í undir- heimum erlendra stórborga. Þessi mál voru rædd utan dagskrár á Alþingi í gær, að frumkvæði Guðna Ágústssonar alþingis- manns. í máli hans kom fram, að samkvæmt tillög- um lögreglustjórans í Reykjavík mundi aðstaðan til baráttunnar við fíkniefnavandamálið gjörbreytast, ef framlag til almennrar löggæslu yrði aukið um 22 milljónir króna og framlag til yfírvinnu fíkniefna- lögreglu um 6 milljónir. Það er vissulega í mörg horn að líta í fjármálum ríkissjóðs. Hins vegar eru þessi mál svo alvarleg að einskis má láta ófreistað til úrbóta. Fjárveitingavald- inu ber að hlusta á tillögur lögreglustjóra í málinu. Eðli máls samkvæmt hlýtur starfsemi fíkniefna- deildar lögreglunnar að vera kostnaðarsöm. Afbrota- menn á þessu sviði stunda ekki iðju sína í dagvinnu. Hefðbundnar aðferðir duga ekki í þessari baráttu. Það er einnig rétt og skylt að skoða skipulag þessar- ar starfsemi með opnum huga, ef það mætti leiða til enn betri árangurs. Það er hins vegar mat þeirra, sem hafa tjáð sig um þessi mál, að fíkniefnalögreglan ásamt hinni al- mennu löggæslu hafi staðið sig vel í sínum erfiðu verkefnum. Afar brýnt er að hæfir og vel þjálfaðir menn sinni þessum störfum. Lögreglustjórinn í Reykjavík leggur mikla áherslu á samstarf almennrar lögreglu og fíkniefna- lögreglunnar, og að lögreglan þurfi að vera öflug. Undir það skal tekið, því á því byggist einnig öryggi borgaranna. Hins vegar er starf lögreglunnar í Reykjavík ekki nema hluti af þessu máli. Þáttur tollgæslu og lög- regluembætta á landsbyggðinni hlýtur að vera mjög þýðingarmikill, ef stemma á stigu við innflutningi fíkniefna. Því verður að líta á þau mál í samhengi við úrbætur í Reykjavík. Afbrotamennirnir leita ætíð þangað sem varnirnar eru veikastar fyrir. Einn þáttur þessara mála er mjög alvarlegur. Vaxandi atvinnuleysi og misskipting lífsgæða eykur hættuna á því að unglingar á viðkvæmasta aldri lendi í uppreisn gegn þjóðfélaginu og utangarðs. Nýjustu tölur herma að atvinnuleysi ungs fólks 17-24 ára hafi fimmfaldast. Þetta eru uggvænlegar staðreyndir, sem stjórnvöld í landinu geta ekki leitt hjá sér. Viðburðir í handbókaútgáfu Merkir viðburðir hafa átt sér stað í útgáfu undirstöðuhandbóka hin síðari árin og þá ekki síst orðabóka. Ensk-íslensk orðabók Arnar og Ör- lygs var þess háttar viðburður að að- staða allra þeirra sem við þýðingar fást úr ensku er gjörbreytt. Til bók- arinnar var það vel vandað og er ekki fjarri lagi að hana megi gjarna nota sem samheitaorðabók um ótal ís- lensk orð, hafi menn enska orðið til- taekt. Það er merki þeirrar smekkvísi og alúðar sem Ijóslega hefur ein- kennt vinnuna við hana. Dönsk-íslensk orðabók Nú gerist í viðbót sá gleðilegi at- burður að út er komin dönsk- íslensk orðabók hjá ísafold og er það hið ágætasta rit. Bókin er grundvölluð á Nudansk Ordbog, sem skólafólk og al- menningur hafa stuðst við áratug- um saman og er það vel kunn að hún verður sjálfkrafa meðmæli með íslenskaðri gerð, þótt ekki væri ann- að. En allur reynist búningur og frá- gangur íslensku orðabókarinnar svo vera með þeim hætti að danska bók- in upprunalega sem við er stuðst hefur meira en fullan sóma af og fer bókin fram úr dönsku bókinni á ýmsum sviðum, svo sem þeim að hún er aukin hundruðum tækni- orða. Menn hafa stundum haft við orð að danska væri á undanhaldi þar sem enska er nú ómótmælanlega fyrsta mál íslendinga en ekki dansk- an eins og löngum var. En það fær því ekki breytt að svo eru Danir og danskan samofin sögunni og menn- ingararfleifðinni í landinu og við- skiptin við Norðurlönd það mikil að sá sem ekki er mæltur á dönsku er varla tækur til þess að svara í síma á kontór hvað þá annað. Svo um verða um langa tíð enn, nema þá að ein- hverjir óheyrðir atburðir eigi eftir að gerast. Verður hin nýja bók án nokk- urra tvímæla til þess að auka veg dönskukunnáttu, sem eins og áður segir er lykill að skandinaviska heiminum flestum landsmönnum. Það var og ekki lítill viðburður þegar fyrsta íslenska alfræðibókin kom út hér á landi árið 1988 í þrem afburða veglegum bindum. Þótt ekki lægi það jafn beint við(!) og segja má um danska orðabók ísafoldar, þá er hún þó einnig dönsk að uppruna að meginhluta, unnin með alfræðibók frá Gyldendal að fyrirmynd. Sl. þriðjudag gerir Örnólfur Thorlacius skólastjóri Menntaskólans við Hamrahlíð alfræðibókina að umtals- efni í fróðlegri og að verðugu lof- samlegri umsögn. Þar er meðal ann- ars sagt frá því að þar sem alfræði- orðabókin er sé um að ræða hálfrar aldar gamla hugmynd, sem byrjað var að reyna að hrinda í framkvæmd á sjöunda áratugnum á vegum Menningarsjóðs, en varð að varpa fyrir róða eða beina útgáfunni í ann- an farveg. Því var um lofsvert fram- tak og sérstakan stórhug að ræða þegar þráðurinn var tekinn upp á ný hjá forlagi Amar og Örlygs. Myndar- lega var að staðið þegar til þess kom að auka í bókina íslensku efni, sem nemur 40 hundraðshlutum af um- fangi hennar. Ömólfur ber lof á ný- yrðasmíð í þýðingum á fjölda orða og þá ekki síst úr náttúrvísindum, sem hann er manna best fallinn til að dæma um. Eins og vera ber í um- sögn um verk sem þetta bendir hann líka á að oft orkar það tvímælis hverju sleppt er eða haft með, svo sem hvort ýmsir einstaklingar væru ekki jafnverðir að hljóta rúm á síð- um þess og þeir sem er sleppt. En slík gagnrýni er aðeins þörf og til þess fallin að treysta grunninn að endurskoðuðum útgáfum síðar. Ömólfur vitnar í orð Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum, sem sagði um alfræðiorðabókina, en Steindóri er verkið tileinkað: „En það sem mestu skiptir fyrir oss er að þetta efni er túlkað á íslensku. Er- lendar bækur af þessu tagi eru að vísu gimilegar til fróðleiks, en bæði flytja þær oss margt sem oss skiptir litlu máli og hinn alþjóðlegi hluti þeirra er á erlendri tungu, sem óhjá- kvæmilega orkar á skilning vom og veldur því að oss hættir til að hugsa um og skýra hin fræðilegu atriði á einhvers konar hálfíslensku. ..Aldr- ei fyrr hefur verið til íslensk alfræði- orðabók og mun slíkt fátítt meðal menningarþjóða. Útkoma slíkrar bókar er því menningarviðburður, einn þáttur af mörgum sem styrkja oss í baráttunni fyrir menningar- legu sjálfstæði, samtímis því að vera handhægt vinnutæki fyrir þúsundir manna. Allt þetta má taka undir og ekki síst það síðastnefnda. Notagildi bókar sem alfræðiorðabókarinnar er ódæma mikið, ekki síst námsfólki og á vinnustöðum. Verður undirrituð- um hugsað til þess er eintak Tímans af bókinni hvarf fá- eina daga, þar sem einhver hafði borið það heim með sér vegna heimavinnu. Margsinn- is var eftir bókinni spurt dag hvem og þóttust menn hafa Baldur úr Helju heimt er hún birtist aftur. Metnaðarauki Ekki leikur vafi á að stórvirki í handbókagerð, eins og bækurnar sem hér er um getið valda tíma- hvörfum í vissum skilningi. Þeir sem að slíkum stórvirkjum standa sanna að þaö er furða hvað fram- kvæmanlegt er með ekki stærri þjóð, og þeir sem gjamt er — og stundum með réttu — að brosa að íslenskum metnaði verða að hætta því um sinn þegar „verkin tala“ á þennan hátt. Þegar slík verk eru í hendi fara menn að gera sér vonir um að veglegar orðabækur á enn nýjum heimstungum kunni að eiga eftir að líta dagsins ljós — svo sem ítarleg orðabók á þýsku og þá á frönsku. Þegar mun og tekið að hyggja að þessu. Vandaðar orðabæk- ur verða ekki aðeins til þess að greiða fyrir og auka skilning okkar sjálfra á umheiminum, heldur munu þær líka auka skilning um- heimsins á okkur. Væn orðabók á ís- lensku er líklega einn sá besti beini sem hægt að veita þeim sem landið vill heimsækja, læra að þekkja menningu þess og fólkið sem býr þar. AM

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.