Tíminn - 05.09.1992, Qupperneq 9
Laugardagur 5. september 1992
Tíminn 9
FYRIR Nfu ÁRUM kom lítil og
feimin 12 ára gömul kóreönsk
telpa til New York. Chee-Yun
hét hún og hafði verið málgefin, en
varð nú að steinþagna í fyrsta skipti
á ævinni. „Allir héldu að ég væri
stilltasta barnið í blokkinni og urðu
alveg steinhissa þegar ég hafði kom-
ist niður í ensku og hætti að þegja,"
segir hún, þar sem hún situr í
glæsiíbúð sinni á Manhattan með
útsýni yfir Central Park. Hún er í
gallabuxum og T-bol, sem hún ber
með meiri yndisþokka en flestar
bandarískar jafnöldrur hennar. Nú
renna orðin upp úr henni, lýtalaus
enska, og hún tekur að segja frá
þeim ferli sem breytti henni úr mál-
lausum innflytjanda f einn dáðasta
unga fiðluleikarann í Bandaríkjun-
um.
Tónleikar frá Japan
til Ítalíu
„Það eina, sem ekki hafði breyst
þegar ég kom til Bandaríkjanna frá
Kóreu, var fiðluleikurinn. Þess
vegna æfði ég mig og æfði. Eftir þrjá
mánuði fann ég að ég gat loks gert
mig vel skiljanlega á ensku og eftir
það hef ég ekki þagnað. Ég hef yndi
af að vera innan um fólk og fannst
það afleitt að vera mállaus."
Strangar æfingar skiluðu ríkuleg-
um árangri. Chee-Yun leikur nú á
fiðlu sína um heim allan, allt frá
Japan til Ítalíu, og í september n.k.
mun hún halda konserta í Englandi
og Skotlandi og leika sónötur eftir
Mozart, Karol Szymanowski og
Charles Ives ásamt verkum eftir de
Falla, Rachmaninov og Wieniawski.
Hröð leið á tindinn
Síðasta mánuðinn hefur hún verið
að undirbúa tónleikaferðalag um
Bretland. „Þegar tónleikar eru
framundan, læt ég ekkert annað
komast að. Það tekur á, en ég nýt
þess.“
Það tók Chee-Yun ekki langan tíma
að geta sér frægðarorð í Bandaríkj-
unum. Árið 1983 vann hún sam-
keppni ungra einleikara á vegum
New York Fílharmóníunnar og sló
hún þá við 300 ungum tónlistar-
mönnum hvaðanæva úr heiminum.
Ótal verðlaun féllu henni í skaut
uns hún vann Alþjóðakeppni ungra
einleikara 1989. Árið þar á eftir
vann hún svo hin eftirsóttu Avery
Fisher-verðlaun.
Það varð æ greinilegra að hún átti
Ijómandi framtíð fyrir sér og hefur
henni nú verið boðið að leika með
Atlantic-sinfóníuhljómsveitinni,
NKH-hljómsveitinni í Japan og Ju-
illiard-hljómsveitinni. Tveir fyrstu
stóru, opinberu tónleikar hennar
voru með New York Fflharmonfu-
hljómsveitinni og New York
strengjahl jó msvei ti nni.
Lofsamleg gagnrýni
Bandarísku blöðin, sem vanalega
eru síður en svo rausnarleg á lofið,
jusu yfir hana hrósi. New York Tim-
es sagði hana hafa „mjúkan og un-
aðslega markvissan tón“. Annar
bandarískur gagnrýnandi kallaði
hana „fágaðan listamann í fremstu
röð, sem sé framinn vís á alþjóðleg-
um vettvangi í tónlistinni".
En Chee-Yun er ekki nein vanaleg
tegund af flytjanda sígildrar tónlist-
ar. Alveg eins og Nigel Kennedy,
listamaður sem hún dáir, eru skýrir
óvenjulegir og byltingarkenndir
drættir í persónu hennar. Hún er
vel kunnug í næturklúbbunum f
Greenwich Village, þótt þess á milli
sé hún reglulegur gestur í Carnegie
Hall. Hún lærir tónverkin, sem hún
á að spila, sitjandi klofvega á æf-
ingatæki fýrir skíðamenn. „Það er
góð aðferð til þess að læra þetta,"
segir hún. „Ég missi ekki bara hita-
einingar, heldur þjálfa ég mig sem
tónlistarmaður í leiðinni."
ÍSeúl
Chee-Yun hóf að læra fiðluleik í
Seúl sex ára gömul. Hún segist hafa
byrjað á náminu til þess að ná at-
hyglinni frá eldri systur sinni,
Cheu-Yun, sem var fremsti píanó-
leikarinn í allri S-Kóreu. Þetta
heppnaðist og átta ára vann hún
samkeppni, sem The Korea Times
efndi til fyrir yngstu fiðluleikarana.
Chee Yun naut þess í ríkum mæli að
standa á sviðinu og henni varð ljóst
að hún lék betur frammi fyrir áheyr-
endum. Á hverju ári til tólf ára ald-
urs eftir það vann hún þessi sömu
verðlaun, systur sinni til mikils
angurs, og hún varð „eftirlætis-
bam“ Kóreumanna.
„Ég fór aldrei í frí nema hafa fiðl-
una með. Þegar ég er að skoða
gamlar ljósmyndir, til dæmis frá
baðströndum í Kóreu, þá sé ég að ég
hef alltaf verið að æfa mig. Eg var
alveg sokkin niður í tónlistina á
hverjum degi og foreldrar mínir
hvöttu mig áfram."
Þar sem hún var eins konar stjarna
heima í Kóreu, var það henni áfall
að koma til Bandaríkjanna og hitta
þar fyrir aðra unga tónlistarmenn
með jafn mikla hæfileika. „í Banda-
ríkjunum fannst mér allir vera svo
klárir. Ég fylltist fyrst skelfingu, en
fór svo að líta á það sem jákvæða
áskorun. Ég var of ung til þess að
láta setja mig úr Ieik. í staðinn varð
þetta til þess að efla mig.“
Tólf ára vann hún til námsstyrks
við Juilliardskólann í New York. Þar
nam hún undir handleiðslu Dorothy
DeLay, Jyo Kang og Felix Galimir,
sem voru þrír fremstu kennararnir í
fiðluleik í Bandaríkjunum. Foreldr-
ar hennar, en þau voru sæmilega
efnað kaupsýslufólk í Kóreu, fluttu
einnig til Bandaríkjanna.
Þetta var allmikil áhætta í þeirra
augum. Þau urðu að byrja lífið að
nýju á sinn hátt, þar sem þau töluðu
ekki ensku. Faðir hennar opnaði vín-
búð niðri á Manhattan og þau leigðu
sér íbúð í New Jersey. Þótt foreldr-
arnir lékju ekki á hljóðfæri, þá elsk-
uðu þau klassíska tónlist og fóru iðu-
lega á tónleika með börnunum.
Þáttaskil urðu hjá Chee-Yun þegar
hún var 18 ára gömul, þá gagntók
tónlistin líf hennar. ,Áður fannst
mér tónlist bara skemmtileg og það
kom fyrir að ég varð þreytt á henni
— en nú varð hún mér allt. Um-
skiptin áttu sér stað, þegar ég fór á
hljómleika hjá Lundúna- symfóníu-
hljómsveitinni fyrir tveimur árum.
Michael Tilson Thomas var stjórn-
andinn og allt í einu stóð ég mig að
því að ég var farin að gráta yfir 9.
symfóníu Mahlers... Ég gat ekki
stoppað. Það var ólýsanleg reynsla.
Þá varð mér ljóst hve tónlistin getur
verið mikilvæg til þess að öðlast
skilning á lífinu."
Gæti ekki verið
ánægðarí
Chee-Yun hefur verið heppin á ferli
sínum til þessa. Hún hefur hlotið af-
burða umsagnir og verndara á hún
sér þar sem er Barbara Katzander,
sem hefur fengið henni aðstöðu í
lúxusíbúð við Central Park, þar sem
hún getur dvalið og æft sig. Frú
Katzander er einn eigenda New York
Times og hún átti þátt í að fjármagna
kaup á Francesco Ruggieri-fiðlu frá
18. öld, sem kostaði ógrynni fjár.
Brosið og hlátrarnir og fíngerð Iík-
amsbygging Cheé-Yun dylur metn-
aðinn og einbeitnina, sem hún býr
yfir. „Ekkert er mér meira virði en
tónlistariðkun mín og vinir mínir
vita að þegar ég þarf að æfa mig, þá
er ekki til í dæminu að ég fari út með
þeim. Hún lítur út eins og hún láti
hverjum degi nægja sína þjáningu,
vegna smitandi hláturs síns og bjart-
sýni. En hún dregur enga dul á það
að heppni og vinnusemi eiga sinn
þátt í gengi hennar.
„Ég gæti ekki verið ánægðari en ég
er núna. Ég er að verða sjálfstæðari.
Þegar foreldrar mínir komu frá Kór-
eu 1985 og opnuðu búðina við 19.
stræti, var lífsbaráttan erfið. Pabbi
gat ekki fengið vinnu hjá amerísku
fyrirtæki, þvf hann kunni ekki
ensku. Það er erfitt að læra nýtt
tungumál, þegar menn eru orðnir
fimmtugir. En nú eru hagir fjöl-
skyldunnar að batna. Ég þarf ekki
Iengur að biðja þau um vasapeninga,
en get gefið þeim ýmislegt sem þau
vanhagar um. Ætli þetta sé ekki það
sem kallast „ameríski draumur-
inn“?“ (Þýtt úr Sunday Timct)
NÝi M&KÓUNN
Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði.
Innritun er í síma 652285
daglega kl. 13-19.
BARNADANSAR
GÖMLUDANSARNIR
SAMKVÆMISDANSAR
LATIN - STANDARD
SWING - BUGG
BYRJENDUR - FRAMHALD
Takmarkaður fjöldi í hverjum tíma.
Góð kennsla skilar betri árangri.
Einkatímar eftir samkomulagi.
NYTT:
Kynningamámskeið verður
á hverju kvöldi frá 1. til 10. sept.
Ath. Nýja strœtisvagnakerfið hentar vel
fyrir alla á Reykjavíknrsvceðinu
HAUSTTILBOÐ
Eigum nú fyrirliggjandi nokkra 6 og 8,5 tonna
sturtuvagna á góðu verði.
Góðfúslega leitið nánari upplýsinga
0
HEKLA
LAUGAVEG1174
SÍMI695500
IVI60 6,0 tonn. Stærð palls: 379 x 236 á einni hásingu.
Verð nú kr. 250.000 -Verð áðurkr. 285.000. ■
M85 8,5 tonn. Stærð palls: 412 x 236 á tveim hásingum.
Verð nú kr. 350.000 -Verð áður kr. 389.000.
Verð er án vsk.