Tíminn - 08.09.1992, Blaðsíða 2

Tíminn - 08.09.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn Þriðjudagur 8. september 1992 Banaslys við vinnu 1991: Tvöfaít fleiri en flest undanfarin ár AIIs létust níu einstaklingar í vinnuslysum árið 1991 á móti fjórum árið þar á undan. Þetta kemur fram í yflrliti sem tekið var saman vegna ársskýrslu Vinnu- eftirlitsins 1991 og birt er í Vinnuvemd, fréttabréfi Vinnueftiriits ríkisins. Átímabilinu 1986-1991 biðu sam- tals 27 manns bana í vinnuslysum; fimm árið'1986, fjórir 1987, einn ár- ið 1988, fjórir 1989 og sami fjöldi ár- ið 1990. Á þessu tímabili hafa flestir látist í vinnuslysum í landbúnaði eða níu og sjö í flutningastarfsemi o.fl. Slys á sjómönnum og flug- áhöfnum eru ekki talin með þar sem störf þeirra falla ekki undir lög frá 1980, en samkvæmt þeim skal at- vinnurekandi tilkynna Vinnueftirlit- inu um vinnuslys sem hjá honum verða. Þá nam fjöldi slasaðra í slys- um sem Vinnueftirlitið rannsakaði eða fékk tilkynningu um á síðasta ári 676 sem er veruleg fækkun frá árinu 1990 þegar fjöldi slasaðra var 768. Sé litið til orsaka þeirra banaslysa sem urðu á síðasta ári tengdust sjö þeirra vélum og í fimm þeirra var einhverju áfátt frá öryggissjónar- miði, s.s. slit, en í sumum tilvikanna var erfitt að greina það að mati Vinnueftirlitsins. Af einstökum at- vikum sem leiddu til banaslysa við vinnu á síðasta ári má nefna að kranabóma snerti háspennustreng, fall úr stiga í fjárhúsi, snjóflóð lend- ir á hjólaskólfii við snjómokstur, yf- irhöfn bams festist í vindu löndun- arkrana, fall í heitan pytt við viðgerð á hitaveitulögn, vörubifreið og dráttarvél rákust saman er bifreiðin reyndi framúrakstur, felguhringur þeyttist af hjóli vörubifreiðar sem verið var að dæla lofti í, efnislyfta féll niður þar sem viðgerð fór fram og fall af vörubretti sem lyft var með lyftara. Þrátt fyrir ákvæði laga sem skyldar atvinnurekanda að tilkynna Vinnu- eftirlitinu um vinnuslys sem hjá honum verða, telur eftirlitið að mik- ill misbrestur sé á því að þeim regl- um sé framfylgt. Að mati Vinnueftir- litsins kemur það m.a. fram þegar gerður er samanburður á fjölda skráðra slysa hjá Vinnueftirlitinu og skráningu þeirra sem leita læknis vegna vinnuslysa ár hvert. -grh Nýr einkaskóli á grunnskólastigi: skráðir í Miðskólann Alls eru skráðir 70 nemendur í hlnn nýja Miðskóla í vetur en hann tók til starfa í síðustu vlku. Skóllnn, sem er elnka- skóll á grunnskólastigi fyrir 9- 12 ára böm, hefur fengið inni í gamla Miðbæjarskólanum. Greta Kaldalóns hefur verið ráðin skólastjóri skólans en hún lauk kennaraprófi frá KHÍ árið 1984 og hefur verið kennari við Melaskóla frá þeim tfma. Auk hennar starfa við skólann fjórir bekkjarkennar- ar og þrir sérgreinakennarar í hlutastarfi og ritari. Formað- ur skólanefndar Miðskólans er Otfó A. Michelsen. -grh Stúlkur hafa lengi veriö í meirihluta í Listdansskóla fslands. Sértímar fyrirstráka Listdansskóli íslands byijar starf- að í vetur verði boðið upp á sér- semi sfna þessa dagana. í vetur staka tíma fyrir gamla ballettnem- verður boðið upp á sérstaka tíma endur. fyrir stráka en þeim hefur farið Síðasta vetur stunduðu um 100 fjölgandi undanfarin ár. nemendur nám við skólann og f Þetta kemur fram í féttatilkynn- vetur er fyrirhugað að flytja hann í ingu frá skólanum. Þar er og sagt nýtt húsnæði við Laugarnesveg. tfPini YrlRLYSINIi — vegna frétta af aðgengi í dómhúsi Héraðsdóms Reykjavíkur Vegna fréttaflutnings af aðgegni verður upp í Sjálfsbjargarhúsinu fyrir hreyfihamlaða að húsnæði nú á næstu mánuðum. Héraðsdóms Reykjvaíkur vill Það er Ijóst að úr vöndu er að undirritaður taka fram eftirfar- ráða þegar breyta á gömlu húsi andi: eins og Dómhúsi Reykjavíkur Þegar unnið var að hönnun á þannig að það sé aðgengilegt 611- breytingum húsnæðis þess er í um. Þrátt fyrir það hefur þó dag hýsir Héraðsdóm Reykjavík- Gylfa Guðmjónssyni aridtekt tek- ur hafði Gylfi Guðjónsson arid- ist vel upp. Eftir stendur þó, án tekkt ásamt Þorieifi Pálssyni í þess að ég áfellist hann fyrir það, dómsmálaráðuneyti samband við að dómhúsið var formlega tetóð f undirritaðan til að tiyggja að að- notkun 1. júlf sl. og réttarhléi gengi hreyfihamlaðra að húsinu lauk 1. sept. sl. án þess að breyt- yrði tryggt Jafnframt var haft ingum væri lokið. Þegar undir- samband við Sjálfsbjörg, lands- ritaðurkomþvísemlögmaðurtil samband fatlaðra í sama skyni. að sinna störfum sínum í annars Ljóst er að tekið hefur verið tillit glæsilegu dómhúsi þá komst ég til fjölmargra ábendinga þessara ekki hjálparlaust inn. Þar eð ég aðlla og væri betur ef ariritektar veit að við hönnun hússins var og hönnuðir hefðu almennt sam- gert ráð fyrir því að það yrði að- band við framangreinda aðila á gengilegt öiium treysti ég því að hönnunarstigi eins og Gylfi úr þvf verði bætt hið fyrsta. Það gerðí. Því fer fjarri að undirritað- er lofsvert hve fjölmiðlar brugð- ur eða SjáfsbjÖrg hafi verið að ust rösklega við til að vekja at- gagniýna hönnun Gylfa á dóm- hygli á því að enn væri Dómhús húsinu enda er hann einn of Reykjavíkur ekki aðgengilegt öll- fárra aridtekta sem hafa viridlega um. Ég efast ekki um að þeir lagt sig f framkróka við að gera munu á sama hátt gera sidl góðu húsnæði sem hann hannar þann- aðgengi þegar breytlngun á hús-. ig úr garði að það henti öllum, inu verður að fullu lokið. þar á meðai hreyfihömluðum, 111 marks um traust Sjálfsbjargar á Jóhann Pétur Sveinsson, Gylfa Guðjónssyni sem aridtekt héraösdómslögmaður og má geta þess að hann hefúr verið form. Sjálfsbjargar, fenginn til að hanna og teikna íandssambands fatlaöra. endurhæfingaribúð sem komið Óprúttnir reyna að hagnast á endaspretti veiðitímans: Eitt stykki ána- maðkur á 90 krónur „Við hlæjum bara að fólki sem er að reyna að selja eitt stykki ánamaðk á 90 krónur eða eitthvað í líkingu við það verð. Með þessu eru menn vafa- laust að reyna að komast yfir skjót- fenginn gróða en ég hef ekki trú að nokkur sé svo vitlaus að greiða svo hátt verð fyrir einn maðk,“ segir Örn Hjálmarsson hjá versluninni Veiðivon. Tíminn hefur heimildir fyrir því að óprúttnir sölumenn séu að bjóða ánamaðk á 90 krónur stykkið sem er margfalt hærra verð en gengur og gerist út úr búð. Til að mynda selja þeir hjá Veiðivon maðkinn á 25 krónur stykkið en kaupa hann á 20 krónur. Öm sagði að vafalaust væru hér á ferðinni aðilar sem reyna hvað þeir geta til að ná sér í auðfenginn gróða nú þegar endaspretturinn er hafinn í laxveiðinni, en veiðitímabil- inu lýkur þann 20. september næst- komandi. „Það hafa komið hingað aðilar og boðið okkur maðk á 50-60 krónur stykkið sem við höfum að sjálfsögðu eldd ansað. Fólk verður bara reitt og pirrað þegar reynt er að okra svona á því og því held ég að þeir séu ekki margir sem láta bjóða sér þvílíkt og annað eins,“ sagði Öm Hjálmarsson hjá Veiðivon. -grh Landsbjörg og Sjóklæðagerðin hf.: Þróa og framleiða nýjan útivistargalla Landsbjörg, Landssamband björgunarsveita, hefur gengið til samstarfs vift Sjóklæöageröina hf., 66N, um framleiftslu og þró- un á nýjum útivistargalla fyrir björgunarsveitirnar. En alls eru félagsmenn innan raða Lands- bjargar um tvö þúsund talsins. Á fulltrúaráðsftmdi Landsbjargar 1. febrúar sl. var tekin sú ákvörð- un að sveitirnar fengju nýjan og samræmdan búning. Eftir vand- lega leit var valið efni í gallann úr flokki vatnsheldra öndunarefna sem nú eru að ryðja sér til rúms í útivistarfatnaði. Hinn endanlegi galli er hins vegar sjötta útgáfan frá því að vöruþróunin hófst. Að baki hinnar endanlegu niðurstöðu um gallann liggur mikil vinna enda voru margar gerðir af fatnaði skoðaðar og reyndar af félags- mönnum Landsbjargar sem hafa, eins og kunnugt er, víðtæka reynslu í útilífi og fjallaferðum. Að sögn Björns Hermannssonar, framkvæmdastjóra Landsbjargar, eru þeir mjög ánægðir með sam- starfið við Sjóklæðagerðina. Þá telur Bjöm það ekki síður ánægju- legt í ljósi þess að hér skuli íslensk framleiðsla hafa staðist saman- burð við erlenda framleiðslu. Jafn- framt telja félagsmenn Lands- bjargar það mikinn ávinning að Sjóklæðagerðin hafi mætt sérkröf- um þeirra vegna erfiðra íslenskra aðstæðna og ennfremur telja menn nálægðina við framleiðand- ann mikinn kost sem muni bæta alla þjónustumöguleika fyrir fé- lagsmenn. Þórarinn Elmar Jensen, framkvæmdastjóri Sjóklæðagerð- arinnar, er einnig aifar ánægður með samstarfið við Landsbjörgu sem að hans mati er mikil viður- kenning á framleiðslu fyrirtæks- ins. Þá segist hann einnig hugsa vel til samstarfs við Landsbjörg á fleiri sviðum kulda- og hlífðarfatn- aðar því fáir aðilar séu betur til þess fallnir en kröfuharðir björg- unarsveitarmenn að taka þátt í þróun úrvals útivistarfatnaðar. -grh Hlnn nýi útivistargalli sem Sjó- klæðagerðin hf., 66N, mun framleiða fyrir félagsmenn Landsbjargar, Landssam- bands björgunarsveita. Nýr framkvæmdastjóri hjá Goða hf.: Helgi Óskar Óskarsson Á stjómarfundi Gofta hf. 1. sept- ember sl. var Helgi Óskar Ósk- arsson ráftinn framkvæmdastjóri fyrirtæksins og tekur hann til starfa 1. október næstkomandi. Helgi hefur undanfarna mánuði starfað sem auglýsingastjóri Ríkis- útvarpsins, en áður starfaði hann m.a. sem viðskiptafræðingur hjá Landsvirkjun 1982-1986 og síðar í ráðgjafadeild Kaupþings hf. 1986- 1989, lengst af sem deildarstjóri. Helgi Óskar var við nám í mark- aðsfræðum í Bandaríkjunum á ár- unum 1989-1991 og Iauk M.S. prófi í Business Administration frá Colorado State University. Hann lauk B.S. prófi í jarðfræði frá Há- skóla íslands árið 1978, fyrsta árs prófi frá Handelshöjskolen í Kaup- mannahöfn árið 1979 og varð cand. oecon frá Háskóla Islands árið 1982. Helgi Óskar er fæddur árið 1953 og er uppalinn á Höfn í Horna- firði. Hann er kvæntur Kristínu Þorkelsdóttur tölvunarfræðingi og eiga þau þrjár dætur. -grh

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.