Tíminn - 08.09.1992, Side 3
Þriðjudagur 8. september 1992
Tíminn 3
Stjórnarandstaðan hvetur ríkisstjórnina til að breyta um stefnu í efnahags- og atvinnumálum:
Davíð segir árangur sjást
af efnahagsstefnu sinni
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði að efnahagsstefna ríkis-
stjórnarinnar væri farin að skila
árangri og efnahagslíf landsmanna
væri að styrkjast. Atvinnuleysi
myndi því fara minnkandi síðar þó
að það aukist nú um sinn. Hann
sagði að aðgerðir ríkisstjórnarinn-
ar gerðu það að verkum að afkoma
sjávarútvegs á þessu ári yrði „ekki
slök“, en horfurnar væru verri fyr-
ir næsta ár. Steingrímur Her-
mannsson, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, sagði að stefna ríkis-
stjórnarinnar myndi leiða til ófarn-
aðar. Þetta væri sama stefna og
hægri stjórnirnar í Bandaríkjun-
um og Bretlandi hefðu fylgt og
hefðu leitt til stöðnunar í efna-
hagslífi þar.
Þetta kom fram í umræðum um
atvinnumál á Alþingi í gær. Jó-
hannes Geir Sigurgeirsson (Frfl.)
hóf umræðuna.
Fyrstu sjö mánuði þessa árs var
atvinnuleysi á landinu 2,8%. Þjóð-
hagsstofnun spáir að atvinnuleysi á
þessu ári verði um eða yfir 3%.
Venjulega hefur atvinnuleysi
minnkað mikið yfir sumarmánuð-
ina, en sú varð ekki raunin í sumar.
í sumar var atvinnuleysi 2,5% til
2,7%. Mest er atvinnuleysið á Suð-
urnesjum og því er spáð að þar
komist atvinnuleysi upp fyrir 10%
í vetur.
Fá bankar að breyta
skuldum í hlutafé?
Jóhannes Geir sagði að það væru
bein tengsl milli aukins atvinnu-
leysis, aukinnar fátæktar og aukins
félagslegs misréttis. Hann sagði að
íslendingar hefðu aldrei sætt sig
við atvinnuleysi og myndu aldrei
sætta sig við það. „Það verður
engri ríkisstjórn liðið að hér verði
atvinnuleysi af þeirri stærðargráðu
sem er í okkar nágrannalöndum,"
sagði Jóhannes Geir.
Jóhannes Geir vakti athygli á spá
Þjóðhagsstofnunar um að atvinnu-
leysi á næsta ári verði um 4%.
Þetta þýðir að 4.800-5.000 manns
verði stöðugt án vinnu allt árið. Jó-
hannes Geir sagði margt benda til
að ástandið verði jafnvel enn verra.
Fyrirtæki séu að hagræða og spara
í kostnaði. Hagræðingin leiði í
flestum tilfellum til fækkunar
starfsfólks. Þá sagði hann að búast
mætti við að mikill samdráttur í
byggingaiðnaði leiði til keðjuverk-
andi samdráttar á ýmsum öðrum
atvinnugreinum.
Hann gagnrýndi ríkisstjórnina
fyrir ráðleysi í atvinnumálum og
vitnaði til sjónvarpsviðtals við for-
sætisráðherra þar sem hann sagði
að bregðast verði við vanda í at-
vinnumálum með hagræðingu og
sameiningu sveitarfélaga. Jóhann-
es Geir sagði að vandamálið væri
stærra en svo að slík meðul dugi.
Staðan í sjávarútvegi væri nú með
þeim hætti að jafnvel best reknu og
stærstu sjávarútvegsfyrirtækin
ættu ekki fyrir rekstrarkostnaði.
Jóhannes Geir sagði að nú væri
þörf á að stjórnvöld, atvinnulífið
og bankarnir settust niður til að
vinna að bættum rekstrarskilyrð-
um fyrir atvinnufyrirtækin í land-
inu. Ríkisstjórnin hefði lagt alla
áherslu á að draga úr umsvifum
ríkisins. Hugsun stjórnvalda hefði
verið að síðan myndi allt efnahags-
lífið taka viö sér. Flest bendi til að
þessi stefna mistakist. Markmið
stjórnarinnar um minni halla á
ríkissjóði muni t.d. ekki nást. Ár-
angursleysi hennar í efnahags- og
atvinnulífi væri því algjört.
Davíð Oddsson.
Jóhannes Geir sagði mikilvægt að
kostnaður innanlands verði lækk-
aður. Koma þurfi á farsælla kerfi
við stjórn gengismála, m.a. með
því að nýta lagaheimildir um að
koma upp gengismarkaði. Bregð-
ast verði við skuldastöðu atvinnu-
veganna með lengingu lána. Lækka
þurfi vexti. Setja þurfi aukið fé til
vegamála og til viðhalds opinberra
mannvirkja. Þá varpaði Jóhannes
Geir fram þeirri hugmynd að bönk-
um verði veitt lagaheimild til að
gerast hluthafar í atvinnufyrir-
tækjum. Hann sagði það vænlegra
fyrir bankana að gerast tímabundið
hluthafar í fyrirtækjum frekar en
að ganga að fyrirtækjunum með
ósk um gjaldþrot.
Minni atvinna ein-
göngu afleiðing af
minni afla?
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði þessar hugmyndir Jóhannes-
ar Geirs og fleiri vera til skoðunar í
ríkisstjórninni, en ræddi þær ekki
efnislega.
Davíð sagði að ástandið í atvinnu-
málum væri verra nú en það hefði
verið lengi. Hann sagði að ástæðan
fyrir auknu atvinnuleysi væri sam-
dráttur í fiskveiðum. Hann mót-
mælti því hins vegar að atvinnu-
leysi hér á landi væri að verða sam-
bærilegt við það sem er í ná-
grannalöndum okkar.
Davíð sagði að vandinn í atvinnu-
lífinu fælist í því að fjöldi starfa á
atvinnumarkaði hafi minnkað eða
staðið í stað síðustu fimm ár. Á
sama tíma hafi fólki á atvinnu-
markaðinum fjölgað.
Davíð sagði að lausn á vandanum
felist ekki í þyí að stjórnvöld komi
fram með einhverjar miðstýrðar
töfralausnir í atvinnumálum. Á
síðustu árum hafi 30 milljörðum
verið varið í loðdýrarækt, fiskeldi
og virkjanir. Þessir fjármunir hafi
engin störf skapað.
Davíð minnti á þær aðgerðir sem
ríkisstjórnin hefði gripiö til á þessu
ári til að bæta stöðu sjávarútvegs-
ins, þ.é. lengingu lána Atvinnu-
tryggingasjóðs og útgreiðslur úr
Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins.
Hann sagði að þessar aðgerðir leiði
til þess að afkoma sjávarútvegsins
verði ekki slök á þessu ári. Horf-
urnar séu hins vegar verri fyrir
næsta ár. Minni veiöiheimildir geri
stöðuna enn erfiðari. Davíð sagði
að ríkið geti ekki bætt sjávarútveg-
inum upp niðurskurð í aflaheim-
ildum.
Davíð sagðist sjá fram á batamerki
í atvinnulífinu. Hallinn á ríkissjóði
sé að minnka og viðskiptahalíinn
sömuleiðis. Þá væri sparnaður í
þjóðfélaginu að aukast. Hann úti-
Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
Steingrímur Hermannsson.
Steingrímur J. Sigfússon.
lokaði að gengisfelling komi til
greina. Aðeins með traustu efna-
hagslífi sé hægt að auka atvinnu í
landinu.
„Við höfum tekið á okkur nokkrar
þrengingar og fórnir. Þær fórnir
eru að skila árangri og sá árangur
mun leggja grundvöllinn að upp-
byggingu í þessu landi. í mínum
huga er meginverkefnið það að
kvika hvergi af leið, halda sínu
striki, hafna gervilausnum sem
gefa stundarávinning, en byggja á
stefnu sem stenst dóm sögunnar,"
sagði Davíð.
Verðum að breyta um
stefnu ef ekki á illa
að fara
Steingrímur Hermannsson, íyrr-
verandi forsætisráðherra, sagði að
sú stefna sem ríkisstjórnin fylgi
muni og hafi leitt til ófarnaðar.
Þetta sé sama stefna og fylgt hafí
verið af hægri stjórnunum í Banda-
ríkjunum og Bretlandi. Þar sé við
mikil og vaxandi vandamál í efna-
hagslífi að etja. Þessar tvær þjóðir
séu að feta sig frá þessari stefnu.
Steingrímur sagðist hræðast von-
leysið og svartsýnina sem gripið
hafi um sig í þjóðfélaginu. Hann
undraðist þá bjartsýni sem kom
fram í ræðu Davíðs Oddssonar.
Steingrímur sagði að bjartsýni yrði
að byggjast á raunsæju mati á stöðu
efnahagsmála. Svo virðist sem for-
sætisráðherra geri sér enga grein
fyrir raunverulegri stöðu efnahags-
og atvinnumála.
„Það er sorglegt að hlusta á forsæt-
isráðherra nefna sem nánast eina
bjargvætt okkar í dag samninginn
um Evrópskt efnahagssvæði. Hefur
forsætisráðherra ekki fylgst með því
hvernig þróunin hefur orðið þar?
Nýjustu spár eru að þar verði hag-
vöxtur langt um minni en áður var
gert ráð fyrir,“ sagði Steingrímur.
Miklar uppsagnir
í ágúst
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra sagði að aukið at-
vinnuleysi á þessu ári endurspegl-
aðr fyrst og fremst þann mikla sam-
drátt sem væri í efnahagslífinu.
Hún staðfesti að atvinnuleysi á
þessu ári væri um alit landi í nánast
öllum atvinnugreinum, ekki síst
þjónustugreinum, verslun og með-
al opinberra starfsmanna. Þá hafi
atvinnuleysi meðal 25-40 ára auk-
ist. Þá bendi margt til að atvinnu-
lausir séu lengur frá vinnu en áður.
Jóhanna sagði að tölu um atvinnu-
leysi í ágústmánuði bendi til að úr
atvinnuleysi hafi dregið lítils háttar.
Atvinnulausum hafi fækkað úr
2.100 í 1.800. í ágústmánuði var til-
kynnt um nærri 500 uppsagnir til
félagsmálaráðuneytis. Þetta er þre-
földun miðað við sama tímabil í
fyrra. Þess ber að geta að stór hluti
af þessu fólki verður væntanlega
endurráðið. Það á t.d. við um 100
starfsmenn prentsmiðjunnar Gu-
tenberg sem öllum hefur verið sagt
upp störfum í tengslum við sölu og
endurskipulagningu á verksmiðj-
unni.
Félagsmálaráðherra og viðskipta-
ráðherra bentu á nokkrar leiðir til
að bæta atvinnuástandið. Þau
nefndu til aukið fjármagn til rann-
sókna- og þróunarstarfs, ný tæki-
færi samfara EES-samningnum,
sameiningu sveitarfélaga, stuðning
við hagkvæmnisathuganir og fleira.
Bæði lögðu áherslu á breytingar á
skattkerfinu sem miðað að því að
aðlaga það því sem gerist í ná-
grannalöndum okkar. Jóhanna
nefndi breytingar á aðstöðugjaldi í
því sambandi.
Jón Kristjánsson sagði fullyrðing-
ar um að sameining sveitarfélaga
auki atvinnu rangar. Líkleg
skammtímaáhrif af sameiningu
sveitarfélaga séu að reynt verði að
hagræða og fækka störfum. Þegar
til langs tíma sé litið kunni hins
vegar sameining sveitarfélaga að
styrkja atvinnulífið.
Steingrímur J. Sigfússon sagði
greinilegt að forsætisráðherra meti
það svo að ekki megi fórna lang-
tímabata í efnahagsmálum fyrir
skammtímaaðgerðir í atvinnumál-
um. Atvinnuleysi væri þannig orðið
tæki við stjórn efnahagsmála. -EÓ
Sveitarfélögin hafa stutt atvinnufyrirtæki með stórfelldum hætti á síðustu fimm árum:
Veittu 3,5 milljörðum
til atvinnulífsins
Sveitarfélögin veittu atvinnulíf-
inu í landinu styrk í einu eða
öðru formi upp á 3,5 milljarða
á árunum 1987-1991. Hæstu
framlög voru veitt af sveitarfé-
Iögum á Vesturlandi og Norður-
landi vestra en langlægst í
Reykjavík. Þetta kemur fram í
athugun sem Samband ís-
lenskra sveitarfélaga gerði fyrr
á þessu ári og félagsmálaráð-
herra gerði grein fyrir á Alþingi
í gær.
Aðstoðin sem hér er um að ræða
hefur átt sér stað í gegn um hluta-
bréfakaup, lán, niðurfellingu gjalda,
Jóhanna Siguröardóttir
bein framlög og ábyrgðir.
Svo dæmi sé tekið þá veittu sveit-
arfélögin á Austurlandi 955 milljón-
um króna til atvinnulífsins með
þessum hætti á umræddu fimm ára
tímabili. Á Norðurlandi eystra var
þetta tæplega 1.500 milljónir.
„Ljóst er að slíkur fjármagnstil-
flutningur frá sveitarfélögunum til
atvinnulífsins er óeðlilegur. Hann
lamar getu þeirra til að sinna hefð-
bundnum verkefnum. Það er ljóst
að vegna atvinnuástandsins hafa
sveitarfélögin verið knúin til þessa
og það er afar óæskilegt að fram-
hald verði á slíku," sagði Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráðherra.