Tíminn - 08.09.1992, Síða 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 8. september 1992
Frábær grillveisla var eftir Lokasprettinn og mega forráöamenn hestamannafélaganna svo sannarlega taka þá Haröarmenn sér til fyrirmynd-
ar hvaö þetta varöar.
Síðasta hestamótið: Guðmar Þór, tólf ára, náði þriðja sætinu í gæðingaskeiði. — Siggi
Sæm. einvaldur kýldi Didda Bárðar í sjötta sæti í töltinu:
Aftur á bak í molakaffí
„Ræsir, þú hefur eina mínútu til þess
að koma þessu af stað. Heyrirðu ann-
ars eitthvað í mér?“ þrumaði Valdi-
mar þulur upp í norðanáttina. Ræs-
irinn heyrði greinilega ekkert í hon-
um, því hann hélt áfram að reyna að
ræsa í sprettinn og voru kláramir
mjög órólegir í rokinu.
„Sjáðu nú þétta, fjórir menn á þeim
brúna og ekkert gengur," sagði Guð-
mundur Einarsson trommari og hló
einhver ósköp, hann er bróðir Bjöms
R. hjá Sinfóníunni, báðir þekktir fyr-
ir létta lund.
,J4ei nei nei, fer klárinn nú ekki bara
aftur á bak, líklega er hann á leiðinni
í molakafíi upp í félagsheimili," sagði
Guðmundur trommari og hló nú svo
svakalega að nýi trimmgallinn gekk í
bylgjum utan á honum. Ræsinum
hafði nú tekist að koma klárunum af
stað, en einn sat greinilega eftir og
gekk helst aftur á bak.
„Ef þið flýtið ykkur ekki þá missum
við af grillinu," heyrðist í Valdimar
þul og hann var óðar rokinn eftir
hesti sínum, því nú átti hann sjálfur
að hleypa sprett og sýna gott for-
dæmi í íþróttamennskunni, enda
formaður félagsins. Kom hann á
fögru stökki í mark í gæðingaskeið-
inu.
,J>að er fleim riðið en vökru,“ sagði
trommarinn og var óðar horfinn í
nýja trimmbúningnum að aðstoða
TVausta Þór son sinn, sem var að
leggja á Gými frá Vindheimum í
skeiðið.
Jæja, þá er það grillið," sagði Valdi-
mar þulur og stillti hljómlistina í
botn til merkis um það að síðasti
sprettur ársins væri búinn. Sigur-
bjöm Bárðarson kyssti Fríðu konu
sína til hamingju með fjórða sætið í
töltinu. Sjálfur hafði hann hreppt
sjötta sætið á gráu leynivopni ftá
Gunnarsholti og er það ekki á hveij-
um degi sem Sigurbjöm er aftastur í
töltröðuninni. En íþróttamennskan
er alltaf fyrir öllu, koma með nýja og
nýja gæðinga, þá hafa allir mögu-
leika.
Umsjón:
Guðlaugur
Tryggvi
Karlsson
Logi Laxdal, skeiömeistarinn 1992 á flugskeiöi.
Síðasta hestamót sumarsins, Loka- nú ilmuðu allar leimmar af grill-
sprettur Harðar, var sem sagt búið og veislunni sem beið upp í félagsheim-
Hart barist I skeiöinu.
Jafnvel Sigurbjörn Báröarson mátti þola það aö hlypi upp hjá hon-
um.
ili, þar sem sigurvegaramir fengu
gullin sín og Valdmar þulur, knapi og
formaður bætti um betur með rauð-
um rósum handa þeim sem höfðu
staðið sig sérstaklega vel. - Endilega
meira af þessu hestamenn, grillkokk-
urinn hefði nefnilega mátt fá stóran
vönd af rauðum rósum frá mér, því-
líkt bragð af dilkasteikinni og nýju ís-
lensku kartöflunum eftir storma-
samt lokamót
Helstu úrslift 150 m skeið
1. Sigurbjöm Bárðarson á Sóta, 14,1 sek.
2. Leó Geir Amarson á Vigra, 15,4
3. Þorkell Tfaustason á Dýrling,
15,69
250 m skeið
1. Sigurbjöm Bárðarson á LeisL 22,6 sek.
2. Hinrik Bragason á Eitli, 23,23
3. Sigurður Sæmundsson á Grana, 24,31
Gæðingaskeið
1. Sigurbjöm Bárðars. á Snarfara, 105
stig.
2. Trausti Þór Guðmundsson á Gýrni, 91,5
3. Guðmar Þór Péturs.12 ára) á Kalsa,
88,5 stig.
Tölt
1. Halldór Victorsson á Herði
2. Hinrik Bragason á Kol
3. Leó Geir Amarson á Dafna
4. Fríða H. Steinarsdóttir á Hauk
5. Ólafur Ásgeirsson á Ás
6. Sigurbjöm Bárðarson á Hljóm
Serbar háðu harða hildi um-
hverfis flugvöllinn I Sarajevo í
gær og minnkuðu þar með
möguleikana á því að flug með
hjálpargögn yrði tekið upp að
nýju.
Vatni var aftur hleypt á I borg-
inni í þrjár klukkustundir en
skrúfað var fyrir það aftur þegar
hersveitir múslima réðust á
bækistöðvar Serba í úthverfi II-
idza.
Genf — Alþjóðlegar samn-
inganefndir buðu öllum aðilum
átakanna í Bosniu til viðræðna
um tryggingu öryggis flugvéla
með hjálpargögn eftir að ítölsk
flugvél var skotin niður í síð-
ustu viku.
Manama — Langvarandi
mælingar á geislavirkni í grunn-
vatni I (rak eru örugg aðferð til
þess að komast að öllum leyni-
legum kjarnorkuaðgerðum (r-
aka, að sögn háttsetts manns
innan kjarnorkueftirlits Samein-
uðu þjóðanna.
Washington — Forsætisráð-
herra Israels, Yitzhak Rabin,
ávarpaði ráðstefnuna í Wash-
ington í gegnum gervihnött og
sagði aö Sýrlendingar hefðu
ekki enn boðið fullan frið og
eðlileg samskipti í garð gyð-
inga.
Kabúl — Rikisstjórn Afganist-
an lét hengja þrjá menn fyrir
framan þúsundir manna og
framfylgdu þar út í ystu æsar
lögum Islams í fyrsta sinn frá
þvi hún komst til valda í apríl
siðastliðnum.
Lima — Menn, sem eru grun-
aðir um að vera skæruliðar ma-
óista, sprengdu sprengju fyrir
utan skyndihjálparstöð lögregl-
unnar i miðborg Lima í gær og
urðu að minnsta kosti fimm
manns að bana og særðu meira
en tuttugu menn, að sögn yfir-
valda.
Londonderry, Noröur-ír-
landi — Fjórir gíslar frá Beirút
áttu társtokkna endurfundi í N-
Irlandi og ræddu hreinskilnis-
lega um það hvernig þeir hefðu
barist gegn hatrinu og lært að
fyrirgefa.
Moskva — Aðalritari Samein-
uðu þjóðanna, Boutros Bout-
ros-Ghali, sagði í gær að Sam-
einuðu þjóðirnar ættu að geta
haldið áfram flugi með hjálpar-
gögn þrátt fyrir að ítaiska fíug-
vélin hafi farist í síðustu viku.
Bonn — Helmut Kohl kanslari,
sem berst gegn kröfum um að
hann víki fyrir stjórn sem sé
fulltrúi allrar þjóðarinnar, hvatti
stjórnarandstöðuna og aðila
viöskipta. og verkalýðssamtök
til að sameinast i viðræðum um
hnignandi efnahag Þýskalands.
Islamabad — Leiötogar (rans
og Pakistan hafa fordæmt
valdabaráttuna i Afganistan og
sagt að þeir ættu að sameina
islamska krafta sina til að
stööva hin blóðugu átök.
París — Sósíalistar og komm-
únistar hafa fylkt liði til þess að
fá vinstri sinnaða Frakka til
þess að segja „nei“ í kosning-
unum um Maastricht-sam-
komulagiö.