Tíminn - 08.09.1992, Blaðsíða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Askríftarsími
Tímans er
686300
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Öðruvísi bílasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 679225
I
HÖGG-
j. DEYFAR
Verslió hjá fagmönnum
GSvarahlutir
^ ^ Haaarsbolda l - s. 67-6744
1
Utanríkisráðherrar íslands og Noregs:
Ræddu sameiginleg
hagsmunamál í Viðey
Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra og Thor-
vald Stoltenberg, utanríkis-
ráðherra Noregs, ræddu sam-
eiginleg áhuga- og hags-
munamál þjóðanna í einn og
hálfan tíma í Viðey í gær. En
norski utanríkisráðherrann
er staddur hér á landi í
tengslum við heimsókn
norsku konungshjónanna,
Haraids V. og Sonju drottn-
ingar.
Þar sem norski utanríkisráð-
herrann er nýkominn úr viku-
langri ferð um ríki Balkanskaga
fór drjúgur tími ráðherranna í
viðræður um ástand mála þar
suður frá en kjarni viðræðna
þeirra snerist þó aðallega um
sameiginlega hagsmuni landanna
í utanríkis- og varnarmálum á
breyttum tímum. Ennfremur um
Atlantshafsbandalagið, afstöðuna
til Vestur-Evrópubandalagsins og
samstarfið við Bandaríkin í varn-
armálum. í framhaldi af því
ræddu ráðherrar rækilega um
Evrópumálin og stöðu mála í báð-
Thorvald Stoltenberg, utanríkisráöherra Noregs, og Jón Bald-
vin Hannibalsson, utanríkisráðherra islands. Tímamynd Ámi Bjama
um löndum hvað varðar staðfest-
ingu á EES-samningnum.
í þeim viðræðum spurði Jón
Baldvin utanríkisráðherra hinn
norska starfsbróður sinn margs
um framhaldið í Noregi og um
líkurnar á því að Norðmenn legðu
fram aðildarumsókn. En brátt líð-
ur að því að norski verkamanna-
flokkurinn taki afstöðu til þess
hvort Noregur eigi að sækja um
aðild að EB á landsfundi flokksins
sem haldinn verður innan tíðar. í
Iok þessa mánaðar munu vera lið-
in tuttugu ár frá því Norðmenn
höfnuðu EB í sögufrægri þjóðar-
atkvæðagreiðslu árið 1972.
Jafnframt skiptust ráðherrarnir á
skoðunum á mati á hvernig því
máli muni reiða af í þeirri óvissu
sem nú er á meðan beðið er eftir
niðurstöðum úr frönsku þjóðar-
atkvæðagreiðslunni um Maast-
richt-samkomulagið.
í framhaldi af viðræðum ráð-
herranna um málefni Evrópu,
ræddu þeir um stöðu mála í N-
Evrópu s.s. um Barentshafið og
um hagsmuni beggja þjóðanna á
alþjóðlegum vettvangi við að fá
viðurkenningu á rétti strandríkja
á nýtingu á auðlindum hafsins og
þá sérstaklega hvölunum. En í
þessari viku verður stofnfundur
Norður- Atlantshafsráðsins hins
nýja í Þórshöfn þar sem munu
mæta fulltrúar Grænlands, ís-
lands, Færeyja og Noregs. Þótt ís-
lendingar séu ekki lengur í Al-
þjóðahvalveiðiráðinu, öndvertvið
Norðmenn, eru markmið land-
anna hin sömu: Að skapa forsend-
ur fyrir því innan alþjóðlegra
reglna að geta hafið veiðar á ný
undir vísindalegu eftirliti. í þess-
um efnum eiga báðar þjóðirnar
við vissa áhættu að stríða sem eru
viðbrögð hvalverndunarsinna.
-grh
Árangurinn af ferð Gaju tii Vesturheims er að sú söguskoðun virðist vera að festa
sig í sessi að Leifur heppni hafi verið Norðmaður:
LEIFUR HINN HEPPNI ER
KYNNTUR SEM NORÐMAÐUR
í nýútknminni bók eflir bresku bjónin mikíl kynning á bókinni í Bretlandi og
Judlt og David Lomax, sem Qallar um víöar. Fjöhniðlar og frettaritarar hafa
Leif heppna Eiríksson og um ferð vflc- fengið bókina tD kynningar. í fréttatil-
ingaskipsins Gaju til Vesturheims, er kynningu með bókinni er að sjálf-
fjaflað um Leif sem Norikuann. Lom- sögðu talað um Norðmanninn Leif Ei-
ax þjónin hafa einnig gert tæpkga riksstm. í fréttatilkyimmgunni ergetið
Hukkustundarianga sjónvarpsmynd um að þegar hafi verið gengið tirá
um Leif og ferð Grtfu. Bókin og mynd- samntngum um sýnrngu á sjónvarps-
in hafa verið mðdð augjýst í Brethnd. þættinum til átta sjónvarpsstöðva og
Svo viröLst sem sú sögusknöun sé að aö auki hcfur breska sjónvarpsstöðin
festast í sessi að Leifur Eiriksson hafi BBC sýnt áhuga á að sýyia mýndina.
verið norskur en ekki íslenskur. , JVtér kemur ekki á óvart að svona
í bók Lomax þjónanna kemur fram færi. fslendingar hafa verið og eru
að þjónin ríta um þann ágndrúng sem seinsofandi í þessu máli,“ sagði Emil
er um Hóðerni Leifs Eiríkssonar. Als augnlæknir í samtaK við Tímann,
I ebn er vel kimnugt um að læifur var en Emil var einn af nokkrum tugum
f, 'ddur á íslandi. t>au segjast hins veg- manna sem ritaði sfjómvöklum bréf á
ai Itafa ákveðið að skilgreina Leif sem síðasta ári tfl að mótmæla þátttöku ís-
norskan mann eða nornenan. í bók- lendinga í ferð Gaju til Vesturhehns.
inni nota þau því dngöngu orftin EmD sagftist lfta á þetta sem atlögu aö
,JMorwcgian“ (norskur) og ,JNorse“ ímynd fslands, bæfti inn á viö og út á
(nonænn). f munni ffestra þýftir við. Hann sagðist gagnrýna ísiensk
„Norse11* norskur. sfjómvöld fyrir að reyna ekki að svara ....— — ------------------------------
Lomax hjónin segja að skýringin á þessariatíögu. GaJa í Reykjavíkurhöfn 17. júni 1991 og dlsllvélin gengur á fullu
ákafa íslendinga tfl að eigna sér Leif Emfl sagði að Norðmenn væru að áfram.
EirikssonsénuLsúaðþeirséufóirog festa þá söguskoðun í sessi í Amerflai bcmum eða óbeinum hætti 'lálið er að Etnfl sagði aö eitt af því sem valdi
srnátr og haklnir míkillí (góðemis- og viðar að Leifur hafi verið Norftmað- fcostnaðurinn nemi um 20 mflQónum þcssum rugtingi með Leif heppna sc
kennd. ur. króna. Emil sagði að áiangurinn af tfl- að ísiendingar hafa gengist inn á að
Lomax þjónin hafa áður sent frá sér Emil sagði að fsiendingar hefóu aldr- tækinuværiaðeinssáaðLeifurheppni tengja sig við vðdnga. Jsieiríingar
bækur Og sjónvarpsþætti um svipað ei átt að taka þátt f ferð Gaju. Islensk hafi verið augfýstur upp sem Norð- vom aldrei vikmgar. Vðángar er mál
efhLÞessadaganaerígangiumfangs- stjómvöld styrktu feröaiagið með maður. Skandinava,'1 sagfti Emfl. -EÓ
Tímmn
ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPT. 1992
Ýmsu stolió
um helgina
Tveir þjófar voru gripnir við inn-
brotstilraun f verslun á Laugavegi
aðfaranótt laugardags.
Þá var lögreglunni tilkynnt um
þjófnað á bflasölu. Innrétting úr aft-
urhluta jeppa-bifreiðar hafði verið
stolið, þ.e. aftursæti og hliðarspjöld-
um.
Á sunnudaginn var svonefndum
slöngubát stolið. Báturinn hafði ver-
ið bundinn við annan bát í smábáta-
höfninni í Reykjavík. Það verður lík-
lega erfitt fyrir þjófmn að leyna báts-
stuldinum því eigandi bátsins telur
að þessi bátur sé sá eini hér á landi.
Brotist var inn f verslunina Japis
aðfaranótt laugardags. Þjófarnir
komust undan með þýfið sem talið
er vera um 40.000 króna virði. -HÞ
Forstjóri Sorpu:
Rekstur
Sorpu
í járnum
Ögmundur Einarsson, forstjóri
Sorpu, segir að reksturinn sé járn-
um. Það þýðir að gjöld og tekjur
standast nokkura veginn á sam-
kvæmt nýlegu milliuppgjöri.
Ögmundur er ekkert ósáttur við
þessa niðurstöðu. Hann segir að
þetta sé fyrsta ár í rekstri stöðvar-
innar og því sé ekki hægt að miða
við neitt ár á undan. Hann bætir við
að fyrirtækið hafi ekki getað miðað
við ákveðið sorpmagn þegar rekstur-
inn hófst. „Þetta er allt nýtt fyrir
okkur og er tilraun svo við erum
ekkert ósáttir," segir Ögmundur.
„Ef það hefði verið bullandi gróði af
fyrirtækinu hefði verið sagt að við
værum önnur Bifreiðaskoðun," seg-
ir Ögmundur og á þar við að ef hagn-
aður hefði orðið á rekstrinum hefði
verið sagt að hann myndaðist í skjóli
einokunar.
Ögmundi finnst viðtökur þær sem
fyrirtækið hefur mætt skiptast
nokkuð í tvö horn. „Mér finnst al-
menningur vera afskaplega jákvæð-
ur fyrir öllu sem hann er beðinn um
að gera. Það hefur gengið hægar
með fyrirtækin því nú þurfa þau að
greiða fyrir þessa þjónustu en þurftu
þess ekki áður,“ sagði Ögmundur að
lokum. -HÞ
I
Vinningstöiur 5. sept. 1992
(24)
VINNINGAR FJOLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5al5 2 6.846.304
2. 4 3I5Í 7 176.468
3. 4aJ5 296 7.198
4. 3a!5 10.076 493
Heildarvinningsupphæö þessa viku:
kr. 22.025.960
ÆÉ
upplysingar simsvari91 -681511 lukkulína991002