Tíminn - 10.09.1992, Page 1
Fimmtudagur
10. september 1992
168. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Búist er við að verð á nýju kindakjöti verði óbreytt, en ákvörðun um verðið verður tekin á morgun. Haukur Halldórsson:
Verðlagningarkerfiö mun
breytast en ekki í ár
Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda, segir að
engar breytingar verði gerðar á verðlagningarkerfi kindakjöts á
þessu ári. Reikna megi hins vegar með að breytingar verði gerðar á
kerfinu á næstu árum. Hann segist búast við að tekið verði upp ein-
hvers konar umboðskerfi líkt og var hér fyrir um áratug. Haukur
sagði að Sexmannanefnd muni ákveða nýtt verð á kinda- og nauta-
kjöti til bænda á morgun.
Að undanfömu hefur Sexmanna-
nefnd rætt um nýtt verð á kinda-
kjöti, en ákvörðun þarf að Iiggja fyr-
ir í síðasta lagi 15. september. Búist
er við að ákvörðun verði tekin á
fundi nefndarinnar á morgun.
Nefndin stefnir að því að verð á
kindakjöti verði óbreytt. Unnið er að
því að finna leiðir til að svo megi
verða. Sú leið að auka niðurgreiðslur
er ekki fær. Stefna stjómvalda er að
draga úr niðurgreiðslum og raunar
var úr þeim dregið um 8% þegar
beinar greiðslur til bænda voru
teknar upp.
Haukur sagði að verðstríð verslana
á höfuðborgarsvæðinu á kjötmark-
aði hafi ekki áhrif á ákvarðanir Sex-
mannanefndar. Hann sagðist hins
vegar telja að verslanimar hafi
ákveðið að lækka álagningu sína á
kjöti nú m.a. til þess að reyna hafa
áhrif á ákvarðanir nefndarinnar.
Haukur sagði ánægjulegt að versl-
anir skuli treysta sér til að lækka
álagningu sína á kjöti. Bændur hafi
lengi gagnrýnt verslanir fyrir að taka
of stóran hlut af verði kjötvara til sín.
Haukur sagðist ekki telja að verð-
lagningarkerfí kindakjöts breytist á
þessu ári. Hann sagðist hins vegar
gera ráð fýrir að kerfið breytist á
næstu árum. „Það verður að eiga sér
stað þróun í íslenskum landbúnaði,
en engin heljarstökk. Breytingar
hafa átt sér stað og þær verða fleiri á
næstunni.
Það sem hefur gert mönnum erfitt
fýrir að koma á sveigjanlegri verð-
lagningu á dilkakjöti er að kjötið
fellur til einu sinni á ári. Afurða-
stöðvarnar kaupa það af bændum og
gera að fullu upp við þá fýrir áramót.
Þær hafa því litla möguleika til
sveigjanlegrar verðlagningar. Mögu-
leikinn liggur fýrst og fremst í
vinnslu- og dreifingarkostnaði. Mér
finnst ekki ótrúlegt að það stefni í
einhvers konar umboðssölukerfi líkt
því sem var hér fýrir áratug," sagði
Haukur.
Haukur sagði að hugmyndir manna
um breytingar á verðlagningarkerf-
inu gengju í ýmsar áttir. „Ákveðnir
aðilar telja að það eigi ekki að vera
neitt verðlagningarkerfi. Einhver
óskilgreindur markaður eigi bara að
ákveða verðið. Slíkt kerfi þekkist
hvergi nema í vanþróuðu löndunum
og við viljum ekki sjá það hér,“ sagði
Haukur. -EÓ
Aðeins rúmur þriðjungur kjósenda styður rík-
isstjórn Davíðs Oddssonar:
Alþýðubandalagið
tapar en Kvenna-
listi vinnur mest á
Alþýðubandalagið hefur tapað miklu fylgi ef marka má skoðana-
könnun sem DV hefur gert. Aðrir flokkar bæta lítils háttar við sig
frá síðustu könnun, Kvennalistinn þó mest. Aðeins rúmur þriðj-
ungur kjósenda styður ríkisstjómina. Skoðanakönnunin bendir til
að ef kosningar fæm fram í dag myndu stjórnarandstöðuflokkarair
ná meirihluta á Alþingi.
Úrtakið í könnun DV var 600
manns, af báðum kynjum og á öll-
um aldri. Helmingur svarenda var af
Reykjavíkursvæðinu. Óákveðnir
voru 32,8% og 3,3% svöruðu ekki.
Niðurstaða
(> %):
skoðanakönnunarinnar
Alþýðuflokkur
Framsóknarfl.
Sjálfstæðisfl.
Alþýðubandalag
Kvennalisti
kosn.
15.5
18,9
38.6
14,4
8,3
juni
11,2
26,8
31,3
20,0
10,7
nu
12.3
27.3
33.3
13,6
13.4
Samkvæmt kosningaspá DV sem
byggð er á könnuninni fengi Al-
þýðuflokkurinn 8 þingmenn en hef-
ur 10. Framsóknarflokkurinn fengi
18 þingmenn en hefur 13. Sjálf-
stæðisflokkurinn fengi 21 en hefur
26 menn. Alþýðubandalag fengi 8
þingmenn en hefur 9 og Kvennalist-
inn fengi einnig 8 þingmenn kjöma
en hefur 5 í dag. Samkvæmt þessu
fengju stjómarflokkarnir 29 þing-
menn en stjórnarandstöðuflokkarn-
ir 34.
DV spurði einnig um stuðning við
ríkisstjórnina. 35,2% sögðust vera
ríkisstjóminni fýlgjandi, 53,2%
sögðust vera henni andsnúin og
11,5% sögðust vera óákveðin eða
neituðu að svara. Sé einungis horft á
þá sem tóku afstöðu em fýlgismenn
ríkisstjórnarinnar 39,9% kjósenda
en andstæðingar hennar 60,1%.
Þetta hlutfall var nánast það sama í
könnunum sem DV gerði í apríl o;
júní á þessu ári. -E'
Eini gangbrautarvöröurinn í Reykjavík er á gangbrautinni yfir Langholtsveg við Holtaveg. Hér sér
hann um aö bömin komist óhult yfir götuna. Tfmamynd Ami Bjama
Umferðarráð hvetur vegfarendur til varúðar á hættulegasta tíma ársins:
Skólabörn í sept-
emberumferðinni
Umferðarráð hvetur forráðamenn
ungra bama til að fýlgja þeim í skólann
fýrstu dagana og benda þeim á hættur
í umhverfinu þar sem nú er hafinn
hættulegasti mánuður ársins í um-
Berjasprettan syðra afar bág
Berjaspretta á Suðurlandi virðist ætla að verða léleg þetta árið.
Kennir fólk þar um köldu, vætusömu og sólariitlu sumri.
Ásólfur Pálsson á Ásólfsstöðum í
Þjórsárdal, en í Þjórsárdalinn leita
margir til berja, segir að ber á
þeim slóðum séu illa þroskuð og
bláberin alls ekki. Um væri að
kenna sólarleysi í sumar. Hann
sagði að þó væri ekki loku fýrir það
skotið að fá mætti eitthvað af berj-
um ef fólk hefði biðlund í þetta
viku til hálfan mánuð því nóg væri
af berjum á lynginu. Þetta væri þó
undir því komið að ekki gerði næt-
urfrost.
Grafningurinn er einnig þekkt
berjasvæði. Sigrún Guðmunds-
dóttir á Stóra-Hálsi í Grafningi
segir að berjaspretta þar sé ákaf-
lega léleg - - ef hún er þá nokkur
— eins og Sigrún tók til orða. Hún
sagði að krækiberin væru bæði fá
og smá og aðeins eitt og eitt kom-
ið til fulls þroska.
Sömu sögu virðist einnig vera að
segja úr Rangárvalla- og A- og V-
Skaftafellssýslum samkvæmt
heimildum blaðsins.
—SBS, Selfossi
ferðinni.
Búast má við um 40.000 bömum í
umferðinni þessa dagana. Á sama tíma
er gert ráð fýrir að umferð aukist vem-
lega. Það er kannski engin tilviljun að
slys á bömum eru tíðust í september
og þá sérstaklega í aldurshópnum sex
til níu ára. Þetta kemur m.a. fram í
fréttatilkynningu frá Umferðarráði og
Umferðamefnd.
Þar kemur og fram að nú sé hafinn
hættulegasti tími ársins í umferðinni
og varað er sérstaklega við tímanum á
milli kl.16:00 og 19:00 því að kannanir
hafa sýnt að þá verða híutfallslega flest
unferðarslys. Þá sýna skýrslur jafn-
framt að flestir slasast á föstudögum en
þá er umferð 15% meiri en aðra daga.
Ökumenn eru hvattir til að sýna böm-
um sérstaka tillitssemi og gæta varúð-
ar í nánd við skóla. Lögreglan mun
hafa þar eftirlit og þá sérstaklega með
hraðakstri. Yngstu ökumennimir, þ.e.
17-19 ára, eru sérsaklega áminntir um
að fara varlega því samkvæmt skýrsl-
um brjóta þeir tíðar af sér en aðrir. Þeir
em sagðir aka of hratt, fara ógætilega
ftamúr og gerast sekir um gáleysi.
Eldri ökumönnum er gefið að sök að
virða ekki umferðarmerki.
Ljóst er að fræðsla hefur mikið að
segja. Þannig segir í talnakönnun Um-
ferðamefndar frá því fýrr á árinu: ,Mjög
athyglisvert er að umferðarslys á böm-
um eru hlutfallslega álíka mörg í
Reykjavík og annars staðar á landinu
þrátt fyrir að í borginni sé umferðar-
þunginn mestur, sem kemur fram í
fleiri slysum hjá fúllorðnum. Þetta
kann að skýrast af því að fræðsla bama
og ungtinga um umferðarmál hefúr
verið markviss og til þeirra er auðveld-
ara að ná en hinna sem eldri eru.“
-HÞ