Tíminn - 10.09.1992, Page 3
Fimmtudagur 10. september 1992
Tíminn 3
Stóri Rory frá Glasgow
Þessi tröllslegi Skoti nefnist Big
Rory og er hann hér á vegum Flug-
leiða og ferðamálaráðs Clasgow í
þeim tilgangi að auglýsa innkaupa-
ferðir og skemmtiferðir til Glasgow
á þessu hausti, en innkaupaferðir
til Bretlandseyja- og Evrópuborga
eru sem óðast að fara í gang þessa
dagana.
Stóri Rory verður hér til fostudags
og mun koma fram á ýmsum stöð-
um og leika á sekkjapípu og kynna
hvað er í boði fyrir íslenska ferða-
langa í Glasgow.
Vemdun gegn mengun sjávar:
Nýr alþjóðlegur samning-
ur undirritaður í París
ingu og framkvæmdaáætlun um frek-
ari aðgerðir og samvinnu um vamir
gegn mengun sjávar.
Eins og kunnugt er þá fjallar Oslóar-
samningurinn, sem var undirritaður
1972 en tók gildi 1974, um vamir gegn
mengun sjávar vegna varps úrgangs-
eína frá skipum og flugvélum í hafið
og miðar að því að stöðva það. Parísar-
samningurinn, sem var undirritaður
1974 og tók gildi 1978, ijallar um vam-
ir gegn mengun sjávar frá landstöðv-
um og miðar að því að allri slíkri losun
í hafið verði stjómað, en þar undir fell-
ur einnig losun frá olíuborpöllum á
hafi úti.
Þrettán ríki hafa gerst aðilar að báð-
um þessum samningum, en það em
Belgía, Danmörk, Frakkland, Holland,
ísland, írland, Noregur, N-írland,
Spánn, Portúgal, Svíþjóð, Bretland og
Þýskaland. Auk þess er Finnland aðili
að Oslóarsamningnum og EB að Par-
ísarsamningnum. Gert er ráð fyrir að
þessir aðilar taki þátt í ráðherrafundin-
um og undirriti hinn nýja samning.
Þá hefur eftirtöldum ríkjum verið
boðið að senda áheymarfúlltrúa til
fundarins, sem talið er að leggi nokk-
uð til mengunar á hafsvæðinu. Þar á
meðal eru fyrrum Sovétríki, Tékkó-
slóvakía, Sviss, Kanada og Bandaríkin.
Jafnframt stendur sumum þessara
ríkja til boða að gerast aðilar að hinum
nýja samningi. -gih
Eftir tæpan hálfan mánuð munu ráðherrar fjórtán landa við norð-
austanvert Atlantshaf og fulltrúar Evrópubandalagsins hittast í Par-
ís til þess að fjalla um verndun sjávar gegn mengun í norðaustur
AtlantshaH. Eiður Guðnason umhverfisráðherra mun sækja fund-
inn fyrir íslands hönd.
Tdgangur fundarins er m.a. að fylgja samning um vemdun sjávar í norð-
eftir upphaflegum markmiðum Osló- austur Atlantshafi, sem kemur í stað
ar- og Parísarsamningsins frá 1970 samninganna tveggja. Ennfremur
með því að undirrita nýjan alþjóðlegan verður á fúndinum gengið frá yfirlýs-
Jón Á. Jóhannsson er látinn
Látinn er Jón Á. Jóhannsson, fyrr-
um yfirlögregluþjónn og síðar
skattstjóri á ísafirði, á 87. aldurs-
ári.
Jón gegndi fjöldamörgum trúnað-
arstörfum á ísafirði, átti m.a. sæti í
bæjarstjórn um árabil, var heilbrigð-
isfulltrúi ísafjarðar í 14 ár auk marg-
víslegra nefndarstarfa í þágu bæjar-
ins.
Jón starfaði mikið fyrir Framsókn-
arflokkinn, var formaöur Framsókn-
arfélags ísfirðinga og Sambands
framsóknarfélaga í Vestfjarðakjör-
dæmi árin 1954-67. Hann var einn
hvatamanna að stofnun blaðsins ís-
firðings 1949 og ritstýrði því blaði af
mikilli röggsemi í 25 ár. Kona Jóns
Á. Jóhannssonar var Oktavía Margrét
Gísladóttir, en hún lést árið 1987.
Jón Á. Jóhannsson.
Afkomuathugun í rækjuiðnaði 1991:
Aðeins tvö fyrirtæki af
þrettán skiluðu hagnaði
Aðeins tvö fyrirtæki af þrettán skil-
uðu hagnaði af reglulegri starfsemi
á síðasta ári innan raða Félags
rækju- og hörpudiskframleiðenda.
Þetta kemur fram í skýrslu um af-
komuathugun í rækjuiðnaði 1991
sem Rannsóknastofnun Háskólans
á Akureyri gerði fyrir Félag rækju-
og hörpudiskframleiðenda, en verk-
efnið var styrkt af sjávarútvegs-
ráðuneytinu.
í skýrslunni kemur einnig fram að
verulegur munur er á best reknu
fyrirtækjunum og þeim verst reknu,
eða allt frá 7,2% hagnaði í 24,7%
tap, sem er bil upp á 31,9%. Að sama
skapi voru fimm best reknu verk-
smiðjurnar með samtals 56% af
veltu iðnaðarins en aðeins með 7%
af heildartapinu. Aftur á móti voru
fimm verst reknu fyrirtækin með
aðeins fjórðung af veltunni en
hvorki meira né minna en 61% af
heildartapinu.
í athuguninni, sem er nýjung hér-
lendis, tóku þátt þrettán fyrirtæki
sem er tæplega helmingur þeirra
fyrirtækja sem unnu rækju á því ári.
Þessi 13 fyrirtæki unnu 18.053 tonn
af rækju og er það 52% af því hráefni
sem fór til vinnslu hérlendis 1991.
Þessar verksmiðjur eru með samtals
34 pillunarvélar og meðalafköst
þeirra eru um 400 kfió af hráefni á
klukkustund. Heildarafkoma þess-
ara fyrirtækja sýndi tap uppá 7,81%
af framleiðsluverðmæti þess árs, eða
167 milljónir króna.
Pétur Bjarnason frá Félagi rækju-
og hörpudiskframleiðenda segir að
markmiðið með afkomuathugun-
inni sé að veita hverju fyrirtæki um
sig viðmið við það besta sem gerist í
greininni. Jafnframt muni það gera
stjórnendum fyrirtækja í iðnaðinum
auðveldara með að finna hvort og þá
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráöherra telur afkomuathugina í rækjuiönaðinum marka viss tímamót
og lýsti yfir ánægju sinni meö þetta framtak á blaöamannafundi í gær. Aðrir á myndinni eru f.v. Pétur
Bjarnason frá Félagi rækju- og hörpudiskframleiöenda, Valtýr Hreiöarsson viöskiptafræðingur og Jón
Þórðarsson frá Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri.
Tímamynd Ámi Bjama
hvar úrbóta sé þörf. Að hinu leytinu
sé markmiðið með afkomuathugun-
inni að sýna afkomu fyrirtækjanna í
heild.
Sé litið á hlutfall launakostnaðar af
framleiðsluverðmæti árið 1991
kemur fram að Iaunakostnaður
þessara þrettán fyrirtækja er mjög
mismunandi eða allt frá því að vera
26,5% niður í 11,7%. Þannig er bil-
ið á milli mesta og minnsta launa-
kostnaðar 14,8% sem skýrsluhöf-
undar segja að verði að teljast mjög
mikið þegar meðal launahlutfall er
15,6%.
Ennfremur er hlutfall hráefnis-
kostnaðar af framleiðsluverðmæti
nokkuð misjafnt á milli fyrirtækja,
eða frá 73,1% í 59,6% sem er mis-
munur uppá 13,5%, en meðalhrá-
efniskostnaður er 65%. Að mati
skýrsluhöfunda liggur þessi mis-
munur að mestu leyti í mismunandi
uppruna og stærðardreifingu hrá-
efnisins. Til samanburðar má geta
þess að hlutfall hráefniskostnaðar er
að jafnaði um 50%-60% við vinnslu
á þorski. Þá var vegið meðaltal hrá-
efnissamsetningar fyrirtækjanna 13
þannig að 28% var frosin rækja,
49,6% úthafsrækja og 22,4% inn-
fjarðarrækja.
Afkomuathugunin var unnin af
þeim Skarphéðni Jósepssyni, nema
af sjávarútvegsbraut, og Ögmundi
Knútssyni, nema á gæðastjórnar-
braut, við Háskólann á Akureyri.
Verkefnastjóri var Valtýr Hreiðars-
son viðskiptafræðingur. -grh
Opinberri heimsókn norsku
konungshjónanna lokið:
Norðurland
heilsaði
með úrhelli
Þriggja daga opinberri heimsókn
norsku konungshjónanna lauk í
gær þegar þau og fylgdarlið
þeirra flugu beint frá Akureyri
til Oslóar.
í gærmorgun flugu þau frá
Reykjavík til Húsavíkur með
Fokkerflugvél Landhelgisgæsl-
unnar og þegar þangað kom var
úrhellisrigning þar nyrðra og
lágskýjað. Þar tók á móti þeim
Halldór Kristinsson sýslumaður
en sérlegur fylgdarmaður þeirra
um náttúruperlur Þingeyinga var
Jóhann Sigurjónsson kennari.
Að móttökuathöfn lokinni á
Húsavíkurflugvelli var ferðinni
haldið til Námaskarðs, Dimmu-
borga við Mývatn og snæddur há-
degisverður að Hótel Reynihlíð.
Á leiðinni til Akureyrar var
staldrað við hjá Goðafossi. Þegar
til Akureyrar var komið var mót-
tökuathöfn í Lystigarðinum og
síðan bauð bæjarstjórn Akureyr-
ar til móttöku að hótel KEA. Að
því loknu var haldið út á flugvöll
þar sem norsku konungshjónin
kvöddu forseta íslands, frú Vig-
dísi Finnbogadóttur. -grh