Tíminn - 10.09.1992, Qupperneq 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 10. september 1992
Fyrsta mál slnnar tegundar er nú hjá dómstól Golfsambands íslands:
GoKaH kærður fyrir
að færa kúlu nær holu
Blnstakt máJ er komið fyrir dóm-
stól Golfsambands íslands, en ís-
lenskur golfari hefur verið kærð-
ur fyrir að færa kúiu nær holu á
flöt í golfmóti. Þetta er fyrsta mál
sinnar tegundar hér á landi, en
sams konar mál hafa komlð upp
víða erlendis og hefur þá verið
tekið mjög hart á þeim.
Goifarinn, sem er úr Heykjavík
og er þekktur sem rallökumaður,
tók þátt í golfmóti þann 13. júlí
hjá GolfÖúbbnum Mostra í
Stykkishólmi, og þar mun um-
rætt atvik hafa átt sér stað. Grun-
semdir vöknuðu um að ekki væri
aflt með fefldu, og samkvæmt
heimildum Tímans voru vitnl að
því þegar maðurinn færði kúiuna
nær hoiu.
Maðurínn, sem hefur verið er-
iendis, hefur nú fengið birta
kæru og Öil gögn í máflnu og fær
tækifæri til að svara kærunni og
senda inn greinargerð. Dómur
verður felldur í máiinu þann 8.
október næstkomandi og má bú-
ast við þvf, ef maðurinn verður
fundinn sekur um ákæruatriði,
að hann fái keppnisbann og það
jafnvei langt
Er talið nauðsynlegt að taka hart
á slíkum málum, þar sem ekki er
hægt að hafa dómara með öilum
keppendum á golfmótum, sem
skipta tugum ef ekki hundruðum
um allt iand á sumrin, og þvf er
golfurunum treyst, enda hcfur
golf ávallt verið talið heiðurs-
mannaíþrótt. Dæmi eru um að
mál sem þessi hafi komið upp er-
iendis og hafa hinir seku aðilar
verið dæmdir í keppnisbann, aflt
frá tveimur til þremur árum í aflt
að lífstíðarbann.
Hvorid Ríkharöur Hrafnkeisson,
formaður Golfkiúbbsins Mostra,
né starfsmaður Golfsambands ís-
iands vildu láta hafa neitt eftir sér
um þetta mál. -PS
... í enska vikuritinu SHOOT eru
nokkrir leikmenn teknir fyrir og
mælt hvað þeir geta kastað langt
úr innkasti, hve markverðir geta
kastað langt, hversu hratt menn
geta hlaupið 100 metrana og hve
fast menn geta sparkað. Þar kem-
ur fram að varamarkvörður Sund-
erland, Tim Carter, getur kastað
46 metra, Alec Chamberlain, Lu-
ton, 44 metra og Ian Ironside,
Middlesbro, 38 metra. Wayne
Walls, Sunderland, kastar 33,5
metra úr innkasti, Nicky Mohan,
Middlesbro, hleypur lOOm á 11.72
sek. og Ceri Hughes, Luton,
sparkar fastast, en knötturinn nær
115 kílómetra hraða á klukku-
stund.
... Steve Bould gerði sitt fjórða
mark fyrir Arsenal, þegar hann
kom liði sínu yfir gegn Norwich á
dögunum. Þá má segja að hann
hafi aðeins eitt mark í plús, því
hann hefur þrisvar sinnum sett
knöttinn í eigið net.
... Teddy Sheringham, sem nú
leikur með neðsta liði úrvalsdeild-
arinnar ensku, Nottingham For-
est, var árið 1985 á samningi hjá
Millwail. Þar náði hann ekki að
sýna sitt besta og var lánaður til
Aldershot, sem nú hefur verið lagt
niður. Sex árum síðar var hann
seldur til Nottingham Forest á 2
milljónir sterlingspunda, eða
rúmar 200 milljónir íslenskra
króna.
... Markamaskínan Brian Deane,
sem var keyptur til Sheffield Utd.
frá Doncaster árið 1988, hefur
heldur betur margfaldað verðgildi
sitt á þessum fjórum árum. Kapp-
inn var keyptur á 30 þúsund sterl-
ingspund, en David Bassett, fram-
kvæmdastjóri Sheffield Utd., hefur
látið frá sér fara að hann sé falur
fyrir 100- falda þá upphæð, eða
þrjár milljónir punda (rúmlega
300 milljónir króna). Sagan segir
að Crystai Palace og Leeds Utd.
hafi gert tveggja milljón punda til-
boð í hann, en því hafi verið hafn-
að.
Knattspyrna, 1. deild kvenna:
Breiðablik er nú nær
öruggt um titilinn
Einvígi um meistaratitilinn í 1.
deild kvenna er enn ekki lokið, því í
gærkvöldi gerðu Akranes og Breiða-
blik jafntefli á Akranesi, 1-1. Þó má
telja nær öruggt að Breiðablik
hampi titlinum að lokum því þrátt
fyrir að liðin séu jöfn að stigum er
markamunur liöanna of mikill.
Blikarnir léku undan sterkum vindi
í fyrri hálfleik en náðu ekki að skapa
sér mörg hættuleg tækifæri. Eina
mark Blika kom þó í fyrri hálfleik og
það gerði Ásthildur Karlsdóttir eftir
góða sókn Blika.
Skagastúlkur voru mun hættulegri
í síðari hálfleik, sömuleiðis án þess
að skapa sér mörg hættuleg tæki-
færi.
Tíu mínútum fyrir leikslok kom
jöfhunarmark Akraness og það gerði
Jónína Víglundsdóttir úr víti. Skaga-
stúlkur þurftu á sigri að halda til að
vinna meistaratitilinn og sóttu því
hart það sem eftir var leiks, en tókst
ekki að skora.
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að
Breiðablik vinni nú meistaratitilinn,
þrátt fyrir að kæra vegna leiks ÍA og
Stjömunnar sé enn óafgreidd.
—PS
Knattspyma:
Ásgeir í Lúx
Ásgeir Elíasson landsliðsþjálfari
brá sér til Lúxemborgar til að
horfa á leik heimamanna gegn
Ungverjum í undankeppni HM í
knattspyrnu, en liðin em með ís-
landi í riðli, ásamt Grikkjum,
Rússum og Júgóslövum.
Samskipadeildin í knattspyrnu:
Tveimur leikj
um frestað
Ákveðið hefur verið að fresta tveim-
ur lcikjum í síðustu umferð Sam-
Knattspyrna:
Breskir ófriðar-
seggir handteknir
Lögreglan í Santander á Spáni
handtók í gær 20 ölvaöa breska
ófriöarseggi, en þeir voru þangað
komnir til að fylgjast með leik
Spánverja og Englendinga. Um vin-
áttuleik var að ræða og fór hann
fram í gærkvöldi.
Ófriðarseggimir 20, sem flestir
voru á aldrinum 19-21 árs, voru
staðnir að því að grýta bifreiðar,
brjóta bekki, rífa upp tré og eyði-
leggja garða í borginni. Ætlunin er
að þeir fái að sitja inni þangað til
þeir eiga pantað far heim til Eng-
lands á ný. Öryggisgæsla var mikil á
leiknum og var lögð mikil áhersla á
að ekkert áfengi, engir hnífar, blys
eða vopn kæmust inn á völlinn. -PS
skipadeildarinnar í knattspymu um
næstkomandi helgi, vegna jarðar-
farar Friðriks Jessonar íþrótta-
frömuðar frá Vestmannaeyjum,
sem fram fer á laugardag klukkan
14.00 í Vestmannaeyjum.
Af þeim orsökum var leik ÍBV og
KA frestað til kl. 16.00 sama dag. Þar
sem fjögur lið berjast um að halda
sæti sínu í deildinni — KA og ÍBV,
sem leika í Eyjum, og Víkingur og
UBK, sem eigast við í Víkinni — hef-
ur verið ákveðið að fresta honum
einnig til kl. 16.00 til að báðir leik-
irnir fari fram á sama tíma.
Ef ekki reynist flugfært til Eyja á
laugardaginn, frestast báðir leikirnir
til kl. 14.00 á sunnudag. -PS
Diego Maradona.
Knattspyrna:
Palmeiras
vill enn
Maradona
Brasilíska liðið Palmeiras þrjósk-
ast við og er enn á höttunum eftir
Diego Maradona, þrátt fyrir að það
hafi margoft komið fram að Mar-
adona vill einungis leika fyrir Se-
villa á Spáni, þar sem fyrrum
landsliðsþjálfari Argentínu ræður
ríkjum.
Það er mjólkurfyrirtæki í Brasilíu,
sem ætlar að standa straum af
kostnaðinum við að fá Maradona til
Palmeiras. Talsmaður fyrirtækisins
sagði við fjölmiðla í gær, að komið
yrði á viðræðum milli fulltrúa
Maradona, mjólkurfyrirtækisins og
Palmeiras og að hann byggist við
að það yrði innan skamms.
Maradona á í deilu við Napólí, sem
vill að hann klári samning sinn við
félagið. Maradona neitar og segir
umboðsmaður hans að knatt-
spyrnukappinn komi til með að
leggja skóna á hilluna, ef hann
kemur ekki til með að leika með
Sevilla. Forráðamenn Palmeiras
eru þess þó fullvissir að þeim takist
að freista Maradona og herma
fréttir að þeir muni bjóða honum
um fjórar milljónir dollara í laun
fyrir fyrsta árið, en það er milljón
dollurum hærra en Sevilla býður.
-PS/reuter
Enska knattspyrnan:
Vinnie Jones
til Wimbledon
Einn grófasti leikmaður ensku úr-
valsdeildarinnar, Vinnie Jones, hef-
ur verið seldur aftur til Wimbledon
fyrir 700 þús. pund. Jones lék með
liðinu fyrir nokkrum árum og gerði
meðal annars sigurmark Wimbled-
on í úrslitaleik bikarkeppninnar
1988 gegn Liverpool.
Þessi fyrrum byggingaverkamaður,
sem er frægur fyrir grófan leik,
skrifaði undir samning sinn við
Wimbledon í gær og leikur sinn
fyrsta leik með liðinu á laugardag
gegn Ipswich. Framkvæmdastjóri
Wimbledon sagði að Vinnie væri
með þessu að færa mikla fjárhags-
lega fórn, en hann lækkaði mikið í
launum og það segði allt sem segja
þyrfti um Vinnie Jones, sem væri að
koma til að hjálpa fyrrum liði sínu.
Eftir keppnistímabilið þar sem
Wimbledon vann bikarinn, var
Vinnie seldur til Leeds fyrir um þrjár
milljónir sterlingspunda. Þaðan fór
hann til Sheffield United, áður en
hann gekk til liðs við Chelsea á síð-
asta keppnistímabili.
-PS
Vegna mistaka í tæknivinnslu blaðsins, birtist myndatextinn við þessa mynd ekki í gær. Við endurbirt-
um myndina og nú látum viö textann fylgja: Flóðljósin, sem setja á upp á Laugardalsvelli, eru nú kom-
in til landsins og er uppsetning hafin. Ætlunin er að tendra Ijósin í fyrsta sinn þann 1. október. Fyrsti
leikurinn í Ijósgeislum frá hinum nýju flóðljósum verður landsleikur gegn Grikkjum þann 7. október.
Þó gæti það orðið einum degi fyrr, þar sem landslið sömu þjóða U21 árs leika þá, en ekki fékkst upp-
gefiö hvort sá leikur yrði á aðalleikvanginum. Myndin er tekin í fyrradag þar sem unnið var aö upp-
setningu á Ijósunum. Tímamynd Pjetur