Tíminn - 10.09.1992, Qupperneq 9
Fimmtudagur 10. september 1992
Tíminn 9
BDAGBÓK
BengtAdlers
Stephen Stephen sýnir
í Galierí Borg
Stephen William Láms Stephen opnar
málverkasýningu í Callerí Borg við Aust-
urvöll í dag, fimmtud. 10. september, kl.
17 til 19.
Stephen er fæddur í London 1968 og er
af fslensku bergi brotinn og íslenskur
ríkisborgari, sonur Karólínu Lárusdótt-
ur myndlistarmanns.
Stephen hefur stundað listnám í Bis-
hop’s Stortford College, Ruskin School í
Oxford og University of Greenwich í
London frá 1978 og til þessa dags.
Þetta er fyrsta einkasýning Stephens
hér á landi og stendur hún til þriðju-
dagsins 22. september. Gallerí Borg er
opið alla daga vikunnar frá kl. 14 til 18.
*7óciiáti
Stephen - Stephen
SÝNING í GALLERÍ BORG
10. - 22. september 1992
* éfCtÆíu'
BOHÖ
Ný bók fri Ljósheimum/f slenska
hetlunarfélaginu:
„Lögmál Ijóssins"
Ljósheimar/ísl. heilunarfélagið hefur
gefið út bókina „Lögmál Ijóssins". Bókin
er 76 síður í vasabroti. í henni er að finna
umfjöllun um 57 lögmál, sem nauðsyn-
leg eru hverjum manni að tileinka sér,
auk kafla um liti, litameðferð o.fl. Á bók-
arkápu segir m.a.: „Lögmál ljóssins er
nauðsynleg varða á andlegri þróunar-
braut mannsins. Án þekkingar eða skiln-
ings á þeim öðlast umsækjandinn eða
lærísveinninn ekki vitund hins innvfgða.
Góður boðberi á Nýja-Sjálandi, Ann
Herbstreith, miðlaði Lögmálum ljóss-
ins“.
Bókin er seld hjá Ljósheimum að Hverf-
isgötu 105, 2. hæð, sími 624464, og f
versluninni Betra líf.
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNIDÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Bengt Adlers sýnir í Gallerí
Sævars Karls
Bengt Adlers sýnir í Gallerí Sævars
Karls, Bankastræti 9,11. september til 2.
október.
Hann er fæddur 1950 í Málmey í Sví-
þjóð. Bengt Adlers hefúr unnið að mynd-
list síðan 1965 og haldið 8 sýningar, þar
af 3 hér á landi. Sýning hans núna ber
titilinn „List og handverk, verk í þróun".
Árið 1991 sýndi Bengt Adiers hluta af
þessu verki í Gallerí Gangurinn, Reykja-
vík. Nú hefur verkið vaxið. Hugmyndin
er að vinna með hversdagslega hluti,
sem við notum f eldhúsinu daglega, svo
sem postulín, við, Ieir, stein, gler, plast
og fleira.
Ljóð eru tengd hverjum hluL sem Iýsa
efninu, forminu og staðsetningu þess í
veröldinni.
Nokkrír hlutanna eru framleiddir, en
drög að öðrum sýnd á pappír.
Sjálfboðaliðar óskast
til að safna undirskriftum undir kröfu um þjóðarat-
kvæðagreiðsiu um EES-samninginn.
Samstaða um óháð fsland,
Reykjavíkurfélagið, Laugavegi 3.
Opið virka daga kl. 16.00-18.00. Sími 623778.
Kópavogur —
Framsóknarvist
Spiluð verður framsóknarvist að Digranesvegi 12 sunnudaginn 13. september W.
15.00.
Kaffiveitingar og góð verðlaun.
Freyja, félag framsóknarkvenna I Kópavogl
Kópavogur
Aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna I Kópavogi, verður haldinn að Digra-
nesvegi 12 fimmtudaginn 24. september Id. 20.30.
Dagskrá auglýst slöar.
Stjómln
Ava og Ken fyrír framan hús sitt f Los Angeles meöan allt var í lukkunnar velstandi — á yfirboröinu aö
minnsta kosti.
Ken Kercheval átti í stöðugum erfiðleikum sem Cliff Barnes í Dall-
as og ekki er einkalífið honum auðveldara viðureignar:
Cliff í Dallas að skilja
í viðtali við tímaritið Hello fyrir
nokkru síðan sögðu hjónin Ken
Kercheval, sem er íslendingum að
góðu kunnur sem Cliff Barnes í
Dallas, og kona hans Ava að þau
ættu ekki í erfiðleikum með að
jafna með sér ágreining.
í hvert skipti sem þeim yrði
sundurorða nægði það til sátta ef
þau settust fyrir framan sjónvarp-
ið og horfðu á upptöku af því er
þau sáust fyrst. Svo skemmtilega
vildi til að það festist fyrir tilviljun
á filmu er þau rákust á hvort ann-
að fyrst við hlaðborð í veislu.
Rómantíkin gneistaði á milli
þeirra við fyrsta augnatillit og
mun stemmningin sem skapaðist
hafa komist til skila á filmunni,
þannig að þau töldu sig geta upp-
lifað töfra sinna fyrstu aftur og
aftur „uns dauðinn þau aðskilur".
„Það nægir alltaf til að lægja öld-
umar,“ sagði Ken Kercheval í því
viðtali.
Og svo virtist helst sem allt væri
í lukkunnar velstandi hjá þeim
hjónum. Þau tilkynntu fyrir
nokkru að þau ættu von á sínu
fyrsta barni og hamingjan virtist
brosa við þeim á allan hátt.
En nú virðist myndbandið
heilladrjúga vera farið að slitna
allverulega og sáttamáttur þess
fara þverrandi. Ekki einu sinni sú
staðreynd að erfingi er í vændum
dugir til að láta þau gleyma
ágreiningsefnum sínum, sem eru
víst bæði mörg og alvarleg.
Nýlega tilkynntu þau Ken og Ava
að hjónabandið ætlaði ekki að
endast út meðgönguna. Ava var
komin sjö mánuði á leið þegar til-
Ken Kerchevai og Ava kona hans standa nú f skilnaði.
kynning þessi barst og hún er
flutt út úr glæsihýsi þeirra í Los
Angeles.
Fólk ætti kannski að byggja
hjónabandssæluna á einhverju
traustara en gamalli myndbands-
upptöku!
m
Mæðc/in
í eíýragarðf
Hamingjan er aö vera Iftill flóöhestur á sumardegi meö
trýniö á öruggum staö á nefinu á mömmu sinni. Þessi
heimilislegu mæögin eru búsett í dýragaröinum í
Nurnberg f Þýskalandi.