Tíminn - 13.10.1992, Blaðsíða 8

Tíminn - 13.10.1992, Blaðsíða 8
8 Tlminn Þriðjudagur 13. október 1992 Hjörleifur Kristinsson bóndi, Gilsbakka Fæddur 12. nóvember 1918 Dáinn 1. október 1992 Það fraus í pelanum hans fyrsta veturinn. Hann fæddist í Borgar- gerði í Norðurárdal, þegar vetur fór að oft með svo miklum frostum að ísbrestir heyrðust jafnvel um nokk- um veg. En hjartahlýjan og móður- ástin bræðir allan ís. „Eilífi Guðs- sonur hjálpaðu mér, saklausa barn- inu að bjarga." Þetta var og verður vonandi eilíft hróp ástríkrar móður til himinsins. Og drengurinn, sem fæddist á fátækum bæ f dalnum, óx úr grasi og varð mætur maður og sérstæður persónuleiki, svo eftir var tekið hvar sem fór. Eða eins og einn af vinum okkar beggja orðaði það: „Hjörleifur er orginal maður." Þannig var hann, sjálfstæður í orði og athöfn, fór ekki endilega troðnar slóðir en hélt sinn eigin veg án yfir- lýsinga. Foreldrar Hjörleifs vom hjónin Aldís, dóttir Sveins Eiríkssonar frá Skatastöðum í Austurdal, og Krist- inn Jóhannsson frá Miðsitju í Blönduhlíð. í þessum ættum er greint fólk, sönghneigt og hag- mælska nokkur. Ég þekkti Aldísi vel. Hún var góð kona, hlýhuga, minnug og fróð, stillt í skapi og mikil móðir. Bræður Hjörleifs em Eiríkur cand. mag., Þorsteinn, Jök- ull og Sveinn, sem býr í Reykjavík, hinir á Akureyri. í Hjörleifi Kristinssyni vom í rauninni margir menn. í vöggugjöf hlaut hann talsvert fjölbreytta hæfileika og gáfúr langt framyfir meðallag. Hann var algerlega sjálf- menntaður, en annaðist þó kennslu ungmenna um skeið og var próf- dómari við barnaskóla sveitarinnar um árabil. Veit ég ekki annað en honum fæmst þessi störí vel úr hendi. Hann var hneigður til grúsks og fræðimennsku á ýmsum sviðum, náttúmunnandi og sjálf- menntaður grasafræðingur, þekkti nær hverja íslenska jurt og var stundum fenginn í rannsóknarferð- ir ásamt öðmm grasafræðingum. Jarðfræði var honum hugleikin og fylgdist hann með rannsóknum á því sviði svo sem kostur var. Ætt- fræðiáhugi var honum í blóð mnn- inn og hverskonar þjóðfræði og málvemd. Hann vandaði mál sitt og talaði fallega norðlensku. Hann hafði trútt minni og sagði skipu- lega frá. Hagmælska var honum svo eiginleg, að hann gat a.m.k. oft kastað fram ljóði eða stöku án fyrir- hafnar að því er virtist. Að eðlisfari var hann félagslyndur og átti auð- velt með að blanda geði við fólk og halda uppi samræðum. í hæfilega stómm hópi var hann hrókur alls fagnaðar, hélt uppi söng og gleð- skap og var um langt árabil í kirkju- kór Silfrastaðasóknar. Hjörleifur var áhugamaður um Fæddur 19. júlí 1924 Dáinn 2. október 1992 Þann 2. október lést Garðar Jó- hannesson á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri eftir langa baráttu. Garðar var fæddur þann 19. júlí 1924 á bænum Nesi í Saurbæjar- hrepp. Foreldrar hans vom Margrét Björnsdóttir og Jóhannes Friðriks- son. Garðar var eina barnið sem þau áttu saman, en hálfsystir hans er Helga Jóhannesdóttir. Vorið 1956 kom móðursystir okkar, Jóhanna Guðnadóttir, sem kaupa- kona að Nesi. Þá hafði Garðar tekið við búi foreldra sinna. Jóhanna ílentist og sumarið 1958 giftu þau sig. Garðar og Jóhanna eignuðust dreng 1. október 1959, en þau misstu hann sólarhring síðar. Ekki varð þeim fleiri barna auðið, en Jó- skógrækt og stofnaði skógarlund við Jökulsárgil niðumndan bæn- um. Þar og í Jökulsárgili plantaði hann mörgum tegundum trjáa. Þennan Iund annaðist hann af kost- gæfni og vænti þess, að honum yrði við haldið eftir sinn dag. Sömuleið- is að ekki yrði fé úti í Gilsbakka- landi. Lýsir þetta manninum einkar vel. Margt er mér minnisstætt frá sam- verustundum okkar Hjörleifs. Fyrr á ámm fómm við oft saman í göng- ur og smalamennsku á Egilsdal, réttarstúss í framhaldi. Oft var þá glatt á hjalla og lét Hjörleifur stundum fjúka í kveðlingum. Vel má vera að ljóð þau, er ég leyfi mér að birta hér á eftir, áður birt í bók- inni „Skagfirsk ljóð“, hafi orðið til í þessum ferðum: Jieginum seinkar og myrkrið er meira en nægt, því morgunstjömumar lítilli birtu skila. Jesús minn góður, hvað jörðin snýst orðið hægt, ég held alheimsmótorirm sé að bila. “ Og þessi: „Dags er glætan þrotin þá, þokan vætir kinnar. Skjóna fætur skripla á skuggum næturinnar. “ Allar þessar minningar em mér mætar. Eitt var þó að. Það var nær ómögulegt að fá Hjörleif til að taka greiðslu. Hann var aldrei ijár- hyggjumaður, sagðist gera þetta sér til skemmtunar. Um langt skeið hafði Hjörleifur á hendi póstflutninga hingað í dalina, Norðurárdal og Kjálka, og féll varla niður ferð hverju sem viðraði eða þó misjafnlega stæði á fyrir ein- yrkja. Jafnan gaf hann sér tíma til að staldra við á bæjum, segja fréttir og spjalla við heimafólk. Hann virt- ist ávallt hafa tíma, kom þó sínu fram. AUs staðar varð hann heimil- isvinur og hafði uppi skraf um menningarmál jafnt sem hvers- dagsleg málefni, kryddað þeim húmor sem honum var eiginlegur. Ég minnist m.a. gleði barnanna á barnaheimilinu okkar, þegar sást til ferða póstsins. „Pósturinn að koma. Pósturinn að koma,“ var hrópað, og ekki minnkaði eftirvæntingin þegar sjálfur pósturinn fór að grúska í dóti sínu, lesa í sundur og afhenda böggla og bréf. Ósjaldan endaði svo með því að eitt eða tvö skriðu upp á hné póstsins, þar sem hann sat við eldhúsborðið. Þó langt sé nú síðan barnaheimilið okkar var, veit ég og vona að margir þeir, sem þá voru hér að hefja gönguna út í lífið, minnist Hjörleifs enn í dag. Börnin hanna átti fyrir tvær stálpaðar dæt- ur. Þau bjuggu í Nesi til 1978 er þau fluttu til Reykjavíkur. 1983 lá leiðin til Akureyrar, en í Eyjafírði undi Garðar sér best. Við bræðurnir vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að vera mörg sumur í sveit í Nesi. Þangað komum við fyrst um sjö ára aldur. Á hverju vori var þess beðið með óþreyju að skóla Iyki og við kæmumst í gróðursæla dal- inn fyrir norðan þar sem alltaf var gott veður. Garðar sinnti sínu búi af natni og umhyggjusemi. Aldrei gát- um við skilið hvernig Garðar þekkti allar sínar kindur með nafni og margar þekktu þær nafnið sitt. Til- finning Garðars fyrir jörðinni sinni var líka ótrúleg. Hann þekkti hverja þúfu og hvern stein. Við slátt lyfti hann vélinni yfir grasi hulda steina á voru félagar okkar og vinir. Það er mikil hamingja að eignast vini en enga óvini. Sökum hæfi- leika Hjörleifs og mannkosta eign- aðist hann vini og kunningja víðs vegar. Á síðari árum hafa margir lagt leið sína fram að Merkigili. En þá liggur vegurinn um hlað á Gils- bakka. Undantekningarlítið mun þetta ferðafólk hafa hitt húsbónd- ann að máli. En hann hélt þeim gamla og góða sveitasið að bjóða í bæinn upp á kaffi og veitti þá jafn- framt upplýsingar um land og sögu þessa svæðis; fór auk þess ófáar ferðir sem leiðbeinandi fram að Gili. Einnig þetta mun oft hafa leitt til kunningsskapar, jafnvel vináttu. Jafnvel í útlöndum eignaðist hann kunningja, sem hann hélt uppi bréfaskiptum við, enda vinfastur. Enn eru þó ótaldir símavinirnir. Hann gerði talsvert af því að hringja í fólk og hafa uppi skemmtilegt skraf, eins og honum var eiginlegt. Oft voru þetta einbú- ar, sem endurguldu hringingarnar í sömu mynt. Til voru þeir nágrann- ar, sem Hjörleifúr talaði við dag hvern. Slíkt er ómetanlegt, einkum einbúa. Vonandi tekur einhver þann þráð upp gagnvart þeim sem eftir eru. Fjarri fór að Hjörleifur væri mað- ur flatneskjunnar. Hann var sannur íslendingur, sonur fjalls og dals, sveitar og bæjar. Allt íslenskt var honum hugleikið. Án efa orti hann talsvert og skrifaði nokkuð, m.a. ágætar greinar í Skagfirðingabók. Um langt skeið átti hann sæti í stjórn Sögufélags Skagfirðinga, í stjórn Skógræktaríélags Skagfirð- inga og í barnavemdarnefnd ásamt fleiru. Fjölmiðlar sýndu Hjörleifi þann verðuga sóma að taka við hann við- töl. Ómar Ragnarsson hafði um hann sjónvarpsþátt, sem var vin- sæll. Áður hafði Ríkisútvarpið tekið viðtal. Elín Pálmadóttir kom til hans í sumar og tók ágætt viðtal fyrir Morgunblaðið. í þessum þátt- um kom m.a. skýrt fram frásagnar- hæfileiki Hjörleifs og meðferð á ís- lenskri tungu. Ellefú ára fluttist Hjörleifur frá foreldrum sínum, að Gilsbakka í Austurdal. Þá bjó þar og lengi síð- an, Hjörleifur skáld Jónsson, fóst- urbróðir Aldísar móður sveinsins Hjörleifs. Úr því að Hjörleifur gekk ekki menntaveginn, held ég að þetta hafi verið gæfa fyrir þá nafna. Þeir urðu strax mjög samrýndir, og mun Hjörleifur eldri hafa komið nafna sínum vel á sporið í braglist- inni. f þá daga og lengi síðan var hárréttum stöðum. Eftir Garðar liggur mikið starí í Nesi. Hann byggði upp hús og girðingar og braut mikið Iand til ræktunar. í Nesi Iærðum við að vinna. Við minnumst Garðars sem hins ró- lynda verkstjóra, sem Ieyfði ungum mönnum að ganga til flestra verka, en leiðbeindi og gætti þess vel að vinnan bitnaði ekki á óhörðnuðum bökum. Þegar stungið var út úr fjár- húsunum á vorin, fylgdist Garðar grannt með því að hnausarnir yrðu ekki of stórir. Garðar hafði gaman af því að setja saman vísur, þótt hann hefði ekki hátt um það. Jafnan var stutt í glettnina og ósjaldan flugu brandar- ar við vinnuna. Hann var hress að eðlisfari og léttur í skapi. Þau hjónin voru góðir félagar þeirra stráka, sem mannmargt á Gilsbakka, glaðværð í heimili og hafðar uppi orðræður um skáldskap og þjóðfræði. Þá voru þar til heimilis, eða viðurloða, bræðumir Sveinn, afi Hjörleifs yngra, og Brynjólfur Eiríkssynir frá Skatastöðum. Báðir greindir fróð- leiksmenn og stálminnugir. Eftir fráfall Hjörleifs Jónssonar fór svo sem víðar, að Hjörleifur varð einn á Gilsbakka. Þetta var hans staður, vígvöllur og urtagarður — helgur reitur. Þar annaðist hann bú sitt, húsdýr og skóg, Iauk heyskap í sumar og vék ekki af verðinum fyrr en fársjúkur hálfúm mánuði eða mest þrem vikum áður en hann lést á Borgarspítala 1. október. Vinsældirnar brugðust honum ekki á sjúkrahúsinu fremur en fyrr. Von bráðar var þessi sérstæði mað- ur, sonur dalsins og skagfirski höfð- ingi orðinn kunnur um allt sjúkra- húsið, hafði uppi sína hefðbundnu gamansemi og eignaðist vini meðal hjúkrunarfólks. Til hans var nær stöðugur straumur vina og kunn- ingja til síðustu stundar. Þeirra á meðal var Snorri Ingimarsson læknir, sem vitjaði hans dag hvem, þó hann vinni á öðm sjúkrahúsi. Það fór í hönd kaldur vetur, þegar Hjörleifur Kristinsson kom í þenn- an heim. Það var hlýr og fagur dag- ur, þegar hann lagði af stað til landsins ókunna. Eg vona og bið heilshugar að nú fari í hönd bjart sumar í þeim urtagarði þar sem hann nemur land. Við hér í fá- mennu samfélagi höfum misst mikið og fullyrði ég, að allir sakna hans mjög og óska góðrar ferðar á fund frændgarðs og nýrra vina. Ég og fjölskylda mín þökkum Hjörleifi langa samfylgd og vináttu og ósk- um honum giftu og blessunar í faðmi þess alheimsmáttar, sem við vissum báðir að er, en ekki hvernig. í Jesú nafni. Guðmundur L. Friðfínnsson voru hjá þeim í sveit, og oft var glatt á hjalla við spil á kvöldin. Enda héldu margir tryggð við þau á full- orðinsárum. Sérstaklega viljum við minnast á Rabba, sem aðstoðaði þau mikið eftir að heilsu Garðars tók að hraka. Garðar og Jóhanna voru höfðingleg heim að sækja. Eftir að sveitavist- inni lauk eigum við margar góðar minningar frá heimsóknum með fjölskyldum okkar til þeirra hjóna. Ákureyri verður í okkar augum tóm- leg í framtíðinni, en minningin lifir áfram. Síðustu æviárin hallaði undan fæti. Heilsunni hrakaði og síðustu mán- uðina dvaldi Garðar á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri. Þrátt fyrir að á móti blési undir lokin, slokkn- aði seint von um betri tíma. Eftir að Kveftja frá bamavemdarnefnd Akrahrepps Okkur langar að minnast góðs og gáfaðs manns, sem var tilbúinn að gera gott úr mistökum annarra og leysa málin á farsælan hátt, en það gerði sá sem hér er minnst, Hjör- leifúr Kristinsson, bóndi og mikill fræðari á Gilsbakka í Austurdal á Kjálka, eins og allir nefna í daglegu tali. Hann kvaddi þennan heim sáttur við allt og alla þann 1. október á fal- legum haustdegi um hádegisbil eft- ir stutta en stranga legu á Borgar- spítalanum. Hann var formaður barnavemdar- nefndar Akrahrepps frá upphafi, en ýmsir hafa farið úr nefndinni og aðrir komið í staðinn. Það var mjög gaman að starfa með Hjörleifi. Hann var póstur á Kjálka um ára- bil og gjörþekkti því allt fólkið þar á bæjunum, sem reyndist honum vel ef á þurfti að halda, en Hjörleifúr giftist aldrei og eignaðist ekki börn. Hann var mjög bamgóður og hafði gaman af að fylgjast með uppvexti þeirra og þroska. Áður en lögleitt var framhaldsnám eftir bamaskólanámið fékk hann leyfi til þess að hafa unglinga- fræðslu einn vetur fyrir þá sem áhuga höfðu á frekara námi. Nemendur hans bera honum allir vel söguna og einn þeirra hefur lát- ið svo ummælt að Hjörleifur hefði, að öðrum kennurum ólöstuðum, verið einn af sínum bestu kennur- um um ævina. Sá maður lét þó ekki staðar numið eftir unglingafræðsl- una heldur gekk áfram menntaveg- inn bæði innanlands og erlendis. Hjörleifúr las mikið og var að mestu leyti sjálfmenntaður. Hann var svo lifandi og skondinn og féll mjög vel að umgangast ung- linga. Hann lét aldrei minnimáttar finna til smæðar sinnar, heldur stuðlaði að því að ná því besta fram hjá öllum. Það var mjög gaman að ferðast með Hjörleifi, sem var árviss við- burður í mörg ár á meðan hægt var að kalla heimili barnaheimili í sveit; þau heyra nú fortíðinni til hér og dóu alveg út þegar skóladag- heimilið á Egilsá var lagt niður s.l. vor. Hjörleifur kunni skil á svo mörgu, hann þekkti flestar stein-, trjá- og blómategundir og auk alls, sem ég hefi minnst á, var hann vel hagmæltur. Seinustu árin var hann orðinn einn á Gilsbakka, en þar bjó Hjör- leifur nafni hans Jónsson og hans böm. En ég læt þetta nægja, það eru aðrir til frásagnar um ættir hans og uppruna. Við söknum hans öll, það er mikill missir að svona sérstæðum mönn- um sem honum. Hann var sann- kallaður mannvinur, enda átti hann marga vini. Far þú í friði og við þökkum þér fyrir allt, fyrr og síðar. Sveitin er nú fátækari eftir að þú burtu kallaðist. Kveðja frá Unni, Ástu og Önnu sjúkdómar bundu hann við hjólastól stóð hugur hans til æfinga og göngu á ný. Með Garðari er góður drengur genginn, en eftirlifandi eiginkonu og öðrum ættingjum vottum við dýpstu samúð okkar. Snorri Ingimarsson Guðni Ingimarsson Garðar Hvítfeld Jóhannesson bóndi í Nesi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.