Tíminn - 13.10.1992, Blaðsíða 12

Tíminn - 13.10.1992, Blaðsíða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 Áskriftarsími Tímans er 686300 KERRUVAGNAR OG KERRUR Bamaiþróttagallar á frábæru verði. Umboðssala á notuðum bamavörum. Sendum I póstkröfu um land alltl BARKABÆR, Ármúla 34 Slmar: 685626 og 689711. VERIÐ VELKOMIN! Bilasala Kópavogs Smiöjuvegi 1, 200 Kópavogi Vantar nýlega bíla. Mjög mikil eftirspurn. VERIÐ VELKOMIN Ií lllillll ÞRIÐJUDAGUR13. OKTÓBER1992 í Ijósi þess alvarlega ástands sem er I efnahagsmálum og atvinnulifi þjóöarinnar hefur Alþýöubanda- lagiö lagt fram tillögur um aö skapa ný störf og auka verðmætasköpun um leið og lögð er áhersla á stööugieika og jafnvægi I efnahagslífinu. Á myndinni eru f.v. Steingrímur J. Sigfússon, Óiafur Ragn- ar Grímsson og Ragnar Arnalds. Tímamynd Ami Bjama Alþýðubandalagið boðar nýjar leiðir í efnahags- og atvinnumálum sem geta skapað 1200-1800 ný störf á einu ári: Leið samhæfingar og samvinnu Alþýðubandalagið hefur lagt fram tillögur í efnahags- og atvinnu- málum sem miða að því að skapa 1200-1800 ný störf á átta til tólf mánaða tímabili. Jafnframt hefur formaður flokksins lagt fram ítar- legan umræðugrundvöll um hinar nýju tillögur. Þá hefur Alþýðubandalagið óskað eftir viðræðum við forystumenn allra flokka sem eiga fulltrúa á Al- þingi, samtök launafólks og at- vinnulífs og aðra um nauðsynlegar aðgerðir í efnahags- og atvinnu- málum og nýja stjórnarstefnu. Allt þetta miðar að því að skapa víð- tæka samstöðu um aðgerðir sem duga til að forða þjóðinni frá vax- andi atvinnuleysi jafnframt því sem stöðugleiki í efnahagslífinu sé festur í sessi. Tillögur flokksins í efnahagsmál- um og atvinnulífi voru kynntar á blaðamannafundi í gær í húsa- kynnum verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Markmiö tillagnanna er að skapa samstöðu um nýjan grundvöll í hagstjórninni sem er leið samhæfingar og samvinnu í áframhaldandi stöðugleika í stað núverandi stjórnarstefnu sem sækir sína fyrirmynd til Bandaríkj- anna og Bretlands og er þekktust hérlendis undir heitinu „kemur mér ekki við“. Meðal þeirra tillagna sem Alþýðu- bandalagið leggur til er ný at- vinnuþróunarstefna sem miðar að því að bæta almenn rekstrarskil- yrði atvinnulífsins, s.s. með lækk- un vaxta, stöðugleika í verðlags- málum, bættri samkeppnisaðstöðu og aðgerðum til að örva atvinnu- starfsemi, s.s. með auknum fjár- festingum ríkis og sveitarfélaga og aðstöðugjaldið verði afnumið. Þessar aðgerðir verða síðan fjár- magnaðar með hátekjuskatti og fjármagnsskatti auk þess sem reynt verður að ná samkomulagi um lítt breytt almennt launastig í landinu. Stöðugleiki efnahagslífsins verð- ur tryggður með því að halli ríkis- sjóös verði ekki aukinn þótt að- gerðirnar kunni að auka eitthvað á viðskiptahallann tímabundið. Þá er lagt til að aðgerðir í skattamál- um verði samræmdar, ráðist verði í margs konar opinberar fram- kvæmdir, sjávarútvegurinn verði endurskipulagður, iðnaður og þjónusta verði efld, stuðlað verði að arðbærri þróun í matvælafram- leiðslu og uppstokkun verði í banka- og sjóðakerfinu svo nokkuð sé nefnt af þeim tillögum sem Al- þýðubandalagið hefur lagt fram til sóknar í efnahags- og atvinnulífi landsmanna. -grh Barnsrán og tilraun til nauðgunar 21 árs gamall maður rændi 7 ára gamalli stúlku og gerði tilraun til að koma fram vilja sínum við hana um síðustu helgi. Lögreglunni tókst með snarræði að koma í veg fyrir verknaðinn. Maðurinn var á leið heim til sín úr miðbænum er hann braust inn í hús eitt í Suðurhlíð. Þar hugðist hann að eigin sögn leita að peningum. Stúlkan svaf í herbergi sínu á jarð- hæð hússins en foreldramir voru í svefnhergergi á þriðju hæð. Þeir vöknuðu við hljóð frá barninu. Ódæðismaðurinn hafði kynferðis- lega tilburði við barnið en lagði á flótta er hann heyrði til foreldra bamsins. Allt tiltækt lögreglulið var kallað út og fannst ódæðismaðurinn með stúlkuna í Fossvogskirkjugarðinum eftir 45 mínútna leit. Hann mun hafa veitt stúlkunni líkamlega áverka en ekki tekist að misþyrma henni kynferðislega. Maðurinn hef- ur oft komið við sögu lögreglunnar áður og hlotið marga fangelsis- dóma. -HÞ Lára Halla kærir ummæli landlæknis Lára Halla Maack hefur kært um- mæli landlæknis í sinn garð til siðanefndar lækna. Þetta kemur fram í bréfi sem Lára sendi m.a. landlækni, stjórn Lækna- félags íslands og Siðanefnd þess. í bréfinu segir: „Ég hafna vítum emb- ættisins sem algjörlega ástæðulaus- um. Ummæli mín í sjónvarpsþætti Eiríks Jónssonar þann 8. október voru blákaldar staðreyndir. Ég hef kært ummæli yðar í minn garð til siðanefndar Læknafélagsins þar sem ég tel landlækni haf misbeitt valdi sínu gagnvart mér.“ -HÞ Vinningstölur laugardaginn rö)(S) 10. okt 1992 (15) "^28)^34) faf) i VINNINGAR FJOLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ A HVERN VINNINGSHAFA 1. 5al5 2 1.310.636 2. 4al58 r ^ 227.809 3. 4al5 105 7.485 4. 3af 5 3.411 537 Heildarvinningsupphæð þessa viku: kr. 5.694.522 upplysingarsímsvari91-681511 LUKKULÍNA991002J ...ERLENDAR FRÉTTIR... WASHINGTON: Bush slappastur Greinilegt er að Bush forseti stóö sig slst þremenninganna er keppa um forsetaembaettiö I fyrstu sjónvarp- skappræöulotunni af þrem I fyrra- kvöld. Honum heppnaöist ekki aö tala til hjarta áheyrenda og veröur aö snúa viö blaðinu eigi hann aö vinna kosningamar sem fram fara f næsta mánuöi. Óháöa frambjóöandanum Ross Perot og frambjóöanda demó- krata Bill Clinton tókst mun betur upp aö þvl er skoöanakannanir sýna. PEKING: Aftur bylting Kommúnistaflokkur Klna sem þessa dagana heldur fyrsta flokksþing sitt eftir hrun Sovétrlkjanna hét aö nýta sér „töfravopn" kapitalismans til þess aö halda áfram völdunum yfir þeim 1,1 milljaröi manna sem byggir Klna- veldi. Jiang Zemin, aöalritari flokks- ins, sagöi I ræöu slnni: „Viö getum meö sanni sagt aö viö höfum hafiö nýja byltingu.* STOKKHÓLMUR: Tveir kanar fá Nóbel í læknisfræði Tveir bandarlskir llfefnafræöingar hlutu Nóbelsverölaunin I læknisfræöi I gær. Verölaunin hiutu þeir fyrir rann- sóknir á eggjahvituefnum I fmmum mannslikamans, sem geta oröiö áfangi í leitinni aö lyfi gegn krabba- meini. Verölaunahafamir eru Edwin Krebs, 74 ára, og Edmond Fischer, 72 ára. Verölaunaféö nemur 6,5 millj- ónum sænskra króna. MOSKVA: Skotið á Græn- friðunga Rússneskt varöskip skaut þrem skotum yfir stafninn á skipi Green- peace-samtakanna í gær og her- menn komu um borö i skipiö. Skip samtakanna var aö kanna geisla- mengun I hafinu að sögn talsmanns Greenpeace. Rússar kváöu skipiö hafa fariö inn I rússneska landhelgi I heimildarleysi. LUANDA: Unita og MPLA takast á Hermenn og lögregla hafa komiö upp vegatálmum vlöa á götum höfuö- borg Angóla, Luanda. Fjöldi fólks heldur sig stöðugt innandyra af ótta viö aö skotbardagar sem I borginni uröu á sunnudag séu fyrirboöi um nýtt borgarastrfö. Óeiröalögregla baröist viö vopnaöa liösmenn UNITA samtakanna sem segja MPLA-flokk- inn hafa viðhaft svik I kosningunum I landinu fyrir skömmu. KAÍRÓ: Jarðskjálfti í Egyptalandi Jaröskjálfti skók Kairó I gærdag og hristust stórhýsi í miöborginni tals- vert. Rykský myndaöist yfir borginni sem 12 milljónir manna byggja, en ekki var vitaö til aö verulegt tjón eöa dauösföll heföu átt sér staö. Skjálftinn varöi I um þrjár mínútur og flykktist fólk út á götumar. Skjálftans varö vart á stóru svæöi viö Miöjarðarhafsbotn allt til israels. LONDON: Sprengja sprakk á bjórstofu Um hádegisbil i gær sprakk sprengja á bar I miöborg Lundúna. Minnst fjórir særðust og þar af einn alvarlega. Lögreglan kannar máliö en sprengingin varð á Sussex- bjórstof- unni sem er á Govent Garden- svæö- inu. Þar er fjöldi veitingastaöa og leik- húsa. DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.