Tíminn - 16.10.1992, Qupperneq 1
Föstudagur
16. október 1992
179.tbl.76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Magnús Gunnarsson, formaður VSÍ, segir að ríkisstjórnin verði að taka allt fjárlagafrum-
varpið upp að nýju:
„Ríkisstjórnin verður aó
vinna sína fjárlagavinnu“
„Að mínu mati þarf rfldsstjórnin að fara í sína fjárlagagerð. Það duga ekk-
ert að koma fram með 6 milljarða halla, heldur verða menn að taka þetta upp
allt saman á nýjan leik,“ sagði Magnús Gunnarsson, formaður Vinnuveit-
endasambands Islands, um fjárlagafrumvarp rfldsstjóraarinnar.
„Ég er þeirrar skoðunar að ef nið-
urstaða fjárlaga er núna sex millj-
arðar þá megi gera ráð fyrir að í
meðhöndlun þingsins fari þetta upp
í 9-10 milljarða. Það er niðurstaða
sem gerir allt annað en að styrkja þá
stefnu stjórnarinnar að efla stöðug-
leika og halda genginu stöðugu.
Þarna er um að ræða vandamál sem
grefur undan því sem verið er að
gera. Stjórnmálamennirnir og þeir
sem reka ríkiskerfið þurfa að gera
sömu kröfur til sjálfs sín og þeir eru
að gera til allra annarra. Þeir verða
að taka til hjá sér og auka spamað
og hagræðingu," sagði Magnús.
Magnús og aðrir forystumenn á
vinnumarkaði hafa síðustu daga
fundað stíft um leiðir til að draga úr
hallarekstri fyrirtækja og draga úr
atvinnuleysi. Umræðan hefur öðr-
um þræði farið fram á vettvangi at-
vinnumálanefndar ríkisstjómarinn-
ar. Þær hugmyndir sem hafa verið
ræddar ganga út á að styrkja gengið
með því að lækka kostnað atvinnu-
Olía hækkar um
mánaðamót
Líkur eru á að olía og bensín hækki
um næstu mánaðamót. Ástæðan er
að dollarinn hefur hækkað á fáum
vikum úr 52 krónum í 56 krónur,
en öll olíuviðskipti eiga sér stað í
dollurum. Verð á olíu og bensíni
hefur auk þess þokast eilítið upp
síðustu daga, en þar kenna menn
um árstíðabundnum sveiflum á ol-
íuverði.
Geir Magnússon, forstjóri Olíufé-
lagsins, sagðist ekki treysta sér til að
segja til um hvað hækkunin verði
mikil. Menn muni skoða málin fram
að mánaðamótum og sjá hvað doll-
arinn gerir, en gengi hans hefur ver-
ið mjög óreglulegt síðustu misseri.
Síðustu vikur hefur hann hins vegar
hækkað það mikið að óhjákvæmi-
Iegt virðist vera að hækka olíuverð.
Geir sagði að samningar við sjó-
menn gerðu ráð fyrir að breytingar á
olíuverði komi til framkvæmda um
mánaðamót. Hann sagðist gera ráð
80% hjúkrunar-
fræöinga sam-
þykkja uppsögn
Um 80% hjúkrunarfræðinga á Lands-
spítalanum eru hlynntir uppsögn til að
knýja á um kjarabætur. Þetta kemur
fram í könnun sem framkvæmd var á
spítalanum. Hjúkrunarfræðingar hafa
verið án kjarasamnings í tæpt ár. Auður
Guðjónsdóttir er talsmaður hjúkrunar-
fræðinganna. Hún segir að að þessi
könnun sé forsenda þess að hægt sé að
beita uppsögnum. Hún segir mikla
óánægju ríkja með kjör stéttarinnar á
spítalanum og fólk sé að kikna undan
miklu vinnuálagi og lélegum launum.
„Það er samt enginn sem segir að við
munum fara þessa leið. Við vorum
bara að kanna hug fólksins. -HÞ
fyrir að breyting á bensínverði verði
látin taka gildi á sama tíma. Síðast
breyttist verð á bensíni og olíu um
mánaðamótin ágúst september o;
þá var um lækkun að ræða. -E1
lífsins. Menn eru í stuttu máli að
finna leiðir til að komast hjá gengis-
fellingu. Algjör óvissa ríkir um
hvort þessar hugmyndir njóta ein-
hvers stuðnings hjá ríkisstjórninni.
Einn heimildarmanna Tímans sagði
að vandamálið yrði ekki að ná sam-
stöðu í atvinnumálanefndinni um
tillögur. Vandamálið yrði að sann-
færa ríkisstjórna um ágæti þeirra.
Talsmenn sjávarútvegsins hafa
undanfarið þrýst á ríkisstjórnina að
grípa til aðgerða til að draga úr
hallarekstri sjávarútvegsfyrirtækja.
Þeir gengu m.a. á fund Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra í fyrradag.
Enginn niðurstaða varð á fundin-
um. Forystumenn í sjávarútvegi ótt-
ast að forsætisráðherra ætli að halda
fast við að gera ekki neitt og fara
svokallaða gjaldþrotaleið. Tíminn
hefur heimildir fyrir því að Magnús
Gunnarsson hafi sagt við forsætis-
ráðherra að ef ekki yrði breyting á
afstöðu hans til sjávarútvegs þá
myndi hann segja af sér sem for-
maður tvíhöfðanefndarinnar sem
vinnur að endurskoðun fiskveiði-
stefnunnar og hætta í atvinnumála-
nefnd ríkisstjórnarinnar. Magnús
segir þennan orðróm tilhæfulausan.
-EÓ
Sjá nánar blaðsíðu 3.
Magnús Gunnarsson, formaöur VSÍ, neitar því aö hafa hótaö for-
sætisráöherra aö hætta í tveimur af lykilnefndum ríkisstjómarinn-
ar.
Nýleg könnun sýnir að samdrátturinn í íslenskum iðnaði á þessu ári er um 6%:
Störfum í iðnaði hefur
fækkað um 800-1000 í ár
í nýlegri könnun sem Félag íslenskra iðnrekenda og Landssamband
iðnaðarmanna hafa gert kemur fram að samdrátturinn í íslenskum
iðnaði er mun meiri en áætlað var um mitt þetta ár. Samdrátturinn er
6%, en reiknað var með 2% samdrætti. Þetta þýðir að 800-1000
manns hafa misst vinnu í iðnaði á fyrstu 10 mánuðum ársins. Sveinn
Hannesson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda, segir að
reikna megi með áframhaldandi samdrætti á næsta ári.
Könnunin náði til um 100 fyrir-
tækja með um 4300 starfsmenn.
Samdrátturinn er misjafn eftir
grein. Mestur er samdrátturinn í
málm- og skipasmíðaiðnaði, yfir
10%. Samdrátturinn er einnig
mjög mikill hjá steypustöðvum.
Sveinn sagði að kenna mætti al-
mennum samdrætti í efnahagslíf-
inu um þessa neikvæðu þróun.
Neyslan í þjóðfélaginu hafi dregist
mikið saman.
Neikvæð þróun í íslenskum iðnaði
er því miður ekki bundin við þetta
eina ár. Félagsmönnum í Iðju, félagi
verksmiðjufólks, hefur á fáum ár-
um fækkað úr yfir 3.000 í um 2.200.
Um 4% félagsmanna eru nú á at-
vinnuleysisskrá, eða um 100
manns. Guðmundur Þ. Jónsson,
formaður Iðju, sagði að skýringin á
þessari þróun væri m.a. áföll í fata-
og ullariðnaði, en hann hefði snar-
minnkað á fáum árum. Guðmund-
ur sagði að í dag væru um 100
manns atvinnulausir hjá Iðju sem
er um 4% félagsmanna. Guðmund-
ur sagði að vonir manna um að ís-
lenskur iðnaður myndi eflast við
inngöngu íslands inn í EFTA hafi
brugðist.
Hann sagði að í ljósi reynslunnar ef-
ist hann um að ÉES sé það lausnar-
orð fyrir íslenskan iðnað sem sumir
vilji halda. Guðmundur sagði að við
verðum að treysta á okkur sjálfa
m.a. með því að kaupa íslenskar
vörur.
„Iðnaðurinn hefur haldið nokkuð
sínum hlut í þjóðarframleiðslunni.
Okkur finnst það ekki slæmt miðað
við að sjávarútvegurinn hefur bætt
miklu við sig. Iðnaðurinn hefur
ekki fengið landhelgisútfærslu. Sú
aukning í útflutningsiðnaði sem
vonast var eftir við inngönguna í
EFTA hefur ekki skilað sér. Við sem
störfum í iðnaði höfum kennt því
um að menn hafi aldrei klárað
heimavinnuna sína þegar við geng-
um í EFTA, en að við séum að klára
hana núna þegar við göngum í EES.
Þegar við göngum í EES þá eru það
fleiri en iðnaðurinn sem kalla á
bætta samkeppnisaðstöðu. Nú fer
þjónustan og raunar allt atvinnulíf-
ið í samkeppni við erlenda fram-
leiðslu.
Menn eru að spyrja hvort við í iðn-
aðinum séu virkilega svona galnir
að vilja meiri samkeppni. Iðnaður-
inn er búinn að lifa í óheftri sam-
keppni við erlendan iðnað í yfir 10
ár. EES breytir þar engu, en við
vonum að með ÉES-samningnum
verði gengið í það að bæta sam-
keppnisstöðu íslensks atvinnulífs,
eins og raunar hefði þurft að vera
búið að gera fyrir löngu,“ sagði
Sveinn Hannesson. -EÓ
Oll EES-frumvörpin eru enn í
þingnefndum eða hafa ekki bor-
ist Alþingi:
Enn vantar 35
EES-frumvörp
Enn hafa 35 frumvörp, sem tengjast
samningnum um Evrópskt efhahags-
svæði, ekki verið lögð fram á Alþingi
og ekkert frumvarp tengt EES hefur
verið afgreitt úr þingnefnd. Guðrún
Helgadóttir alþingismaður vakti at-
hygli á þessu á Alþingi í gær. Hún
sagði útilokað að hægt verði að standa
við áætlun um að afgreiða EES-samn-
inginn og frumvörp sem tengjast hon-
um fyrir nóvemberlok. Salome Þor-
kelsdóttir, forseti Alþingis, sagði að
enn sem komið væri hefði engin
ákvörðun verið tekin um að kvika frá
starfsáætlun þingsins. Þetta mál yrði
hins vegar rætt á fundi forsætisnefnd-
ar Alþingis með formönnum þing-
flokka í byrjun næstu viku. -EO
Ársþing ÍSÍ:
Haldiö í
Ráöhúsinu
Um aðra helgi verður haldið ársþing
íþróttasambands íslands, sem að
venju er fjölmennt, en þingið mun að
þessu sinni verða haldið í Ráðhúsinu í
Reykjavík. Þetta mun vera fyrsti at-
burður sinnar tegundar sem fram fer í
Ráðhúsi Reykvíkinga. -PS