Fréttablaðið - 28.02.2009, Qupperneq 2
2 28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
Guðrún, hvað segði Kormákur
afi nú?
„Hann mundi ábyggilega lemja
manninn.“
Norðmaðurinn Svein Harald Øygard er
settur seðlabankastjóri. Guðrún Helga-
dóttir er höfundur bókanna um Jón Odd
og Jón Bjarna, en Kormáki, afa drengj-
anna, var afar uppsigað við Norðmenn.
STJÓRNSÝSLA Grundvallarmunur
er á því að setja mann í embætti
og að skipa hann í það. Í bráða-
birgðaákvæði í nýjum lögum um
breytingar á lögum um Seðlabank-
ann er sérregla sem heimilar setn-
ingu, þar sem vikið er frá ákvæði
starfsmannalaga um íslensk-
an ríkisborgararétt, segir Björg
Thorarensen, prófessor við laga-
deild Háskóla Íslands.
Setning útlendings í embætti
seðlabankastjóra stangist því ekki
á við stjórnarskrá.
„Ég sé ekkert því til fyrirstöðu
að slíkar sérreglur séu settar sér-
staklega um tímabundna setningu
seðlabankastjóra,“ segir Björg.
Enda skuli embættið auglýst svo
fljótt sem við verði komið. Í blað-
inu í gær sagðist Sigurður Líndal
lögfræðiprófessor ekki sjá í fljótu
bragði að grundvallarmunur væri
á setningu og skipun seðlabanka-
stjóra. Bæði orðin þýði tímabundna
ráðningu í starf hjá hinu opin-
bera, þó skipun sé til lengri tíma
en setning. Í stjórnarskrá segir að
einungis fólk með íslenskan ríkis-
borgararétt megi skipa sem emb-
ættismenn.
Björg bendir á að í lögum um
réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins sé tekið fram að forfallist
maður sem skipaður hefur verið í
embætti, geti stjórnvald sett annan
mann til að gegna því um stundar-
sakir. - kóþ
Björg Thorarensen og forsætisráðuneytið um nýjan seðlabankastjóra:
Setning stenst stjórnarskrá
BJÖRG THORARENSEN Er sérfræðingur
í stjórnarskránni og var stjórnvöldum
innan handar þegar lögin voru samin.
HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðisstofn-
anir þurfa að taka yfirdráttarlán
í bönkum til að borga fyrir nauð-
synjar. Slík lán-
taka er bönn-
uð samkvæmt
reglum fjár-
málaráðuneyt-
isins. Dæmi eru
um tugmilljóna
króna lán ein-
stakra stofn-
ana og vextir
skipta milljón-
um á ársgrund-
velli. Ríkisendurskoðun gagnrýnir
heilbrigðisyfirvöld fyrir að leyfa
lántökunni að viðgangast. Ráðu-
neytisstjóri heilbrigðisráðuneyt-
isins vísar á yfirmenn stofnana
sem hún segir að verði að starfa
innan fjárlaga.
Ríkisendurskoðun gagnrýnir
í nýrri stjórnsýsluúttekt á Heil-
brigðisstofnun Austurlands (HSA)
að ríkisstofnanir fjármagni rekst-
ur sinn með yfirdráttarlánum. Slík
lántaka hefur viðgengist lengi og
hefur stofnunin áður bent á að
með öllu sé óviðunandi að þær
sjái sér ekki aðra leið færa en að
fjármagna rekstur sinn á þennan
hátt „og greiði jafnvel milljónir
króna í yfirdráttarvexti til banka í
stað þess að nýta það fé til að fjár-
magna þjónustu“, eins og segir í
skýrslunni.
„Stjórnvöld verða að leita leiða
til að breyta þessu“, segir þar jafn-
framt. Ríkisendurskoðun hefur
upplýsingar um að þó nokkrar
heilbrigðisstofnanir hafi fjár-
magnað sig með yfirdráttarlánum
en heildaryfirlit liggur ekki fyrir
hjá þeim.
Einar Rafn Haraldsson, forstjóri
HSA, segir að í raun hafi stofnun-
in verið í greiðsluþroti allt árið
2008. „Við vorum að borga raf-
magn, hita og lyf með yfirdráttar-
lánum. Reksturinn var með þeim
hætti í fyrra að frá því í febrú-
ar vorum við í greiðsluþroti. Um
áramótin skulduðum við um 200
milljónir hjá birgjum og þá stóð
yfirdráttarlánið í 90 milljónum
króna. „Einar giskar á að HSA hafi
borgað um 30 milljónir í yfirdrátt-
arvexti af láninu. Hann bendir á
að skynsamlegt væri að ríkisstofn-
anir gætu fjármagnað rekstur sinn
með innri lánum þegar í óefni er
komið í staðinn fyrir að þurfa að
leita á náðir banka. „Þetta gengur
ekki svona, þetta er sóun á fé.“
Berglind Ásgeirsdóttir, ráðu-
neytisstjóri heilbrigðisráðuneyt-
isins, segir að þau skilaboð hafi
verið látin út ganga til stjórnenda
heilbrigðisstofnana að óheimilt sé
að taka yfirdráttarlán. Hvað gagn-
rýni Ríkisendurskoðunar varðar
segir Berglind að ráðuneytið hafi
ekki mannskap til að aðstoða ein-
stakar stofnanir beint til að ná
markmiðum í rekstri.
Hvort einhver millileið sé mögu-
leg, eins og Einar leggur til, segir
Berglind að eins og staðan sé núna
þá hafi ráðuneytin ekki sjóði til að
bregðast við vanda einstakra stofn-
ana með þeim hætti.
svavar@frettabladid.is
Spítalar fjármagna
sig með yfirdrætti
Heilbrigðisstofnanir þurfa að taka tugmilljóna yfirdráttarlán til að borga reikn-
inga. Ríkisendurskoðun gagnrýnir að slík lántaka sé látin viðgangast. Milljónir
fara í vexti. Örþrifaráð til að borga rafmagn og lyf, segja stjórnendur.
ST. JÓSEPSSPÍTALI Yfirdráttarlán stofnunarinnar hafa verið 20 til 50 milljónir á hverj-
um tíma, að sögn fjármálastjóra. Um örþrifaráð er að ræða að hans sögn.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EINAR RAFN
HARALDSSON
REYKJAVÍK Ríkisstjórn Samfylk-
ingar og Vinstri grænna býr að
mestu á sömu torfunni, segir í
síðasta Vesturbæjarblaði.
Þar er rakið að af tíu ráðherr-
um búi átta í Vesturbænum, frá
Högunum og að Garðastræti.
Einn þessara átta búi reyndar á
Seltjarnarnesi, en hann fær þó að
fljóta með. Þá búi einn í Breið-
holti og annar í Kópavogi, en þeir
tveir eigi lögheimili sitt á lands-
byggðinni.
Einnig kemur fram í blaðinu að
meðalaldur ráðherranna sé 52 ár,
yngstur er 33 ára menntamála-
ráðherra og elstur 66 ára forsæt-
isráðherra. - kóþ
Stjórn Samfylkingar og VG:
Átta ráðherrar
af tíu í Vesturbæ
SVÍÞJÓÐ, AP Brennuvargar, sem
grunur leikur á að séu vinstri
öfgamenn sem telja sig vera í
stríði gegn meintri heimsvalda-
stefnu Bandaríkjanna, kveiktu í
fjórum stórmörkuðum í Söder-
tälje suður af Stokkhólmi í
fyrrinótt. Þrír þeirra brunnu til
kaldra kola.
Kia Samrell, talsmaður lög-
reglunnar, sagði enga grunaða
í sigtinu enn sem komið væri,
en verið væri að rannsaka hvort
andbandarískur öfgahópur hefði
verið að verki. Samtökin „Global
intifada“ hafa áður lýst ábyrgð á
minni eldum sem kveiktir hafa
verið í verslunum í Södertälje og
hvatt fólk til að kveikja í búðum
sem selja bandarískar vörur. - aa
Brennuvargar í Svíþjóð:
Öfgahópur er
grunaður
EYÐILEGGING Einn stórmarkaðanna
þriggja sem brunnu. Tímastilltar eld-
sprengjur komu eldunum af stað. Þann
fjórða tókst að slökkva. NORDICPHOTOS/AFP
Við vorum að borga
rafmagn, hita og lyf með
yfirdráttarlánum.
EINAR RAFN HARALDSSON
FORSTJÓRI HSA
FÓLK Samstaða, bandalag
grasrótarhópa, stendur fyrir Lýð-
veldisgöngu klukkan 14 í dag.
Gengið verður frá Hlemmi niður
að Austurvelli.
Í tilkynningu frá Samstöðu
segir að á Austurvelli taki við
ræðuhöld hjá Herði Torfasyni,
þar sem krafan sé; „Frystum
eignir auðmanna.“
Fólk er hvatt til að taka með
sér potta, pönnur, slagverk og
þeytilúðra. - kg
Bandalag grasrótarhópa:
Stendur fyrir
lýðveldisgöngu
STJÓRNMÁL Stjórn Íslandshreyf-
ingarinnar hefur samþykkt að
óska eftir því að hreyfingin ger-
ist aðildarfélag
Samfylkingar-
innar. Forystu-
men n hen n-
ar hvetja aðra
meðlimi til að
skrá sig í Sam-
fylkinguna og
leggja henni lið
í komandi kosn-
ingabaráttu.
Hvorki Ómar
Ragnarsson,
formaður Íslandshreyfingarinnar,
né varaformaðurinn Margrét
Sverrisdóttir, hyggjast sækjast
eftir þingsæti fyrir Samfylking-
una.
Ómar segir að Íslandshreyfingin
hafi átt viðræður við aðra flokka
og hreyfingar, meðal annars fyr-
irhugað framboð grasrótarhreyf-
inga, áður en þessi lending náðist.
Margrét segist um nokkurt skeið
hafa átt mjög gott samstarf við
borgarstjórnarflokk Samfylking-
arinnar. Það helsta sem hafi stað-
ið í vegi fyrir inngöngu hennar í
flokkinn hingað til hafi verið and-
staða hennar við Evrópusamband-
ið, en hún sé nú hlynnt aðildarvið-
ræðum.
Hún segir góðan hljómgrunn
fyrir ákvörðuninni meðal liðs-
manna Íslandshreyfingarinnar.
Hreyfingin hefur kynnt sig sem
grænan flokk og því er eðlilegt að
spyrja hvers vegna Vinstri græn
hafi ekki orðið fyrir valinu. Mar-
grét segir hreyfinguna einfaldlega
ekki eiga sömu pólitísku samleið
með Vinstri grænum og Samfylk-
ingunni. - sh
Forsprakkar Íslandshreyfingar ganga í Samfylkingu og hvetja aðra til þess sama:
Ómar og Margrét ekki í framboð
ÓMAR RAGNARSSON Segir hreyfinguna
hafa rætt við aðra flokka áður en þessi
lending náðist.
MARGRÉT
SVERRISDÓTTIR
LANDBÚNAÐUR Búnaðarþing, sem
sett verður á morgun og stendur
til miðvikudags, mun taka
afstöðu til mögulegrar aðildar
Íslands að Evrópusambandinu.
Í frétt á vef Bændasamtakanna
segir að ljóst sé að allur þorri
bænda leggist einarður gegn
aðild.
Rekstrarvandi landbúnaðarins
verður einnig til umræðu á þing-
inu en hann er sagður verulegur
nú um stundir.
Við setningu þingsins flytja
Haraldur Benediktsson, formað-
ur Bændasamtakanna, og Stein-
grímur J. Sigfússon, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra
ávörp. Þá mun Emma Eyþórsdótt-
ir dósent við Landbúnaðarháskól-
ann flytja hátíðarræðu. - bþs
Búnaðarþing hefst á morgun:
Evrópumál og
rekstrarvandi
efst á baugi
HOLLAND, AP Sérfræðingar lögreglu
unnu að því í gær að bera kennsl á
jarðneskar leifar þeirra sem fór-
ust með Boeing 737-farþegaþotu
tyrkneska flugfélagsins Turkish
Airlines við Schiphol-flugvöll í
Amsterdam á miðvikudag.
Níu manns týndu lífi af þeim
135 sem um borð voru í vélinni.
Fimm Tyrkir, þar á meðal
báðir flugmennirnir, og fjórir
Bandaríkjamenn dóu. Tveir
hinna síðarnefndu voru starfs-
menn Boeing-flugvélasmiðjunn-
ar. Á fimmtudag lágu enn þá 63 á
sjúkrahúsi, þar af sex í lífshættu.
Tugir réttarmeinafræðinga og
annarra sérfræðinga rannsóknar-
lögreglu og rannsóknarnefndar
flugslysa í Hollandi fínkembdu í
gær vettvang, þar sem brak vél-
arinnar liggur, í leit að vísbend-
ingum um orsök slyssins. - aa, kg
Flugslysið í Hollandi:
Leita vísbend-
inga um orsök
SPURNING DAGSINS