Fréttablaðið - 28.02.2009, Qupperneq 10
28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Nýr seðlabankastjóri
Verðdæmi miðast við gistingu á Cordial Green Golf í eina viku.
Verð á mann miðað við 2 fullorðna er 75.600 kr.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn. Verð miðast við að bókað sé á netinu.
Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega.
*
Sumarsól
2009
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Áfangastaðir Úrvals-Útsýnar í
sólina í sumar eru valdir af
kostgæfni og gististaðirnir uppfylla
allar gæðakröfur. Njóttu sumarfrísins á bestu kjörum
á góðum stað. Tenerife, Marmaris, Madeira,
Meloneras, þitt er valið.
Meloneras frá
á mann m iðað við 2 með 2 börn
í eina viku. Brottför 29. maí.*
Lágmúla 4 - 108 Reykjav
ík
Sími 585 4000 www.uu.
is
Svein Harald Øygard
er nýr seðlabankastjóri
og Arnór Sighvatsson
aðstoðarseðlabankastjóri.
Þeir voru í gær settir í
embætti til bráðabirgða.
Brýnustu verkefni Seðlabanka
Íslands nú snúa að styrkingu
krónunnar og endurskipulagn-
ingar bankakerfisins. Þetta
segir Norðmaðurinn Svein Har-
ald Øygard, nýr bankastjóri
Seðlabanka Íslands. „Þrátt fyrir
áfallið sem hér hefur riðið yfir
fjármálakerfið eru grunnstoð-
ir hagkerfisins styrkar,“ segir
hann, en kveður þó mikla vinnu
fyrir höndum.
Nýr bankastjóri og aðstoðar-
seðlabankastjóri, sem er Arnór
Sighvatsson, áður aðalhagfræð-
ingur bankans, hófu störf í gær
í samræmi við breytingar sem
gerðar voru á lögum um Seðla-
banka Íslands á fimmtudag.
Báðir eru tímabundið settir í
embætti af forsætisráðherra
meðan störfin eru auglýst.
Samkvæmt nýju seðlabanka-
lögunum kemur einn seðlabanka-
stjóri og einn aðstoðarseðla-
bankastjóri í stað bankastjórnar
sem skipuð var þremur banka-
stjórum. Ákvarðanir um beit-
ingu stjórntækja bankans í pen-
ingamálum verða svo teknar af
peningastefnunefnd, en stjórn
bankans að öðru leyti í höndum
seðlabankastjóra.
Svein Harald kvað í gær ekki
liggja fyrir til hversu langs tíma
hann væri ráðinn. „Ég er tilbú-
inn til að gegna starfinu jafn-
lengi og þörf krefur,“ sagði hann
á fundi með fjölmiðlum í gær-
morgun. Hann kvaðst ekki vilja
tjá sig um gjörðir forvera hans í
starfi, heldur horfa fram á veg-
inn. Hann sagði ekki tímabært
að tímasetja einstakar aðgerð-
ir svo sem varðandi afléttingu
Á KYNNINGU SEÐLABANKANS Í GÆR Arnór Sighvatsson, nýskipaður aðstoðarseðla-
bankastjóri, og Svein Harald Øygard, nýr seðlabankastjóri, í pontu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Styrking krónunnar
mikilvægasta verkið
gjaldeyrishafta eða vaxtalækkan-
ir en ötullega væri unnið að þess-
um málum í samstarfi við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn.
Þá kvaðst Svein Harald hafa
sagt upp starfi sínu hjá ráðgjaf-
arfyrirtækinu McKinsey & Co frá
og með klukkan níu í gærmorgun
til að koma í veg fyrir hagsmuna-
árekstra. Launakjör sín kvað hann
ekki liggja fyrir, þau væru ákvörð-
uð af stjórnvöldum, en hann gerði
ráð fyrir að laun og fríðindi yrðu
sambærileg við þau sem fyrrum
formaður bankastjórnar Seðla-
bankans hafi haft.
FRÉTTASKÝRING
ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON
olikr@frettabladid.is
Efnahagsmál og fjármálakrepp-
an voru meðal þess sem Jens Stol-
tenberg, forsætisráðherra Noregs
og Svein Harald Øygard, nýráðinn
seðlabankastjóri, ræddu á óform-
legum fundi þeirra í Seðlabanka
Íslands laust fyrir hádegi í gær.
Stoltenberg er staddur hér á
landi á fundi norrænna forsætis-
ráðherra og notaði tækifærið til að
óska samlanda sínum góðs gengis í
starfi seðlabankastjóra hér. Svein
Harald kvað jafnframt ánægju-
lega tilviljun að fyrsti gesturinn til
hans í Seðlabankann í nýju emb-
ætti væri einmitt forsætisráðherra
Noregs.
Fyrir fundinn kíktu þeir stutt-
lega á myntsafn Seðlabankans og
fræddust um myntsöguna hjá Stef-
áni Jóhanni Stefánssyni, ritstjóra
í Seðlabankanum. Fundurinn stóð
í um klukkustund. - óká
SVEIN HARALD ØYGARD OG JENS STOLTENBERG Forsætisráðherra Noregs upplýsti að
hann þekkti samlanda sinn sem nýráðinn er seðlabankastjóri hér bæði frá háskóla-
árum þeirra og úr pólitísku starfi í Noregi á árum áður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Jens Stoltenberg var fyrstur til að heimsækja nýjan seðlabankastjóra í bankann:
Óskar landa sínum góðs gengis
Svein Harald Øygard er fæddur
árið 1960 og hlaut meistarapróf
í hagfræði frá Oslóarháskóla árið
1985, með þjóðhagfræði sem
aðalgrein. Hann var aðstoðarfjár-
málaráðherra Noregs 1990 til 1994.
Meðal ábyrgðarsviða hans voru
þjóðhagfræði, samþætting stefnu
í ríkisfjármálum og peningamála-
stefnu, löggjöf á fjármálasviði og
skattamálefni. „Hann leiddi meðal
annars endurskoðun skattalög-
gjafar í Noregi árið 1992 og sat í
starfshópi norsku ríkisstjórnarinnar
um hugsanleg efnahagsleg áhrif
inngöngu Noregs í Evrópusamband-
ið. Svein Harald tók þátt í vinnu
norskra stjórnvalda er þau tókust
á við banka- og
gjaldmiðilskrepp-
una þar í landi
árið 1992. Hann
sat í efnahagsráði
norska Verka-
mannaflokksins til
ársins 2000,“ segir
í tilkynningu. Áður
starfaði Svein Har-
ald í seðlabanka
Noregs, fjármálaráðuneytinu og á
norska Stórþinginu. Frá árinu 1995
hefur hann starfað fyrir ráðgjafar-
fyrirtækið McKinsey&Company víða
um heim og var framkvæmdastjóri
fyrirtækisins í Noregi frá 2005 til
2007.
SVEIN HARALD
ØYGARD
BAKGRUNNUR NÝJA SEÐLABANKASTJÓRANS
Samskipti starfsmanna við nýjan
seðlabankastjóra koma aðallega til
með að fara fram á ensku, nema í
þeim tilvikum þar sem starfsmenn
kjósa fremur að tjá sig á norsku eða
skandinavísku, enda talar Svein Har-
ald Øygard ekki íslensku. Þá verður
samkvæmt upplýsingum úr Seðla-
bankanum lögð meiri áhersla á að
hafa innri skýrslugerð og vinnuplögg
á ensku en verið hefur. Gögn sem
Seðlabankinn hefur birt á vef sínum
hafa alla jafna bæði verið á íslensku
og ensku og verður því vinnulagi
haldið áfram. Þá hafði vinna á
enskri tungu sjálfkrafa aukist innan
bankans með auknu samstarfi við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
VÆGI ENSKU AUKIÐ
„Enn er of snemmt að segja til um
breytingar,“ segir Arnór Sighvatsson,
nýskipaður aðstoðarseðlabanka-
stjóri. „Nýr maður tekur nú við stöðu
seðlabankastjóra og á eftir að funda
með starfsfólki og yfirmönnum
bankans og skýrist þetta tæpast
fyrr en hann er búinn að vera hér í
nokkra daga.“
Arnór segir sömuleiðis eiga eftir
að koma í ljós hvenær peninga-
stefnunefnd taki til starfa, en
samkvæmt nýjum lögum um
Seðlabankann fer hún með ákvörð-
unarvald um beitingu stjórntækja
bankans í peningamálum. „Hún
hefur ekki enn verið skipuð.“
Samkvæmt upplýsingum frá
forsætisráðuneytinu kemur forsætis-
ráðherra „innan tíðar“ til með að
skipa tvo sérfræðinga í nefndina,
en auk þeirra eiga í henni sæti
seðlabankastjóri, aðstoðarseðla-
bankastjóri og einn af yfirmönnum
Seðlabankans á sviði mótunar eða
stefnu í peningamálum.
BREYTINGARNAR SKÝRAST SÍÐAR